Morgunblaðið - 05.07.2008, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
STANGVEIÐI
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„HÉR hefur verið mokveiði, þetta er
bara eins og í þá gömlu, góðu daga,“
sagði Ingvi Hrafn Jónsson kampa-
kátur við Langá á Mýrum í gær.
Enda höfðu þá veiðst um 240 laxar í
ánni – á sama tíma í fyrra voru um
50 komnir á land.
„Laxinn er um alla á, ekki nema
um helmingur sem hefur veiðst neð-
an við þjóðveg. Svo siglum við enn
þá í góðu vatni og verðum það næstu
vikurnar,“ en Langá nýtur góðs af
vatnsmiðlunarstíflu í Langavatni.
„Þótt við hefðum ekki veitt nema
50 laxa á sama tíma í fyrra þá end-
uðum við samt í 1450 fiskum. Nú
stefnir í 2.000 laxa sumar, ef veður
og vatnsskilyrði verða í lagi.“
Ingvi Hrafn segir sömu sögu og
veiðimenn víða um land, að laxinn
komi afar vel haldinn úr hafi. „Það
er mörg ár síðan ég hef séð svona
mikið af sex til átta punda hængum
hér; þeir eru eins og tundurskeyti.“
Samkvæmt fréttavef SVFR er
veiðin í Norðurá komin yfir 500 laxa
og þar síðasta holl veiddi 137 sem er
afar gott. Síðasta holl veiddi síðan 70
í norðanáttinni – á sama tíma í fyrra
fékk það ekki nema sex.
Blússandi gangur er í veiðinni í
Borgarfjarðaránum. Í Flókadalsá
hafa þegar veiðst yfir 150 laxar á
stangirnar þrjár, síðasta holl í
Grímsá var það besta til þessa í sum-
ar, fékk 30 laxa, og tvo síðustu holl í
Kjarrá 30 og 40 laxa hvort. Minna er
að veiðast í Þverá, sem heldur laxi
ekki eins vel í litlu vatni eins og nú.
Fleiri drekar
Pétur Pétursson leigutaki Vatns-
dalsár segir síðasta holl hafa veitt 28
laxa og fiskur sé orðinn ágætlega
dreifður um ána, þótt það sé ekkert
ofboðslega mikið gengið af honum.
„En það eru fleiri drekar hér en
þessi 24 punda sem veiddist. Við höf-
um séð þá í Stekkjarfljóti og það eru
fleiri hér í Hnausastreng,“ en hann
var að aðstoða erlenda veiðikonu á
bakkanum þegar hringt var í hann.
„Svo láta þeir sumir fara lítið fyrir
sér, þar til í haust. Þá fara þeir svo
sannarlega á kreik,“ sagði Pétur og
ekki laust við spennu í röddinni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Í Langá Ólafur Finnbogason togast á við nýgenginn og kröftugan lax sem tók flugu í Strengjunum og strikaði síðan beint undir Skuggafoss.
Eins og tundurskeyti
Mjög góð laxveiði er á Vesturlandi og talsvert hærra hlutfall af tveggja ára laxi
en síðustu sumur Eitt holl í Norðurá, sem er komið yfir 500 laxa, fékk 137
MUN fleiri stórir laxar eru að veiðast
í ánum en síðustu sumur. Einar
Gústafsson veiddi 101 cm langan
hæng í veiðistaðnum Rúnka í Kjarrá
og Örn Andrésson 99 cm hæng í
Kaðalstaðahyl í Þverá. Þá hefur verið
fjallað um metralanga hænginn sem
Þorgeir Haraldsson veiddi í hinum
fræga stórlaxahyl Hnausastreng í
Vatnsdalsá og vó 24 pund eða 12 kíló
í háfnum, áður en honum var sleppt
aftur. Samkvæmt viðmiðunartöflu
Veiðimálastofnunar er metralangur
lax 20 pund.
„Kvarðinn er nokkuð réttur í smálaxi
en það er alveg hægt að bæta tveim-
ur pundum við í stórum vorlaxi, segir
Pétur Pétursson við Vatnsdalsá.
Stórlaxasumar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
veita 30 milljónum króna til að
auka umferðaröryggi í Háaleit-
ishverfi og Laugardal.
Upphæðin skiptist með þeim
hætti að 20 milljónir renni til aðlög-
unar 30 km svæðis á Háaleitisbraut
árið 2008. Tíu milljónir renni til að-
gerða í því skyni að lækka umferð-
arhraða umhverfis Laugalækja-
skóla á árunum 2008 til 2009.
Borgarstjóri lagði fram tillögu í
borgarráði í apríl sl. þar sem um-
hverfis- og samgönguráði er falið
að gera tillögur um fjölgun 30 km
svæða í íbúðahverfum. Þá verði
gerð áætlun um fjölgun mislægra
göngutengsla yfir umferðaræðar.
Öryggið
verði aukið
SKOTVEIÐIFÉLAG Íslands og Fé-
lag hreindýraleiðsögumanna hafa
bent á að nauðsynlegt sé að hrein-
dýraveiðimenn þreyti skotpróf til
að sanna hæfni sína áður en þeir
halda til veiða. „Því miður er ekki
hægt að skylda veiðimenn til að
taka slíkt skotpróf enn sem komið
er þar sem mjög fáir riffilskotvellir
eru til á Íslandi og ekkert ákvæði
um slíkar kröfur í lögum. Stað-
reyndin er sú að of margir veiði-
menn halda til hreindýraveiða án
þess að skotvopn þeirra séu í lagi,
þá oftast að riffilsjónaukinn er ekki
rétt stilltur,“ segir í frétt á vef fé-
lagsins.
En nú horfir til betri vegar því í
tilefni 30 ára afmælis Skotveiði-
félags Íslands nú í ár hyggst félagið
bjóða félagsmönnum sínum, án end-
urgjalds, að taka skotpróf áður en
þeir halda til veiða og aðstoð við
stillingu riffilsjónauka. Með þessu
vill Skotvís tryggja að félagsmenn
haldi eins vel undirbúnir til veiða
og unnt er.
Bjóða ókeypis
skotpróf
FARÞEGUM í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar fækkaði um tæp 3% í júní
miðað við sama tíma í fyrra, úr
rúmlega 257 þúsund farþegum árið
2007 í 250 þúsund farþega nú.
Farþegum til og frá Íslandi fjölg-
aði um rúmlega 2% milli ára en far-
þegum sem millilenda hér á landi á
leið yfir Norður-Atlantshafið fækk-
aði um tæplega 31%, að því er fram
kemur á vef Leifsstöðvar.
Þetta er þriðji mánuðurinn í röð
sem farþegum sem leið eiga um
Leifsstöð fækkar. Þróunin hófst í
apríl sl. þegar farþegum fækkaði
um 14,9% miðað við apríl í fyrra.
Farþegar í maí voru 4,55% færri en
í maí í fyrra.
Að sögn Elínar Árnadóttur, for-
stjóra Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar, gætir fækkunar áningar-
farþega ekki í verslun í flugstöð-
inni. Hún segir að reynslan sé sú að
farþegar sem millilendi hér versli
ekki í miklum mæli. Farþegar sem
fara frá landinu og koma hingað
versli mest og þeim fjölgaði í ný-
liðnum júní um 2%. sisi@mbl.is
Mun færri
millilenda
Farþegum í
Leifsstöð fækkaði
um 3% í júní