Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 22
bílar
22 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Lilju Þorsteinsdóttur
liljath@mbl.is
Ilmandi hjólbarðareykur fauk íhressandi moldarroki framaní spennta áhorfendur á fyrstukvartmílukeppni sumarsins
síðasta laugardag. Keppendur létu
veðrið ekki trufla sig og þeir sem
blaðamaður ræddi við ætluðu að
hefja keppnistímabilið með stæl.
Steindór Björn Sigurgeirsson sem
keyrir Mitsubishi Evolution 8 er
ekki nýliði í kvartmílunni. „Ég byrj-
aði að keppa í fyrra og varð Íslands-
meistari á þessum bíl. Ég er að
keppa í GT flokki og stefnan er
vissulega sett á að færa til Íslands-
metið í þeim flokki í sumar.“
Steindór er ekki í vandræðum
með að svara því hvað sé skemmti-
legt við kvartmíluna. „Það er frelsið,
þú mátt vera með gjöfina í botni og
ekkert rugl. Þeir sem eru áhuga-
samir verða endilega að drífa sig,
þegar ég var polli var okkur ýtt í
burtu þegar „fagmennirnir“ voru á
ferð en það er ekki lengur þannig.
Það er skemmtilegra þegar fleiri
mæta og allar spurningar gera okk-
ur gott.“
Árdís Pétursdóttir sat í bílnum
sínum og beið þess að komast í tíma-
töku. „Í dag er ég á Ford Mustang
Mach 1 með 429 vél, þetta er í fyrsta
sinn sem ég keppi í kvartmílu en ég
hef mætt á æfingar hérna. Þetta er
reyndar ekki minn bíll, hann er
heima bilaður. Minn er með stærri
vél og á að geta náð talsvert betri
tíma en þessi.“
Bíllinn næstum aukaatriði
Árdís hvetur fólk til að koma endi-
lega og prófa. „Þetta er þvílíkt gam-
an, adrenalín, spenna og það er gam-
an að geta staðið bílinn eins og hann
dregur án þess að þurfa að spá í því.
Það skiptir ekki máli hvernig bíl fólk
á, það er keppt í flokkum og sam-
bærilegir bílar keyra saman. Það
eru alls konar bílar hérna og ég hvet
fólk til að mæta.“
Á eina BMW bílnum sem keppti í
þetta sinn var Jón Bjarni Jónsson.
„Ég er á BMW 530d og keppi í 14,9
flokki. Þetta er fyrsta keppnin mín á
þessari braut en ég keppti fyrst á
Akureyri í sumar þó ég hafi reyndar
dottið út í fyrstu umferð,“ segir Jón
Bjarni og brosir. „Markmiðið er auð-
vitað að vinna en það er gaman að
vera með, að prófa og sjá hvernig
þetta kemur út.“
Eins og hinum viðmælendum
finnst Jóni Bjarna gaman að keyra
hratt. „Það er gaman að geta keyrt
hratt löglega og svo er alltaf ákveðin
stemning í kring um keppnina. Það
er um að gera að mæta og prufa, ég
gerði það og finnst mjög gaman. Það
þarf alls ekki að vera á öflugasta bíl í
heimi.“
„Með gjöfina í botni og ekkert rugl“
Kvartmílan höfðar til fólks á öllum aldri og áhuga-
sömum er frjálst að mæta til að æfa sig eða keppa.
Eftirvænting skein úr augum áhorfenda á kvartmílu-
brautinni þegar blaðamann bar að garði.
Kvartmílubrautin Risavaxin tryllitæki, götubílar og jafnvel gamli fjölskyldubíllinn geta keppt á kvartmílubrautinni. Það er um að gera fyrir fjölskylduna að skella sér upp á braut í góðu veðri.
Bílastelpa Árdís Pétursdóttir hvetur konur og karla til að koma og prófa að keyra á kvartmílubrautinni.
Undratæki Fjölbreytt farartæki eru á brautinni.Fagurrauður Stundum er betra að halda fyrir eyrun.
