Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍRSKIR dagar verða haldnir um helgina á Akranesi í sjöunda skipti, en ljóst er að ein- hverjir verða frá að hverfa þar sem ákveðið hefur verið að hafa 23 ára aldurstakmark. Á sama tíma er Landsmót hestamanna hald- ið á Hellu auk Humarhátíðar á Höfn. Á hvor- ugri hátíðinni eru aldurstakmörk. Ástandið var orðið óþolandi „Aðalástæðan er sú að síðustu tvö ár hefur myndast ákveðið ástand á tjaldstæðum bæj- arins sem er algjörlega óþolandi,“ segir Tóm- as Guðmundsson, verkefnastjóri Akranes- stofu, inntur eftir ástæðu aldurstakmörkunarinnar. Hann segir þetta eina ráðið til að brjóta upp mynstrið, og tekur fram að muni þeir sem eru yngri en 23 ára koma með ungum börnum sínum, eða jafnvel foreldrum sínum, sé þeim leyft að mæta. „Við kynntum okkur lagalegar hliðar þessa máls,“ segir Tómas, sem segir almannahagsmuni vega þungt í þeim efnum. Tjaldstæðið á Laugarvatni hefur tekið þá ákvörðun að meina framvegis fólki undir þrí- tugu, sem ferðast í hópi, um aðgang að tjald- svæðinu í sumar. Þó er yngra fólki heimill að- gangur séu þeir með börnum sínum eða ekki í hóp. andresth@mbl.is Aldurstakmark á Írska daga  23 ára aldurstakmark á Akranesi um helgina  Mikil ölvun ungmenna síðustu ár ástæðan  Fá að mæta með börnum sínum eða foreldrum  Dæmi um þrjátíu ára aldurstakmark á tjaldsvæði Í HNOTSKURN »Tjaldstæðið á Laugar-vatni er með 30 ára ald- urstakmark. Það er þó opið þeim sem ekki ferðast í hóp- um eða eru með börn. »Einnig var gripið tilaldurstakmörkunar á Akureyri síðustu versl- unarmannahelgi og á Bíla- dögum. »Samband ungra sjálf-stæðismanna stóð fyrir 20 manna mótmælum á Akra- nesi í gær og stefnir sam- bandið á að senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis. Morgunblaðið/RAX Ferðahelgi Ekki eru allir gestir tjaldstæða landsins fjölskyldufólk eins og hópurinn á myndinni. FRÉTTASKÝRING Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „PAUL hringdi í mig í morgun [föstudag], hann gat bara talað ör- stutt en sagðist enn vera á flugvell- inum á Ítalíu. Hann sagðist vera undir stöðugu eftirliti vopnaðra lög- reglumanna sem færu með hann eins og glæpamann. Þeir fylgdu honum meira að segja á salernið,“ segir Rosemary Atieno Athiembo, eiginkona Paul Ramses Odour, sem var vísað úr landi af Útlendinga- stofnun (ÚTL) síðastliðinn fimmtu- dag. Að hennar sögn voru ítölsku lög- reglumennirnir mjög hissa á að hann skyldi hafa verið sendur til Ítalíu og hefðu þeir spurt hvers vegna Íslendingar afgreiddu ekki málið. Lögreglan hefði flutt hann í hópi fólks í sömu stöðu á stofnun þar sem fólk í þessari stöðu væri vistað tímabundið í Rómarborg. Hún hefði fengið númerið á þessari stofnun en ekki tekist að ná í hann símleiðis þar. Ráðgert væri að hann mundi dvelja þar í þrjár vikur, eftir það yrði hann fluttur annað, hvert hafði hann ekki hugmynd um þegar þau ræddust við seint í gærkvöldi. Ekki væri á hreinu hvort hann yrði áfram á Ítalíu eða hvort hann yrði sendur áfram til annars lands í framhaldinu. Innt eftir viðbrögðum Pauls við flutningunum segir hún hann hafa hljómað afslappaðri en á flugvell- inum, þar sem hann hefði verið í miklu uppnámi og liðið mjög illa á meðal varðanna. Deilir tilfinningunum Rosemary deilir þeim tilfinning- um. „Mér líður mjög illa, á erfitt með að sinna nýfæddum syni mín- um og get ekkert borðað,“ segir Rosemary. Hún býst við að sér verði vísað úr landi bráðlega en veit ekki enn hvert. Fídel sonur þeirra, sem er mán- aðargamall, er fæddur hér á landi. Það breytir þó engu um lagalega stöðu hans og telst hann því ken- ískur ríkisborgari. „Það að dreng- urinn sé fæddur hér veitir honum engin sérstök réttindi, hann fær hvorki