Morgunblaðið - 05.07.2008, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 05.07.2008, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG veit ekki hvert íslenska veiði- mannaþjóðfélagið stefnir. Þjóð sem komst til álna með því að veiða sér til matar getur ekki hugsað sér að skjóta ísbjörn, sem ógnar fólki. Það er kallaður til danskur sérfræðingur til að svæfa bangsa! Meira að segja ráðherra kemur á staðinn með einkavél og telur ekki rétt að mynda dýrið fyrr en það hef- ur verið snyrt fyrir myndatöku. Þá ærist fjölmiðlaherinn, sem telur sig hafinn yfir lög og reglur. Sjálf- hverfan er slík þar á bæ, að það verður að fyrstu frétt hjá Stöð 2, að ráðherra hafi heft för myndasmiða að ísbirninum. Samt lá það fyrir, að slíkt hafði ekki verið gert. Þeir höfðu aðeins verið beðnir að bíða um stund. Og nú má ekki nýta landsins gæði til að lyfta okkur úr kreppunni. „Græni herinn“ virðist vera veru- leikafirrtur. Liðsmenn hans virðast ekki gera sér grein fyr- ir forsendum þess, að þjóðin geti lifað í land- inu. Það er efnt til tón- listarveislu í grænum lundi til dýrðar náttúru Íslands. Um leið á að kveða niður virkjanir og álver, en þegar fólk- ið hverfur á braut, margir með ölglampa í augum, er völlurinn þakinn áldósum og grænn völlurinn grát- andi eftir traðkið. Þetta er fólkið sem ætlar að bjarga náttúru Íslands; náttúru sem hefur verið að eyðast frá því að land byggðist. Upphaflega var gengið á gróðurinn til að fé og fólk gæti lifað af harðindi. En eyðingaröflin eru enn að verki; gróður lætur undan og jarðvegurinn fýkur á haf út. Virkj- anir og stóriðja eiga þar enga sök. „Græni herinn“ ætti að blása til sóknar til að endurheimta alla þá „náttúru“, sem hefur fokið á haf út frá því að landið byggðist. Málflutningur talsmanna „Græna hersins“ er sorglegur. Einn þeirra hélt því blákalt fram, að þar sem ekkert atvinnuleysi væri til staðar á Húsavík og Vestfjörðum væri ástæðulaust að efna þar til nýsköp- unar í atvinnulífi. Atvinnuleysið væri í Reykjavík. Það er að vísu fal- inn í þessu nokkur sannleikur. Það er ekki skráð mikið atvinnuleysi á Húsavík eða nærsveitum. Ástæðan fyrir því er sú, að fólkið er farið. Það sem verra er, það er unga fólkið sem fyrst fer að heiman, jafnvel eft- ir framhaldsnám, vegna þess að það hefur ekki fundið atvinnu við hæfi í heimabyggð. Þessa þróun verður að stöðva; það er aðkallandi að skapa ný vel launuð störf fyrir vel mennt- að ungt fólk á Norðurlandi og víðar á landsbyggðinni. Það skemmir þessa umræðu, að stilla virkjunum og náttúruvernd upp sem andstæðum. Ég vil vernda náttúru Íslands og endurheimta þau landsgæði, sem þurfti að fórna til að halda lífinu í þjóðinni um aldir. En það fer saman með virkjunum og stóriðju. Við þurfum uppsprettu verðmæta til að yrkja landið. Við lif- um ekki á loftinu. „Græni herinn“ þarf sitt ál í sínar öldósir, liðsmenn hans vilja fljúga með álfuglum og uppspretta listsköpunar er í þeim auði sem atvinnulíf landsins skapar. Við eigum að nýta þá orku sem við eigum fyrir álverksmiðjur og aðra stóriðju. Það er „græn stefna“, því þannig dregur úr framleiðslu á áli með orku, sem gerð er með olíu og kolum víðs vegar um heiminn. „Eitthvað annað“, hafa