Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.2008, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.2008, Síða 2
Reuters Hernaður Carme Chacón varnarmálaráðherra Spánar gerir liðskönnun. Kyn ráðherrans, staða, ólétta og aldur hefur valdið nokkrum usla í fjölmiðlum. Eftir Gunnar Hersvein gunnars@hi.is S kipun Carme Chacón í embætti varnarmálaráðherra Spánar hefur víða vakið athygli og hafa fréttaritarar helstu fréttaveita heims leitt marga staðbundna blaðamenn í gryfjur fordóma. Meginástæða athyglinnar virðist felast í undrun yfir kyni varnarmálaráðherrans, stöðu, óléttu og jafnvel aldri. Spænska valdakonan Carme Chacón stóð í kastljósi heimsfjölmiðlanna um miðbik aprílmánaðar þegar hún heiðraði spænska herinn með nærveru sinni og kannaði liðs- styrkinn. Ljósmyndin sem blasti við áhorf- endum hvarvetna í heiminum var á skjön við rótgróna hefð því það var ekki karl- maður í einkennisbúningi eða jakkafötum sem gerði liðskönnun heldur heiðruðu her- mennirnir með lúðrablæstri og rifflum: konu í hvítum óléttukjól enda þá komin sjö mánuði á leið. Hún sagði við þá: „Húrra Spánn! Húrra konungshjón!“ Fátt virtist þó fréttnæmt við þennan at- burð því varla telst það til tíðinda í her- væddri Evrópu að ráðherra geri liðskönnun. Ljósmyndin og myndskotið rataði þó víða og fréttaritarar þurftu að semja einhvern texta til að fylgja efninu eftir og svara spurningum eins og: „Hver er Carme Cha- cón og hvers vegna er hún varnarmálaráð- herra?“ Chacón hefur átt farsælan feril í námi, starfi og stjórnmálum. Hún er 37 ára göm- ul, doktor í lögum og hefur verið prófessor í stjórnlagafræðum. Hún var áður húsnæðis- málaráðherra í stjórn Jose Luis Zapateros og hefur gegnt öðrum mikilvægum emb- ættum. Chacón hóf afskipti af stjórnmálum fyrir átján árum og hefur átt góðu fylgi að fagna í Sósíalistaflokknum. Hún er meðal annars sögð eiga drjúgan þátt í sigrum flokksins í síðustu tvennum kosningum. Zapatero for- sætisráðherra sýnir bæði konum og körlum virðingu við skipun ráðherra og telur að jöfn skipan karla og kvenna sé bæði sjálf- sögð og heillavænleg fyrir þjóðina. Kyn var því ekki hindrun þegar hann valdi Chacón í ráðherrahópinn. Stríð og hermennska er hámark karl- mennskunnar: Hermaðurinn er sendur grár fyrir járnum út á vígvöllinn af öðrum körl- um sem beita þeim fyrir sig. Hermaðurinn á að stinga, skjóta óvininn, verja með því „föðurland“ sitt og hrópa: „Húrra Spánn! Húrra kóngur!“ Carme Chacón hefur ekki gegnt hermennsku en konum var áður meinað að ganga í spænska herinn. Svo virðist sem engin kona hafi enn öðlast her- foringjatign í spænska hernum og ætlar Chacón að kanna ástæður þess. Í stríði er skiptingin iðulega eftirfarandi: karlinn annars vegar og hins vegar: konur, börn, sjúklingar, fatlaðir og aldraðir. Þessi skipting viðheldur valdaójafnvægi og trygg- ir körlum þá stöðu að taka þýðingarmestu ákvarðanirnar. Staða og vald Chacón veldur því usla. Efasemdamenn geta spurt: „Getur manneskja sem nú er komin átta mánuði á leið tekið vitsmunalega, snögga og gæfuríka hernaðarákvörðun í nafni þjóðar sinnar? Hvað ákveður varnarmálaráðherra með hvítvoðung á brjósti?