Morgunblaðið - 07.01.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.01.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 6. TBL. 96. ÁRG. MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is Óperuperlur >> 29 Komdu í Óperuna Leikhúsin í landinu ERTU LIFANDI? Á SPÍTALA FYRSTU ÁRIN OG EKKI HUG- AÐ LÍF. BÖRNIN URÐU SAMT SJÖ >> 14 FRÉTTASKÝRING Eftir Skapta Hallgrímsson og Kristján Jónsson NIÐURSTÖÐUR nýrrar rannsókn- ar vísindamanna við Duke-háskóla í Bandaríkjunum benda til þess að þótt almennt hafi orðið hlýnun á yf- irborði sjávar á Norður-Atlantshafi á árunum 1950 til 2000 sé ekki um að ræða einhlíta þróun. Svæðið á milli 45. breiddarbaugs norður að heim- skautsbaug kólnaði á þessum tíma en svæði sunnar í N-Atlantshafinu hitnuðu og vísindamenn telja áhrif vinds á hitastig hafsins meiri en þau sem hlýnun jarðar hefur. Skýrt er frá rannsókninni í Science Express, vefriti vísinda- tímaritsins Science. Þór Jakobsson veðurfræðingur segir niðurstöðurn- ar mjög áhugaverðar fyrir Íslend- inga. Vísindamennirnir rannsökuðu gögn sem safnað hefur verið saman frá miðri síðustu öld af virtum stofn- unum vestan hafs og austan, stór- merkileg gögn að sögn Þórs. Þeir segja að mun á hitastigi sjávar á svæðunum tveimur, norðan og sunn- an við 45. breiddarbaug, megi að miklu leyti skýra með áhrifum reglulegra, náttúrulegra vind- sveiflna en til er sérstök vísitala; Norðaustursveiflan (NAO), um þann þrýstingsmun sem er milli svæða í grennd við Ísland og í grennd við Azoreyjar hins vegar og hvernig sá þrýstingur sveiflast til og frá. Azo- reyjar liggja nálægt 45. breiddar- baug. „Vindarnir hafa geysileg áhrif á hafið undir þeim,“ segir Susan Lo- zier, prófessor í haffræðilegri eðlis- fræði við Nicholas-deild umhverfis- og jarðvísinda við Duke-háskólann en hún stýrði rannsókninni. Í greininni í Science Express er vitnað í aðrar rannsóknir þar sem sagt er að loftslagshlýnun af manna völdum hafi áhrif á hlýnun hafsins að undanförnu. En Lozier og aðstoð- armenn hennar segja að gögnin sem þau hafi rannsakað styðji ekki þær tilgátur varðandi Norður-Atlants- hafið. „Þetta eru forvitnilegar nið- urstöður,“ sagði Þór Jakobsson í samtali við Morgunblaðið. Hann segir ekki verið að spyrna fótum við öllu hlýnunartalinu en hins vegar bent á að náttúrulegar sveiflur í loft- hjúpi séu áhrifameiri þegar til kast- anna kemur en hlýnunin, þegar leit- að er ástæðna fyrir breytingum á hitastigi sjávar. Nærtækt dæmi um áðurnefndar sveiflur er hve veðrið hefur verið óvenjulegt við Ísland í vetur. Lægðir hafi verið mun fleiri en í meðalári, þær myndast tiltölulega langt suður í höfum, geysast hingað norður eftir og afleiðingin er t.d. það mikla hvassviðri sem valdið hefur vand- ræðum með flug til og frá Keflavík. Þór Jakobsson telur að Íslending- ar þurfi að rannsaka þetta atriði sjálfir: „Stjórnvöld þyrftu að stór- efla veðurfræðirannsóknir við Há- skólann eða Veðurstofuna og sér- staklega þá séríslensk verkefni; ekki að eyða allt of mikilli orku í það há- pólitíska verkefni sem hlýnunin er.