Morgunblaðið - 07.01.2008, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Ég er bara alveg í losti, elskan, hverjum gat dottið í hug að það þyrfti orðið pólskukunnáttu
til að skilja „Skaupið“ okkar?
VEÐUR
Nú er utanríkisráðherra okkar,Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
að taka til hendi þar sem frá var
horfið sl. vor, þegar ráðherrann fór
í heimsókn til Miðausturlanda og
taldi, að Ísland hefði miklu hlut-
verki að gegna við að koma á friði
milli deiluaðila þar, Ísraelsmanna
og Palestínumanna.
Opinber heim-sókn ráð-
herrans til
Egyptalands,
sem hefst á
morgun, þriðju-
dag, getur ekki
haft neinn annan
tilgang en þann
að utanrík-
isráðherra Ís-
lands komi sjónarmiðum sínum á
framfæri um hvaða leiðir hægt sé
að fara til lausnar.
Ekki eru viðskipti okkar viðEgyptaland svo mikil, að þau
geti verið skýring á hinni opinberu
heimsókn og það sama á við um
menningarleg samskipti Íslands og
Egyptalands. En auðvitað getur
það haft tilgang í sjálfu sér að koma
á betra sambandi við Egypta enda
gerum við Íslendingar víðreist.
Að vísu er það svo, að sennilegahafa Egyptar meira til málanna
að leggja en við Íslendingar um
lausn mála fyrir botni Miðjarð-
arhafs. Þeir hafa sjálfir staðið í
stríði við Ísraelsmenn og hafa sjálf-
ir samið við þá um frið.
Þannig er kannski líklegra, að ut-anríkisráðherra okkar sé að
fara til Egyptalands til þess að
fræðast og að sú fræðsla geti komið
að gagni, þegar vér Íslendingar
hefjumst handa við að leggja hönd
á plóginn.
Það er gott að hafa bæði forsetaog utanríkisráðherra, sem
rækta garðinn svo vel fyrir okkur
hjá öðrum þjóðum.
STAKSTEINAR
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Mikilvæg heimsókn
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
!
"
#""#
#""#$$ %$ %
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
#""#
&
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
!% '%'!
(% '%'
'% %'(
%!
*$BC $$$
!
" #
$% ! !
! % & ' ( *!
$$B *!
) *+$
$*$
,
<2
<! <2
<! <2
)
+ "#$- " .$/
#"0
D2
E
<
F87
F
!
"
$ )
* $ !
+
$
,!
!
"
*
62
-.'
!
*
$ !
1&##$$22 "#
$$3
$- "
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Dögg Pálsdóttir | 5. janúar 2008
Góður Bubbi
Ég get nú ekki sagt að
ég hafi nokkurn tímann
verið í hópi Bubbaaðdá-
enda. Eitt og eitt lag frá
honum hefur mér fund-
ist gott. ABBA og Car-
penters hafa alltaf verið
svona meira mín tegund af tónlist. En
góð vinkona bauð mér með sér á
Bubba í Laugardalshöllinni í kvöld.
Bubbi var góður og Stórsveit Reykja-
víkur er ótrúlega flott. Og gestasöngv-
ararnir tveir, Raggi Bjarna, sem að-
eins verður betri með aldrinum og …
Meira: doggpals.blog.is
Baldur Kristjánsson | 6. janúar 2008
Hópsetning kallar
á rasisma!
Blaða- og fréttamenn
ættu … að fjalla um af-
brotamenn sem ein-
staklinga og hópsetja
þá ekki. Slíkt kallar allt-
af á staðalímyndir og ýt-
ir undir fordóma og ras-
isma … Fjölmörg dæmi frá síðasta ári
eru því miður um að þessi sjálfsagða
grunnregla var virt að vettugi oftast
vegna þess, trúlega, að menn ná ekki
að reka höfuðið upp úr hvirfilvindi dag-
anna.
Meira: baldurkr.blog.is
Anna K. Kristjánsdóttir | 5. janúar 2008
Augnstungnir hjallar!
Ég sé lítið spennandi
við þessa kofa sem
hafa staðið þarna og
mun ekki sjá eftir þeim.
Þau hafa gengið í gegn-
um svo margvíslegar
breytingar í gegnum árin
að lítið er orðið eftir af upprunalegu
húsunum annað en minningin. Eftir
að húsunum var breytt til samræmis
við nútímann og settir á þau risastórir
verslunargluggar dettur manni helst
til hugar að búið sé að stinga úr þeim
augun eða sálina …
Meira: velstyran.blog.is
Jens Guð | 6. janúar 2008
Bob Dylan
Í aldamótauppgjöri
helstu fjölmiðla heims
var John Lennon út-
nefndur tónlistarmaður
síðustu aldar. Munaði
þar mestu um framlag
hans með hljómsveit-
inni Bítlunum (hvernig stóð annars á
því að The Beatles voru strax kallaðir
Bítlarnir í íslenskum fjölmiðlum?).
Margir fjölmiðlanna létu þess getið að
val þeirra á tónlistarmanni síðustu
aldar hafi staðið naumt á milli Len-
nons og Bobs Dylans. Ekki að
ástæðulausu.
Ég var alveg sáttur við niðurstöð-
una. Og einnig að Bob Dylan hafi veg-
ið salt á móti Lennoni.
Ég geri mér ekki grein fyrir því hve-
nær ég fyrst heyrði í Dylani né hvenær
ég varð aðdáandi hans. Hef þó grun
um að það hafi verið ́65. Þá var ég 9
ára. En allavega þá man ég bara eftir
því að hafa þótt músík hans flott.
Svo ég fari aðeins út í sagnfræðina
þá var Dylan það sem hann sjálfur
hefur kallað „Woody Guthrie juke-
box“. Í upphafi gerði hann alfarið út á
flutning á söngvum Woodys Guthries,
föður bandarískrar þjóðlagatónlistar.
Eitt sinn sat Dylan að sumbli með
þjóðlagasöngvaranum Richard
Farina, mági skærustu þjóðlaga-
söngkonu Bandaríkjanna á þeim
tíma, Joan Baez. Dylan sagði Richard
að hann vildi verða frægur og spurði
ráða. Richard sagði í gríni: „Þú þarft
bara að sænga hjá Joan og þá opnar
hún fyrir þér dyrnar að heimsfrægð.“
Viku síðar hitti Richard mágkonu
sína. Þá kynnti hún hann fyrir nýjum
kærsta sínum, Bob Dylan.
Joan Baez var mjög fræg söngkona
á þessum tíma, í upphafi sjöunda ára-
tugarins. Hún notaði frægð sína til að
kynna Dylan. Kallaði hann alltaf upp á
svið á sínum hljómleikum og spilaði
lög hans...
Fyrsta plata Dylans kom út 1962,
samnefnd honum. Enn í dag hefur sú
plata ekki selst í nema 70.000 ein-
tökum. Þar er óður hans til Woodys
Guthries, Song to Woody, sem Dylan
endurútgaf fyrir nokkrum árum á smá-
skífu í hljómleikaútgáfu. Á sömu plötu
syngur Dylan House of the Rising
Sun. Útbreiddur misskilningur er að
The Animals hafi pikkað það lag upp
af plötu Dylans. Liðsmenn The Ani-
mals byrjuðu ekki að hlusta á Dylan
fyrr en seinna.
Meira: jensgud.blog.is
BLOG.IS
HÆFILEIKAKEPPNI hunda fór
fram í húsnæði B&L í Reykjavík sl.
laugardag og tóku um 70 hundar
og eigendur þeirra þátt í fjörlegri
keppni. Keppt var í ýmsum flokk-
um m.a. um þann hund sem þótti
líkastur eiganda sínum og hvaða
hundur væri mesta krúttið.
Morgunblaðið/Kristinn
Fjörleg hæfileikakeppni
FRÉTTIR