“ Og einnig: „Spænsk- ar konur eiga rétt á fjögurra mánaða fæð- ingarorlofi: getur Chacón leyft sér að fara í slíkt orlof? “ Áhugavert er að skoða fréttir í heims- pressunni um skipun Carme Chacón og einnig í Morgunblaðinu 14. apríl síðastlið- inn. Fréttirnar eiga það sammerkt að höf- undarnir geta ekki leynt undrun sinni og afturhaldssemi. Fyrirsögnin í Morg- unblaðinu er: „Ungstirni brýtur blað“ – og undirfyrirsögnin er: „Hin 37 ára Carme Chacón varnarmálaráðherra Spánar fyrst kvenna“. Lesandinn hlýtur að velta fyrir sér hvernig tæplega fertug kona geti verið ungstirni? „Skipun Chacón, sem er einstæð og ólétt að sínu fyrsta barni, kom mörgum í opna skjöldu,“ segir í greininni. Athyglisvert er að höfundur greinarinnar notar skjöld í lík- ingamáli sínu sem vísar til hernaðar. Aftur á móti er óljóst hvaðan höfundurinn hefur heimildir fyrir því að Chacón sé einstæð og ólétt að sínu fyrsta barni. Ef til vill hljómar það furðanlegra að vera einstæð og ólétt fremur en gift og ólétt? Chacón er í raun gift öðrum sósíalista – en hjúskaparstaða hennar á ekki að skipta neinu máli í þessu samhengi. „Þrátt fyrir ungan aldur hefur Chacón lengi haft afskipti af stjórnmálum,“ segir næst í greininni. Segja má að 37 ára gömul manneskja sé á mjög góðum aldri: hvorki ung né gömul. Hún nálgast það að teljast um miðbik ævi sinnar ef meðalaldur er 80 ár. Síst af öllu er hún ungstirni en líklega yngja greinarhöfundar Chacón til að draga úr trúverðugleika hennar. Nefna má að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var 37 ára gömul þegar hún varð menntamálaráðherra – var hún þá ungstirni? „Chacón bíður nú það vandasama hlut- verk að fara fyrir spænska heraflanum, sem telur alls um 79.000 manns, í einu af fjöl- mennustu aðildarríkjum Evrópusambands- ins,“ segir í greininni í Morgunblaðinu líkt og greinarhöfundur efist um að hún sé um það fær. Chacón hefur gefið út yfirlýsingar um stefnu sína í varnarmálum og felst hún meðal annars í því að styrkja samband hers og þjóðar og efla friðarhlutverk hersins víða um heim. Í spænsku ríkisstjórninni eiga nú sæti níu konur og átta karlar og í greininni stendur: „Þetta hlutfall er í takt við frjálslyndi Za- pateros …“ Athyglisvert er að nýr varn- armálaráðherra Spánar þurfi að glíma við það að í fjölmiðlum sé kyn, aldur og staða hans/hennar dregin í efa gagnvart embætt- inu. Ekki er það í takt við frjálslyndi fjöl- miðla. Afturhaldssemi fjölmiðla FJÖLMIÐLAR »Efasemdamenn geta spurt: „Getur manneskja sem nú er komin átta mánuði á leið tekið vitsmunalega, snögga og gæfuríka hern- aðarákvörðun í nafni þjóðar sinnar? Hvað ákveður varn- armálaráðherra með hvítvoð- ung á brjósti?“ TENGLAR ........................................................... Myndband: Carme Chacón gerir liðskönnun: http://www.youtube.com/ watch?v=S1BvBxrvhlI&feature=related 2 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is ! Fullur Lithái stal eitt sinn af mér símanum mínum, þar sem við sátum í ágætum félagsskap á kaffihúsi í Vilníus. Ég stóð hann að verki þegar hann var að reyna að troða símanum aftan í buxna- strenginn sinn, þar sem bíó- hetjur stinga oft skammbyssum, nema hann var svo drukkinn að hann hitti aldrei ofan í strenginn. Ég reif af honum símann og spurði hvers lags þetta væri eiginlega, en þá sagðist hann engan síma hafa tekið, ég sagði víst og allir báðu okk- ur vinsamlegast að einbeita okkur að sum- blinu. Ég sagði: Fyrirgefið, en mér