ríkisborgararétt né sjálf- krafa dvalarleyfi,“ segir Haukur Guðmundsson, settur forstjóri Út- lendingastofnunar. Hann segir jafn- framt að lagaleg staða hælisleitenda breytist ekkert þó þeir eignist börn hér á landi. Hvergi í Evrópu gilda reglur líkar þeim sem gilda í Banda- ríkjunum þar sem börn þar fædd fá sjálfkrafa ríkisborgararétt. Íslandsdeild Amnesty Inter- national sendi dómsmálaráðherra bréf á fimmtudag þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að endur- skoða ákvörðun sína „ekki síst í ljósi þess að með endursendingu Paul Ramses Odour til Ítalíu hafa íslensk yfirvöld gengið á rétt nýfædds son- ar hans til að njóta umönnunar beggja foreldra,“ segir m.a. í bréf- inu frá Amnesty. Morgunblaðið/Ómar Mótmæli „Frelsum Paul, frelsum Paul!“ hrópuðu mótmælendur við dómsmálaráðuneytið. Þeir kröfðust þess að mál Paul Oduor yrði tekið upp hér á landi. Fer Fídel líka til Ítalíu? Framhaldið er óljóst eftir að Paul Ramses Odour var í gærkvöldi fluttur á stofnun í Róm þar sem fólk í hans stöðu er vistað tímabundið á meðan unnið er í máli þess „FARI svo að niðurstaða Útlend- ingastofnunar feli í sér brottvísun og endurkomubann, mun brottvísun frá Íslandi koma til framkvæmda um leið og ákvörðun liggur fyrir.“ Svo hljóðar niðurlag tilkynn- ingar Útlend- ingastofnunar um „hugsanlega brottvísun og endurkomubann Rosemary Atieno Odhiambo“, eins og það er orðað í inngangi bréfsins, sem dagsett er 2. júní sl. Þau hjónin sáu bréfið fyrst í síðustu viku. Í rökstuðningi í meginmáli bréfs- ins er tekið fram að þegar hún hafi komið til landsins í mæðraskoðun þann 20. desember sl. hafi hún við skýrslutöku tjáð lögreglu að hún ætlaði aftur til Svíþjóðar, þar sem hún hefði haft dvalarleyfi undanfarin ár, innan nokkurra daga. Dvöl henn- ar hér síðan hafi verið „ólögmæt“. Þá segir í niðurlagi að brottvísun feli í sér „bann við komu til landsins síðar, sbr. 3. mgr. 20. gr. laga nr. 96/ 2002“. Var henni veittur fimm daga frestur til að tjá sig skriflega um efni málsins frá móttöku bréfsins. Eiginkonan á brottvísun yfir höfði sér Mun einnig fela í sér endurkomubann Rosemary Odhiambo Mannréttindasamtök segja áhrif Dyflinnarsamkomulagsins þau að múr sé að myndast utan um Evrópu hvað málefni hælisleitenda varðar. Sé hælisleitanda hafnað í einu landi verði viðkomandi vísað til síns heima óháð ástandinu í heimalandinu. Þá taki jafnframt gildi tímabundið endurkomubann til Evrópu. Dyflinnarsamkomulag Schen- gen-ríkjanna felur í sér að fyrsta viðkomulandi hælisleitenda beri að fjalla um umsókn þeirra. Ríkjum er þó í sjálfsvald sett hvort þau fjalla um umsóknirnar og eru for- dæmi fyrir því að það sé gert. Norsk yfirvöld hafa til að mynda ákveðið að hælisleitendum sem koma frá Grikklandi verði ekki vís- að til baka þar sem aðstæður þar þykja óviðunandi. Gagnrýni á Dyflinnarsamkomulagið Í SKÝRSLU Amnesty International um aðbúnað hælisleitenda á Ítalíu frá árinu 2005 lýsa samtökin yfir áhyggjum af aðbúnaði í hælisleit- endabúðum. Þar segir m.a. að ítölsk yfirvöld haldi hælisleitendum, sem engin afbrot hafi framið, í auknum mæli í varðhaldi þar til þeir fái laga- lega aðstoð, slíkt geti tekið nokkra mánuði. Í skýrslunni segir að Am- nesty hafi ástæðu til að ætla að fólk sem haldið er í búðunum hafi þurft að sæta ofbeldi frá öryggisvörðum og yfirmönnum búðanna. Þar sé jafnframt deyfandi og ró- andi lyfjum beitt í ótæpilegu magni, vistarverur séu óþrifalegar og heil- brigðisþjónusta ófullnægjandi. Sam- kvæmt upplýsingum frá Íslands- deild Amnesty bendir allt til þess að ástandið á Ítalíu hafi aðeins versnað frá árinu 2005 þegar skýrslan var gefin út. jmv@mbl.is Hrikalegur aðbúnaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.