Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 9

Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 9 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Útsalan er hafin 40-70% afsláttur www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Stórútsala Allar vörur í versluninni á útsölu Útsalan er hafin Stærðir 38-60 30-50% afsláttur af útsöluvörum www.belladonna.is Skeifan 11d • 108 Reykjavík • 517 6460 Í HNOTSKURN » Ragnar segir hið nýja stofnfé munu nýt-ast til styrkingar á eiginfjárgrunni spari- sjóðsins sem gerir honum kleift að taka þátt í stærri lána- og fjárfestingarverkefnum, m.a. til eflingar dótturfélags hans á Englandi. » Á morgun verður á ný opnað fyrir við-skipti með stofnfé í Byr eftir útgáfu nýs stofnfjár upp á 23,7 milljarða króna og er stofnfé sjóðsins nú komið í 30 milljarða kr. Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is EKKI kæmi á óvart að fjórir til fimm sparisjóðir yrðu eftir í landinu innan 12-18 mánaða m.v. þá þróun sem átt hefur sér stað á síðasta ári. Þetta er mat Ragnars Z. Guðjónssonar, sparisjóðsstjóra Byrs. „Sparisjóðum hefur fækkað umtalsvert á síðasta árinu og á sú þróun eftir að halda áfram. Sparisjóður Kópavogs og Sparisjóður Norðlend- inga samþykktu báðir að sameinast Byr sparisjóði og Sparisjóður Vestfirðinga og Sparisjóður Húna- þings og Stranda samþykktu að sameinast Spari- sjóðnum í Keflavík. Sparisjóður Skagafjarðar hef- ur jafnframt samþykkt að sameinast Sparisjóði Siglufjarðar. Nú í upphafi nýs árs stefnir í að starfandi sjálfstæðir sparisjóðir verði 12 og hefur þeim fækkað um 10 á fjórum árum,“ segir hann. Ragnar segir að sú breyting hafi orðið á að nú sameinast sparisjóðir á viðskiptalegum forsend- um, en áður fyrr voru það sparisjóðir í vandræðum sem sameinuðust öðrum. Fyrsti stóri samruni sparisjóða á viðskiptalegum forsendum var þegar SPV og SPH sameinuðust í Byr sparisjóður, en það var í desember 2006. Síðan má segja að hrina sameininga sparisjóða hafi farið af stað. 23,7 milljarða útgáfa stofnfjár „Það umhverfi sem fjármálafyrirtækjum er skapað á stóran þátt í því að sparisjóðir sameinast. Það er orðið umfangsmeira en áður og þar af leið- andi kostnaðarsamara að reka fjármálastofnun. Eftirlitsþátturinn er orðinn ríkari og nauðsynlegt að hafa sérfræðinga í flestum stöðum. Litlar fjár- málastofnanir eiga erfitt með að uppfylla slíkt.“ Á morgun verður á ný opnað fyrir viðskipti með stofnfé í Byr eftir útgáfu nýs stofnfjár í sjóðnum. Útgáfan nemur 23,7 milljörðum króna og er stofnfé sjóðsins nú komið í 30 milljarða króna. Út- gáfan er sú stærsta sinnar tegundar í sögu ís- lensku sparisjóðanna. Mikill áhugi hefur verið á útgáfunni og seldist allt stofnféð í forkaupsrétt- arútboði, þ.e. allt seldist til aðila sem fyrir áttu stofnfé. Þessi áhugi er athyglisverður í ljósi ástandsins á fjármálamörkuðum heimsins, en að sögn Ragnars er áhugi stofnfjáreigenda þeirra þriggja sjóða sem sameinast hafa í Byr (SPV, SPH og SPK) er tilkominn vegna þess að þeir hafa mikla trú á þeirri verðmætasköpun innan hans auk þess sem fjárhagslegur styrkur Byrs er mikill og er sjóðurinn vel í stakk búinn að takast á við verkefni sem framundan eru í stækkun og eflingu hans. „Styrkur Byrs felst í vel dreifðu eignasafni, góðri lausafjárstöðu og góðri og traustri fjár- mögnun. Þrátt fyrir ástandið á fjármálamörkuð- um verður síðasta ár metár hvað afkomu Byrs varðar,“ segir hann og bætir við að það sé önnur ástæða fyrir þátttökunni. „Vegna stærðar útgáf- unnar er hlutur stofnfjáreigenda að þynnast mikið ef þeir taka ekki þátt.