“ Mikil áhrif vinds á hitastig sjávar  Vindsveiflur sagðar hafa meiri áhrif en hlýnun jarðar á sjávarhita  „Stórefla þarf veðurfarsrannsóknir“ Morgunblaðið/RAX Þrýstingur Vindur hefur meiri áhrif en hlýnun jarðar á hitastig hafsins. ÞRETTÁNDI dagur jóla var í gær og voru þau og síðasti jólasveinninn kvödd með brennum og álfagleði. Drengurinn, sem kúrir hér við öxl föður síns í Gufunesi, virtist þó hafa áhuga á öðru en ljósadýrðinni á himni. Morgunblaðið/Kristinn Ljósadýrð í Gufunesi Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is ÓLAFUR F. Magnússon, borg- arfulltrúi F-listans og forseti borgar- stjórnar, vill vernda nítjándu aldar götumynd Laugavegar og leggst gegn því að húsin á Laugavegi 4 og 6 verði rifin eða flutt annað. Segist hann hafa beitt sér af þunga fyrir þessu máli innan meirihlutans og vonast til að hægt verði að bjarga húsunum. Ólafur F. Magnússon rifjar það upp að hann hafi í byrjun árs 2005 vakið umræður um friðun húsa við neðanverðan Laugaveg með fyrir- spurn í borgarráði og síðan með til- lögum í borgarstjórn. Vonast hann til þess að umræðan hafi orðið til að breyta almenningsálitinu. Hann segir að húsin við Laugaveg 2 til 6 séu frá 19. öld og myndi einstaka húsaröð sem beri að varðveita. Fellur ekki að götumyndinni Leggur hann á það áherslu að húsin verði varðveitt í sem uppruna- legastri mynd og á sínum uppruna- lega stað og gert til góða frá því sem nú er. Þessi menningarsaga megi ekki glatast og því leggist hann gegn því að húsin við Laugaveg 4 og 6 verði rifin eða flutt annað. Telur hann að þriggja hæða hótelbygging- ar í þeirra stað, eins og eigandi húsanna hefur fengið leyfi til að byggja, falli ekki að þessari götu- mynd. „Eftir að ég kom aftur til starfa í borgarstjórn fyrir um mánuði hef ég beitt mér af þunga innan meirihlut- ans í þessu máli. Ég hef lagt mikla áherslu á að reynt verði að bjarga þessum húsum og geri mér enn von- ir um að það takist,“ segir Ólafur. F-listinn lagði áherslu á verndun götumyndarinnar fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Ólafur segist hafa unnið að málinu án þess að vera með á vörum hótanir um slit á meirihluta, þegar hann er spurður að því hvort hann gerði málið að úr- slitaatriði. Málið er í mikilli gerjun þessa dagana og á viðkvæmu stigi, að sögn Ólafs. Hann kvaðst í gær ekki geta svarað því hvort teknar yrðu upp viðræður við núverandi eigendur húsanna nr. 4 og 6 við Laugaveg um kaup Reykjavíkurborgar á þeim eða hvað hann væri tilbúinn að leggja mikla fjármuni í þau. „Ég kom um- ræðunni um verndun gamallar götu- myndar Laugavegarins á flot á sín- um tíma og hyggst fylgja því eftir.“ Beitir sér innan borgarmeirihlutans Í HNOTSKURN »Eigendur húsanna á Lauga-vegi 4 til 6 hafa lengi haft öll tilskilin leyfi til að rífa húsin en þar hyggjast þeir koma upp hóteli. »Þegar að niðurrifi húsannakom nú fyrir helgina beitti borgarstjóri sér fyrir sam- komulagi um að því yrði frestað um hálfan mánuð. Tímann hyggst borgin nota til að flytja þau af lóð- inni og gera upp á öðrum stað. Morgunblaðið/Frikki Frestur Hefja átti niðurrif við Laugaveg fyrir helgi en því var frestað. Ólafur F. Magnússon á móti flutningi húsanna af Laugavegi Ólafur F. Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.