Morgunblaðið - 05.07.2008, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ÁKÆRA á hendur Jóni Ólafssyni, kaupsýslu-
manni og fyrrverandi stjórnarformanni Norður-
ljósa samskiptafélags hf., og þremur öðrum var
lögð fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í gær, vegna
meintra meiriháttar skattalagabrota við eigin
skattskil og í störfum fyrir Norðurljós, Skífuna hf.
og Íslenska útvarpsfélagið hf.
Er Jóni gert að sök að hafa á árunum 1999 til
2002 vantalið tekjur sínar, fjármagnstekjur og
eignarskattsstofna og þannig komið sér undan
greiðslu samtals um 361 milljónar króna. Stór
hluti þeirrar upphæðar er vegna vangoldins fjár-
magnstekjuskatts á skattframtali árið 2000, þegar
Jón seldi hlut sinn í Skífunni ehf. til Norðurljósa í
nafni félagsins Inuit Enterprises Ltd. Vangoldinn
10% fjármagnstekjuskattur af sölunni er talinn
rúmar 194 milljónir króna.
Ásamt Jóni eru í málinu ákærðir þeir Hregg-
viður Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Norðurljósa, Ragnar Birgisson fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Skífunnar og Símon Ásgeir Gunn-
arsson endurskoðandi. Hreggviður og Ragnar
vegna eigin skattskila, auk brota í störfum sínum
fyrir fyrrgreind félög, en Símon fyrir að telja
rangt fram fyrir Íslenska útvarpsfélagið. Hregg-
viður er talinn hafa skotið 24 milljónum króna
undan skatti árin 1998 til 2002, en Ragnar tæpum
4,9 milljónum á svipuðu tímabili.
Ákært fyrir margar rangfærslur í rekstri
Jón og Hreggviður eru ákærðir fyrir brot í
rekstri Norðurljósa, m.a. að hafa ekki skráð félag-
ið á launagreiðendaskrá og ekki greitt ríkissjóði
staðgreiðslu af launum starfsmanna, m.a. sínum
eigin, að upphæð 76 milljónir. Einnig að hafa
gjaldfært sem kostnað hjá Norðurljósum um 26
milljónir sem voru félaginu óviðkomandi og rang-
fært ársreikninga Norðurljósa vegna þess. Jón og
Ragnar eru ákærðir fyrir að hafa í störfum sínum
fyrir Skífuna vantalið launagreiðslur að upphæð
29 milljónir, vangoldið staðgreiðslu opinberra
gjalda að upphæð 11 milljónir og skilað röngum
virðisaukaskattskýrslum til að koma Skífunni
undan greiðslu 9,5 milljóna virðisaukaskatts.
Jón, Símon og Hreggviður eru svo allir ákærðir
fyrir brot framin í rekstri Íslenska útvarpsfélags-
ins. Jón og Hreggviður fyrir að vantelja launa-
greiðslur til sjálfra sín, þriggja stjórnarmanna og
þrettán annarra starfsmanna, og margvíslegar
aðrar greiðslur að upphæð 117 milljónir sem hefði
átt að greiða 42,9 milljónir í skatta af, auk þess að
koma félaginu undan tæpum 6 milljónum af virð-
isaukaskatti.
Símon er ákærður ásamt Jóni og Hreggviði fyr-
ir að hafa gert röng skattframtöl fyrir útvarps-
félagið, vantalið skattskyldar tekjur og oftalið frá-
dráttarbær gjöld, sem nam 632 milljónum króna.
Ákært í skattamáli Jóns Ólafssonar
HUMARHÁTÍÐ á Höfn í Hornarfirði var sett
með miklu húllumhæi í gærkvöldi. Mikil stemn-
ing myndast í bænum í kringum þessi árlegu há-
tíðahöld, en í ár var ákveðið að hafa hornfirska
menningu í forgrunni og sjá því heimamenn nær
alfarið um alla dagskrárliði. Það má því berlega
sjá að mikill sköpunarkraftur ríkir á Höfn því
boðið verður upp á fjölmargar myndlistarsýn-
ingar og tónlistaratriði auk tveggja dansleikja.
Þessir trúðar eru svo afsprengi listasmiðju
krakkanna í bænum og lífguðu sannarlega upp á
skrúðgönguna í setningarathöfninni.
