Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.2008, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.2008, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2008 7 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen Hinar upprunalegu ofurst-jörnur sveitatónlistarinnar falla nú í valinn ein af annarri. Ekki er langt síðan Porter Wago- ner gaf upp öndina og nú hefur sjálfur Eddy Arnold snúið tám upp í loft en það gerðist í síðustu viku. Dánarstað- urinn var Nas- hville, nema hvað, og náði Arnold 89 ára aldri. Arnold er vinsælasti sveitatónlist- armaður allra tíma, sé tekið mið af Billboard- listanum, en fer- ill Arnold var langur og gifturíkur. Meðal slagara úr hans ranni má nefna „Make The World Go Away“, „I Want To Go With You“ og „Turn The World Around“. Alls komst hann 28 sinnum í fyrsta sæti kántrílistans og átti alls 92 lög á topp tíu listanum, og fóru lög þar inn óslitið 67 sinnum í röð. Árið 1948 voru lög með Arn- old í toppsæti kántrílistans út árið með einni undantekningu. Arnold var auk þessa glúrinn bisness- maður og var umsvifamikill í fast- eignabransanum. Breiðskífa núm- er 100, After All This Time, kom út árið 2005 undir merkjum RCA. Kona Arnold til 66 ára, Sally Gra- yhart Arnold, lést þá í mars síð- astliðnum.    Arcade Fire vinnur nú að kvik-myndatónlist. Um er að ræða næstu mynd leikstjórans Richard Kelly, sem er þekktastur fyrir myndina Donnie Darko en þar fer Jake Gyllenhall með aðal- hlutverkið. Myndin kallast The Box og verða Cameron Diaz og James Marsden í burðarrullunum. Samverkamaður Arcade Fire í þessu verkefni er Markus Dravs, sem hefur unnið með Brian Eno, Coldplay, Björk og Depeche Mode. Arcade Fire hefur nú hætt að túra Neon Bible, síðustu hljóð- versplötu sem út kom í mars á síðasta ári, en tónleikaferðalagið til kynningar á þeim merkisgrip var yfirgripsmikið. Ekkert hefur hins vegar heyrst um næstu hljóð- versplötu.    Skrítipopparinn eini og sanni,Beck, gefur út nýja plötu í sumar. Platan hefur enn ekki fengið heiti, en hún verður tíu laga, og það er sjálfur Danger Mouse sem vélar um. Platan kem- ur út á vegum Interscope í Bandaríkjunum en verður undir hatti XL Recor- dings annars staðar. Dagsetn- ing hvað útgáfu varðar er ekki komin og menn eiga allt eins von á því að platan komi út skyndilega, líkt og var með plötu Raconteurs, Consolers of the Lonely og plötu Radiohead, In Rainbows. Vanalega veltast plötur um í tvo, þrjá mánuði í formi kynningareintaka og þessar „skyndiútgáfur“ eru m.a. ætlaðar til að stemma stigu við ólöglegri dreifingu. Upplýsingar eru því af skornum skammti en líklegt er að Cat Power verði gestasöngvari í einu lagi. Beck gaf út eina smá- skífu í fyrra, „Time Bomb“ en síð- asta hljóðversplata er The Inform- ation, en hún kom út í hittifyrra. TÓNLIST Eddy Arnold Arcade Fire Beck Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Opnunarlag fimmtu hljóðversplötu Yes,Close the Edge … nei fyrirgef-iði … opnunarVERK. Nálægt nítjánmínútum. Samnefnt plötunni en skipt niður í kafla sem bera dularfull heiti eins og „The Solid Time of Change“ og „Total Mass Retain“. Verkið er opnað með flúruðum og flóknum gítarlínum Steve Howe, ögn djassaðar, það örlar jafnvel á nútímatónlist. Hann fer upp og niður skalana, sveigir sig og reigir til hægri og vinstri. Afstrakt trommu- og bassaleikur hefst og skyndilega er flæðið rofið með háum tenór söngvarans Jon Anderson. „Ahhhhhh“, segir hann. Var ég búinn að nefna að í blábyrj- uninni mátti