finnst ótækt að þessi maður sitji áfram við hlið- ina á mér, eftir að hafa opnað töskuna mína og sótt þangað verðmæti. Það gerir ekkert til, sagði fólkið og manninum var leyft að sitja. Til að ljúka málinu hvíslaði vinkona mín, hún Sonata: Æi, kannski er hann bara fyrrverandi þjófur, sestur í helgan stein og gerir þetta af gömlum vana. Já, greyið, hugsaði ég, þjófar sakna starfa síns eins og aðrir og ekki nema eðli- legt. Skiptir máli í þessari frétt að maðurinn hafi verið Lithái? Það fer eftir því hvernig á það er litið. Ég var vissulega í Litháen og allir við borðið voru Litháar, utan ég og einn Ameríkani. Hefði verið meiri frétt ef Ameríkaninn hefði verið steliþjófurinn? Minni frétt eða meiri ef Íslendingur í Vil- níus hefði stolið síma? Hefði ég þá kannski ekki sagt frá því, til að koma ekki óorði á Íslendinga í útlöndum? Hér er til þess að taka að þetta er í eina skiptið sem ég hef staðið Litháa að óheið- arleika í minn garð, og held að þetta teljist ekki einu sinni með því maðurinn var svo ölvaður að hann vissi ekki hvað hann hét. Ég hitti reyndar marga drukkna menn í þessari ferð – það var mikill gleðskapur í menningarhúsunum sem mér voru sýnd – en hvergi var samt viðlíka vesen, slagsmál og formælingar og til dæmis í miðborg Reykjavíkur þegar drukknir mætast. Í Vilníus voru allir bara syngjandi kátir eða heimspekilega djúpir í innilega drafandi hexameter. Er það frétt? Eða a.m.k. nauð- synlegur bakgrunnur fréttar, til að varpa skímu á þjóðarsál og gestrisni? Spurningar þær sem fjölmiðlafólk glím- ir við snúast m.a. um það hvort aldrei, allt- af eða einungis í neyðartilvikum skuli til- greina þjóðerni þegar frétt er neikvæð. Og hvort það skuli alltaf gert þegar hún er já- kvæð, eða bara eftir hendinni. Það getur verið snúið að meta hvenær slík árétting hefur fréttagildi. Hvers vegna er ég þá að tilfæra dæmi um drukkinn Litháa sem reynir að stela síma? Kannski bara til að segja að Litháarnir sem ég þekki eru af tegund heiðarlegasta fólks, ég þekki fáa einlægari vini – og snillinga í að tækla vandamál lífsins, sem þó eru mun fleiri í þeirra heimi en mínum. Þess vegna kom flatt upp á mig að maður í slíkum hópi skyldi reyna að ræna mig. Það var frétt í mínum huga, ekki vegna þess að allir Litháar eru dílerar og mafíósar og viðbúið að þeir reyni svindl – heldur af gagn- stæðum sökum. Þess ber að geta að þetta litla atvik varð ári eða tveimur áður en hið svonefnda lík- fundarmál austur á fjörðum komst í há- mæli. Fram að því höfðu Litháar lítt verið í íslenskum fréttum og ég fékk því að kynnast þeim með hreint borð. Ég veit ekki hvort fólk á förnum vegi er enn í þeirri aðstöðu að geta myndað sér sjálf- stæða skoðun á Litháum, ef það hefur ekk- ert við að miða nema íslenskar fréttir. Hafa þær verið of neikvæðar? Hefur verið tilefni til? Hefði alltaf, stundum eða aldrei átt að þegja um þjóðernið? Hafa jákvæðu fréttirnar á móti ekkert að segja? Eru Litháar meira til vandræða erlendis en heima hjá sér? Er til eitt svar við öllum þessum spurningum? Nei. Best væri að fé- lagsfræðiþing og flugmiði til viðkomandi lands fylgdu átómatískt hverri frétt en það væri kannski soldið dýrt. Maður stelur síma Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýs- ingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.