Morgunblaðið - 05.07.2008, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 05.07.2008, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 17 Hann er stærri og sterkari enþeir allir, þeir hafa aldreiséð aðra eins skepnu. Þeir eru hræddir en um leið heillaðir, þeir munda vopnin, þetta gæti orðið þeirra stærsti fengur, þeir gætu orð- ið þekktir sem maðurinn sem drap … drap hvern? Nú er ég ekki alveg viss lengur hvort ég ætlaði að skrifa Hulk eða ísbjörninn, græni risinn og hvítu risarnir tveir komu hingað á sama tíma og renna nú saman í eitt, kannski þriðja ísbjörninn sem sumir segjast hafa séð ummerki um á há- lendi landsins.    En Hulk og bangsarnir eru líkasama skepnan, því á meðan gestsaugun kunna að vera glögg þá lærum við líklega meira af því að fylgjast með hvernig við tökum á móti gestum. Og á meðan Hulk gef- ur bandaríska hernum tækifæri til þess að þróa enn eina stríðsvélina í viðbót, í þetta skiptið hálfmennska, þá brá björninn hvíti kunnuglegu ljósi á tvískiptingu sem enn er til staðar hérlendis, heimi borgarinnar og heimi sveitarinnar.    Hér er ástæða til að minna á ann-an gest sem við fengum hingað til lands fyrir ári síðan, gest sem rétt eins og hvítabirnirnir veitti engin viðtöl, nóbelsskáldið J.M. Coetzee. Í bók hans The Lives of Animals gerir hann meðal annars að umfjöllunar- efni tvær tegundir dýravina; annars vegar veiðimennina, þá sem fylgjast með dýrum heilu dagana og næturn- ar, þekkja alla þeirra hætti og skilja þau betur en sambræður sína, allt til þess að hafa betur í eltingarleiknum. Hins vegar eru dýravinirnir sem aldrei hitta nein dýr, að minnsta kosti ekki þau dýr sem þeir vilja vernda. Borgarbörnin. Borgar- börnin syrgðu bjössa og bölvuðu umhverfisráðherra og byssuglöðum sveitalubbum á meðan landsbyggð- arfólk skildi ekki hysteríuna í liðinu fyrir sunnan, hélt það kannski að það gæti stungið ísbjörninn af? Ég sjálfur er utan af landi en bý í borg- inni, þar af leiðandi veit ég ekki al- veg hvað mér á að finnast.    En ég spyr mig samt: erum viðekki öll að gera ísbjörn úrmýflugu? Annars staðar í bók Coetzee stendur: „Jagúarljóð eru ágæt til síns brúks, hugsaði hann, en þú átt ekki eftir að sjá fólk standa í kringum rollur, hlusta á þær jarma og skrifa ljóð um það. Er ekki einmitt þetta sem er svo vafa- samt í dýraverndunarbransanum: að hann þarf að húkka sér far með hæglátum górillum, sexí hlébörðum og knúsvænum pandabjörnum af því að þau dýr sem þeir virkilega vilja vernda, kjúklingar og svín, svo ekki sé minnst á hvítar rottur eða rækjur, eru ekki fréttnæmar?“ Ísbirnir eru fréttnæmir, þeir komast meira að segja í fréttirnar þegar þeir eru bara saklausar rollur eða tröllasög- ur ferðalanga með fjörugt ímynd- unarafl. Ísbirnir eru stjörnur, tignarlegir og ógnvekjandi. Á með- an eru allir hættir að nenna að rífast um hvali og rollur komast aldrei í fréttir nema þeim takist að leika ís- björn nógu sannfærandi.    Þó er von fyrir hin dýrin. Ef dráp-ið var nógu andstyggilegt, til- gangsleysið nógu yfirþyrmandi og dýrið nógu krúttlegt. Á sama tíma og norðanmenn eltust við ísbirni var lítill hvolpur grafinn lifandi í hrauni á Suðurnesjum. Ófáir hneyksluðust – og hefðu örugglega verið fleiri ef sumir hefðu ekki brennt sig á rakk- anum Lúkasi – og einu sinni hefði ég verið í þeim hópi. Einu sinni var ég í kvikmyndakúrsi í erlendum háskóla og þar horfðum við á Badlands, ljóð- ræna mynd Terence Malicks um raðmorðingjapar. Eftir myndina spurði prófessorinn okkur hvort dráp þeirra á föður annarrar aðal- persónunnar væri ekki fullkomlega eðlilegt. „But he shot the dog, so he must have been evil.