andstæð- ingar stóriðju sagt í áratugi, en þetta „eitthvað annað“ er ekki í hendi. Nýjasta hugmyndin sem ég heyrði var sú, að byggja fossa, sem útlendingar vilja borga fyrir að horfa á, líkt og danskur Íslendingur gerði í Bandaríkjunum. Ég vissi ekki hvort ég átti að hlæja eða gráta þegar þessi hugmynd var sett fram í Sjónvarpinu í fullri alvöru. Við eig- um nóg af fossum, sem við horfum á fyrir ekki neitt og leyfum gestum okkar að njóta þeirra líka. Það hefur að vísu verið tekist á um það í sam- félaginu, hvort selja eigi aðgang að okkar dýrmætustu náttúruperlum. Þannig mætti skapa tekjur til að bæta aðgengi að þeim og tryggja, að ágangur ferðamanna skaði ekki náttúruna. Það hefur gerst og er að gerast enn. Því verður að linna. Það er gjarnan talað um álver á Bakka við Húsavík, eins og það komi Húsvíkingum einum við. Því fer þó fjarri, því það er ljóst að slík framkvæmd yrði vítamínsprauta fyrir nærsveitir, allt frá Akureyri austur á Þórshöfn. Þessi byggðarlög þurfa á slíkum aflvaka að halda, ef ekki á illa að fara. Þetta á sér- staklega við um byggðirnar á norð- austurhorninu, þar sem meðalaldur hefur hækkað jafnt og þétt. Ef þeirri þróun verður ekki snúið við verða þessar sveitir í framtíðinni fyrst of fremst athvarf fyrir höfð- uborgarbúa í orlofi. Viljum við það? Ég segi nei. Ég vil nýta orkuna til atvinnu- uppbyggingar og verðmætasköp- unar til fegurra mannlífs. Þann afl- vaka á meðal annars að nýta til að endurheimta landsgæði. Það er enn mikill uppblástur í sveitum þing- eyinga og þar eru stórar mann- gerðar eyðimerkur fyrir. Þegar liggja fyrir drög um að nýta hagnað af álveri við Húsavík til að stöðva landeyðinguna og græða það sem blásið hefur upp. Þannig verður landið bætt um leið og gróðurinn vinnur gegn þeim neikvæðu áhrif- um, sem álverið hefur á andrúms- loftið. Vonandi gengur þetta eftir. Náttúruvernd og virkjanir fara saman Sverrir Leósson fjallar um virkjanir og mannlíf almennt norðan heiða Sverrir Leósson » „Græni herinn“ þarf sitt ál í sínar dósir og sínar flugvélar, enda fer náttúruvernd saman með virkjunum, segir Sverrir Leósson Höfundur er útgerðarmaður á Akureyri. ÞEGAR ég hóf fyrst störf sem hjúkr- unarfræðingur eftir nám og nýkomin úr fæðingarorlofi var ég ánægð – komin í draumastarfið. Sama sumar útskrifaðist litli bróðir minn úr 10. bekk grunnskóla. Hann fór á samning á verkstæði til að læra vélvirkjun. Hann fékk hærri grunnlaun en ég. En ég var ánægð í vinnunni, vann nætur- og helgarvaktir þar sem börnin mín voru ekki öll kom- in í leikskóla og þannig náði ég að hækka launin mín. Það var góður andi á deildinni, gaman að koma í vinnuna og mönnunin var góð. Vegna skipulagsbreytinga var deildin sameinuð annarri deild sem gekk ekki eins vel að manna. Deildin hrundi og það var stöðugt verið að hringja og biðja um auka- vaktir. Til að byrja með var ég dugleg að segja já og hélt að þetta væri tímabundið ástand sem myndi lagast. Oft var ég að vinna mun meira en ég og fjölskyldan mín þoldum, sérstaklega á sumrin. Á tímabili var það þannig að síma- númer spítalans birtist ekki á skjánum, því það var orðið svo al- gengt að starfsfólk svaraði ekki þegar það sá hvaða númer var að hringja. Símnúmerabirtir