“ Nýlega var Spron breytt í hlutafélag og segir Ragnar að nú sé að hefjast skoðun á því hvort hlutafélagaformið henti Byr betur en sparisjóða- formið. „Það eru kostir og ókostir við hlutafélaga- væðingu en að teknu tilliti til alls sýnist mér hluta- félagaformið henta betur,“ segir Ragnar og segir að niðurstaða ætti að fást á þessu ári. Hann bendir á að ekki sé nauðsynlegt að skrá sjóðinn í kauphöll um leið. Betra sé að bíða eftir hentugum markaðs- aðstæðum. Samþjöppun heldur áfram Sparisjóðsstjóri Byrs segir ákvörðun um hlutafélagavæðingu líklega tekna á árinu Samþjöppun Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðs- stjóri Byrs, telur að sparisjóðum fækki enn frekar. Morgunblaðið/RAX ÞETTA HELST ... ● HÁTT í 100% hluthafa Stork NV samþykktu sölu Stork Food Sys- tems til Marel á hluthafafundi sem fór fram sl. föstudag. Þessi sam- þykkt er ekki bindandi þar sem kaup Marel á Stork Food Systems voru háð þremur fyrirvörum eins og greint var frá þegar samkomulagið var kynnt í lok nóvember. Í Vegvísi Landsbankans segir að niðurstaða fundarins auki þó mjög líkur á að yf- irtökutilboð London Acquisition N.V. (Candover) í aðra hluta Stork gangi eftir. Þá sé aðeins eftir að fá sam- þykki samkeppnisyfirvalda og álit starfsmannaráðs Stork. Þangað til verði Marel og Stork Food Systems hvort um sig rekið sjálfstætt. Hluthafar Stork sam- þykktu sölu til Marel ● ENN bætir bandaríski seðla- bankinn við fjár- magni til að rétta við lausa- fjárstöðu bank- anna þar í landi. Áður hafði verið tilkynnt að 40 milljarðar dollara yrðu til reiðu í jan- úar en sú fjárhæð hefur verið hækkuð í 60 milljarða dollara. Bankarnir eru í frétt á vef BBC enn sagðir í mikilli fjárþörf og seðlabankinn hyggst halda innspýt- ingu sinni áfram. Þá er beðið með nokkurri eftirvæntingu eftir ræðu fjár- málaráðherra Bandaríkjanna, Henry Paulson, í dag þar sem hann mun ræða stöðuna á fjármálamarkaðnum bandaríska. Enn er titringur á þeim markaði, sem lýsti sér vel í töluverðri lækkun hlutabréfa á Wall Street á föstudag. Í dag kemur í ljóst hvort seðlabankinn og Paulson nái að blása nýju lífi í fjárfesta. Seðlabankinn banda- ríski dælir meiru inn Henry Paulson fjármálaráðherra. ● HOLLENSKI bankinn Rabobank gaf á föstudag úr krónubréf að and- virði um 30 milljarðar króna. Í Hálf- fimmfréttum Kaupþings kom fram að bréfin kæmu líklegast í stað eldri bréfa sem eru á gjalddaga 28. jan- úar næstkomandi. Á þeim degi falla 45 milljarða krónubréf á gjalddaga sem bankinn gaf út. Segir greining Kaupþings að tilkynning Rabobank glæði vonir innlendra og erlendra að- ila um að vænta megi frekari útgáfu krónubréfa á næstunni. Rúmir 80 milljarðar króna eru á gjalddaga í janúar og febrúar og ef ekki kemur til frekari útgáfu krónubréfa má ætla að krónan gefi eitthvað eftir í kjölfarið, að mati greiningar Kaupþings. 