heyra fuglasöng? Við erum komin langt, LANGT frá „She Loves You … Yeah Yeah Yeah …“. Árið 1972 var mikið proggár, framsækna rokk áttunda áratugarins (progressive rock en iðu- lega kallað prog) náði á margan hátt hæstu hæðum með feikisterkum plötum eins og Tri- logy með Emerson, Lake & Palmer (ELP), Thick As A Brick með Jethro Tull, Foxtrot með Genesis og Seventh Sojourn með Moody Blues. Close to the Edge var þá á margan hátt há- punktur Yes, sem jafnan er talin hin „algera“ proggsveit. Á næstu hljóðversplötu þar á eftir, Tales from Topographic Oceans, sem út kom 1973 (Já, innihaldið er fullkomlega í takt við uppskrúfaðan titillinn) voru proggararnir búnir að „sóla sjálfan sig“ eins og það er kallað í knattspyrnunni og leiðin lá fljótlega eftir það niður á við, ekki bara hjá Yes heldur hjá stefn- unni eins og hún lagði sig. Þrá rokkaranna eftir því að vera teknir alvarlega var orðin slík að gamanið var horfið – og „rokkið“ þá um leið. Eftir að pönkið kom fram þurftu progghundar að læðast með veggjum, lúpulegir skiluðu þeir margir plötunum sínum og sjálfur pikkaði ég upp megnið af plötum Genesis, Pink Floyd, ELP og Jethro Tull fyrir nokkra hundraðkalla í Safnarabúðinni (blessuð sé minning hennar). Upp úr ’90 fór svo fram nokkurs konar endur- skoðun, aukið aðgengi að alls kyns tónlist og endurútgáfa samfara því gerði að verkum að nú var í lagi að viðurkenna að maður „fílaði“ Yes. Þó að flestir gerðu það enn með herkjum. Close to the Edge er sannarlega hátimbruð plata, jafnvel tilgerðarleg á köflum en samt …þrátt fyrir flugeldasýninguna eru með- limir enn jarðtengdir (ef það er hægt að nota þá lýsingu yfir sveimhugann Anderson og félaga hans), auðheyrilega einbeittir í því að búa til eins flotta, eins tilkomumikla tónlist og mögu- legt er. Svo einfalt var það, þó að allt virðist mun flóknara á yfirborðinu. Boginn er vissulega spenntur en hreinn og ástríðubundinn metn- aðurinn hafði ekki enn vikið fyrir sjálfhverfu og sjálfumgleði. Tónlistin var því langt í frá „brothætt“ eða „fragile“, samanber heiti plötunnar sem kom út á undan. Hún var reyndar komin eins langt frá því og hugsast getur; var orðin stór og sterk og sjálfsöryggi (sumra) meðlima nú í algjörum botni þó að þeir væru óneitanlega komnir ansi „nálægt nöfinni“. Þannig hætti trymbillinn Bill Bruford þegar upptökum lauk, orðinn hundleið- ur á andans manninum Anderson og óskiljan- legum, tyrfnum textunum. Restin af sveitinni hélt ótrauð áfram, Alan White var ráðinn á sett- ið, en auk hans, Howe, og Anderson skipuðu nú þeir Chris Squire bassaleikari og hinn skikkju- klæddi hljómborðsleikari Rick Wakeman sveit- ina. Þessi liðsskipan sendi svo frá sér þreföldu tónleikaplötuna Yesssongs árið eftir. Kaflar og lagalengd var orðin slík um þetta leyti að Wa- keman pantaði sér eitt sinn indverskan mat í miðju lagi þegar hann hafði lítið að gera vegna einleikskafla hinna, og faldi hann á milli allra þeirra tuga hljómborða sem hann hafði til um- ráða. Maturinn var svo búinn þegar til hans kasta kom á nýjan leik. Proggið yfirdifið? Nei, var það … Stærra … ennþá stærra POPPKLASSÍK Eftir Atla Bollason bollason@gmail.com Þ að bar fyrst á Þeim litlu þegar þröngskífan Sing Song kom út hjá fyrirtækinu Astralwerks haustið 2006. Hljómsveitin hafði áður gefið skífuna út á eigin spýtur um vorið, en vel heppnaðir tónleikar og vel staðsett eintök tryggðu henni pláss við hlið Chemi- cal Brothers, Primal Scream og Basement Jaxx hjá Astralwerks, sem er í eigu