Morgunblaðið - 07.01.2008, Síða 32
32 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Til sölu smáhundur!
Bronco er 6 mánaða chihuahua
hundur. Hann er skapgóður, smár og
gerir allar sínar þarfir úti eða á
bleyjulak, hann selst vegna ofnæmis
á 150 þús. með búri, dóti og mat.
Hann er með ættbók frá Íshundum.
Uppl. gefur Þóra í síma 695 1228.
Til sölu fallegir Dvergschnauzer
hvolpar, hreinræktaðir og
ættbókarfærðir. Uppl í s 8623632/
8963533. www.dvergschnauzer.is
Gullfallegir dvergschnauzer
hvolpar. Erum með hreinræktað got,
undan spennandi samsetningu, eig-
um pipar&salt og svart/silfur rakka
til sölu. Afhendast í kringum 20. jan.
Ættbók frá HRFI. www.svart-
skeggs.com og 846-8171
Heilsa
REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI
STREITU- OG KVÍÐALOSUN.
Notuð er m.a. dáleiðsla og
EFT (Emotional Freedom
Techniques).
Viðar Aðalsteinsson,
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694-5494,
www.EFTiceland.com.
Lr- kúrinn er tær snilld
Léttist um 22 kg á 6 mán. Þú kemst í
jafnvægi, sefur betur, aukin orka og
grennist í leiðinni.
www.dietkur.is/Dóra 869-2024
Atvinnuhúsnæði
Til leigu nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Rvík. Securitas-
öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð
samnýting. Uppl. í síma 896 9629.
Til leigu í Hafnarfirði.
Atvinnuhúsnæði við Lónsbraut, 75 m²
+ 25 m² milliloft. Innkeyrsluhurð, 3ja
fasa rafmagn, góð kaffiaðstaða og
salerni. Nýlegt hús. Sími 864 4589.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Leirkrúsin - Láttu drauminn
rætast!!! Skráning er hafin á okkar
fjölbreyttu og skapandi námskeið á
vorönn. Velkomin á Opið verkstæði
alla virka daga. Uppl.: www.leir.is og
s. 564 0607 / 661 2179.
Til sölu
Útsala - útsala - útsala
Slóvak Kristall, Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 544 4331.
Póstkassar hjá plexiform.is
S. 555 3344. Póstkassasmstæður
sem eru til á lager, 20% afsláttur, 2 til
8 hólfa kassar. Efni: tré, plast og stál.
Standar fyrir fartölvur, nafnspjöld,
blöð og skiltamerkingar.
Viðskipti
Notaðu skynsemina og skoðaðu
möguleikann
Viltu vera með í að byggja upp öflugt
fyrirtæki með peningum sem þú ert
hvort sem er að nota til að byggja
fyrirtæki annarra? Skoðaðu þá
http://www.Netis.is
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir og
endurnýjun raflagna.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025
lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Ýmislegt
Mjög gott snið í nýjum lit, fæst í
D,DD,E,F,FF,G,GG,H skálum á kr.
4.990.
BARA flottur í C,D,DD,E,F skálum á
kr. 3.990.
Góður í D,DD,E,F,FF,G,GG skálum á
kr. 3.990.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur
í vetraraksturinn. Akstursmat og
endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Sigurður Jónasson
Toyota Rav4 ‘06.
822 4166.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06 .
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06.
696 0042/566 6442.
✝ Þóra Jenný Pét-ursdóttir fædd-
ist í Hrossholti í
Eyjahreppi í
Hnappadalssýslu
28. október 1912.
Hún lést á Land-
spítalanum mið-
vikudaginn 26. des-
ember 2007.
Foreldrar hennar
voru Pétur Þor-
móðsson, bóndi í
Hrossholti, f. 9.9.
1863 í Hörgsholti í
Miklaholtshreppi, d.
28.4. 1946, og Sigurrós Mark-
úsdóttir, f. 12.8. 1871 í Hauka-
tungu í Kolbeinsstaðahreppi, d.
29.3. 1957.
Systkini Þóru Jennýjar voru:
1) Anna, f. 1895, d. 1957, 2) Þor-
björg, f. 1898, d. 1964, 3) Óskar,
f. 1900, d. 1976, 4) María Þor-
gerður, f. 1903, d. 1997, 5) Ólaf-
ur, f. 1908, d. 1987, 6) Hólm-
fríður, f. 1910, d. 2006, og 7)
Guðrún Karítas, f.
1918, d. 1970.
