Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.2008, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Val Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
M
örgum brá í brún þegar hið
virta tímarit Time kaus
Vladimír Pútín mann árs-
ins 2007. Eins og tímaritið
minnir þó reglulega á, sér-
staklega eftir þá gagnrýni
sem það fékk fyrir að velja Ayatollah Kho-
meini mann ársins árið 1979 (valdi þó ekki
Osama bin Laden 2001) eru menn ársins ekki
valdir vegna mannkosta sinna heldur vegna
þeirra áhrifa sem þeir hafa haft á samtímann.
Stalín var þannig tvisvar valinn maður ársins.
Fyrst árið 1939, þá í skúrkshlutverkinu fyrir
að semja við Hitler og gera honum kleift að
ráðast á Pólland, en blaðið spáði því réttilega
að Georgíumaðurinn myndi að lokum hagnast
meira á stríðinu en Austurríkismaðurinn (Hit-
ler hafði verið maður ársins árið áður). En
skjótt skipast veður í lofti, og árið 1942 var
Stalín aftur á forsíðu tímaritsins sem maður
ársins, nú sem hetja eftir að herir hans höfðu
stöðvað framrás þýska hersins við Stalíngrad.
Stalín lenti ekki aftur á forsíðu Time, en
nokkrum árum síðar braust kalda stríðið út og
var Stalín þá aftur kominn í skúrkshlutverkið
í hugum flestra Vesturlandabúa, og hefur ver-
ið æ síðan. En hvaða skoðun hafa Rússar
sjálfir á þessum manni sem líklega mótaði
samfélag þeirra á 20. öld meira en nokkur
annar?
Sigurvegarinn mikli
Þegar Stalín lést árið 1953 var hann á hátindi
valda sinna, og einn valdamesti maður sem
sögur fara af. Yfirráð hans yfir Sovétríkj-
unum, sem voru um 1/6 hluti þurrlendis jarð-
ar, voru nær alger. Hann hafði farið með sigur
af hólmi í seinni heimsstyrjöldinni og herir
hans voru nú staðsettir í hjarta Evrópu, í
Varsjá og Prag og Búdapest og við ána Elbu
sem skar Þýskaland og álfuna í tvennt. Í Asíu
gætti áhrifa hans einnig, Maó hafði náð völd-
um í Kína, en hann var mikill aðdáandi Stalíns
og versnaði sambúð ríkjanna mikið eftir að
Stalín lést. Á Kóreuskaga höfðu bandamenn
hans náð að reka bandaríska herinn aftur að
38. breiddargráðu, og stefndi þar í blóðugt
jafntefli. Á aðeins 30 árum hafði honum tekist
að reisa Sovétríkin úr öskustó byltingarinnar,
iðnvæða þau og kjarnorkuvæða og gera að
öðru mesta stórveldi heims. Því er ekki að
undra að þegar Stalín var færður með viðhöfn
að hlið Leníns inn í grafhýsið á Rauða torginu
skyldu margir landa hans fella tár. En afrek
hans voru dýrkeypt og talið er að allt að 20
milljónir manna hafi látið lífið af hans völdum.
Krústsjov hafnar Stalín
Að Stalín látnum tók við valdabarátta um hver
yrði arftaki hans. Lavrenti Beria, yfirmaður
öryggislögreglunnar, virtist um tíma vera
með tögl og hagldir en var dæmdur fyrir land-
ráð og tekinn af lífi af keppinautum sínum.
Malenkov tók við en var steypt af stóli tveim-
ur árum síðar og loks fór svo að Nikita Krúst-
sjov varð aðalritari kommúnistaflokksins.
Krústsjov hafði verið einn af helstu skó-
sveinum Stalíns, hlýtt fyrirmælum hans í
hreinsun og stríði án þess að hika og jafnvel
látið það yfir sig ganga að leika dansandi
björn í drykkjuveislum leiðtogans. En þegar
hann var sjálfur kominn til valda kvað við ann-
an tón, og á 20. flokksþingi Kommúnista-
flokksins árið 1956 fór Krústsjov hörðum orð-
um um Stalín og persónudýrkun á honum.
Fregnir af ræðunni spurðust út til Vest-
urlanda og höfðu mikil áhrif á komm-
únistaflokka víðs vegar. Hér á Íslandi breytti
Sósíalistaflokkurinn um nafn þetta sama ár og
varð að Alþýðubandalagi. Flestir afneituðu
Stalín, sumir leituðu til Kína að nýjum fyr-
irmyndum en einn og einn á stangli var áfram
gallharður stalínisti til æviloka.
Í Sovétríkjunum sjálfum var talað um af-
stalíníseringu, styttur af leiðtoganum voru
teknar niður og lík hans flutt út úr grafhýsi
Leníns. Krústsjov hrósaði jafnvel bók Solzhe-
nitsyns, Dagur í lífi Ívan Denisovich, fyrir að
afhjúpa sum af grimmdarverkum Stalíns. En
árið 1964 þegar Krústsjov var settur af og
Breshnév tók við völdum var öll gagnrýni á
fortíð Sovétríkjanna skyndilega þögguð niður.
Eftir því sem efnahagur Sovétríkjanna staðn-
aði varð helsta réttlætingin fyrir völdum
Kommúnistaflokksins sú að hann hafði tryggt
sigur í stríðinu og æ glæsilegri minnisvarðar
voru reistir, svo sem sigurgarðurinn í
Moskvu. Því var ekki hægt að tala illa um leið-
toga landsins á stríðsárunum án þess að varpa
rýrð á kerfið allt.