Morgunblaðið/hag
www.kvartmila.is
Loksins er góða veðrið komið hingað
norður en eftir fremur milt vor var
eins og sumarið léti á sér standa. Því
er þó ekki að neita að rigningin und-
anfarið var kærkomin fyrir jörðina
og allan gróður. Þegar vel viðrar er
upplagt að nota tækifærið og njóta
útiveru hvort sem er heima fyrir eða
á ferðalagi. Ekki skortir fögur svæði
hér í Þingeyjarsýslum til að heim-
sækja í þessum tilgangi og um leið
að komast í snertingu við íslenska
náttúru í öllum sínum fjölbreyti-
leika. Enn fjölgar slíkum áfanga-
stöðum í dag þegar Kristján Möller
samgönguráðherra opnar formlega
Opinn skóg í Akurgerði í Öxarfirði
sem verður án efa spennandi áning-
arstaður þar sem njóta má náttúru,
útivistar og heilsubótar í fögru um-
hverfi, sannkölluð vin við veginn eins
og segir í auglýsingu um opnunarhá-
tíðina.
Þessa dagana eru sjö ungmenni frá
sjálfboðaliðasamtökunum Seeds hér
við störf. Segja má að heimsókn
sjálfboðaliða sé að verða einn af föst-
um liðum sumarsins í mörgum þorp-
um og bæjum landsins og þannig er
það hér á Kópaskeri.
Að venju héldu þau alþjóðakvöld
fyrir heimamenn og gesti þar sem
tækifæri gafst til að fræðast um
heimalönd sjálfboðaliðanna með
ýmsu móti, meðal annars með því að
smakka á ýmsum þjóðarréttum.
Líkt og undanfarin ár er fjöru-
hreinsun aðalverkefnið sem unnið er
í sjálfboðavinnu en sveitarfélagið
Norðurþing leggur fólkinu til hús-
næði og fæði með stuðningi fyr-
irtækja á staðnum. Hægt er að fræð-
ast nánar um verkefni Seeds á
Íslandi á www.seedsiceland.org.
Tjaldstæðið á Kópaskeri lætur ekki
mikið yfir sér við fyrstu sýn en hefur
vakið athygli fyrir snyrtimennsku og
góðan aðbúnað. Eftir að nýtt að-
stöðuhús var tekið í notkun á síðasta
ári hefur gestum á tjaldstæðinu
fjölgað til muna og ekki spillir fyrir
að þar geta ferðamenn dvalið sér að
kostnaðarlausu.
Fagurt og frítt nefnist sýning sum-
arsins í Bragganum í Núpasveit sem
opnuð var 27. júní sl. Þar sýnir Ing-
unn St. Svavarsdóttir, Yst, 13 verk:
teikningar á léreft og pappír, ásamt
skúlptúr, innsetningu og atómljóði á
ensku. Óskað er eftir þýðingu á ljóð-
inu yfir á íslenska tungu. Verðlaun
fyrir bestu þýðinguna verða veitt í
sýningarlok og eru þau teikning eft-
ir Yst. Þetta er fimmta sýning Ing-
unnar í Bragganum og er umfjöll-
unarefnið tilhugalíf, frjósemi,
væntingar og vonir. Aðgangseyrir er
enginn og verkin eru ekki verðlögð.
Sýningin stendur til 13. júlí og er op-
in daglega frá kl. 11 til kl. 18. Það er
forvitnilegt að heimsækja Ingunni í
Braggann því húsið sjálft er sann-
kallað listaverk og varla hægt að
ímynda sér að það hafi áður gengt
hlutverki fjárhúss.
Stefnt er að opnun forsýningar
Jarðskjálftasetursins á Kópaskeri
þann 17. júlí nk. Undirbúningur hef-
ur staðið yfir allt frá stofnun
Skjálftafélagsins sl. haust en sýn-
ingin verður til húsa í skólahúsinu. Í
sumar verður aðallega um að ræða
myndasýningu sem byggist á jarð-
fræðilegri sérstöðu svæðisins, hin-
um þekkta Kópaskersskjálfta 1976
og afleiðingum hans.
Ásbyrgismót er einn af árlegum við-
burðum í héraðinu, fjölskylduhátíð
þar sem Norður-Þingeyingar og
gestir þeirra, bæði börn og full-
orðnir reyna með sér í íþróttum og
skemmta sér saman.
Í ár er mótið í fyrsta sinn haldið af
HSÞ, Héraðssambandi Þingeyinga,
sem varð til við sameiningu tveggja
héraðssambanda, Ungmenna-
sambandi Norður-Þingeyinga og
Héraðssambandi Suður-Þingeyinga.
Ákveðin hefð hefur skapast fyrir því
að mótið sé haldið aðra helgina í júlí
og verður nú dagana 11.-13. júlí.
KÓPASKER
Kristbjörg Sigurðardóttir fréttaritari
úr bæjarlífinu