Morgunblaðið - 05.07.2008, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 17
Hann er stærri og sterkari enþeir allir, þeir hafa aldreiséð aðra eins skepnu. Þeir
eru hræddir en um leið heillaðir,
þeir munda vopnin, þetta gæti orðið
þeirra stærsti fengur, þeir gætu orð-
ið þekktir sem maðurinn sem drap
… drap hvern? Nú er ég ekki alveg
viss lengur hvort ég ætlaði að skrifa
Hulk eða ísbjörninn, græni risinn og
hvítu risarnir tveir komu hingað á
sama tíma og renna nú saman í eitt,
kannski þriðja ísbjörninn sem sumir
segjast hafa séð ummerki um á há-
lendi landsins.
En Hulk og bangsarnir eru líkasama skepnan, því á meðan
gestsaugun kunna að vera glögg þá
lærum við líklega meira af því að
fylgjast með hvernig við tökum á
móti gestum. Og á meðan Hulk gef-
ur bandaríska hernum tækifæri til
þess að þróa enn eina stríðsvélina í
viðbót, í þetta skiptið hálfmennska,
þá brá björninn hvíti kunnuglegu
ljósi á tvískiptingu sem enn er til
staðar hérlendis, heimi borgarinnar
og heimi sveitarinnar.
Hér er ástæða til að minna á ann-an gest sem við fengum hingað
til lands fyrir ári síðan, gest sem rétt
eins og hvítabirnirnir veitti engin
viðtöl, nóbelsskáldið J.M. Coetzee. Í
bók hans The Lives of Animals gerir
hann meðal annars að umfjöllunar-
efni tvær tegundir dýravina; annars
vegar veiðimennina, þá sem fylgjast
með dýrum heilu dagana og næturn-
ar, þekkja alla þeirra hætti og skilja
þau betur en sambræður sína, allt til
þess að hafa betur í eltingarleiknum.
Hins vegar eru dýravinirnir sem
aldrei hitta nein dýr, að minnsta
kosti ekki þau dýr sem þeir vilja
vernda. Borgarbörnin. Borgar-
börnin syrgðu bjössa og bölvuðu
umhverfisráðherra og byssuglöðum
sveitalubbum á meðan landsbyggð-
arfólk skildi ekki hysteríuna í liðinu
fyrir sunnan, hélt það kannski að
það gæti stungið ísbjörninn af? Ég
sjálfur er utan af landi en bý í borg-
inni, þar af leiðandi veit ég ekki al-
veg hvað mér á að finnast.
En ég spyr mig samt: erum viðekki öll að gera ísbjörn úrmýflugu? Annars staðar í
bók Coetzee stendur: „Jagúarljóð
eru ágæt til síns brúks, hugsaði
hann, en þú átt ekki eftir að sjá fólk
standa í kringum rollur, hlusta á
þær jarma og skrifa ljóð um það. Er
ekki einmitt þetta sem er svo vafa-
samt í dýraverndunarbransanum: að
hann þarf að húkka sér far með
hæglátum górillum, sexí hlébörðum
og knúsvænum pandabjörnum af því
að þau dýr sem þeir virkilega vilja
vernda, kjúklingar og svín, svo ekki
sé minnst á hvítar rottur eða rækjur,
eru ekki fréttnæmar?“ Ísbirnir eru
fréttnæmir, þeir komast meira að
segja í fréttirnar þegar þeir eru
bara saklausar rollur eða tröllasög-
ur ferðalanga með fjörugt ímynd-
unarafl. Ísbirnir eru stjörnur,
tignarlegir og ógnvekjandi. Á með-
an eru allir hættir að nenna að rífast
um hvali og rollur komast aldrei í
fréttir nema þeim takist að leika ís-
björn nógu sannfærandi.