Gorbatsjov opnar fyrir áhuga á Stalín
Með valdatöku Gorbatsjovs árið 1985 og glas-
nost-stefnunni var aftur opnað fyrir umræðu
um fortíðina, og seinni hluta árs 1987 var farið
að ræða um Stalínstímann í dagblöðum og
sjónvarpi. Meðal umræðuefna var hvernig
bændur voru þvingaðir á samyrkjubú eða til
að vinna í verksmiðjum, ógnarstjórnin á 4.
áratugnum, fólksflutningar, gyðingahatur og
hinir gríðarlegu ósigrar fyrstu mánuði inn-
rásar Þjóðverja árið 1941, sem voru að ein-
hverju leyti Stalín og hreinsunum hans að
kenna. Það merkilega við þessa sögulegu um-
ræðu var hvað hún náði til stórs hluta þjóð-
félagsins, hér var ekki aðeins um deilur ör-
fárra sagnfræðinga að ræða. Blöð sem
fjölluðu um Stalínstímann seldust í milljónum
eintaka. Gúlag eyjaklasi Solzhenitsyns var
loksins gefinn út árið 1989, og þegar blaðið
Novyi mir (sem hafði verið bannað árið 1970
en endurreist 1985) hóf að birta útdrætti úr
bókinni næstum tvöfaldaðist upplagið. Gríð-
arlegur lesþorsti greip um sig meðal þjóð-
arinnar, og var sagt að „það væri áhugaverð-
ara að lesa en lifa“. En þó hélt hin opinbera
söguskoðun, sem þakkaði Stalín að hafa
styrkt Rússland en minntist ekki á voðaverk
hans, enn velli meðal sumra.
Minningarnar spretta fram
Í fagtímaritinu Russian Politics and Law telur
sagnfræðingurinn Maria Feretti upp nokkrar
ástæður fyrir því hvers vegna Stalín skipaði
svona stóran sess í umræðunni á síðustu árum
Sovétríkjanna. Í fyrsta lagi var þetta liður í
valdabaráttu innan kommúnistaflokksins á
milli umbótasinna og harðlínumanna, sem
kepptust um að nota söguna í pólitískum til-
gangi. Í öðru lagi segir hún að þær minningar
sem fólk hafði geymt með sér hafi nú loksins
fengið tækifæri til að koma upp á yfirborðið.
Voru þetta ekki einungis minningar þeirra
sem höfðu lifað af hreinsanirnar á Stalínstím-
anum heldur einnig þeirra sem ólust upp und-
ir Krústsjov og mundu eftir þeirri umræðu
sem þá hafði farið af stað en síðan verið kæfð.
Margar bækur voru opinberlega gefnar út
sem höfðu verið skrifaðar í þíðunni en síðan
bannaðar. Í millitíðinni höfðu margar þeirra
þó gengið manna á milli. Feretti telur einmitt
ritskoðun Breshnévs-áranna hafa leitt til þess
að varðveisla minninga varð að mikilli ástríðu
hjá sumum.
Sovétríkjunum afneitað
Þessari endurskoðun á Stalínstímanum lauk
svo að mestu með hruni Sovétríkjanna. At-
hyglin beindist nú ekki lengur að Stalín, held-
ur að byltingunni sjálfri, en hún hafði verið yf-
ir allan vafa hafin á tímum Sovetríkjanna
undir jafnt Krústsjov og Breshnév sem Gor-
batsjov. Margir fóru nú að líta á stalínismann
sem rökrétt framhald af byltingunni, frekar
en sem svik við hana eins og umbótasinnaðir
kommúnistar vildu meina.
Farið var að vegsama keisaraveldið og átti
hið nýja Rússland að vera rökrétt framhald af
því. Undir lok tíunda áratugarins var komin
fram ný opinber söguskoðun á þessum nótum.
Áberandi dæmi um þetta dálæti Jeltsínáranna
á keisaratímanum var að hinn gamli fáni keis-
aratímans varð að þjóðfána Rússlands og tví-
höfða örn Rómanoff-ættarinnar varð að
skjaldarmerki ríkisins.
Stalín undir teppið
Litið var á Sovétríkin sem einhvers konar
undantekningu sem átti lítið skylt við hið eig-
inlega Rússland. Menn fóru jafnvel að líta á
kommúnismann sem erlent fyrirbæri og þjóð-
ernissinnar, rétt eins og í Þýskalandi á milli-
stríðsárunum, töluðu um hann sem sjúkdóm
sem gyðingar hefðu flutt inn frá útlöndum.
Byltingin varð valdarán fámenns minni-
hlutahóps sem rússneska þjóðin sem slík bar
enga ábyrgð á heldur var einungis í hlutverki
fórnarlambsins.
Á hinn bóginn var ljóst að hinar gríðarlegur
hreinsanir Stalíns hefðu ekki getað átt sér
stað án þess að milljónir manna hefðu tekið
þátt í þeim sem gerendur, en þetta var erfitt
að horfast í augu við. Eina lausnin á þessu
vandamáli var að sópa voðaverkum Stalíns
Skoðanir og endursko
Reuters
Stalín pússaður Táknræn mynd um endurreisn Jósefs Stalíns?
HVAÐA skoðun hafa Rússar á Jósef Stalín
sem líklega mótaði samfélag þeirra á 20. öld
meira en nokkur annar? Ýmislegt bendir til
þess að verið sé að endurreisa minningu Stal-
íns Rússlandi. Hér er sagan rifjuð upp og rýnt
í viðhorf samtímans til Stalíns.