Morgunblaðið - 05.07.2008, Side 2
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞAÐ ER stórkostlegt að hafa þessa aðila með
sem trúa á þetta verkefni og ég held að það auð-
veldi REI að fá fleiri aðila að málinu. Það eru fleiri
aðilar sem hafa sýnt því áhuga að koma að þessu
sem ég get ekki nefnt á þessari stundu. Það hefur
verið rætt við bankastofnanir og sjóði,“ segir
Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykja-
víkur, um aðkomu IFC InfraVentures, nýs 100
milljóna dala fjárfestingarsjóðs, undir stjórn Al-
þjóðabankans, að frumathugun á hagkvæmni þess
að reisa jarðvarmavirkjun í Afríkuríkinu Djíbútí.
Alls leggur sjóðurinn fjórar milljónir Banda-
ríkjadala til verkefnisins, eða sem svarar 310 millj-
ónum íslenskra króna, og kveða samningar á um
að ef tilraunaboranir gefi góða raun og fyrirhuguð
50MW jarðvarmavirkjun verði að veruleika muni
styrkurinn breytast í hlutafé, ellegar að sjóðurinn
geti fengið féð, 35% af áætluðum heildarkostnaði
við athugunina, til baka með ávöxtun.
Spurður um aðdraganda verkefnisins segir
Hjörleifur að forsvarsmenn Reykjavik Energy In-
vest (REI) hafi lengi átt í viðræðum við Interna-
tional Finance Corporation (IFC), deild í Alþjóða-
bankanum. Nokkurn tíma hafi tekið að leggja
lokahönd á samninginn, sem falli að stefnu og
áformum REI.
„Þetta er hluti af þeirri vegferð sem menn eru í,
að fá aðila til þess að taka þátt í þessum verk-
efnum og þar með að minnka áhættu REI. Ef illa
fer og árangur af borunum verður ekki sá sem
menn ætlast til munu þeir afskrifa það sem þeir
láta í þetta. Þannig að þetta er áhættufé sem þeir
eru að leggja í þetta,“ segir Hjörleifur.
Margir komið að undirbúningnum
Inntur eftir því hvaða áhrif nýlegar manna-
breytingar innan REI hafi á verkefnið í Djíbútí
segir Hjörleifur þær ekki munu tefja það. Margir
hafi lagt hönd á plóginn í undirbúningnum, nú
þegar stjórn REI hafi samþykkt samninginn.
„Þetta er búið að vera lengi í undirbúningi. Ég
hef átt við þá símafundi og Kjartan Magnússon
hitti þá úti í Djíbútí [...] Þeir starfsmenn REI sem
hvað helst hafa unnið að þessu eru fyrst og fremst
Gunnar Örn Gunnarsson og Þorleifur Finnsson.“
Rashad Kaldany, aðstoðarforseti IFC í Mið-
Austurlöndum og Afríku segist í tilkynningu
hlakka til samvinnu við REI í framtíðinni.
Alþjóðabankinn í sæng með REI
Í HNOTSKURN
»InfraVentures er nýr sjóð-ur innan International Fin-
ance Corporation (IFC), fjár-
festingararms Alþjóða-
bankans.
»Sjóðurinn hefur til aðbyrja með úr að spila jafn-
gildi um 7,8 milljarða króna,
en til samanburðar úthlutaði
IFC á sjöunda hundrað millj-
arða króna til ýmissa verkefna
víðs vegar um heim í fyrra.
Nýstofnaður sjóður tengdur bankanum leggur til 310 milljónir króna vegna verkefnis í Djíbútí
Gefi tilraunaboranir góða raun getur sjóðurinn fengið framlaginu breytt í hlutafé í verkefninu
BAUTASTEINN
verður afhjúp-
aður til heiðurs
Einari Oddi
Kristjánssyni,
fyrrverandi
þingmanni,
laugardaginn
12. júlí næst-
komandi. Það
eru Samtök at-
vinnulífsins og
Alþýðusamband Íslands sem
standa fyrir athöfninni en steinn-
inn verður reistur að Sólbakka á
Flateyri í Önundarfirði, heima-
byggð Einars.
Að sögn Vilhjálms Egilssonar,
framkvæmdastjóra SA, telja sam-
tökin nauðsynlegt að leggja rækt
við minningu Einars Odds og
framlag hans til sögu verkalýðs-
hreyfingarinnar á Íslandi og sam-
skipta milli samtaka á atvinnu-
markaði. Því hafi ASÍ og SA
ákveðið að standa að þessu í sam-
einingu.
