Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.2008, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.2008, Page 2
Eftir Sigtrygg Magnason naiv@internet.is H efðbundnir fjölmiðlar segja okkur frá spunatilburðum pólitíkusa 20 árum síðar eins og kom berlega í ljós í ágætum þáttum Ingólfs Bjarna Sigfússonar um leiðtogafundinn í Reykjavík fyrir ekki svo löngu. Þar lýstu menn því hvernig spunnið var í kringum aðalatriðið þannig að fjöl- miðlar sáu bara einhver leiktjöld sem engu máli skiptu. Pólitíkusar og hagsmunaaðilar líta enda á fréttastofur sem tæki til að koma sínum boðskap á framfæri og skiptir þá engu hvort hann er réttur eða ekki. Í krafti hlutleysiskröfunnar eiga þeir að fá tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum inn í fréttirnar. Gott dæmi um hvernig stjórnmálamenn líta á þennan leikvöll er pirringur stjórn- arliða út í fréttastofu Stöðvar 2 fyrir að minna á kosningaloforð um afnám eft- irlaunafrumvarpsins. Þeir telja það ekki hlutverk fréttastofunnar að minna á kosn- ingaloforð; fréttastofur eiga að segja fréttir, segja þeir og halda áfram að pirrast. Fréttaumhverfið er að breytast og það breytist hratt. Það fyrirkomulag að hafa einn stóran fréttatíma á dag, eina útgáfu á dag er ekki í takt við þann hraða sem ríkir samfélögum nútímans. Það var mikil bylting þegar maður heyrði slagorðið sem Sky- sjónvarpsstöðin notaði fyrir mörgum árum: „On the hour, every hour“. Eftir að netið hóf innreið sína í tölvur og síma allra lands- manna er slagorðið hálfgerður brandari. Það er í fréttatímanum sem baráttan um samtímann er háð. Það er í fréttatímunum sem Björn Lomborg og félagar í efasemd- arkirkjunni koma sínum áróðri á framfæri. Það er vegna hlutleysiskröfunnar að stór hluti samfélagsins kemst upp með að trúa því – í trássi við nánast alla málsmetandi vísindamenn í heiminum – að gróðurhúsa- áhrifin séu kenning en ekki staðreynd. Lögreglan hefur leikið stórt hlutverk í fjölmiðlum síðustu misserin. Löggan hefur lengi verið miðlæg í um- ræðunni um miðbæinn. Í miðbænum hefur fólk safnast saman til að drekka og reykja og skemmta sér. Síðasta árið hefur fólk þurft að draga veigarnar með sér út fyrir dyrastaf kráanna til að híma reykjandi á gangstéttarbrúnum. Þetta ýtti, eins og við munum, undir þvag- lát á almannafæri, nokkuð sem hafði lengi flokkast undir skort á mannasiðum og virð- ingu frekar en lögbrot. Það hefur í nokkur ár ríkt almenn frústrasjón varðandi skipulagsmál í mið- borg Reykjavíkur. Sú frústrasjón sprakk endanlega út í móðursýki þegar lögreglan fór á vettvang til að kæra menn fyrir að pissa á almannafæri. Lögregluyfirvöld hafa boðað stefnu sem rímar við stefnu Guilianis sem á sínum tíma sem borgarstjóri New York breytti borginni með áherslu sinni á „hið góða líf“. Engin miskunn var sýnd við smákrimmana. Ungt fólk var hirt fyrir minnstu brot og látið taka ábyrgð á fyrstu brotum sínum. Þannig breytti Rudolph Guiliani borginni. En hvernig skyldi hafa farið fyrir blessuðum tilraunadýrunum, unga fólkinu sem var skellt í fangelsi eða látið borga háar sektir fyrir fyrstu brotin? Þegar stjórnmálamenn byrja að tala mikið um gildismat og „hið góða líf“ er hræsnin alltaf nærri. Með „zero-tolerance“-bænina á vörunum hafa lögregluyfirvöld farið um miðbæinn og sektað fólk fyrir þvaglát, hamast í vörubíl- stjórum og farið fram á að fá rafbyssur til að berjast við bófa og ræningja. Rafbyssurnar segir lögreglan vera nauð- synlegt varnartæki fyrir löggur þessa lands en í sama orðinu eru þær algjörlega hættu- lausar. Það er auðvitað vandamál þegar lög- reglumenn eru orðnir hræddir á götunum. Ef þeir upplifa sig vanmáttuga gagnvart viðfangsefninu. Og eins og við vitum úr dýralífsmyndum þá er hrætt dýr hættu- legra en önnur dýr af því það gerir hvað sem er til að halda lífi, dýrið er í aðstæðum þar sem það sem hefur engu að tapa og allt að vinna. Unglingur í Fossvoginum var sem betur fer með símann sinn úti í 10-11 um daginn. Með símanum sínum og Youtube.com náði hann að afhjúpa ótrúlegt ofbeldi lögreglu- manns gegn unglingi sem hann taldi hafa stolið úr búðinni. Með orðin „Guiliani, þú sem ert á himnum … Zero-tolerance“ réðst hann að unglingnum á ameríska vísu. Án myndbandsins úr símanum á Youtube.com væri þessi unglingur í vondum málum. Frá- sagnir og vitnisburður unglinga mega sín nefnilega lítils gegn velydduðum frétta- tilkynningum lögreglunnar sem streyma inn á fréttastofurnar. Myndbandið er gott dæmi um hvernig hinar raunverulegu fréttir eru að færast beint yfir á netið, á Youtube.com og hin fjölmörgu blogg, sem veita