Morgunblaðið - 05.07.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 05.07.2008, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING „GÓÐAN deig.“ Þeir sem horfðu á bresku þættina Allo Allo!, sem sýndir voru í Sjónvarpinu fyrir margt löngu í þýðingunni Allt í hers höndum, kannast við þessa kveðju lögreglumannsins breska Crabtree, þ.e. „Good moaning.“ Nú á að endurvekja þessa sígildu gamanþætti BBC, en að þessu sinni á leiksviði og halda í leikferð um Bretland með sýninguna. Leikritið var skrifað árið 1992, af sömu höf- undum og sömdu sjónvarpsþættina, David Croft og Jeremy Lloyd. Leikarinn Gorden Kaye, sem lék franska kráreigandann René Arto- is, mun þó ekki bregða sér í hlut- verkið góða í leiksýningunni. Vicki Michelle mun hins vegar leika Yvette Carte-Blanche, hjákonu René, líkt og hún gerði í sjónvarps- þáttunum á 9. áratugnum. René Artois og félagar fara á flakk Allt í hers höndum á leiksvið í Bretlandi Ó, René! René Artois með hjákonu sinni Yvette Carte-Blanche. SUMARSÝNING Listasafns- ins á Akureyri verður opnuð í dag, yfirlitssýning á verkum Guðmundar Ármanns Sig- urjónssonar. Guðmundur hefur starfað við myndlist og kennslu í fjóra áratugi og verið mik- ilvirkur í félags- og baráttu- málum myndlistarmanna. Í tilkynningu frá safninu segir að Guðmundur hafi staðið vörð um þá trú sína að það sé „nauðsynlegt að næra þann mikla áhuga á listum sem íbúar á Akureyri hafa ræktað með sér á undanförnum áratugum.“ Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 12-18. Aðgangseyrir kr. 400. Myndlist Yfirlitssýning á verkum Guðmunds Guðmundur Ár- mann Sigurjónsson SÖNGKONAN og tónlistar- maðurinn Ólöf Arnalds heldur tónleika í Sólheimakirkju í dag kl. 14 og er aðgangur ókeypis. Um leið munu Sólheimar fagna 78 ára afmæli sínu og vígja nýtt þjónustuhús af því tilefni, Vigdísarhús, sem heitir í höf- uðið á frú Vigdísi Finnboga- dóttur, fyrrverandi forseta Ís- lands. Ólöf gaf út sólóplötuna Við og við í fyrra og var hún lofuð mjög af gagnrýn- endum og m.a. valin plata ársins í Morgunblaðinu. Það má því búast við ljúfum tónum að hætti Ólaf- ar í Sólheimakirkju. Tónleikar Ólöf Arnalds syng- ur í Sólheimakirkju Ólöf Arnalds NORRÆNA orgelhátíðin í Hallgrímskirkju stendur yfir þessa dagana og býður í dag upp á tónleika með einum virt- asta organista Danmerkur, Bine Katrine Bryndorf, prófessor í orgelleik við Konunglega Konservatoríið í Kaupmannahöfn. Bryndorf kemur fram á tvennum tónleikum um helgina, í hádeginu í dag kl. 12 og annað kvöld kl. 20. Á hádegistónleikunum leik- ur hún verkið L’Ascension eftir Messiaen. Efnis- skrá sunnudagstónleikanna er tvískipt með verk- um eftir J.S. Bach, Messiaen og Carl Nielsen. Tónleikar Bach, Messiaen og Nielsen á hátíð Bine Katrine Bryndorf Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is SUMARTÓNLEIKAR við Mývatn hefjast um helgina og standa næsta mánuðinn. Það er stúlknakórinn Graduale Nobili sem hefur dag- skránna með tónleikum í Reykja- hlíðarkirkju klukkan níu í kvöld. María Vigdís Kjartansdóttir hef- ur sungið í kór frá því hún var átta ára og byrjaði í barnakór Jóns Stefánssonar, sem er einmitt stjórnandi Graduale Nobili. Nú, 13 árum síðar, er hún að ljúka söng- námi í Söngskóla Reykjavíkur og stefnir út í heim í nám. „Það er ekkert hægt að hætta núna,“ segir hún. Hún segir góðan anda í kórnum og innbyrðis samkeppni sé mjög í hófi. „Þetta er eintóm gleði og fé- lagsskapurinn er náttúrulega stór hluti af þessu. Skemmtilegustu partíin sem maður fer í eru kór- partí.