Morgunblaðið - 05.07.2008, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.07.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 11 FRÉTTIR RÍKISSTJÓRNIN hefur í kjölfar jarðskjálftans á Suðurlandi hinn 29. maí síðastliðinn, ákveðið að tillögu forsætisráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra, að setja á laggirnar starfshóp ráðuneyta sem ætlað er að vinna náið með fulltrú- um sveitarstjórna á jarðskjálfta- svæðunum á Suðurlandi við að meta hvernig fara skuli með ótryggð tjón einstaklinga og fyr- irtækja. Einnig hvernig haga skuli fjárhagslegum stuðningi við sveit- arfélögin, m.a. vegna endurreisn- arstarfsins. Gríðarmikið eignatjón varð víða í skjálftanum og skemmd- ust hús, innbú og samgöngu- mannvirki. Reynslan frá árinu 2000 mun verða höfð að leiðarljósi við þessa vinnu. Ráðuneytisstjóri forsæt- isráðuneytisins mun stýra starfs- hópi ráðuneytanna en auk þess munu sitja í honum fulltrúar dóms- og kirkjumálaráðuneytis, félags- og tryggingamálaráðuneytis, heil- brigðisráðuneytis, samgöngu- ráðuneytis, umhverfisráðuneytis, viðskiptaráðuneytis og fjár- málaráðuneytis. Endurreisn- arstarf hafið á Suðurlandi Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÞÓ að framkvæmdir við Kára- hnjúkavirkjum séu á lokasprettinum hefur aðsókn ferðamanna og ann- arra gesta á svæðið lítið minnkað. Mun umferðin aukast enn meir frá 15. júlí til 15. ágúst nk. þegar al- menningur getur ekið eða gengið yf- ir Kárahnjúkastífluna. Þá var nýlega farið að bjóða fólki upp á skipulagðar skoðunarferðir inn í stöðvarhúsið í Fljótsdal. Nú þegar hafa nærri 300 manns farið í þær ferðir. Á síðasta ári komu um 10 þúsund gestir í Végarð, upplýsingamiðstöð Kárahnúkavirkjunar við Fljótsdals- stöð, og að sögn Sólveigar D. Berg- steinsdóttur forstöðumanns stefnir í svipaða aðsókn á þessu ári. Á fyrstu sex mánuðum ársins höfðu um tvö þúsund manns komið í Végarð, sem er svipað og á sama tíma í fyrra, en framundan eru annasömustu mán- uðirnir í ferðaþjónustunni; júlí og ágúst. Þegar mest lét, árið 2006, komu nærri 16 þúsund manns að skoða virkjunarsvæðið. Sólveig segir engan vafa leika á því að ferðaþjónustuaðilar á Fljóts- dalshéraði hafi notið góðs af nábýl- inu við Kárahnjúkavirkjun. Aukning sé vel merkjanleg á stöðum eins og Skriðuklaustri, Sænautaseli og gisti- stöðum. Þúsundir að Kárahnjúkum Ljósmynd/Landsvirkjun Gestir Skipulagðar skoðunarferðir að Kárahnjúkum hafa verið tíðar. Hér eru starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Austurlands á ferðinni nýverið.  Reiknað með mikilli umferð yfir Kárahnjúkastíflu í sumar  Almenningi boðið í skoðunarferðir inn í Fljótsdalsstöð UNDIRRITAÐUR hefur verið sam- stafssamningur milli Keilis á Kefla- víkurflugvelli, Securitas og Öryggis- miðstöðvarinnar. Samkvæmt samningnum hyggjast fyrirtækin stuðla að öflugu námi fyrir örygg- isverði. Þeim hefur fjölgað verulega hin seinustu misseri og skipta nú orðið hundruðum. Öryggi er orðið snar þáttur í daglegu lífi fólks. Við treystum tilteknum starfsstéttum fyrir mikilvægum þáttum í lífi okkar, heimilum, fyrirtækjum og bæjarlífi, segir í fréttatilkynningu. Öryggis- vörslu hefur þó ekki verið sinnt markvisst innan skólakerfisins. Með samstarfssamningnum hyggjast fyr- irtækin þrjú bæta úr brýnni þörf með því að koma upp markvissri kennslu fyrir öryggisverði og tengja hana hinu almenna skólakerfi. Þann- ig telja fyrirtækin að efla megi þekk- ingu innan stéttarinnar, efla áhuga fólks á starfinu og þar með bæta ör- yggi almennt. Bylting í þjálfun ör- yggisvarða Heildsöludreifing og þjónusta: Tæknivörur, Skútuvogi 12c auk viðurkenndra söluaðila um land allt M110 fæst hjá Vodafone og Símanum, ÚTIVISTARSÍMINN sem þorir og þolir Flúðasiglingin var rosaleg, allt rennblotnaði en síminn virkaði. Þekki þessi ekki neitt, Fannst þau bara svo ekta þýsk eitthvað. Skemmtilegt sjónarhorn, Nonni skal aldrei komast með tærnar þar sem ég hef hælana. Þetta var frábær ferð og kjötið ljúffengt. Sætt. Blautasta Hróarskeldu- hátíðin hingað til, að utan sem innan. 30 mínútum áður en sá stóri tók. Nenni þessu varla aftur, en það var gaman meðan á því stóð. Á skíðum skemmti ég mér... Högg,- ryk- og rakavarinn (IP54) • VGA myndavél • Bluetooth Vasaljós • Stereo FM-útvarp • Innbyggður hátalari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.