oft meiri innsýn í atburði líðandi stundar en samansafn allra fréttatímanna. Í framtíðinni er það netið sem verður mikilvægasti þáttur í miðlun sannleika og sjónarmiða. Og framtíðin er byrjuð. Að lok- um langar mig að rifja upp orð úr þeirri stórgóðu mynd V for Vendetta eftir þá Wachowski-bræður: Fólkið ætti ekki að ótt- ast yfirvöld. Yfirvöld ættu að óttast fólkið. Netið mun gjöra yður frjálsa » Án myndbandsins úr sím- anum á Youtube.com væri þessi unglingur í vondum málum. Frásagnir og vitn- isburður unglinga mega sín nefnilega lítils gegn velydd- uðum fréttatilkynningum lögreglunnar sem streyma inn á fréttastofurnar. FJÖLMIÐLAR Raunverulegar fréttir „Myndbandið er gott dæmi um hvernig hinar raunverulegu fréttir eru að færast beint yfir á netið, á Youtube.com og hin fjölmörgu blogg, sem veita oft meiri innsýn í atburði líðandi stundar en samansafn allra fréttatímanna.“ 2 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is ! Það er fallegt, en stundum furðulegt, að finna snertipunkt með fólki sem maður hélt að maður ætti ekkert sameiginlegt með. Allir verða fyrir þessu, að villast inn í misjafna markhópa, eins og það heitir, sem út á við virðast einsleitir en eru það alls ekki. Að flokka fólk eftir hegðun og áhugasviðum er m.a. viðfangsefni fé- lagsfræðinga og auglýsenda og áreið- anlega oft til gagns. En ekki endilega alltaf. Ég horfi gjarnan á fótbolta, en finnst ég oft mis-lagt (e. displaced) stak í því mengi. Mig skortir svo margt sem erki- týpa fótboltabullunnar hefur. Ég er ekki karlmaður. Mér finnst bjór vondur. Ég hef lítinn áhuga á bílum. Ég hef illan bif- ur á skyndibita. Ég kaupi ekki liðstrefla. Ég á ekki leikjatölvu. Og hálfnaktir kven- líkamar gera lítið fyrir mig. Samt skemmti ég mér jafn hraustlega og hver annar yfir boltanum, öskra á leikmenn, spái í innáskiptingar og fylgi mínum mönnum fram í rauðan dauðann. Eitt lið á Íslandi, eitt í enska boltanum, eitt á Spáni, eitt á heimsvísu. Og maður svíkur ekki sína menn. Framangreind erkitýpa bullunnar er ekki minn tilbúningur. Hún er það sem lesa má út úr auglýsingum á leikvöngum og í sjónvarpi í kringum útsendingar, alla jafna, að ógleymdum kostunaraðilum. Þegar leikir í Meistaradeild Evrópu hóf- ust til dæmis í vetur, blöstu við tvö skilti hvorum megin miðlínu: Heineken og Pla- yStation. Ég nota hvorugt. Ég þarf hvor- ugt. Snillingar hafa hins vegar reiknað út að markhópar bjórframleiðenda og tölvu- leikjahöfunda skarist svo rækilega við áhorfendur knattspyrnuleikja að það borgi sig að eyða fé í að bakka upp stór- mót, gegn viðrun vörumerkjanna. Gott og vel. Mér er svo sem sama. En ó-líkindin eru ekki síðri á persónu- legu plani. Á sportbar á Spáni um daginn brenndist í vitund mína orðbragð manna sem voru breskir og ölvaðir undir leik Chelsea og Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Eftir að annar kom af klósettinu hrópaði hinn, orðrétt: “You missed a f***ing penalty, man, f***ing Ballack fell and they f***ing sco- red. You know Lampard’s mum just died? And now he f***ing scored a f***ing goal! Ég bið lesendur að afsaka orðbragðið. Ég stóð innan um sveitta kallana og horfði á leikinn því ég var ekki með rás heima hjá mér sem sýndi hann. En þegar formælingarnar, hrópin og búkhljóðin náðu hámarki hlaut ég samt að hugsa: Þetta eru ekki mínir menn. Svipað henti þegar ég skoðaði brot úr úrslitaleik sömu keppni á kvikmynd.is. Þar kommenteraði einhver að nafni Tóti á leiklýsinguna, stafrétt: „fkn rússi að öskra sjitt hvað þetta er ógeðslegt tungu- mál“. Afsaka aftur orðbragð. Mér finnst óþægilegt til þess að vita að ég deili áhugamáli með þessum Tóta, því ég get ekki séð að ég deili með honum neinu öðru; lífsskoðunum, sam- skiptavenjum, smekk. Ég vil ekki vera spyrt við bullur, síst af öllu þær sem iðka rasisma eða hroka, og spyr mig þess vegna hvort markaðsdeildir bjórfyr- irtækja og bílaframleiðenda byggi kannski herferðir sínar á gamalli mýtu. Getur verið að gera þurfi nýjar rann- sóknir á því hverjir fylgist með fótbolta, nú þegar útbreiðsla hans hefur aukist og teygst um allar jarðir? Þarf ekki að fara að taka fleiri menningarsvæði með í reikninginn, kyngervi, aldur? Ætlar Ár- vakur ekkert að fara að kosta efstu deild- ina eða Neon-klúbbur Bjarts að auglýsa í hálfleik? Hvar eru Samtökin ’78? Vero Moda? Tate Modern? One Little Indian? Hver segir að maður geti ekki verið grænmetisæta eða ráðherra eða heim- spekingur og haldið með Man. Utd? Mínir menn Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýs- ingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.