var orð- ið eitt af nauðsynjatækjum starfs- manna. Þegar börnin voru öll komin í leikskóla ætlaði ég að vinna hjá Heilsu- gæslu höfuðborg- arsvæðisins og ég hlakkaði mikið til að fara að vinna í dag- vinnu. Fyrstu mán- aðamótin kom áfallið: ég var í mínus. Út- borguð laun voru lægri en leik- skólagjöldin. Ég sagði upp og fór aftur að vinna nætur- og helg- arvaktir – ég hafði ekki efni á því að vinna dagvinnu. Síðan hóf ég nám í ljósmóð- urfræði. Námið var erfitt og krefjandi – en ég var komin á rétta hillu í lífinu. En greinilegt að ég hafði ekkert peningavit, því ég athugaði aldrei hver launa- kjörin væru eftir útskrift. Launin sem voru í boði á kvennadeild LSH var 4 flokka launalækkun fyrir mig. Ég réð mig á heilsu- gæslustöð út á landi sem gat boð- ið mér betri laun. En ég var búin að mennta mig sem ljósmóðir og draumurinn var að starfa við fæðingar. Maðurinn minn vildi líka komast í bæinn þar sem dvölin úti á landi krafðist þess að hann væri mikið í burtu þar sem hann starfaði að mestu í Reykjavík. Ég fékk vinnu á fæðingardeild LSH – réð mig í 50% næturvaktir, sem þýddi að ég fékk 3. flokka launahækkun fyrir að vinna næt- urvinnu og grunnlaunin voru orðin ásættanleg. Og þar sem mér þótti svo gaman að vinna í mæðravernd var ég fljótlega farin að vinna með vinnunni á LSH á Miðstöð Mæðraverndar. En það var meira áhugamál sem ég fékk vasapening fyrir. Oft hitti ég konurnar aftur á fæðingardeildinni eða var að sinna þeim í heimaþjónustu eftir fæð- ingu. Þetta var virkilega góður tími – vinnufyrirkomulagið átti vel við mig og ég beið eftir því að það losnaði staða í MFS einingunni. En þar vantaði ekki ljósmæður – þar var góður kjarni að störfum. Það eru ekki bara ljósmæður sem eru ánægðar með að veita sam- fellda þjónustu, það er sú þjón- usta sem okkar skjólstæðingar vilja fá. Það er alveg ótrúlegt að það virðist hafa verið lenska í gegnum árin innan heilbrigðiskerfisins að leggja allt niður eða breyta því sem vel gengur. Miðstöð Mæðra- verndar sem var ljósmæðrarekin deild sem skipulagði sig út frá þörfum kvenna var lögð niður. Hvers vegna get ég ekki enn skil- ið. MFS einingin var líka lögð nið- ur. Einingin var of vinsæl og of mörgum konum var vísað frá. Það vantar í dag að konur hafi mögu- leika á að fá samfellda þjónustu. Í síðustu samningalotu við Ríkið var Ljósmæðrafélag Íslands í samfloti með öðrum BHM fé- lögum. Með því samstarfi fengum við upplýsingar um hvar ljós- mæður voru í launum í sam- anburði við aðrar háskólamennt- aðar stéttir hjá ríkinu. Sá samanburður var okkur mikið áfall. Kvennadeild LSH var með lægst launuðu sviðunum innan spítalans, launaröðunin innnan Heilsugæslu höfuðborgarsvæð- isins var skammarleg. Ljósmæður á landsbyggðinni voru engu betur staddar. Af hálfu ríkisins virtist gilda að það mætti gera hvað sem er við ljósmæður, þær tækju því þegj- andi – og við höfum gert það. Við erum uppteknar af því að vinna vinnuna okkar – okkar skjólstæð- ingar hafa alltaf verið í fyrirrúmi. Nú er komin ný ríkisstjórn með nýjum ráðherrum og í stjórn- arsáttmálanum er tilgreint að bæta eigi hag kvennastétta. Við bindum miklar vonir við þessi lof- orð – við þurfum virkilega á því að