LjósmyndSigurður Mar Halldórsson
Alhornfirsk karnivalstemning á Humarhátíð
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
SÍÐUSTU mánaðamót voru mörgum
einstaklingum erfið þar sem geng-
isþróunin og verðbólgan urðu til þess
að hækka greiðslubyrði lána all-
verulega. Dæmi eru um erlend bíla-
lán sem hækkuðu eingöngu síðan í
júní um mörg þúsund krónur. Hið
sama má segja um verðtryggð íbúða-
lán. Frá áramótum nemur hækkunin
í mörgum tilvikum tugum þúsunda
króna.
Hjá Íbúðalánasjóði fengust þær
upplýsingar að umsóknir vegna
greiðsluerfiðleika væru orðnar 250 á
þessu ári, sem er 34% aukning miðað
við sama tíma í fyrra. Allt síðasta ár
bárust um 380 slíkar umsóknir.
Nýjar opinberar tölur um vanskil
einstaklinga við lánastofnanir liggja
ekki fyrir og talsmenn bankanna
sögðust ekki hafa orðið varir við auk-
in vanskil að neinu ráði.
Hins vegar er hætt við að það eigi
eftir að breytast á næstu mánuðum
þar sem spáð er uppsögnum í stórum
stíl og auknu atvinnuleysi. Af sam-
tölum við bankamenn má ráða að þeir
kvíða haustinu, telja að það verði
mörgum viðskiptavina þeirra mjög
erfitt.
Þjónustufulltrúar bankanna fá æ
fleiri til sín sem hafa áhyggjur af auk-
inni greiðslubyrði, og velta fyrir sér
hvernig hægt er að bregðast við. Fólk
spyr um aðstoð við greiðsludreifingu,
lengingu lána, biður um hækkun á yf-
irdrættinum eða spyr hvernig það
geti dregið úr útgjöldunum. Bank-
arnir segjast vera allir af vilja gerðir
til að aðstoða fólk í fjárhagsvanda en
hins vegar er erfiðara að fá yfirdrátt-
inn hækkaðan. Margir eru að auki
komnir með slíkar heimildir upp und-
ir þak, og hærri yfirdráttur er sjaldn-
ast lausn allra mála. Sparnaður og
ráðdeild eru lykilorðin í dag.
Ráðgjafarstofa um fjármál heim-
ilanna finnur vel hvaða áhrif sam-
dráttur í efnahagslífinu hefur á fólk.
Það sem af er ári hafa borist um 400
umsóknir um aðstoð en allt síðasta ár
voru yfir 600 umsóknir afgreiddar.
Að sögn Ástu S. Helgadóttur, for-
stöðumanns Ráðsgjafarstofunnar, er
biðlisti eftir viðtölum. Er stofan kem-
ur úr sumarfríi reiknar Ásta með
þungum mánuðum í ágúst og sept-
ember, eins og gjarnan vill verða, en
nú megi gera ráð fyrir enn meira
annríki. Fyrirhugað er að fjölga
starfsmönnum Ráðgjafarstofu, en
þeir eru nú sex í föstu starfi.
Ungt fólk í vanda
Starfsmenn stofunnar finna fyrir
aukinni greiðslubyrði hjá fólki, ekki
síst hjá ungu fólki sem hefur skuld-
sett sig upp í topp með kaupum á hús-
næði og bíl og er um leið með náms-
lán á bakinu. Berast
Ráðgjafarstofunni t.d. fjölmargar
fyrirspurnir frá ungu fólki um hvern-
ig það getur losnað undan bílalán-
unum. Á sama tíma hafa bankarnir
nánast lokað fyrir alla lánafyr-
irgreiðslu.
Ásta segir þetta hafa mikil áhrif.
Fólk sé orðið knúið til að taka á sín-
um málum. „Ástandið er mjög slæmt
en vonandi gengur þetta til baka,“
segir Ásta og óhætt að fullyrða að
margir geti tekið undir með henni.