Hinn 29. maí
1937 giftist Þóra
Jenný Ágústi Ei-
ríkssyni afgreiðslu-
manni, f. 19.8. 1909
í Árbæ í Holta-
hreppi, Rangárvall-
arsýslu. Hann lést í
Reykjavík 22.4.
1992. Hófu þau bú-
skap sinn í Reykja-
vík. Dóttir þeirra
er Ólína Ágústs-
dóttir, f. 31.1. 1940,
gift Gunnari H. Stefánssyni, f.
18.2. 1940. Þeirra börn eru: 1)
Þóra Jenný Gunnarsdóttir, f.
21.1. 1966, og 2) Stefán Sveinn
Gunnarsson, f. 7.9. 1975, kvænt-
ur Írisi Arnbjörnsdóttur, f. 24.8.
1971. Barn þeirra er Hekla Ól-
ína, f. 14.11. 2007.
Útför Þóru Jennýjar verður
gerð frá Grensáskirkju 7. janúar
2008 klukkan 15.
Tíminn kallar, komið er að því að
kveðja kæra konu, Þóru Jenný Pét-
ursdóttur. Hennar verður sárt sakn-
að og það er gott að sakna mikið, það
segir svo margt um hve sterk sam-
vera við hana var. Ekki vildi ég
sakna hennar minna.
Jenný eins og hún var oftast köll-
uð fluttist frá Hrossholti til Reykja-
víkur tvítug að aldri og vann hin
ýmsu störf. Hún kynntist manni sín-
um Ágústi og bjuggu þau í farsælu
og ástríku hjónabandi. Eignuðust
þau eina dóttur og tvö barnabörn og
nú nýlega átti hún því láni að fagna
að verða langamma. Samvera fjöl-
skyldunnar var náin, mikið var
ferðast innanlands og utan og fylgst
vel með öllu og öllum sem voru í
kring af umhyggju og hlýju. Þrátt
fyrir margra ára veikindi hélt hún
fullri reisn fram í andlátið og bar ald-
urinn einstaklega vel bæði andlega
og líkamlega.
Margs er að minnast og þær
minningar geymum við fjölskyldan
með okkur. Hún stóð fyrir mörg þau
sterku gildi sem kynslóð hennar
lærði harðri hendi. Þessi gildi var
hún í verki og sterk fyrirmynd sem
skilur mikið eftir. Að gera gott úr
litlu, fagurfræði, æðruleysi, hrein-
skilni, kærleikur, umhyggja, sterk
og hlý nærvera, og umfram allt að
leggjast til hvílu í sátt og friði við
menn. Nú er það okkar komandi
kynslóðar að sýna að slíkar gjafir og
fyrirmyndir uppvaxtar gleymist
ekki.
Ég vitna í herra Sigurbjörn Ein-
arsson biskup þegar hann spyr:
Hvað á maður til hinstu farar? Mað-
ur á það eitt sem safnast hefur í sjóð
hjartans. Trúin skipaði stóran sess í
lífi Jennýjar. Eins og margt fólk af
hennar kynslóð átti hún mikið í
minnissjóði sínum af bænaversum,
ritningarorðum og sálmum og þegar
leið að ferðalokum og þrekið fór að
þverra þá voru það bænavers
bernskunnar sem lýstu eins og hlýr
og stilltur logi inni í fylgsnum
slokknandi vitundar.
Þitt líf er því mitt,
og lifi og dey fyrir málefni þitt,
á undan þú gengur, á eftir ég fer,
og allt mun ég sigra að lokum með þér.
Minn dýrðlegi Jesús, ég dásama þig,
í dýrð leið þú mig.
(Friðrik Friðriksson.)
Með innilegu þakklæti fyrir sam-
veru okkar elsku amma.
Þóra Jenný Gunnarsdóttir.
Annan í jólum fékk ég þær fréttir
að amma væri dáin. Það er erfitt að
segja hvernig manni líður við slíkar
fréttir. Að vissu leyti var þetta léttir
þar sem hún var orðin svo þreytt á
hnignandi heilsu síðustu daga, og
auðvitað reynir maður að hugga sig
við það að henni líði nú mun betur.
En á móti kemur þessi eigingirni
manns að vilja hafa hana ömmu hjá
sér alla daga ársins. Hún hefur alltaf
verið svo mikill og stór hluti af mínu
lífi, allt frá því að ég eyddi nær öllum
dögum hjá henni og afa í Safamýr-
inni á yngri árum.