„Við teljum mjög viðeigandi að
halda minningu Einars Odds á
lofti með þessum hætti, ekki síst
vegna þess hve mikill brautryðj-
andi hann var í þjóðarsáttinni ár-
ið 1990 og hvað starf hans skipti
miklu máli fyrir land og þjóð,“
segir Vilhjálmur.
Einar Oddur var þingmaður
Sjálfstæðisflokks og sat á þingi
frá árinu 1995 þar til hann lést í
fyrra.
Í minn-
ingu Ein-
ars Odds
Einar Oddur
Kristjánsson
ASÍ og SA reisa
bautastein
Eftir Ómar Garðarsson
SJÖ manna hópur á tveimur tuðrum
kom til Vestmannaeyja síðdegis í gær
eftir að hafa siglt hringinn í kringum
Ísland. Ferðin hófst 16. júní og til-
gangur hennar var að safna pen-
ingum til styrktar Krafti, stuðnings-
félagi fyrir ungt fólk sem greinst
hefur með krabbamein og aðstand-
endur þess. Ferðin hefur skilað ár-
angri því þegar sjömenningarnir
komu til hafnar í gær var búið að
safna um sjö milljónum króna til
Krafts.
Ferðin tók 18 daga
Samtals tók hringferðin 18 daga,
var komið við á tæplega 20 stöðum og
voru móttökurnar víðast hvar frá-
bærar, að sögn ferðalanganna. Á
ýmsu gekk í ferðinni en erfiðastir
reyndust Faxaflóinn og Skagafjörð-
ur. „Þetta hefur verið barningur á
köflum,“ sagði Þorsteinn, einn sjö-
menninganna, við Morgunblaðið þeg-
ar hann steig upp úr bátnum við kom-
una til Eyja. Var hann eins og hinir
með saltstorknar kinnar enda ekkert
skjól að hafa í opnum bátunum þegar
pus gengur yfir.
„En þetta hefur verið skemmtilegt
og á flestum stöðum sem við komum
á voru móttökur með ólíkindum góð-
ar. Yfirleitt gekk ferðin vel en tveggja
tíma sigling yfir Faxaflóa tók sex tíma
og hann var ansi grófur inn Skaga-
fjörðinn. Þar fengum við nokkrar fyll-
ur og vorum orðnir blautir og hraktir
þegar við komum til Sauðárkróks,“
sagði Þorsteinn en taldi að aldrei hefði
verið hætta á ferðum.
Lengsti leggurinn var frá Horna-
firði til Vestmannaeyja og tók hann
um tólf tíma. „Það var allt í lagi nema
að það var þoka að Dyrhóley og síð-
asta spölinn til Eyja var dálítið pus.“
Það er afrek að sigla í kringum Ís-
land þar sem allra veðra er von þrátt
fyrir að hásumar sé. En tilgangurinn
var góður. „Fyrst og fremst vorum
við að þessu til að safna peningum til
góðs málefnis og við getum ekki verið
annað en ánægð með árangurinn.
Síðast þegar ég vissi var búið að safna
sjö milljónum sem renna til Krafts.
Það gæti verið orðið meira og þeir
sem vilja leggja málefninu lið geta
hringt í síma 907-2700,“ sagði Þor-
steinn að lokum.
Var barningur á köflum
Morgunblaðið/ Sigurgeir Jónasson
Hlýjar móttökur Hópurinn ásamt Sigurgeiri Brynjari Kristgeirssyni, fram-
kvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, sem styrkti hópinn myndarlega.
Hringferð til
styrktar Krafti
lauk í Eyjum í gær
MAÐURINN sem
lést í vinnuslysi
við Hafnarfjarð-
arhöfn í fyrra-
dag hét Tomaka
Ryszard. Hann
fæddist í Pól-
landi árið 1962
og vann hér á
landi fyrir Atl-
antsskip. Tom-
aka var ein-
hleypur og barnlaus.
Slysið varð um borð í flutn-
ingaskipinu Selfossi, sem er í eigu
Eimskipafélagsins, þegar verið var
að hífa gáma um borð.
