Morgunblaðið - 05.07.2008, Page 13

Morgunblaðið - 05.07.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 13 FRÉTTIR Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is GRÍÐARMIKLAR steypu- skemmdir komu í ljós þegar múr- húðinni var flett af framhlið Hall- grímskirkjuturns vegna viðgerðar. Steypan reyndist mjög sprungin og morkin á köflum. Nú skín í bera járngrindina á stórum flötum þar sem ónýt steypa hefur verið fjar- lægð. Stöplarnir utan á turninum eru svo illa farnir að þeir verða brotnir niður og nýir steyptir í þeirra stað. Næsta sumar verður gert við hinar þrjár hliðar turnsins og vonast til að þá takist að ljúka verkinu. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir að viðgerðin myndi kosta 230 milljónir króna. Vegna skemmdanna sem nú hafa komið í ljós þykir líklegt að viðgerð- arkostnaðurinn fari talsvert fram úr áætlun. Ístak tók að sér viðgerðina og hóf að setja upp vinnupalla eftir páska í vor. Vinnupallarnir einir og sér eru mikið mannvirki og tók uppsetningin þeirra og vinnulyftu 5-6 vikur. Í næstu viku bætast við vinnupallar utan um sjálfa turn- spíruna. Byrjað var á viðgerðinni efst í turninum, undir spírunni. Laus múrhúð var fjarlægð og veggirnir háþrýstiþvegnir. Á köflum er búið að brjóta allt að 10-12 sentímetra af ónýtum múr utan af veggjunum og inn fyrir ytri járnbindinguna. Að sögn starfsmanna Ístaks var steypan á köflum eins og mylsna. Steypumót eru síðan sett utan á veggina og steypt að nýju. Hæð vinnustaðarins og umfang verksins veldur því að flytja þarf steypuna efst í turninn á hjólbörum. Þær fara með vinnulyftunni upp á vinnupallana og er síðan ausið í mótin með fötum. Veðrið ræður framkvæmdahraða Tómas Tómasson verkfræðingur hjá Ístaki taldi viðbúið að skemmd- irnar geti náð hringinn í kringum turninn. Hann segir að aðallega sé um að ræða frostskemmdir. Turn- inn stendur hátt og mikið álag á hann af völdum veðurs. Vatn smýg- ur inn um sprungur og þegar kem- ur frost þenst það út og sprengir steypuna. Steypuskemmdirnar hafa reynst vera lagskiptar og er talið að það skýrist m.a. af því hvað byggingartíminn var langur og að mismunandi steypa kann að hafa verið notuð. Guðmann Ingjaldsson verkstjóri sagði að veður muni ráða miklu um framkvæmdahraðann. Dragist verkið fram á haustið verður ekki hægt að setja yfirborðshúðina á veggina því það verk verður ekki unnið í kulda. Utan á veggina verð- ur notuð múrblanda sem þróuð var hér á landi. Hún verður í sama lit og kirkjan er nú og á að verja turn- inn fyrir vatni og veðrum. Ný kostnaðaráætlun verður gerð Jóhannes Pálmason, formaður sóknarnefndar Hallgrímskirkju, sagði að VST hafi gert áætlun í fyrra um viðgerð kirkjuturnsins. Þá var áætlað að viðgerðarkostn- aðurinn yrði 230 milljónir. Jóhann- es sagði að þótt áætlunin hafi byggt á bestu manna vitund á sín- um tíma óttist þeir nú að verkefnið hafi verið verulega vanáætlað. Unnið er að nýrri skýrslu þar sem skemmdirnar eru endurmetnar og eins viðgerðarkostnaðurinn. „Það var löngu tímabært að fara í þessa viðgerð,“ sagði Jóhannes. „Við fórum ekki af stað fyrr en við höfðum fengið fjármagn til verks- ins. Söfnuðurinn hér getur ekki staðið einn undir viðhaldi kirkj- unnar. Við fengum því stuðning úr ríkissjóði, borgarsjóði og frá Þjóð- kirkjunni sem gerði okkur kleift að láta vinna verkið hratt. Það er ekki hægt að hafa þetta kennileiti borg- ar og lands í viðgerð árum saman.