Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í FYRSTU var gríðarleg eftirspurn eftir lóðum í Úlfarsárdal við Úlfarsfell en fyrstu lóðirnar
voru boðnar út árið 2006. Reykjavíkurborg hefur á þessu ári þurft að endurgreiða um 200
milljónir króna vegna skila á lóðum sem úthlutað var í hverfinu. Þá hefur verið ákveðið að
fresta lóðaúthlutun sem fram átti að fara nú haust. Íbúðahverfið Úlfarsárdalur mun telja yfir
10 þúsund manns þegar það verður fullbyggt.
Húsbyggjendur og verktakar fara ekki varhluta af niðursveiflu í íslenska efnahagslífinu
Morgunblaðið/RAX
Úlfarsárdalur: 900 íbúðir
FRAMKVÆMDIR hófust í mars á þessu ári við gatna- og holræsagerð í Reynisvatnsási í Graf-
arholti. Í sama mánuði var úthlutað lóðum og bar nokkuð á því að þeir sem dregnir voru út
skiluðu lóðunum. Á svæðinu, sem þekur um 10 hektara er ráðgert að byggja 116 íbúðir og er
áætlað að ljúka gatnagerð í október. Verður einnig gerð tengibraut á þessu gróðursæla svæði
inn á Hólmsheiði. Nú eru vegir lagðir en engin hús enn byggð á svæðinu.
Morgunblaðið/RAX
Reynisvatnsás: 116 íbúðir
ÁÆTLAÐ er að byggja 400 íbúðir á svæðinu; einbýlishús, parhús og raðhús. Landið er alls um
58 hektarar og er því svipað að stærð og Grafarholtshverfið í Reykjavík. Hugmyndin er að
byggja hverfi sem er gisnara en venjuleg íbúðahverfi og koma til móts við sífellda eftirspurn
eftir sérbýlishúsum í Mosfellsbæ. Þá geti bærinn einnig undirstrikað þá sérstöðu sína að sam-
eina kosti sveitar og þéttbýlis.
Morgunblaðið/RAX
Leirvogstunga: 400 íbúðir
Í HVERFINU verða um 1.020 íbúðir í fjölbýlishúsum og sérbýlum auk verslunar- og þjón-
ustubygginga. Gert er ráð fyrir tveimur leikskólum og grunnskóla í hverfinu. Miklar deilur
spruttu upp um tengiveg úr hverfinu, um Álafosskvos, að Vesturlandsvegi. Um 40% lóða eru
nú seldar í hverfinu. Lóðir einbýlishúsanna eiga að vera 750-800 fermetrar og bílakjallari und-
ir hverju fjölbýlishúsi. Aðeins eitt fjölbýlishús er risið á svæðinu.
Morgunblaðið/RAX
Helgafell: 1.020 íbúðir
FRÉTTASKÝRING
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
TÓMIR húsgrunnar og hálfkláruð steypuflykki
blasa við þegar beygt er inn í nýja Úlfarsfells-
hverfið í Reykjavík. Sömu sögu er að segja af nýja
hverfinu í Leirvogstungu í Mosfellsbæ. Einstaka
smiður er á vappi hér og þar og í fjarska heyrist
suð í háþrýstidælu. Veður er með besta móti og
engan íbúa að sjá á götunum. Allt er með kyrrum
kjörum.
Nýju íbúðahverfin í höfuðborginni og í nágrenni
hennar eru ef til vill tær birtingarmynd þess að
niðursveifla í efnahagslífinu er hafin; hægari og
erfiðari tímar eru í nánd. Lánsfé af skornum
skammti.
Lítið selst af lóðum
Hægst hefur á sölu lóða í nýja Helgafellshverf-
inu í Mosfellsbæ. Um 40% lóða þar eru nú seldar
en áætlað er að reisa 1.020 íbúðir á svæðinu; þar
af fjölmörg einbýlishús og raðhús. Í skipulagi
hverfisins er gert ráð fyrir grunnskóla á stórri lóð
í miðjunni og í tengslum við hann verður starf-
ræktur leikskóli. Þá er einnig gert ráð fyrir sér-
stakri leikskólalóð í nánd við miðju hverfisins.
Sömu sögu er að segja af framkvæmdum í áð-
urnefndu Leirvogstunguhverfi. Bjarni Guð-
mundsson, sem stendur fyrir byggingu þess, segir
mjög hafa hægt á sölunni. „Það selst lítið sem
ekkert í dag, sem auðvitað telst eðlilegt þar sem
enginn fær peninga.“ Hann segir það þó sæta
furðu hve mikið er að gerast í hverfinu miðað við
efnahagsástandið. Gert er ráð fyrir um 400 lóðum
á svæðinu og um 1200-1300 íbúum. Erfitt er að
segja til um hvenær hverfið verður fullmótað en
framkvæmdaaðilar vonast til að svo verði innan
tveggja til þriggja ára.
Lóðum skilað og verð lækkar
Nýlega ákvað bæjarstjórn Hafnarfjarðar að
lækka verð á lóðum í nýju Vallarhverfi í bænum
þar sem um tuttugu vilyrðishafar skiluðu sér ekki
við úthlutun.
Þá hefur lóðum einnig verið skilað við Reyn-
isvatnsás í Reykjavík. Um 650 umsóknir bárust
upphaflega í þær 106 íbúðir sem eiga að vera í
hverfinu. Þar eiga að vera 58 einbýlishús og 12
rað- og parhúsalóðir fyrir 48 íbúðir.
Forvitnilegt verður að fylgjast með hvort líf
glæðist að nýju í þessum hverfum og hvenær
glaumur mannlífsins mun að lokum yfirgnæfa
suðið í háþrýstidælunni.
„Lítil sem engin sala á lóðum“
Hægst hefur á framkvæmdum í nýjum íbúðahverfum í höfuðborginni og ná-
grenni hennar Erfitt að segja til um hvenær hverfin verða fullmótuð
MEÐ hliðsjón af þeim fjölda
íbúða sem voru í byggingu í árs-
lok 2007 og byrjað hefur verið á
á þessu ári, má áætla að nú séu
jafnvel allt að 4.500 íbúðir í
byggingu í landinu öllu. Óvíst er
hvenær þessar íbúðir munu
koma á markað. Upplýsingar um
fjölda nýrra íbúða sem voru í
byggingu í lok hvers árs á tíma-
bilinu frá 1970 til loka síðasta
árs, sýna að fjöldinn hefur aldr-
ei verið meiri en einmitt í lok
síðasta árs. Þá voru rúmlega
6.200 nýjar íbúðir í byggingu.
Ástæða er til að benda á að
taka ber upplýsingum um fjölda
íbúða í byggingu á hverjum tíma
með ákveðinni varúð.
4.500 íbúðir