Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 35
Krossgáta
Lárétt | 1 fen, 4 þref, 7
dunda, 8 málgefin, 9
hlaup, 11 jaðar, 13 elska,
14 landsmenn, 15 raspur,
17 stertur, 20 málmur, 22
svæfill, 23 rönd, 24 at-
vinnugrein, 25 barin.
Lóðrétt | 1 eyja við Ís-
land, 2 úrræði, 3 mjög, 4
jötunn, 5 ójafnan, 6 heig-
ull, 10 hálfbogni, 12 blett,
13 blóm, 15 persónu-
töfrar, 16 hundrað árin,
18 tómum, 19 ögnin, 20
ró, 21 tóbak.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gamaldags, 8 aflát, 9 fegin, 10 uxa, 11 lærir, 13
neita, 15 skáld, 18 gatan, 21 afl, 22 úrill, 23 ættin, 24 fals-
laust.
Lóðrétt: 2 amlar, 3 aftur, 4 dúfan, 5 gegni, 6 gafl, 7 anda,
12 ill, 14 efa, 15 skúr, 16 árita, 17 dalls, 18 glæða, 19 titts,
20 nánd.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú stendur frammi fyrir flóknu
vandamáli og bregst við með því að nýta
allan kraftinn sem þú hefur í höfðinu.
Ekki af því að þig langi að hjálpa – þú ert
bara að pæla í hlutunum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert klár og sérð hlutina í ljósi
heimsborgarans. Sumar skoðanir þínar
(mjög hnitmiðaðar) ættir þú að geyma
fyrir nokkra útvalda sem skilja húmorinn
þinn.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er eins og þú sért fjarri
heimahögunum, jafnvel þótt þú sért inni
hjá þér. Hugurinn ferðast langar leiðir
þegar þú gerir upp mál í fortíðinni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Vertu næmur á rytma fólks sem
fer yfir á öðrum hraða en þú. Þú þarft
ekki að hlaupa af stað með því eða hægja
á þér. Horfðu bara á og njóttu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú verður minntur á hvað þú skuld-
ar einhverjum. Tileinkaðu þér aðferðir
sem auðvelda þér að greiða hraðar upp
skuldirnar. Farðu líka í sérstök föt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú kemur öllu í verk sem þú ein-
beitir þér að. Gamall vinur (líklega bog-
maður) þarfnast athygli. Sambandið gæti
verið að deyja drottni sínum. Taktu upp
tólið.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Með skipulagi á hlutunum rennur líf-
ið ljúfar. Gleymdu kvittanir og merktu at-
burði inn á dagatal. Ekki taka neitt í
sundur sem þú kannt ekki að setja saman.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Núna ertu líklegri til að
brjóta reglurnar en að framfylgja þeim.
Maður skilur ýmislegt með því að ferðast
aftur í æsku í huganum. Gerðu það núna.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Gerðu það sem þú myndir
vanalega ekki gera. Það er gaman að
ferðast út á brúnina. Sambönd þarfnast
nýjunga til að blómstra. Nú er tækifærið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Hik skapar efa – hugsaðu
hratt og talaðu út. Aðrir eru fegnir að vita
að þú vitir hvað þú ert að gera – eða virð-
ist vita það. Einhver treystir alveg á þig í
kvöld.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nú er tíminn runninn upp –
tíminn til að gera eitthvað klikkað. Eins
og tileinka hjarta þitt einni manneskju.
Láttu ljós þitt skína í kvöld.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þeir sem halla sér upp að þér ein-
um of oft eru farnir að verða of þungir.
Kínverskt máltæki segir að vinskapur við
þröngsýnt fólk sé eins og klístur.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Staðan kom upp á rússneska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Moskvu.
Sigurvegari mótsins, Alexander
Morozevich (2755) hafði svart gegn
Evgeny Tomashevsky (2646). 31…
Hxg5! 32. fxg5 f4 33. g4 He8! 34. Dd2
He3 35. b4 svartur hefði svarað 35.
Dxa5 með 35…Hh3. 35… De7 36. bxc5
Dxg5 37. Hh1 svartur hefði einnig
staðið til vinnings eftir 37. Rf5+ gxf5
38. gxf5 Hg3. 37… Bxh1 38. Hxh1
Bxc5 39. Dd1 De7 40. a4 Hg3 41. Rg2
Bb4 42. Hh2 De5 43. c5 f3 44. Rh4 Df4
og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Passaður makker.
Norður
♠Á1032
♥Á7
♦7654
♣K98
Vestur Austur
♠765 ♠G98
♥K10843 ♥DG9
♦103 ♦G982
♣D74 ♣1052
Suður
♠KD4
♥652
♦ÁKD
♣ÁG63
Suður spilar 3G.
Það er vel þekkt að opna létt í
þriðju hendi í skjóli þess að makker
sé passaður, en hitt gleymist gjarnan
að passaður makker býður líka upp á
ákveðið frelsi þegar þriðja hönd er
með góð spil. Hér er norður gjafari og
passar. Suður vekur á Standard-laufi
og norður svarar með 1♠. Hvað nú? Á
að stökkva í 2G með þrjá hunda í
hjarta?
Suður ætti að reyna að koma
grandinu yfir á makker og besta leiðin
til þess er að segja 2♥! Sem lofar auð-
vitað fjórlit í hjarta og góðu laufi, en
sú lygi er saklaus, því ef makker
stekkur í 4♥ á hann 5-4 í hálitunum
og þá má alltaf breyta í 4♠.
