Morgunblaðið - 03.03.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 F 43
Það er til siðs að staldra viðvið og við og taka stefnuna,átta sig á því hvert maðurstefnir og hvaða leiðir
maður ætlar að fara til að komast á
áfangastað. Í lífinu gerist þetta
gjarnan þegar ein-
hvers konar breyt-
ingar verða á hög-
um manns, hvort
sem þær breyt-
ingar eru góðar eða
slæmar. Margir
nota þá tækifærið,
meta stöðuna sem
þeir eru í, skoða alla möguleika á
áframhaldi og marka sér síðan þá
stefnu sem þeir telja ákjósanlegasta
til árangurs. Sýnt þykir að það að
marka sér stefnu í lífinu sé mun
vænlegra til árangurs en að eigra
stefnulaust um lífið. Stefnuleysið
leiði hugsanlega til þess að fólk nái
aldrei að koma undir sig fótunum í
lífinu, það láti bara reka á reiðanum
og bregðist við utanaðkomandi áreiti
eftir því sem það berst, án þess að
sýna nokkurt frumkvæði að aðgerð-
um sjálft. Betra er að vera gerandi í
eigin lífi, ákveða sjálfur hvernig
framtíðin á að líta út og fylgja þeirri
stefnu sem maður hefur einsett sér.
Garðyrkjufélag Íslands er gamalt
og gróið félag en það var stofnað ár-
ið 1885. Upphaflega var tilgangur fé-
lagsins sá að efla og auka áhuga á
garðyrkju hvers konar, aðallega
með það að augnamiði að kenna al-
menningi að rækta nytjajurtir til
matar. Þekking almennings á slíkri
ræktun var af skornum skammti í
lok 19. aldarinnar, að vísu höfðu
menn tekið kartöflur og rófur í sátt
og var það ein af uppstöðunum í fæði
margra Íslendinga en aðrar mat-
jurtir voru ekki algengar í ræktun.
Ljóst var á þessum tíma að til-
tölulega auðvelt var að rækta marg-
ar af þeim matjurtum sem ræktaðar
voru í nágrannalöndum okkar og
mikilvægt var að auka fjölbreytni í
fæðuvali Íslendinga, meðal annars
til að ráða bug á sjúkdómum sem or-
sökuðust af þessu fábreytta fæðu-
vali. Ein af þeim leiðum sem Garð-
yrkjufélagið valdi til að koma
boðskap sínum á framfæri var út-
gáfa Garðyrkjuritsins, ársrits sem
hefur komið út árlega nær óslitið frá
stofnun félagsins.
Félagið útvegaði félagsmönnum
sínum fræ, áburð, plöntur og annað
sem þurfti til ræktunarinnar og
sendi um land allt, ásamt leiðbein-
ingum um það hvernig ætti að með-
höndla viðkomandi vörur. Þessi
þjónusta var mjög mikilvæg því á
þessum upphafsárum félagsins var
óhægt um vik að útvega sér þessar
vörur nema með mikilli fyrirhöfn.
Tímarnir breytast og nú er Garð-
yrkjufélagið í annarri stöðu en við
upphaf þéttbýlismyndunar á Íslandi.
Ræktun matjurta er aðallega til
gamans í heimagörðum og tengist
frekar lífsstíl en raunverulegri þörf
á að drýgja tekjurnar með heima-
ræktuninni. Þekking almennings á
ræktun hefur tekið stórstígum fram-
förum á undarförnum árum og menn
eru mjög duglegir við að miðla af
þekkingu sinni og reynslu til ann-
arra. Samt sem áður þarf að vera til
vettvangur fyrir áhugafólk um garð-
yrkju þar sem það getur komið sam-
an og spjallað um þetta lifandi og
skapandi áhugamál sitt við aðra jafn
áhugasama einstaklinga og þar höf-
um við Garðyrkjufélagið.
Á aðalfundi Garðyrkjufélagsins
síðastliðið vor var kjörinn nýr for-
maður, Vilhjálmur Lúðvíksson. Vil-
hjálmur er ræktunarfólki að góðu
kunnur og hefur verið virkur í fé-
lagsmálum á ræktunarsviðinu um
árabil. Með nýjum mönnum koma
nýir siðir og hefur stjórn félagsins
með Vilhjálm í fararbroddi nú hafið
vinnu við stefnumótun Garðyrkju-
félagsins til framtíðar. Niðurstaða
vinnunnar verður kynnt á aðalfundi
félagsins þann 15. apríl í vor og þá
verður ljóst hvert Garðyrkjufélagið
stefnir og hvaða leiðir það ætlar að
fara til að komast á áfangastað.