Haustdrungi vofir yfir
Íbúðalánasjóður með þriðjungi fleiri umsóknir vegna greiðsluerfiðleika en í fyrra
Biðlistar hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna og starfsmönnum fjölgað
Bílalán
Hinir áhættufælnu neytendur hafa
einnig fundið fyrir aukinni
greiðslubyrði. Hér er dæmi um
mánaðarlega afborgun af bílaláni
hjá SP sem stendur nú í 1,3 millj-
ónum króna, er 50% verðtryggt í
ísl. kr. og 50% í myntkörfu.
Jan. 2008: 35.220 kr.
Júlí 2008: 42.261 kr.
Íbúðalán
Lán tekið í janúar sl. hjá Íbúða-
lánasjóði upp á 15 milljónir króna
hefur hækkað um 9%, eða um 1,3
milljónir króna. Eru þá ekki tekin
með áhrif af mögulegri lækkun á
markaðsvirði íbúðarinnar sem lán-
ið var tekið út á.
Jan. 2008: 15.000.000 kr.
Júlí 2008: 16.317.747 kr.
Og það hækkar og hækkar og …
HÖFUÐSTÖÐVAR Trygginga-
miðstöðvarinnar munu færast um
set um næstu áramót og verður
starfsemin þá flutt að Síðumúla 24 í
Reykjavík. TM hefur frá upphafi
starfsemi sinnar árið 1957 verið til
húsa að Aðalstræti 6, eða í rúmlega
hálfa öld.
Í fréttatilkynningu frá TM segir
að aðgengi að skrifstofunum í Að-
alstræti hafi lengi verið ófullnægj-
andi, meðal annars vegna skorts á
bílastæðum. Við flutningana að
Síðumúla 24 muni því aðgengi við-
skiptavina að þjónustu á höf-
uðborgarsvæðinu taka stakkaskipt-
um, enda verði þjónustan öll á
jarðhæð. Miðað er við að starfsemin
hefjist á nýjum stað um næstu ára-
mót.
Fasteignafélagið Landic Pro-
perty keypti nýlega húsnæði
Tryggingamiðstöðvarinnar.
Trygginga-
miðstöðin í
Síðumúlann
ENGAR nýjar
vísbendingar
hafa borist lög-
reglunni á Suð-
urnesjum vegna
hvolpsins sem
misþyrmt var í
hrauninu
skammt undan
Kúagerði í júní.
Hvolpurinn hafði
verið urðaður lifandi undir þungu
grjóti og var þrekaður mjög þegar
vegfarandi fann hann fyrir til-
viljun. Að sögn Heiðrúnar Sigurð-
ardóttur, rannsóknarlögreglu-
manns, er málið enn í rannsókn, en
yfirheyrslum er lokið í bili. Þá ligg-
ur enginn undir grun.
Mál hvolpsins
enn í rannsókn
Hvolpurinn
ÖLL sýni sem tekin voru í júní við
strandlengju Reykjavíkur voru inn-
an viðmiðunarmarka. Hvergi hefur
orðið vart við skólpmengun, segir í
frétt frá umhverfissviði.
Umhverfis- og samgöngusvið
vaktar strandlengju borgarinnar.
Heilbrigðisfulltrúar taka sýni mán-
aðarlega á ellefu stöðum. Sýna-
tökustaðir eru valdir með tilliti til
þess hvar líklegt er að fólk stundi
útivist.
Sýni sem tekin voru 25. júní síð-
astliðinn bera vitni um ómengaða
strönd í Reykjavík. Viðmið-
unarmörk fyrir saurmengun á úti-
vistarsvæðum í nánd við fjörur eru
100 saurkóligerlar í 100 millilítrum
samkvæmt reglugerð um fráveitur
og skólp.
Ströndin er
innan marka
Skattrannsóknarstjóri hóf
formlega rannsókn á skatt-
skilum Jóns í febrúar árið
2002. Rannsóknin náði til
tekjuáranna 1996 til 2001.
Samhliða því hófst rannsókn á
bókhaldi og skattskilum Ís-
lenska útvarpsfélagsins, Sýnar,
Skífunnar og Norðurljósa
vegna sömu ára. Skattrann-
sóknarstjóri skilaði skýrslu um
þetta í febrúar 2003 til Jóns
Ólafssonar til andmæla. Í
framhaldinu var málið sent til
embættis ríkisskattstjóra.
Sex ára gamalt mál