30 milljarða krónu- bréf hjá Rabobank ● SIGRÚN Eva Ár- mannsdóttir, söngkona með meiru, hefur verið ráðin fram- kvæmdastjóri hugbúnaðarfyr- irtækisins Eskils í stað Sigrúnar Guðjónsdóttur. Eskill er hluti af samstæðu Teym- is. Sigrún Eva hefur verið for- stöðumaður fjármálalausnadeildar HugarAx ehf. (áður Hugur) síðast- liðin þrjú ár. Þar áður starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Hug hf. og einnig á hugbúnaðarsviði EJS. Sig- rún Eva starfaði við kennslu við tölv- unarfræðideild Háskólans í Reykja- vík í nokkur ár og kenndi þar fög í tengslum við viðmótshönnun og not- endamiðaða hugbúnaðargerð. Hún er með MSc gráðu frá tölvunarfræði- skor Heriot-Watt-háskólans í Ed- inborg í Skotlandi og stundar nú MBA-nám við HR. Þá muna margir ef- laust eftir henni er hún söng fyrir hönd Íslands í Evróvisjón árið 1992 ásamt Sigríði Beinteinsdóttur. Sigrún Eva til Eskils Sigrún Eva Ármannsdóttir ÁRLEGUR skattadagur Deloitte fer fram á miðvikudag á Grand Hótel Reykjavík og er skráning í fullum gangi. Skattadagurinn er haldinn í samstarfi við Samtök at- vinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Viðskiptablað Morgunblaðsins. Árni M. Mathiesen fjár- málaráðherra setur fundinn en meðal frummælenda er Richard Teather, skattasérfræðingur og kennari við háskólann í Bournemo- uth. Í tilkynningu segir að hann muni fjalla um skattasamkeppni á milli landa, hún feli í sér að einstök lönd reyni að laða til sín fjármagn og starfsfólk með því að bjóða fram lága skatta. Teather segir skatta- samkeppni vera öllum í hag, sér- staklega þeim löndum sem nýti sér kosti alþjóðlegrar verkaskiptingar og frjálsra viðskipta. Skatta- samkeppni haldi jafnframt í skefj- um viðleitni stjórnmálamanna til að hækka skatta. Með því auki hún hagsæld og auðveldi fjárfestingar. Á skattadeginum munu sérfræð- ingar Deloitte einnig fjalla um áhrif breytinga á skattalögum 2007, um skatta- og lagalega stöðu erlends starfsfólks á Íslandi og um áhrif tví- sköttunar í virðisaukaskatti og hvað beri að hafa í huga til að koma í veg fyrir hana. Dagskrá fundarins hefst kl. 8.15 að morgni og stendur til kl.10. Þátttökugjald er 2.500 kr. Skráning á skattadag Deloitte í fullum gangi BANDARÍSKA örgjörvafyrirtækið Intel hefur hætt við þátttöku í verk- efninu „One laptop per child“ (OLPC), eða fartölva á barn. Er þetta talsvert bakslag fyrir framgang verkefnisins, en mark- miðið með því er að framleiða ódýr- ar fartölvur til barna í þróunarríkj- um. Intel hugðist leggja fram fjármagn og tæknilega sérfræði- þekkingu. Ósættanlegur ágreiningur varð til að rjúfa samstarfið að sögn Chuck Mulloy, talsmanns Intel. Deilur hafa þó staðið frá því áður en Intel gekk til liðs við verkefnið í júlí síð- astliðnum. Intel hyggst hins vegar vinna áfram að Classmate PC, sinni eigin útfærslu á ódýrri fartölvu handa börnum í sömu sporum. Hækka þurfti verðið „OLPC fór fram á að Intel hætti stuðningi við sambærileg verkefni, þeirra á meðal Classmate PC, og einblína aðeins á OLPC,“ segir Mulloy í samtali við CNN. „Við gát- um hins vegar ekki fallist á það.“ Nicholas Negroponte, kom far- tölvuverkefninu á legg árið 2005. Tölvurnar áttu upphaflega að kosta 100 dollara en hækka þurfti verðið upp í 188 dollara. Á þeim er Linux stýrikerfi og flaga frá keppinauti Intel, AMD. Mulloy fullyrðir þó að aðkoma keppinautarins eigi engan þátt í ákvörðun Intel að hætta við. Börnin fá ekki flögur frá Intel Reuters Tölvur Prufueintak í verkefninu afhent í Þýskalandi fyrir jól.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.