Morgunblaðið - 05.07.2008, Side 10
10 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Nú er svo komið að bílar halda sigekki innan hámarkshraða af
virðingu fyrir lögum og reglum,
heldur einfaldlega vegna þess að þá
eyða bílarnir ekki eins miklu. Það er
svokallaður „sparakstur“.
En skilyrðin tilþess að spara
bensín með þeim
hætti eru verri
hér á landi en
annars staðar í
Evrópu. Íslend-
ingar eru nefni-
lega með versta
bílaflotann í Evrópu þegar kemur að
eyðslu og útblæstri, eins og kom
fram í Morgunblaðinu í gær. Með-
algildi útblásturs nýskráðra bíla á
Íslandi er 193,3 g/km, en Portúgal
stendur sig best með gildið í kring-
um 150.
Þá eru ónefnd fellihýsin, sem ýtaenn frekar undir eyðsluna.
Og allir jepparnir, sem virðastnauðsynlegir til að komast á
milli staða í borginni, ekki síst í fjár-
málahverfinu í Borgartúni.
Getur verið að jeppum hafi fjölgaðí réttu hlutfalli við kílómetrana
sem hafa verið malbikaðir á lands-
byggðinni?
En hækkandi olíuverð kollvarparöllum forsendum.
Mengunin er nánast engin, hanner ódýrari í innkaupum, sparar
helming í eldsneytiskostnaði og
krafturinn og allir aksturseig-
inleikar eru nákvæmlega þeir sömu
og í bensínbíl,“ segir Aðalsteinn
Leifsson sem keypti metangasbíl í
fyrra.
Það er ekki að ósekju að Geir H.Haarde forsætisráðherra hefur
talað um að Íslendingar þurfi að
breyta neyslumynstri sínu. Ef marka
má umferðina út á land í gær, þá er
hugarfarsbreyting að eiga sér stað!
STAKSTEINAR
Er hugarfarið að breytast?
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
! !
"#
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
!
! !
!
!
! !
! ! !
*$BC
!
"
# $ *!
$$B *!
$%
&
'
%
'
( )'* )
<2
<! <2
<! <2
$('& + , -# ).
D2E
<
$ !
!
% % 62
&'
!# (
!
# $!
! ) (
*
B
#' *'
$
+" ,"
!
)
%
)
# $ --
!
/0 )11 )' 2
) #) +
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Gott er að eiga góða móður þegar leita þarf
skjóls fyrir áreiti heimsins. Á þeim degi sem Héraðs-
nefnd A-Húnavatnssýslu var lögð niður eftir tæplega
20 ára tilveru fór að rigna í sýslunni langflestum til
mikillar ánægju. Folaldið braut ekki heilann um þessi
sögulegu tímamót í sýslunni að öðru leyti en því að það
var blautt og undir móðurkviði var skjól að finna fyrir
vætunni.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Gott er að eiga góða móður
KONA sem höfðaði mál gegn lífeyr-
issjóðnum Gildi fékk í gær viður-
kenningu á því fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur, að Gildi hefði verið
óheimilt að draga örorkulífeyri og
tekjutryggingu sem hún fær frá
Tryggingastofnun ríkisins frá ör-
orkulífeyrinum sem hún fær frá líf-
eyrissjóðnum. Byggðist niðurstaðan
á vanhæfi ráðuneytisstjóra í fjár-
málaráðuneytinu og undirmanna
hans til að staðfesta breytingu á
samþykktum lífeyrissjóðsins. Auk
þess var Gildi gert að greiða konunni
700.000 krónur í málskostnað.
Konan hóf að taka örorkulífeyri á
árinu 1982, þá metin 75% öryrki eftir
brjósklosaðgerð á Landspítalanum
ári fyrr. Hún varð sjóðfélagi í Gildi
árið 2005 við sameiningu eldri lífeyr-
issjóða. Á ársfundi Gildis 2006 var
gerð breyting á samþykktum sjóðs-
ins, m.a. sú að tekið skyldi tillit til líf-
eyris- og bótagreiðslna frá almanna-
tryggingum.
Óvíst hvort Gildi áfrýjar
Héraðsdómur segir ráðuneytis-
stjórann hafa verið vanhæfan, vegna
stöðu sinnar sem formaður stjórnar
Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, til að
fjalla um sambærilegar breytingar
og gerðar voru á samþykktum Söfn-
unarsjóðsins hjá öðrum lífeyrissjóð-
um. Á sama hátt voru allir undir-
menn hans í ráðuneytinu taldir
vanhæfir. Óvíst er hvort Gildi áfrýj-
ar dómnum.