Það var stór stund fyrir þessa litlu
samhentu fjölskyldu þegar amma
fékk langömmubarnið sitt í hend-
urnar, og geislaði af henni gleðin við
það. Það er mikill missir að henni
ömmu en efst í huga mínum er þakk-
læti.
Þakklæti fyrir að fá að njóta sam-
veru með jafnyndislegri manneskju,
þakklæti fyrir allar sögurnar og
þakklæti fyrir alla þessa jákvæðu
leiðbeiningar fyrir lífið sem hún
veitti manni.
Það er okkar verkefni að hampa
þessari jákvæðni og þessari hlýju
áfram.
Hvíl í friði elsku amma.
Stefán.
Reykjavík eftirstríðsáranna var
ekki blíður vettvangur því unga fólki
sem streymdi úr sveitunum í leit að
betri afkomutækifærum fyrir sig og
sína. Þannig þótti það mikil heppni
þegar foreldrar okkar fengu leigt
eitt loftherbergi og eldhús á Hverf-
isgötunni. Leigusalarnir á neðri
hæðinni voru Jenný og Ágúst, ekki
mikið eldri og efni þar litlu meiri en
hjá aðkomufólkinu. Nýbúum þeirra
tíma.
Barnalánið á efri hæðinni varð
meira en efnin og í þessu litla leigu-
húsnæði voru börnin orðin fjögur á
örskömmum tíma. Leigusalar nú-
tímans hefðu eflaust á einhverju
stigi losað sig við þessa ofurfrjósömu
leigjendur en Jenný og Ágúst höfðu
alltaf nægt hjartarúm. Þar sem afar
og ömmur barnaskarans voru í óra-
fjarlægð úti á landi gengu leigusal-
arnir hetjulega í þau hlutverk og átti
sá uppátækjasamasti í barnahópn-
um sérstakan heiðurssess á heimili
þeirra. Löngu eftir að fólkið í risinu
hafði komið sér upp eigin húsnæði
og flutt í burtu var hann í lengri og
skemmri tíma í fóstri hjá leigusöl-
unum umhyggjusömu. Þetta fellur
eflaust ekki vel að viðskiptamódelum
nútímans og þætti arfavitlaus fjár-
festing en þarna mynduðust tengsl
og vinátta sem entist ævina á enda.
Á tíræðisaldri fylgdist Jenný
ennþá vikulega með líðan ungu kon-
unnar af efri hæðinni, sem komin er
á níræðisaldur. Börnin, sem fljótlega
höfðu breyst úr fjórum í sex og síðan
fjölfaldast í marga tugi, áttu líka stað
í hjarta hennar. Hjarta sem leyfði
svo miklu stærra rúm en hinn upp-
runalegi leigusamningur hafði kveð-
ið á um.
Það er ekki nógsamlega hægt að
þakka fyrir þau forréttindi að fá að
kynnast slíku fólki á lífsleiðinni.
Fjölskyldan Teigagerði 1.
Ég man að þegar ég kynntist
Stebba var hann alltaf að tala um
ömmu sína og hvað hann ætti ynd-
islega ömmu. Ég sá strax að það var
mjög sérstakt samband á milli
þeirra. Þegar ég hitti hana í fyrsta
skipti skildi ég hvað hann átti við. Ég
hef aldrei hitt jafn jákvæða og lífs-
glaða konu og hana Jenný. Það var
alveg sama hvað gekk á, hún sá alltaf
jákvæðu hliðina á hlutunun og það
var ekki til neikvæði í hennar orða-
forða. Eins var hún svo þakklát fyrir
allt sem maður gerði, sama hversu
lítið það var. Við kannski kíktum til
hennar í 10 mínútur og hún þakkaði
okkur kærlega fyrir að gefa okkur
tíma til að koma við hjá henni.
Ég gleymi líka aldrei þegar hún
fékk hjartaáfall og var að þakka
hjúkrunarfólkinu fyrir að annast
hana, þó hún væri sárþjáð af kvölum.
Elsku Jenný, mig langar að þakka
þér fyrir þann tíma sem við höfðum
saman. Þú varst svo harðákveðin í að
lifa það að hitta fyrsta langömmu-
barnið þitt og ég er óendanlega
þakklát fyrir að þú hafir náð því. Við
eigum fallega mynd af ykkur Heklu
saman sem verður geymd á góðum
stað. Ég veit að þér líður vel núna og
litla fjölskyldan hugsar til þín á
hverjum degi.
Íris.
Þóra Jenný
Pétursdóttir