EMI. Umslag skíf- unnar minnir mjög á umslag Chutes Too Narrow með The Shins (2003), og það lætur einnig nokkuð uppi um innihaldið. The Little Ones hefur oft verið líkt við Shins og það er ekki skrítið – hljóðheim- urinn er svipaður, enda sækja báðar sveitirnar í áhrifavalda á borð við Beach Boys og Zombies (hlustið sérstaklega eftir mellótroninu). Skífan gekk vel, hlaut fína dóma og vakti nokkra athygli. Alltént kom hún út í Evrópu í febrúar ári síðar og gerði sveitinni kleift að ferðast víða í von um að kynna tónlistina fleirum, t.d. slóst hún í för með Kaiser Chiefs um Bretland seint á síðasta ári. Og það verður að segjast eins og er að lög eins og „Cha Cha Cha“ eiga svo sannarlega skilið að heyr- ast víðar – gleðin er ótrúleg og lagið gæti eflaust bundið enda á eina eða tvær styrjaldir ef það fengi að óma á vígvellinum. Með brosið álímt En velgengni Sing Song var afrakstur heilmikillar vinnu, allavega tveggja ára spilamennsku og æf- inga. Þar á undan höfðu gítarleikararnir verið saman í hljómsveitinni Sunday’s Best og gefið út plötu með þeirri sveit sem flaug tíðindalaust fram hjá flestum. Edward Reyes leiðir sveitina, er helsti lagasmiðurinn og söngvarinn, en honum til full- tingis er bróðir hans Brian Reyes (nafnið Brian og bræðratengingin hringir vissulega bjöllum) sem leikur á bassa og hljómborð – en hann deilir raun- ar báðum hljóðfærunum með Lee LaDouceur. Þá eru ótaldir gítarleikarinn Ian Moreno og tromm- arinn David Esau, en hann leysti Greg Meyer af sem baðst lausnar eftir að Sing Song var út komin. Og nú tekur harkið kannski við á ný: Fyrsta plata The Little Ones í fullri lengd átti að koma út í síðasta mánuði en hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma þar sem sveitinni hefur verið sagt upp hjá Astralwerks/EMI. Fyrir vikið er ný þröngskífa, Terry Tales and Fallen Gates gefin út á merki sem sveitin á sjálf, Branches Recording, þótt samningur sveitarinnar í Evrópu standi enn. Terry Tales and Fallen Gates er svipuð og fyr- irrennarinn þótt hljómurinn sé nokkuð annar. Hljóðrými er allt miklu meira, hljómurinn er líf- legri, kannski meira gamaldags, en undirritaður er ekki alveg viss um að lögin séu jafngóð og á fyrri skífunni. Vissulega er nóg af spennandi lögum, en þau límast ekki jafnfast við heilann og hin og sólin er ekki jafnsterk (eða er hún of sterk?). Það er þó engin ástæða til að kvíða því að Þeim litlu sé farið að förlast; nýlega sótti ég tónleika með hljómsveit- inni og þar stóð óútgefið lag af væntanlegri plötu (sem hefur hlotið nafnið Morning Tide) upp úr á þó gríðarlega vel heppnuðum tónleikum. Á sviði miðl- ar hljómsveitin gleðinni nefnilega tilfinnanlega, enda meðlimir allir með brosið kirfilega límt á sig. Samkvæmt þeirra eigin speki hlýtur músíkin þá að virka. Kemur það fólki til að brosa? Losangelíska poppsveitin The Little Ones er ung; eftir hana liggja ekki nema tvær stuttskífur – alls þrettán lög – en þau eru öll bráðskemmti- leg og einstaklega sumarleg. Fótum er stappað, höndum klappað, drengirnir fimm leggja söng- línur hverja ofan á aðra og það er næstum eins og skýin gufi upp þegar þeir hefja leikinn. Sjálfir segja meðlimirnir að mælikvarðinn á gæði lags sé aðeins einn: Kemur það fólki til að brosa? Líflegir „The Little Ones hefur oft verið líkt við Shins og það er ekki skrítið – hljóðheimurinn er svip- aður, enda sækja báðar sveitirnar í áhrifavalda á borð við Beach Boys og Zombies ...“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.