Stefnumótun Garð-
yrkjufélags Íslands
Höfundur er forstöðumaður starfs-
og endurmenntunardeildar LbhÍ
649. þáttur
BLÓM VIKUNNAR
Guðríður Helgadóttir
Opið
mán.-fim. kl. 9-17.30
fös. kl. 9-17
Haukur Geir
Garðarsson
viðskiptafræðingur og
lögg. fasteignasali
haukur@fastis.is
SELJENDUR GERIÐ KRÖFUR
LÁTIÐ LÖGGILTAN FASTEIGNASALA SKOÐA OG
VERÐMETA EIGNINA YKKAR,
ANNAÐ ER ÁBYRGÐARLEYSI.
Vorum að fá í einkasölu fallega 2ja her-
bergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi, á
þessum vinsæla stað. Forstofa, eldhús,
gott svefnherbergi, baðherbergi og stofa
með suðvesturverönd. Parket og flísar á
gólfi. Glæsilegt útsýni. Stutt á golfvöllinn.
Ákv. sala.
KLUKKUBERG – HAFNARF. 2
Vorum að fá í einkasölu fallegt endaraðhús
á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr á
þessum vinsæla stað. Stofur með hurð út
á stóra vesturverönd, eldhús, búr/geymsla,
gestasnyrting, baðherb. sjónvarpshol og 3
herbergi. Vestursvalir, glæsilegt útsýni.
Botnlangagata. Hiti í stétt og bílaplani.
Ákv. sala.
KLETTÁS – GARÐABÆR Rað
Vorum að fá í sölu glæsilega og fullbúna
3ja herb. endaíb. á jh. í nýju fjölbýli, ásamt
stæði í bílskýli. Forst., 2 herbergi, glæsil.
baðherbergi, eldhús með eikarinnr., stofa
með timburverönd og garði. Fallegt suður
og vesturútsýni. Í kj. er sér geymsla og
stæði í bílskýli. Húsið er álklætt að utan.
Laus við kaups. Verð 29,9 millj.
NORÐURBAKKI HF. – BÍLSKÝLI 3
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 111
fermetra 3ja herb. íbúð á jarðhæð í litlu
nýlegu fjölbýli ásamt stæði í bílskýli. Stofa
með hurð út á verönd, 2 herbergi, vandað
eldhús, baðherbergi með baðkari og sturtu
og þvottahús. Parket og flísar á gólfum.
Húsið er klætt að utan og því viðhaldslítið.
Áhv. um 16 millj. Ákveðin sala.
BOÐAGRANDI - BÍLSKÝLI 3
Vorum að fá í sölu fallega og rúmgóða 3ja
herb. íb. ofarlega í lyftuhúsi með stórglæsi-
legu útsýni í þrjár áttir og 15 ferm. yfir-
byggðar svalir. L.f. þvottavél í íbúð, þurrk-
herbergi á hæðinni. Sérbílastæði. Ákv.
sala.
ORRAHÓLAR – ÚTSÝNI 3
Vorum að fá í sölu fallega 4ra herbergja
íbúð í þríbýli ásamt um 40 ferm. risi með
ýmsum möguleikum. Stofa, borðstofa, 2
herbergi, eldhús, endurnýjað baðherbergi,
þvottahús. Nýl. járn á þaki, endurn.
raflagnir og -tafla. Einnig hafa lagnir út í
götu svo og dren verið endurnýjuð. Sér hiti
og sér rafmagn. Mjög góð staðsetning.
Laus strax. Óskað er eftir tilboði
HOFTEIGUR - LÆKKAÐ VERÐ 4
Eigum 2 bil eftir, annarvegar 132 ferm. og
hinsvegar 142 ferm. Um er að ræða nýl.
iðnaðarhúsnæði sem er klætt að utan.
Mjög góð lofthæð allt að 7 metrar. Milliloft
að hluta. Stórar innkeyrsludyr. Gott at-
hafnasvæði. Sanngjarnt verð 19,9 – 21,9
millj.
STEINHELLA – LAUST – LOFTHÆÐ Atvh.
Í einkasölu rúmgóð, 94 ferm., 3ja herbergja
íbúð á jarðhæð í nýlegu fjölbýli. Stofa, 2
svefnherb., eldhús, baðherbergi og þvotta-
herbergi í íbúð. Parket. Ásett verð 24,9
millj.
RJÚPNASALIR – KÓP. 3
Sundagarðar 2 – Til leigu
Til leigu 2. og 3. hæðin í þessu glæsilega vel innréttaða húsi.
Samtals um 1.000 fermetrar. Leigutími frá 1. apríl 2008.
Fasteignafélagið Kirkjuhvoll
Upplýsingar veitir Karl í síma 892 0160 - karl@kirkjuhvoll.com