“ Flett utan af turninum  Steypan í turni Hallgrímskirkju reyndist mikið skemmd  Viðgerðin verð- ur mun viðameiri en talið var Morgunblaðið/Ómar Steypa Nú skín í bera járnagrind veggjanna á stórum flötum. Nýtt lag af steypu er sett utan á veggina. Vegna hæð- ar vinnustaðarins þarf að flytja steypuna upp í hjólbörum. Niðurbrot Stöplarnir utan á kirkjuturninum eru svo illa farnir að þeir verða brotnir niður og byggðir upp. Viðgerð Tómas Tómasson verkfræðingur og Guðmann Ingjaldsson verkstjóri virða fyrir sér viðgerð.  1961 Jarðvinna við und- irstöður Hallgrímskirkjuturns hófst.  1965 Í ágúst var lokið við að steypa hliðarálmurnar ásamt hliðarsúlum upp í 17 metra hæð.  1966 Í ágúst þetta ár var miðhluti turnsins kominn í 23,5 metra hæð.  1970 Uppsteypu turnsins lok- ið. Turninn er 73 metra hár.  1973 Múrhúðun turnsins lok- ið. Hún var gerð með sérstakri blöndu úr lituðu sementi, Mur- cem og granítmulningi.  1983 Sprungumyndanir í turnspíru orðnar áberandi og einnig í stöplum við turnhliðar. Láréttum steypuflötum lokað með teygjanlegri húð til að hægja á skemmdum.  1986 Hallgrímskirkja vígð 26. október.  1988 Hafist handa við við- gerð turnspírunnar. Stóð hún í tvö ár og reyndist miklu erfiðari og dýrari en ráð var fyrir gert. Þurfti að brjóta ofan af og end- ursteypa 338 af 468 stöplum spírunnar.  1991-92 gert við norðurálm- una.  1994-95 gert við suðurálm- una.  2008 Viðgerð hafin á fram- hlið Hallgrímskirkjuturns.  2009 Áætlað að laga norður-, austur- og suðurhliðar turnsins.   Eftir Sigurð Boga Sævarsson ÁÆTLAÐ er að brú yfir Mjóafjörð í Ísafjarð- ardjúpi verði tekin í notkun fyrir árslok. Bygging hennar er hluti af umfangsmiklum framkvæmdum við Djúpveg, þar sem lagður er nýr 27 km. langur vegur um Eyrarhlíð í botni Ísafjarðar í Reykjanes og að Hörtná við utanverðan Mjóafjörð. Brúin nýja er 130 metra löng stálbogabrú en auk þess eru byggðar tvær aðrar brýr á leiðinni, 60 og 10 metra langar, þ.e. yfir Reykjafjörð og Vatnsfjarðarós. Vestfirskir verktakar ehf. á Ísafirði byggja brýrnar nýju í samvinnu við KNH ehf. á Ísa- firði, en síðarnefnda fyrirtækið hefur verið aðalverktaki í þessari framkvæmd sem unnin er í þremur áföngum. „Verkinu miðar vel og er á áætlun, segir Hreinn Haraldsson vega- málastjóri. Umferð yfir Eyrarfjall mun vænt- anlega leggjast af með brúnni yfir Mjóafjörð en sé sú leið farin styttist leiðin um Djúp óverulega með nýjum vegi. Eyrarfjallsvegur teppist hins vegar strax í fyrstu snjóum og sé horft til þess verður leiðin um Djúp 34 km. styttri þegar vegurinn nýi er komin í gagnið. Brúin yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi verður tekin í notkun fyrir áramót ef áætlanir standast Ljósmynd/Sigurður Bogi Þverun Framkvæmdir í fullum gangi í brúarsmíði yfir Mjóafjörð við Ísafjarðardjúp. Nýtt vegarstæði mun stytta verulega leiðina um Djúpið. Djúpvegur styttist

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.