“ Þar eru klassísku tónverkin lögð til hliðar og slagarar eins og „Nína“ fá að hljóma. Efnisskráin verður blanda af lög- um af plötunni In Paradisum sem þær sendu frá sér í vor. „Þetta eru allt íslensk nútímaverk og uppá- haldslagið mitt er „Ég skal lofa eina þá“ eftir Báru Grímsdóttur. Það er svo rytmískt og melódískt, maður er alltaf að söngla það á leið- inni heim af æfingum.“ Stúlknakórinn Graduale Nobili hefur Sumartónleika við Mývatn í kvöld „Þetta er eintóm gleði“ Morgunblaðið/G.Rúnar Glaðbeittar Stúlknakórinn Graduale Nobili naut veðurblíðunnar í gær þeg- ar ljósmyndara bar að garði. Stúlkurnar syngja í Reykjahlíðarkirkju í kvöld. Hlusta má á söng kórsins á www.myspace.com/gradualenobili Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is BRESKA myndlistarkonan Bridget Kennedy opnar í dag allsérstaka sýningu á Akureyri, á ekki síður sér- stökum sýningarstað, VeggVerki. Eins og nafnið ber með sér er sýnt á vegg, nánar tiltekið vesturhlið húss- ins að Strandgötu 17. Þar sýnir Kennedy Pantone-heiti lita úr ljósmynd sem fengin var af vefsíðu VeggVerks og sýnir fjöruna við bæinn, sjó og land. Pantone- kerfið er notað í prentverki yfir liti, þeir skírðir með nöfnum og tölum. Kennedy hefur sem sagt leyst myndina upp í grófa punkta, pixla á tölvumáli, og fundið út heiti hvers litar í myndinni í forritinu Photo- shop sem hún síðan færir yfir á vegginn með stenslum í rúðustrikað net nákvæmlega eftir fyrirmyndinni. Í stað landslagsmyndar blasir því við á veggnum mikil súpa talna og heita, t.d. „Black 447“. Rómantíkin á bak og burt? „Það er býsna langt ferli að baki, að ná þessum upplýsingum,“ út- skýrir Kennedy. Hún klippi stensla með Pantone-heitunum út í þunnt plast og máli í gegnum þá á vegginn. „Ég hef mikinn áhuga á hug- myndum um fegurð og rómantík sem tengjast landslagsmyndum og í verkum mínum rýri ég myndirnar þannig að útkoman verður al- gjörlega laus við rómantík, jafnvel álitin kuldaleg,“ segir Kennedy um verk sín almennt. „Ég hef áhuga á því hvort greina megi rómantík í þessari gjörbreyttu mynd, eftir þessa breytingu.“ Sýningin Landline opnuð á VeggVerki á Akureyri í dag Landslagsrómantík í Pantone-útfærslu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Landline Neðra horn, hægra meg- in, á verki Kennedy á VeggVerki. SÝNING tileinkuð sumri verður opnuð í dag kl. 16 í Galleríi Ágúst. Á henni verða sýnd valin verk þeirra listamanna sem sýndu á fyrsta starfsári gallerísins. Þetta eru Andrea Maack, Ásdís Sif Gunn- arsdóttir, Davíð Örn Halldórsson, Hulda Stefánsdóttir, Magnea Ás- mundsdóttir, Rakel Bernie og Sara Björnsdóttir. Á myndinni fyrir ofan gefur að líta verk eftir Davíð Örn. Sumarsýning í Ágúst Morgunblaðið/Valdís Thor 12. júlí kl. 21  Í Reykjahlíðarkirkju og 13. júlí kl. 21 í Skútustaðakirkju: Kristinn H. Árnason, gítar- leikari og Helga Þórarins- dóttir á víólu. 19. júlí kl. 21  Í Reykjahlíðarkirkju: Seb- astiano Brusco, píanóleikari frá Róm. 26. júlí kl. 15  Í Þorgeirskirkju við Ljósa- vatn og sama dag kl. 21 í Reykjahlíðarkirkju: Karlakór St. Basil dómkirkjunnar í Moskvu. 2. ágúst kl. 21  Í Reykjahlíðarkirkju: Rose Menzel, mezzosópran, Erika Anschütz víóluleikari og Fred Rensch píanóleikari. 3. ágúst kl. 14  Dimmuborgir: Helgistund og tónlist. 3. ágúst kl. 21  Í Skútustaðakirkju: Rose Menzel, mezzosópran, Erika Anschütz, víóluleikari, Fred Rensch píanóleikari. Næst á dagskrá ÞAU mistök urðu við gerð fréttar sem birtist í Morgun- blaðinu í gær af bláu bílvélinni hans Rogers Hiorns í Hafn- arhúsinu, að nafn Yean Fee Quay var misritað og hún rang- lega sögð starfa hjá Listasafni Íslands. Hið rétta er að hún er sýningarstjóri hjá Listasafni Reykjavíkur. Hún og lesendur eru beðnir velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTTING Bláa bílvélin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.