Þó er von fyrir hin dýrin. Ef dráp-ið var nógu andstyggilegt, til-
gangsleysið nógu yfirþyrmandi og
dýrið nógu krúttlegt. Á sama tíma
og norðanmenn eltust við ísbirni var
lítill hvolpur grafinn lifandi í hrauni
á Suðurnesjum. Ófáir hneyksluðust
– og hefðu örugglega verið fleiri ef
sumir hefðu ekki brennt sig á rakk-
anum Lúkasi – og einu sinni hefði ég
verið í þeim hópi. Einu sinni var ég í
kvikmyndakúrsi í erlendum háskóla
og þar horfðum við á Badlands, ljóð-
ræna mynd Terence Malicks um
raðmorðingjapar. Eftir myndina
spurði prófessorinn okkur hvort
dráp þeirra á föður annarrar aðal-
persónunnar væri ekki fullkomlega
eðlilegt. „But he shot the dog, so he
must have been evil.“ – og þar af
leiðandi réttdræpur? Hann glotti við
tönn þegar hann sagði þetta, var að-
allega að reyna að koma af stað de-
bati – en það var of seint, tíminn var
búinn. En ég var eiginlega alveg
sammála honum, hann drap hund
dóttur sinnar án nokkurrar almenni-
legrar ástæðu. Hvað er það annað en
illska og ómennska? Löngu seinna
las ég frásögn Breiðavíkurdrengsins
Páls Elíssonar þar sem hann lýsir
því hvernig þeir skírðu saklausa
fugla eftir kvölurum sínum og drápu
þá svo með sinni heimatilbúnu fugla-
fallöxi – og skyndilega varð áður
óskiljanleg illska auðskiljanleg
mennska. Og um leið sönnun þess að
oft vitum við miklu minna um sam-
bræðurna en hvíta risa frá heims-
enda.
Eins og skepnan deyr
» Ísbirnir eru stjörnur,tignarlegir og ógn-
vekjandi. Á meðan eru
allir hættir að nenna að
rífast um hvali og rollur
komast aldrei í fréttir
nema þeim takist að
leika ísbjörn nógu sann-
færandi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ísbjörn Ólíkt bjössa hafði beljakinn Hulk vit á að hætta sér ekki til Íslands.
AF LISTUM
Ásgeir H. Ingólfsson
ÓVENJULEG myndlistarsýning
opnaði í gær í Jafnaskarðsskógi við
Hreðavatn. Þar hafa listamenn af
Vesturlandi skorið út, tálgað og
myndað þannig að skógurinn er í
senn efniviður og sýningarsalur.
Listamennirnir eru Anna Leif
Elísdóttir, Ása Ólafsdóttir, Ásdís
Sigurþórsdóttir, Dögg Mósesdóttir,
Guttormur Jónsson, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Lára Gunnarsdóttir og
Páll Guðmundsson, yfirleitt kenndur
við Húsafell.
Verkin eru öll á svipuðum stað í
skóginum í fimm mínútna göngufæri
frá veginum, nema verk Daggar sem
er í skúr Skógræktar ríkisins
skammt frá. Skógræktin og Menn-
ingarráð Vesturlands unnu saman
að sýningunni.
„Ég er að sýna vídeóverk, svo ég
þurfti rafmagn,“ segir Dögg um
staðsetninguna. „Svo gerði ég skúlp-
túr sem vídeóverkinu er varpað á.
Myndefnið er úr skóginum og svo
spilar viðurinn og skemman sjálf
stórt hlutverk með sínum könguló-
arvefjum. Við ætlum líka að spila á
lyktarskynið þarna.“
Sýningin opnar klukkan tvö á
morgun og eru allir velkomnir.
gunnhildur@mbl.is
Ljósmynd/Skessuhorn
Allt til alls Anna Leif Elídóttir í vinnustofunni og sýningarsalnum.
Lyktin af skógi og köngulóarvefjum
Glettinn kall Páll Guðmundsson við uppsetningu útskurðarverks síns.
Viðarlauf Lára Gunnarsdóttir not-
aði laufblaðaformið í sínu verki.
ein stærstu myndlistarver©laun í heims kynna
26 norræna myndlistarmenn
í listasafni kópavogs – ger©arsafni
hamraborg 4 | kópavogi | 19. júní – 10. ágúst
opi© alla daga nema mánudaga kl 11 – 17
lei©sögn mi©vikud. kl. 12 og sunnud. kl. 15
www.gerdarsafn.is | www.carnegieartaward.com
SÍ©
ASTA
S∞N
IN
GARVIK
A!
BRESKI barnabókahöfundurinn
J.K. Rowling hefur slegist í lið með
þeim sem mótmæla þeim fyrirætl-
unum margra breskra forlaga, m.a.
Penguin og Random House, að
merkja barnabækur með viðeig-
andi aldri lesenda. Hugmynd útgef-
enda er sú að setja aldurstölu á
kápur barnabóka. Meðal höfunda
sem mótmælt hafa aldursmerking-
unni eru auk Rowling þekktir höf-
undar á borð við Anthony Horowitz
og Terry Pratchett og mynd-
skreytar á borð við Quentin Blake.
Rowling og félagar telja slæmt að
stýra lesendum með þessum hætti.
Andsnúin
aldurs-
merkingum
Óhress J.K. Rowling.