Lést í
vinnuslysi
Tomaka
Ryszard
2 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf
Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud-
laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
LÍÐAN drengsins sem ekið
var á við Fjallkonuveg í Graf-
arvogi um eittleytið í gærdag
er stöðug og er hann ekki í lífs-
hættu, að sögn læknis á skurð-
deild barna á Landspítala.
Hann var á leið yfir Fjall-
konuveginn á reiðhjóli þegar
ekið var á hann á fólksbíl á
litlum hraða. Að sögn Sævars
Helga Lárussonar, sérfræð-
ings hjá Rannsóknarnefnd um-
ferðarslysa, var drengurinn
ekki með hjálm. Sævar segir
fulla ástæðu til að impra á
hjálmanotkuninni sem hafi fyr-
ir löngu sannað gildi sitt.
Slysstaðurinn er hraðahindrun sem notuð er eins og gangbraut, enda er
girðing á umferðareyju við hana rofin, svo fólk komist í gegn. Nálægt eru und-
irgöng sem gangandi og hjólandi vegfarendur geta nýtt sér án slysahættu.
Kunnugir segja að þar sem „gangbrautin“ sé til staðar og göngin ekki merkt
átti fólk sig oft ekki á þeim möguleika. Aðspurður tekur Sævar Helgi undir að
tilefni geti verið til að vekja meiri athygli á undirgöngunum á þessum stað.
Morgunblaðið/Júlíus
Öryggi Skammt frá þessum göngum undir
Fjallkonuveginn er hraðahindrun sem nýt-
ist sem gangbraut yfir götuna. Göngin eru
öruggari leið.
Líðan drengs
sem ekið var á
í Grafarvogi
er stöðug
Þurfa undirgöng
merkingar?
VEGNA fjár-
skorts hefur Heil-
brigðisstofnun
Suðurnesja
(HSS) í Keflavík
þurft að skerða
þjónustuna veru-
lega.
„Málið er að
það eru ekki til
peningar. Ég vil
alls ekki gefa upp
alla von, en í augnablikinu hef ég
ekkert í höndunum um að það muni
koma peningar,“ segir Sigríður Snæ-
björnsdóttir, forstjóri HHS.
Hún segir stofnunina hafa brugð-
ist við fjárþörf með lokun hraðmót-
töku, nýjungar í heilbrigðisþjónustu
þar sem sjúklingum var boðið upp á
hraða afgreiðslu í heilsugæslu.
Vísað til Reykjavíkur
Næsta skref sé að leggja niður
heilsugæsluvaktina utan dagvinnu
og öðrum tilvikum en neyðartilfell-
um verði vísað á læknavaktina í
Reykjavík og á slysadeild Landspít-
ala háskólasjúkrahúss.
Sigríður segir að á milli 50 og 100
sjúklingar komi á heilsugæsluna
daglega utan dagvaktarinnar, sem
ljúki klukkan 16.00, og að af þessum
fjölda megi áætla að níu af hverjum
tíu sjúklingum verði sendir annað.
Sigríður segir HSS hafa úr minna fé
að spila en sambærilegar heilsu-
gæslustofnanir á landsbyggðinni, sé
litið til fjölda íbúa, og að ef hún fengi
jafnháa fjárhæð og sú stofnun sem
næstlægsta upphæð fékk ætti hún að
fá 450 milljónir króna aukalega 2008.
Hún segir HSS hafa veitt sömu
þjónustu og aðrar sambærilegar
stofnanir en fyrir mun minna fé.
„Við erum í rauninni með þessari
fjárveitingu, sem við höfum haft, að
veita sömu þjónustu og okkar sam-
anburðarstofnanir, í mörgum tilfell-
um fyrir miklu minna fé, því við höf-
um getað gert þetta fyrir svona
50-75% af því sem hinar stofnanirnar
hafa fengið,“ segir Sigríður.
Miðað hafi verið við heilsugæslu-
stofnanir á Blönduósi, Sauðárkróki,
Vestmannaeyjum, Ísafirði, Aust-
fjörðum, Akranesi og Selfossi.
baldur@mbl.is
Níu af hverjum
tíu sendir annað
Sigríður
Snæbjörnsdóttir
Í HNOTSKURN
»Á fjárlögum fékk HSS78.734 krónur á íbúa.
»Sú stofnun sem næst komvar með 101.013 krónur á
hvern íbúa.
»Sú stofnun sem hæsta upp-hæð fékk var með 200.976
krónur á íbúa.