Spilið er frá minningarmóti BR um
Hörð Þórðarson. Í reynd sagði norður
3♣ og suður 3G. Er sanngjarnt að
gagnrýna vestur fyrir að koma út með
tígultíu?
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Vefþjónn mbl.is varð fyrir árás hugbúnaðar af tiltekinnigerð. Hvað er hugbúnaðurinn kallaður?
2 Hver varð í öðru sæti í forkosningum demókrata í Iowa íBandaríkjunum?
3 Íslenskur landsliðsmaður í knattspyrnu varð fyrir líkams-árás hér um jólin og er þríbrotinn í andliti. Hver er hann?
4Miklius Astrauskas hefur verið ráðinn landsliðsþjálfariLitháen í handknattleik. Hvaða íslenska lið þjálfar
hann?
Svör við spurn-
ingum gærdagsins:
1. Íslensk myndlist-
arkona sýnir nú í Gall-
erí Turpentine. Hver
er hún? Svar: Arn-
gunnur Ýr Gylfadóttir.
2. Lunningin af varð-
skipi fannst nýverið
eftir 35 ár. Hvaða
heitir skipið? Svar:
Ægir. 3. Hvað heita
kraftahjónin sem létu
pússa sig saman um
áramótin? Svar:
Benedikt Magnússon og Gemma Magnússon. 4. Hver stýrir
þáttunum Sjálfstæðu fólki? Svar: Jón Ársæll Þórðarson.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
RÁÐHERRAR og þingmenn Sam-
fylkingarinnar ætla að hefja nýja
árið með krafti að því er fram kem-
ur í frétt frá Samfylkingunni í
Kópavogi og efna til opinna funda í
öllum kjördæmum dagana 8.-13.
janúar. Flokksstjórnarfundur fer
síðan fram í Mosfellsbæ 12. jan. þar
sem málefnanefndir koma jafn-
framt saman til frekari vinnu.
Þriðjudaginn 8. janúar verður sér-
stakur fundur í Hamraborg í Kópa-
vogi kl 20. Framsögumenn verða
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Lúðvík
Bergvinsson, Gunnar Svavarsson
og Árni Páll Árnason.
Efna til opinna funda
ALLS söfnuðust 20.867.000 kr. í
styrktarátaki Sparisjóðsins fyrir átta
félagasamtök til verkefna á sviði
barna og unglinga með geðraskanir.
Styrkirnir voru afhentir forsvars-
mönnum félaganna í seinustu viku.
„Til að taka þátt í átakinu þurftu
viðskiptavinir Sparisjóðsins ekki að
kosta neinu til, heldur aðeins að velja
eitt af verkefnunum átta og gaf
Sparisjóðurinn jafnharðan þúsund
kr. til þess verkefnis. Viðskiptavinir
voru þó hvattir til að bæta við viðbót-
arframlagi. Þá gátu aðrir landsmenn
einnig lagt söfnuninni lið í gegnum
heimasíðu Sparisjóðsins,“ segir í
fréttatilkynningu. Styrkirnir skipt-
ust samkvæmt vilja viðskiptavina og
annarra þátttakenda og kom því ekki
nákvæmlega sama upphæð í hlut
hvers félags. Hæstan styrk hlaut
ADHD félagið, 4,1 milljón, sem verð-
ur varið til fræðslu, kynningar og
námskeiðahalds á landsbyggðinni.
Að meðaltali hlaut hvert félag ríf-
lega 2,5 milljónir. „Sparisjóðurinn
þakkar fjölda þeirra viðskiptavina og
annarra landsmanna sem létu gott af
sér leiða og gáfu sinn styrk í söfn-
unina,“ segir í frétt.
Söfnuðu 21 milljón fyrir börn
og unglinga með geðraskanir
KRISTÍN H. Kristjánsdóttir fitness-
kona var um áramótin kjörin íþrótta-
maður ársins hjá Alþjóðasambandi
líkamsræktarmanna á Íslandi.
Í fréttatilkynningu segir að nálægt
þrjú hundruð keppendur hafi keppt
hjá sambandinu á árinu í fitness,
vaxtarrækt, módelfitness og til þrek-
meistara. Úr þessum hópi voru til-
nefndir tólf íþróttamenn sem bestum
árangri höfðu náð á árinu. Í öðru
sæti í kjörinu varð Sigurður Gests-
son vaxtarræktarmaður, Magnús
Bess vaxtarræktarmaður var í þriðja
sæti, Kristjana H. Gunnarsdóttir
þrekmeistari í fjórða og Hrönn Sig-
urðardóttir vaxtarræktarkona í því
fimmta.
Kristín varð þrefaldur Íslands-
meistari í vor. Hún varð sjöunda á
Oslo Grand prix og í áttunda sæti á
Evrópumótinu í Síberíu. Kristín varð
bikarmeistari nú í haust og svo end-
aði hún árið með frábærum árangri
á Heimsmeistaramótinu í Búdapest,
þar sem hún hafnaði í 8. sæti. Er
það besti árangur sem Íslendingur
hefur náð á svo sterku móti. Aðild-
arþjóðir að alþjóðasambandinu eru
177.
Íþróttamað-
ur ársins í
líkamsrækt
Kristín H. Kristjánsdóttir fitness-
kona var kjörin íþróttamaður árs-
ins hjá Alþjóðasambandi líkams-
ræktarmanna á Íslandi.