halda að þau verði efnd. Gefandi starf eða gefið starf Unnur Berglind Friðriksdóttir skrif- ar um starf og laun ljósmæðra » Það er alveg ótrúlegt að það virðist hafa verið lenska í gegnum árin innan heilbrigð- iskerfisins að leggja allt niður eða breyta því sem vel gengur. Unnur Berglind Friðriksdóttir Höfundur er ljósmóðir. Í MORGUNBLAÐINU í gær var birt aðsend grein eftir Agnar Kr. Þorsteinsson vegna tilboðs Exista til hluthafa Skipta og inn- lausnarferils í framhaldi af því. Ekki er ástæða til þess að elta ólar við þau stóryrði sem í greininni er að finna, enda dæma þau sig sjálf. Hins vegar er tilefni til þess að halda staðreyndum til haga varð- andi þessi viðskipti. Hluthöfum Skipta voru veittar átta vikur til þess að taka afstöðu til tilboðsins, frá 27. mars til 26. maí. Bréf með tilboðinu og skil- málum þess var sent öllum hlut- höfum Skipta 27. mars auk þess sem auglýsingar birtust í dag- blöðum. Því er erfitt að átta sig á því hvers vegna greinarhöfundur vissi ekki af tilboðinu og skil- málum þess fyrr en 11. júní og vart við aðra að sakast en hann sjálfan í því efni. Tilboðið fékk góðan hljómgrunn og þegar tilboðstímabili lauk höfðu nær allir hluthafar í Skipt- um tekið tilboði Exista sem leiddi til þess að félagið hafði yfir að ráða meira en 99% hlutafjár. Í sam- ræmi við lög hófst því innlausn þeirra hluta sem eftir stóðu og greinarhöfundur virðist vera ósáttur við. Innlausnarferli af þessu tagi lýtur reglum íslenskrar hlutafélagalöggjafar sem er sam- bærileg við það sem gerist í ná- grannalöndum okkar. Skipti er nú að fullu í eigu um 30 þúsund hluthafa Exista, sem er eitt stærsta og fjölmennasta al- menningshlutafélag landsins, og bætast hluthafar Skipta í þann hóp. Þegar viðskipti eiga sér stað með stór hlutafélög er ekki við því að búast að allir hluthafar séu full- komlega sáttir. Yfirgnæfandi fjöldi hluthafa Skipta kusu að taka tilboði Exista í hlutabréf sín sem segir væntanlega mest um sann- girni tilboðsins. Þeir sem ekki eru sáttir við þá niðurstöðu hafa fullan rétt til þess að láta skoðun sína í ljós en æskilegt væri að það væri gert af hófstillingu og með stað- reyndir málsins að leiðarljósi. Sigurður Nordal Um tilboð í hlutabréf Skipta Höfundur er framkvæmdastjóri samskiptasviðs Exista. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is MEÐ sólargjöf og gleðiboðskap er góða Ísland og Blessuð Reykjavík Blessuð Reykjavík (Lag: yfir fornum frægðar ströndum) Sunnan báran boð þér flutti, blessuð Reykjavík. Fornar súlur flutu hingað. Fann þig auðnan rík. Yfir gaf norsk hetja hafsins heimsins iðu-torg. Bær var Ingólfs Arnarsonar Íslands höfuðborg. Þorkell máni afkomandi orðstír lifir þar. Siðaður best – samt í heiðin, sérkenni hans var. Sig hann fól þeim Guði er gefur glaða sólskin hér. Lífgar það mest líf á jörðu, líf svo ávöxt ber. Frúin Hallveig Fróðadóttir formóðir góð var. Fyrstu landnáms heiðrum hjónin heimáí Vík – loks þar. Kristni ákvað árið þúsund, albest löggjöf hér. Guð í Kristi gaf oss – þar með gleðiboðskap þér. (Sbr. sjá Róm. 8.38-39) PÉTUR SIGURGEIRSSON biskup. Með sólargjöf og gleðiboðskap                            smáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.