„Þetta mun hafa mikla þýðingu
fyrir fjölmarga,“ sagði Ragnar Að-
alsteinsson, lögmaður konunnar, í
samtali við fréttavef Morgunblaðs-
ins í gær. „Ég tel að dómurinn muni
hafa þau áhrif að 14 lífeyrissjóðir
sem breyttu samþykktum sínum fyr-
ir 2-3 árum verði nú að gera upp síð-
asta tímabil að nýju fyrir u.þ.b. 2.000
öryrkja.“ onundur@mbl.is
Örorkan ekki skert vegna
vanhæfis embættismanna
KANARÍEYJAFLAKKARAR
standa fyrir 15 ára afmælishátíð í
Árnesi helgina 11.-13. júlí næstkom-
andi með tilheyrandi skemmti-
dagskrá og veisluhöldum. Samfélag
Íslendinga á Kanarí er mjög sam-
heldið á veturna og hefur það verið
hefð að hópurinn hittist hér heima
yfir sumartímann líka, en í ár er 15.
sumarið sem það er gert og verður
dagskráin sérlega vegleg af því til-
efni. Að sögn Sigurborgar Jón-
asdóttur, Kanaríeyjafara, var úti-
legan smá í sniðum í fyrstu en hefur
vaxið ár frá ári og telur nú um 300
manns á öllum aldri.
Í ár hefst dagskráin með trompi á
föstudagskvöldinu 11. júlí, en þá
verður hitað upp með ýmsum heima-
tilbúnum skemmtiatriðum og loks
harmonikkuballi þar sem verður
dansað fram eftir nóttu. Á laug-
ardagskvöldinu nær dagskráin svo
hápunkti með hátíðarhlaðborði sem
hefst kl. 19. Jóhannes Kristjánsson
skemmtikraftur mun skemmta gest-
um yfir borðhaldinu, en að því loknu
verður ósvikið sveitaball þar sem
sveiflukóngurinn Geirmundur Val-
týsson syngur fyrir dansi og er þetta
þriðja sumarið sem Geirmundur
skemmtir Kanaríeyjaflökkurum.
Þá verður á laugardeginum dregið
úr stærðarinnar happadrætti í til-
efni 15 ára afmælisins, þar sem
verða margir glæsilegir vinningar
en aðalvinningurinn er að sjálfsögðu
ferð til Kanaríeyja í boði Heims-
ferða. Happadrættismiðar verða
seldir í Árnesi yfir helgina. Mikil
stemning ríkir iðulega í útilegunni
og leggja skipuleggjendur áherslu á
að allir séu velkomnir, Kanaríeyja-
flakkarar sem aðrir.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Fyndinn Jóhannes Kristjánsson mun reyta af sér brandarana.
Kanaríveisla á Íslandi
AÐ TILLÖGU
ráðgjafanefndar
verður lagt til á
næsta fundi
borgarráðs að
Anna Kristins-
dóttir, stjórn-
málafræðingur
og fyrrverandi
borgarfulltrúi,
verði ráðin
mannréttinda-
stjóri Reykjavíkurborgar.
Alls sóttu 23 einstaklingar um
embættið.
Ráðgjafanefnd um ráðninguna
boðaði sex af umsækjendunum í
viðtöl. Það er samdóma álit
nefndarinnar sem fór yfir um-
sóknir og tók viðtölin að Anna
Kristinsdóttir fullnægi best þeim
kröfum sem gerðar eru sam-
kvæmt auglýsingu um starf
mannréttindastjóra, segir í frétt
frá Reykjavíkurborg.
Anna lauk BA-gráðu í stjórn-
málafræði frá Háskóla Íslands ár-
ið 2006. Hún vinnur nú að loka-
ritgerð í meistaranámi í
opinberri stjórnsýslu frá HÍ.
Maki Önnu er Gunnar Örn
Harðarson, framkvæmdastjóri, og
eiga þau þrjú börn.
Anna Kristinsdóttir var borgar-
fulltrúi Reykjavíkurlistans.
Verði mann-
réttindastjóri
Anna
Kristinsdóttir
LANDSSAMTÖK hjólreiðamanna
harma að ekki skuli vera gert ráð
fyrir hjólreiðabraut með að-
greindum stefnum í tengslum við
lagningu forgangsakreinar á
Miklubraut, sem nú er í vinnslu.
„Sú hljóðmön sem mokað hefur
verið upp samfara þessari fram-
kvæmd mun klárlega þrengja að
þeim gangstíg sem fyrir er,“ segir
í ályktun stjórnar samtakanna.
Samtökin hvetja Reykjavík-
urborg og Vegagerðina til að
bregðast skjótt við og leggja full-
gilda aðgreinda hjólreiðabraut
meðfram Miklubraut. „Ef jafnræði
á að ríkja milli samgöngumáta er
mikilvægt að framvegis verði hug-
að að slíku við lagningu ak-
brauta.“
Ekki hugað
að hjólandi