Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.2008, Qupperneq 4
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
B
ara að við fáum borgað!“
hrópar Sammi, oftast
kenndur við Jagúar, að
Jónsa, söngvara og gítar-
leikara Sigur Rósar. „Það
skiptir engu hvort við
komumst út eða ekki. I’m
only in it for the money,“
segir hann og hlær. Jónsi tekur undir spaugið
og samþykkir kankvíslega allt það sem Sammi
hefur að segja.
Það er slegið á létta strengi á öðrum degi æf-
inga fyrir komandi túr sem hefst nú eftir
helgina. Á mánudaginn flýgur Sigur Rós út,
ásamt samstarfssveit sinni amiinu, blásturs-
sveitinni Brassgati í bala sem er leidd af áður-
nefndum Samma og fjölda aðstoðarmanna.
Fyrstu tónleikarnir verða í Mexíkó á fimmtu-
daginn en sveitin er þéttbókuð út sumarið á
tónleikahátíðir um heim allan.
„Við vorum reyndar að spá í að kalla okkur
The Dirty Brasstards á tímabili,“ segir Sammi
við blaðamann. Sammi, eða Samúel J. Sam-
úelsson, hefur unnið lengi með Sigur Rós og tók
meðal annars þátt í Ágætis byrjun, plötunni
sem kom út árið 1999 og setti allt á annan end-
ann hér á landi. Svipað „æði“ rann á útlendar
þjóðir ári síðar og platan rann út - fyrst og síð-
ast vegna þess að tónlistin var einfaldlega svo
stórkostleg. Enginn átti minnsta möguleika á
því að spá fyrir um þetta ótrúlega gengi en Ás-
mundur Jónsson framkvæmdastjóri Smekk-
leysu, sem var útgefandi að þeirri plötu, var að
vonast til að ná að selja 1.500 eintök. Seld ein-
tök í dag eru vel yfir 500.000.
Furður
Sigur Rós leigði sér húsnæði í miðbæ Reykja-
víkur undir æfingarnar, allstórt, og blaðamaður
hefur eiginlega sjaldan séð annað eins af græj-
um samankomnum á einum stað. Gítarar, bass-
ar og hljómborð fylla sviðið og þar verður bók-
staflega ekki þverfótað fyrir bjögunargræjum,
gítarfetlum og snúrum, snúrum, snúrum. Þær
liggja út um allan sal reyndar ásamt boxum,
kössum og mögnurum. Blásturs- og strengja-
hljóðfæri fylla svo upp í það litla rými sem eftir
er. Út um allan sal, baksviðs, frammi á gangi og
í hinum ýmsu herbergjum eru menn, nærfellt
allir útlenskir, að vinna. Þöglir. Kjöltutölvur
eru víða og við borð í anddyri húsins eru tveir
Bretar uppteknir við að pikka inn á tölvur, sam-
fara því sem þeir snæða samlokur. Tíminn er
naumur og Helgi Hrafn Jónsson, einn básúnu-
leikaranna, tjáir mér að gærdagurinn hafi að
mestu farið í að setja upp græjur og stilla.
Þetta er ólíkt því sem áður var og maður get-
ur ekki annað en stoppað við og furðað sig á því
hversu mikið fyrirtæki þetta er orðið. Í blábyrj-
un ferilsins fóru Sigur Rósarliðar einhverju
sinni til Danmerkur, einir síns liðs, og spiluðu á
bryggju fyrir fuglana og fiskana því engir voru
áhorfendurnir. Í dag er allur heimurinn undir
og tónleikahaldarar keppast við að bóka sveit-
ina á hátíðir.
Að ýmsu þarf að huga fyrir ferðalag um
heiminn og þegar blaðamaður rekur inn nefið
um kaffileytið er Jónsi sá eini úr sveitinni sem
er á staðnum. Allir hinir eru uppi í bandaríska
sendiráðinu að redda sér vegabréfsáritunum.
„Þú afsakar Arnar,“ segir Kjartan hljóm-
borðsleikari þegar hann kemur úr þeim erind-
um. „Svona er þetta, nú færðu stressið og pirr-
inginn sem fylgir svona æfingum beint í æð! Er
það ekki það sem þú ert að slægjast eftir?“
Stressi og óðagoti var þó naumt skammtað
þennan dag. Þvert á móti virtist allt vera kirfi-
lega á hreinu, vanir menn í hverju horni, stein-
þegjandi skrúfandi einhverjar skrúfur, snúandi
einhverjum tökkum og dragandi sleða upp og
niður.
Skipið tilbúið … förum
Já, fólk á eftir að verða hissa „Ef satt skal segja er ekki hægt að líkja þessu lagi, „Gobbledigook“, við neitt það sem Sigur Rós hefur gert áður.“
Þekktasta hljómsveit Íslandssögunnar og sú
söluhæsta, Sigur Rós, henti í nýja breiðskífu
á örskotstund miðað við venjuna á þeim bæn-
um. Platan kemur út 23. júní næstkomandi og
á eftir að koma fólki í opna skjöldu ef að lík-
um lætur. Vegferð Sigur Rósar í gegnum ár-
in, sem fær menn stundum til að klóra sér í
hausnum, verður enda rakin til hinnar ein-
földustu lífsspeki: Að standa með sér og
fylgja hugsjónum, umbúða- og málamiðl-
unarlaust. Lesbók leit inn á æfingu hjá sveit-
inni vegna bráðkomandi tónleikaferðalags
um heiminn, fylgdist með framvindunni og
ræddi við Georg Holm bassaleikara.
» „En hérna … það
var ýmislegt látið
flakka, nokkuð sem
við hefðum ekki gert
hérna áður fyrr.
Þannig að þetta er
spurning um ákveðið
„attitude“, það er
ákveðinn blær yfir
plötunni sem gerir
hana meira upplífg-
andi en áður hefur
verið. Lögin eru
hraðari og meiri há-
vaði í gangi.“Gítarrokk Nýja platan er gítarrokk, og oftar er skipt um grip en nokkru sinni áður!
4 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók