Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 23
ent henni
kum, út-
el á okkur
mmtileg.
ur-
ur síns.
rfitt að
k tekur
ndist
ona og
du eiga
ns. Hún
til að
aber fer
um Gold-
ein-
ði enga
r réttinn
það sem Faber & Faber settu upp.
Það verð hefði bara verið fyrir
Hollywood. En Judy Curver áttaði
sig strax á því að ég var í svipaðri
stöðu og pabbi hennar – hann skrif-
aði bækur, ég skrifa tónlist, og fólk
verður ekki efnað af því. Hún sá til
þess að ég fengi réttinn til að gera
þetta fyrir skynsamlegt verð, sem
ég réð við.“
Frá upphafi var gert ráð fyrir
því að uppfærsla óperunnar yrði
samstarfsverkefni Sveins Lúðvíks,
Caput, Skálholtshátíðar og Euro-
pean Chamber Opera Company.
Sveinn Lúðvík segir að þátttaka
óperukompanísins í verkefninu hafi
vaxið rétthafanum Faber & Faber í
augum, og þeir hafi talið að þar
með kæmu meiri peningar í spilið.
Svo hefði þó ekki orðið, en til að
koma málum á hreint hafi það
dregið sig út úr samstarfinu. Þeir
Darren, listrænn stjórnandi þess,
og Robert hafi þó haldið áfram sem
einstaklingar.
Íslenska óperan verður með
Nú hefur Íslenska óperan skorist í
leikinn og tekur þátt í samstarfinu
með því að skaffa aðstöðu til æf-
inga og ekki síst að útvega söngv-
ara.
„Þetta er í rauninni aðferðin við
að búa til óperu í dag. Að sitja
heima og skrifa og koma svo með
hana í bunka í leikhúsið og segja
„gjöriði svo vel!“ gengur bara ekki.
Mitt trix var að fá allt þetta fólk
með mér og byrja svo. Með þennan
góða mannskap er miklu auðveld-
ara að líta í öll horn, spyrja hvað sé
mögulegt og fá svör. Það er gott að
hafa frá upphafi aðgang að mönn-
um með mikla þekkingu og prakt-
íska reynslu.“
En stuðningurinn liggur víðar.
Breska sendiráðið hyggst bjóða
erfingjum Goldings að koma til Ís-
lands þegar óperan verður frum-
sýnd og kveðst Sveinn Lúðvík
þakklátur fyrir það. En óvæntasti
glaðningurinn kom úr óvæntustu
áttinni. „Ja, það var lítið fyrirtæki
hér sem ákvað að styrkja okkur.
Þetta kom okkur mjög á óvart en
þeir styrktu komu Bretanna hing-
að núna í þessa vinnu með mér. Ég
þekki ekki þetta fólk, en fyr-
irtækið, sem heitir Dalfoss, hafði
áhuga á að styrkja eitthvað menn-
ingarlegt og valdi þetta verkefni.“
Eins og lífið á Mars
Sveinn Lúðvík er ekki þekktur að
smíði söngtónlistar, en hljóðfæra-
tónlist hans hefur vakið þeim mun
meiri eftirtekt. Það verður því tals-
verður spenningur að heyra óp-
erutónlist eftir hann og spurning
hvernig hún muni verða.
„Að útskýra það núna er eins og
að útskýra það hvernig það væri að
vera á Mars,“ segir Sveinn Lúðvík
og hlær. „Bókin er dökk og sagan
gerist í stórri dómkirkju – gömlum
biskupsstól. Þetta er karlasamfélag
og flestar raddirnar verða dökkar,
bassar og bass-barítónar. Það
verður bara einn tenór. Það verður
einn mezzósópran og svo sópr-
anrödd sem ekki mun sjást. Kar-
akterinn sem sést með röddinni er
dansari.
Litirnir í tónlistinni verða því
dökkir; dökkt með litbrigðum.“
Sveinn Lúðvík segist þegar hafa
„læðst“ inn á þá braut að velta fyrir
sér hvaða söngvarar passi í hlut-
verkin, máta það í huganum. „En
það er hættulegt að nefna nöfn og
ég ætla ekki að gera það að svo
stöddu. En ég viðurkenni þó að ég
er að læðast að fólki með því að
hlusta á það þegar tækifæri gefast.
Þegar ég er viss mun ég örugglega
banka í bakið á því. Mér finnst gott
að hafa þetta persónulegt, það ger-
ir samvinnuna innilegri.“
Vonandi fer hún á flakk
Sveinn Lúðvík segist ekki vita hvað
taki við eftir frumuppfærslu verks-
ins. Konunglega óperan í Covent
Garden hefur þó sýnt nýju óp-
erunni áhuga. „Þá langar að koma
hingað og skoða þegar óperan
verður frumsýnd. Það eru reyndar
fleiri sem fylgjast með okkur og
leikhús í Noregi hefur sýnt því
áhuga að setja verkið upp. Það eru
því allar líkur á því að óperan fari á
eitthvert flakk, og það þætti mér
gaman.“
ferðin við
peru í dag
eftir William Golding sem verður frumsýnd sumarið 2009
ð ég
nn
ður
rétt-
..“
ein-
að ráð-
r, fjór-
gu
Morgunblaðið/Frikki
tisti og Sveinn Lúðvík Björnsson tónskáld vinna nú að því að semja óperu eftir sögunni The Spire eftir William Golding.
Ársins 2007 verður minnstfyrir lánakreppuna.Hvað olli, hver berábyrgð? Traust er
skert, hvernig má styrkja það á
ný? ,,Bankastarfsemi
er einkennileg at-
vinnugrein. Hún er
svo háð trausti að
minnstu grunsemdir
geta sópað burt
rekstrarárangri heils
árs, rétt eins og árs-
uppskera fellur stund-
um á einni hélunótt,“
sagði L. Holland á
ársfundi Englands-
banka árið 1866. Þetta
gildir enn. Margir ótt-
ast harða lendingu í
samtengdum hag-
kerfum heimsins.
Bankar um víða ver-
öld draga nú útlán
saman svo eiginfjár-
hlutfall og traust hald-
ist. Einmitt þetta
veldur vanda: Þeir
ýkja hagsveiflur, ekki
síður á niðurleið en
uppleið.
Gerðu seðlabankar
mistök …
Voru það seðla-
bankar sem gerðu
mistök? Ameríka,
Bretland og meg-
inland Evrópu eru
með böggum hildar. Alan
Greenspan virðist í fljótu bragði
sekur. Stutt er þó síðan hann var
eftirlæti frjálshyggjumanna. Hann
hélt vöxtum lengi lágum til að
nýta framleiðslutækin sem best.
En hann sinnti ekki ofmati á fast-
eigna- og hlutabréfamörkuðum.
Þær sápukúlur eru bein afleiðing
langvarandi lágra vaxta. Hann
vildi ekkert gera nema þær
spryngju. Þetta er umdeilanlegt
en virða ber skoðanir hans. Þær
byggjast á víðtækri reynslu sem
margir deila með honum og kall-
aði einhliða á að halda verðbólgu í
skefjum um allan heim.
… eða voru það bankar?
Tilgangslítið er að gera ein-
staklinga að blórabögglum, en
kannski bera bankar ábyrgðina?
Þegar allt er á uppleið er það
nánast eins og sjálfsvíg fyrir
banka í samkeppni að sitja hjá.
Bankastjórar eru hvattir áfram
með fljótteknum bónusum og
kaupréttum, sem eru hafðir svo
háir að hugsun þeirra snúist eink-
um um þá. Þegar lægðin kemur
loks hafa stjórnendurnir hirt
gróðann og láta sér framhaldið í
léttu rúmi liggja. Þetta er gömul
uppskrift að skaðlegri lánaþenslu,
eignatilfærslum og útlánatöpum
sem koma síðar í ljós. Bankar
bera mikla ábyrgð á lánakrísu
sinni, en þeir gera það þó ekki
einir.
Gamlar áherslur …
Þróun efnahagslífsins ræður
áherslum í hagstjórn. Fleira
skiptir þó máli en að halda verð-
bólgu lítilli og hagvexti uppi, s.s.
velferð eða farsæld. En sé litið til
baka er þessi áhersla skiljanleg.
Flestir hafa eins og Greenspan lif-
að tímana tvenna og muna verð-
bólgu, óvissu og atvinnuleysi.
Hvorki þorri fólks né ráðamenn
hafa þó sára eigin reynslu af
hrynjandi mörkuðum vegna of-
mats eigna. Slíkt er ekki nógu al-
gengt til að svo sé, sem betur fer.
En núna er það sérstakt að hluta-
bréf og fasteignir eru ofmetnar
um víða veröld, á sama tíma. Það
hefur ekki gerst síðan fyrir
kreppuna miklu. Fólk sem varð
fyrir ,,auðsáhrifum“ þegar sápu-
kúlurnar blésu út mun nú á næstu
misserum fá að sjá hina hliðina á
þeim sama peningi. Hættan er
mikil og vandmetin, vegna sam-
tengdra markaða.
… og nýjar
Fari svo illa að
lánakreppunni fylgi
djúp lægð hljóta
stjórnvöld að íhuga
hvort hagstjórnin
hafi þjónað nógu
vel. Niðurstaðan
verður að svo hafi
verið áður, en ekki
lengur. Víða um
lönd spratt mark-
miðið um stöðugt
verðlag af viðvar-
andi og óstöðugri
verðbólgu. Stefnan
var rétt á þeim
tíma. En kostn-
aðarlækkanir vegna
hnattvæðingar og
ódýr innflutningur
frá Asíu, ekki síst
Kína, ollu því líklega
að Greenspan las
ekki rétt á spilin.
Vöxtum var haldið
of lágum of lengi.
Afleiðingin varð
lánaþensla og ofmat
eigna. Afskiptaleysi
í hagstjórn hefur
verið í tísku á Vest-
urlöndum, en hag-
sveiflur eru þó
óæskilegar. Þær leiða til atvinnu-
leysis, vannýtingar og tefja fram-
farir. Verðbólga dregur úr verð-
skyni og leiðir til sóunar. Á hinn
bóginn virðast menn hafa álitið of-
mat tiltölulega meinlaust, nema
auðvitað þeim sem sitja með eign-
irnar þegar verðið fellur. Hið
rétta er þó að þessar sápukúlur
valda miklum skaða. Hann felst í
eignatilfærslum. Nú eiga þúsundir
íslenskra fjölskyldna ofmetnar
íbúðir og skulda meira en nokkru
sinni. Sama gildir um hlutabréfa-
kaup. Lífeyrissjóðir almennings
eiga mikið af ofmetnum hlutabréf-
um og bankar eru með dulinn
vanda í veðlánum sínum. Víða um
lönd er ástandið svipað. Fé-
lagslegar afleiðingar þessa verða
miklar og langvarandi. Sumir
seinheppnir munu ekki ná að
rétta úr kútnum. Aðrir munu
þurfa að breyta stærstu áformum
sínum. Vitað er að hjónaskilnaðir
tengjast helst fjárhagserfiðleikum.
Mistökin geta skipt sköpum um
sjálfa hamingjuna. Á sama tíma
og fjöldi vonsvikinna og eignalít-
illa vex sjáum við auðinn safnast á
fárra hendur. Tilfærslan kemur
ekki til tekjuskatts á framtali við-
takenda og ekki til frádráttar hjá
þeim sem láta eignir af hendi.
Ársins 2007 verður minnst fyrir
lánakreppuna. Árið 2008 munu
bónusar og kaupréttir bankastjór-
anna sæta gagnrýni, því í sam-
drætti er ekki unnt að gera sér
mat úr slíku með vexti. Einu
raunhæfu leiðirnar eru uppsagnir
og vaxta- og verðhækkanir. Þegar
öll kurl eru svo komin til grafar
munum við sjá kaflaskipti í hag-
stjórn. Bönkum verða sniðnar
þrengri almennar reglur en áður í
lánastarfsemi sinni. Hagstjórn
verður stunduð á meðan horft er
með öðru auganu á þróun eigna-
verðs. Hún mun taka mið af far-
sæld í mannlífinu öllu en ekki að-
eins hluta þess, viðskiptalífinu.
Tíska afskiptaleysis í hagstjórn
mun líða undir lok.
Lánakreppan
kallar á nýja
hagstjórn
Ársins 2007 verður minnst
fyrir lánakreppuna, segir
Ragnar Önundarson
Ragnar Önundarson
» Bönkumverða sniðn-
ar þrengri al-
mennar reglur
en áður í lána-
starfsemi sinni.
Hagstjórn verð-
ur stunduð á
meðan horft er
með öðru aug-
anu á þróun
eignaverðs.
Höfundur er viðskiptafræðingur,
bankamaður og fjármálaráðgjafi.