“ – og þar af leiðandi réttdræpur? Hann glotti við tönn þegar hann sagði þetta, var að- allega að reyna að koma af stað de- bati – en það var of seint, tíminn var búinn. En ég var eiginlega alveg sammála honum, hann drap hund dóttur sinnar án nokkurrar almenni- legrar ástæðu. Hvað er það annað en illska og ómennska? Löngu seinna las ég frásögn Breiðavíkurdrengsins Páls Elíssonar þar sem hann lýsir því hvernig þeir skírðu saklausa fugla eftir kvölurum sínum og drápu þá svo með sinni heimatilbúnu fugla- fallöxi – og skyndilega varð áður óskiljanleg illska auðskiljanleg mennska. Og um leið sönnun þess að oft vitum við miklu minna um sam- bræðurna en hvíta risa frá heims- enda. Eins og skepnan deyr » Ísbirnir eru stjörnur,tignarlegir og ógn- vekjandi. Á meðan eru allir hættir að nenna að rífast um hvali og rollur komast aldrei í fréttir nema þeim takist að leika ísbjörn nógu sann- færandi. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ísbjörn Ólíkt bjössa hafði beljakinn Hulk vit á að hætta sér ekki til Íslands. AF LISTUM Ásgeir H. Ingólfsson ÓVENJULEG myndlistarsýning opnaði í gær í Jafnaskarðsskógi við Hreðavatn. Þar hafa listamenn af Vesturlandi skorið út, tálgað og myndað þannig að skógurinn er í senn efniviður og sýningarsalur. Listamennirnir eru Anna Leif Elísdóttir, Ása Ólafsdóttir, Ásdís Sigurþórsdóttir, Dögg Mósesdóttir, Guttormur Jónsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Lára Gunnarsdóttir og Páll Guðmundsson, yfirleitt kenndur við Húsafell. Verkin eru öll á svipuðum stað í skóginum í fimm mínútna göngufæri frá veginum, nema verk Daggar sem er í skúr Skógræktar ríkisins skammt frá. Skógræktin og Menn- ingarráð Vesturlands unnu saman að sýningunni. „Ég er að sýna vídeóverk, svo ég þurfti rafmagn,“ segir Dögg um staðsetninguna. „Svo gerði ég skúlp- túr sem vídeóverkinu er varpað á. Myndefnið er úr skóginum og svo spilar viðurinn og skemman sjálf stórt hlutverk með sínum könguló- arvefjum. Við ætlum líka að spila á lyktarskynið þarna.“ Sýningin opnar klukkan tvö á morgun og eru allir velkomnir. gunnhildur@mbl.is Ljósmynd/Skessuhorn Allt til alls Anna Leif Elídóttir í vinnustofunni og sýningarsalnum. Lyktin af skógi og köngulóarvefjum Glettinn kall Páll Guðmundsson við uppsetningu útskurðarverks síns. Viðarlauf Lára Gunnarsdóttir not- aði laufblaðaformið í sínu verki. ein stærstu myndlistarver©laun í heims kynna 26 norræna myndlistarmenn í listasafni kópavogs – ger©arsafni hamraborg 4 | kópavogi | 19. júní – 10. ágúst opi© alla daga nema mánudaga kl 11 – 17 lei©sögn mi©vikud. kl. 12 og sunnud. kl. 15 www.gerdarsafn.is | www.carnegieartaward.com SÍ© ASTA S∞N IN GARVIK A! BRESKI barnabókahöfundurinn J.K. Rowling hefur slegist í lið með þeim sem mótmæla þeim fyrirætl- unum margra breskra forlaga, m.a. Penguin og Random House, að merkja barnabækur með viðeig- andi aldri lesenda. Hugmynd útgef- enda er sú að setja aldurstölu á kápur barnabóka. Meðal höfunda sem mótmælt hafa aldursmerking- unni eru auk Rowling þekktir höf- undar á borð við Anthony Horowitz og Terry Pratchett og mynd- skreytar á borð við Quentin Blake. Rowling og félagar telja slæmt að stýra lesendum með þessum hætti. Andsnúin aldurs- merkingum Óhress J.K. Rowling.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.