Morgunblaðið - 05.07.2008, Side 27

Morgunblaðið - 05.07.2008, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 27 MINNINGAR ✝ ValgerðurSveinsdóttir fæddist í Gerði á Barðaströnd 10. nóvember 1931. Hún lést á Sjúkra- húsi Patreksfjarðar 27. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ingveldur Jó- hannesdóttir, f. 30.5. 1893, d. 18.7. 1966 og Sveinn Ólafsson, f. 15.10. 1882, d. 2.6. 1950. Systkini Valgerðar eru: Jóhannes Hjálmar (sam- feðra), f. 9.5. 1902, Jón Ingivald- ur, f. 16.6. 1915, Svava, f. 17.2 1917, Ólafur, f. 28.7. 1925, Ólafía Margrét, f. 6.9. 1926 og Hulda, f. 11.3. 1929, sem öll eru látin. Eft- irlifandi systir Valgerðar er Klara, f. 21.7. 1922. Hinn 10. janúar 1953 giftist Val- gerður Rögnvaldi Haraldssyni frá Hringsdal í Arn- arfirði, f. 10.8. 1927, d. 25.12. 1993. For- eldrar hans voru Jó- hanna Sveinsdóttir, f. 31.5.1896, d. 22.4. 1975 og Haraldur Jónsson, f. 6.4. 1894, d. 18.7. 1958. Sonur Valgerðar og Rögn- valdar var Sveinn Ingvar, f. 7.5. 1950, d. 10.4. 2007, dóttir hans er Sig- þrúður, f. 29.7. 1994. Valgerður starfaði lengst af í Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar, síðar Odda hf. Valgerður verður jarðsungin frá Patreksfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Í dag er kvödd Valgerður Sveins- dóttir (alltaf kölluð Valla af ættingj- um og vinum). Valla greindist með krabbamein sl. haust, baráttan var erfið, síðustu vikurnar var hún kom- in í hjólastól og henni hrakaði ört þar til hún fékk hvíldina 27. júní. Minningar mínar af Völlu eru margar, allt frá barnæsku minni fram á þennan dag. Hún var gift móðurbróður mínum, Rögnvaldi Haraldssyni, þau bjuggu allan sinn búskap á Patreksfirði. Þar sem ég var alin upp á Bíldudal hjá móðurfor- eldrum mínum voru samskiptin þó nokkur, taka verður mið af því að á þeim árum var bílaeign ekki eins al- geng og í dag, en reynt að hittast öðru hvoru. Mér er minnisstætt hvað ég leit upp til Völlu þegar hún kom til okkar, mér fannst hún alltaf svo fal- leg og vel klædd. Þau hjónin áttu einn son, Svein, hann kom oft með þeim að hitta afa sinn og ömmu á Bíldudal. Sveinn var fjórum árum yngri en ég, fannst mér mikil upp- hefð af að vera trúað fyrir að passa hann í þessum heimsóknum. Valla var myndarleg í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, mér er minnisstætt þegar amma mín var jarðsett á Bíldudal í maí 1975, við vorum níu sem fórum vestur að jarð- arförinni og vorum öll gestir Völlu og Rögnvaldar, þegar komið var að því að fljúga heim, varð breyting á veðri, ekki var hægt að fljúga í heila viku, allan tímann sátum við að veisluborði og nutum gestrisni hennar og Rögn- valdar. Seinna, eftir að ég giftist og fór að búa komu þau oft til okkar Péturs, fyrst í Búrfellsvirkjun, síðar í Reykjavík. Það var alltaf spennandi að sjá hvaða bíl þau ættu hverju sinni, þeir voru alltaf svo flottir og nostrað mikið við þá, stundum var Sveinn með í för, þá á sínum bíl, og ekki voru hans bílar síðri.Valla og Rögnvaldur voru mjög samrýmd hjón. Þegar Rögnvaldur fékk hjarta- áfall og fór í aðgerð til Reykjavíkur, héldu þau til hjá okkur Pétri, allt virtist ætla að ganga vel og Rögn- valdur var kominn heim til Patreks- fjarðar, en þá kom reiðarslagið, hann varð bráðkvaddur jólin 1993. Þetta kom mjög illa við Völlu, hún átti erf- itt með að sætta sig við að vera orðin ein. Líka þurfti hún að selja húsið þeirra, sem henni var mjög kært, svo breytingarnar voru miklar. Hún syrgði Rögnvald mikið eftir fráfall hans, söknuðurinn var sár. Sveinn sonur þeirra, lést fyrir rúmu ári, það varð henni mikið áfall. Sveinn á eina dóttur, Sigþrúði, hún býr á Patreksfirði hjá móður sinni Gróu, Sigþrúður fermdist í vor, amma hennar komst í kirkjuna, hún sagði mér að það hefði verið sér mik- ils virði, sérstaklega fannst henni vænt um að Sigþrúður var með háls- festi með krossi á, sem Valla átti og fermdist sjálf með. Að lokum þökkum við hjónin fyrir samfylgdina og biðjum Guð að geyma minningu Völlu. Mig langar að þakka Ingu syst- urdóttur Völlu, fyrir allt sem hún gerði fyrir frænku sína, hún hefur staðið eins og klettur við hlið hennar í þessum veikindum og verið henni ómetanleg stoð og stytta, Guð blessi hana fyrir það. Ég og fjölskylda mín, sendum Sig- þrúði, Gróu og Klöru, systur Völlu, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guðrún V. Árnadóttir. Valgerður, eða Valla eins og hún var ávallt kölluð, var gift ömmubróð- ur mínum, Rögnvaldi. Valla „frænka“ kom iðulega í heimsókn til foreldra minna í Breið- holtið þegar hún átti erindi til Reykjavíkur. Ég man mjög vel eftir þessum heimsóknum, Valla var árr- isul, hún vaknaði fyrir klukkan 7 á morgnana og las Morgunblaðið flautandi lítinn lagstúf. Þetta minn- ingarbrot er það fyrsta sem upp kemur í hugann þegar ég hugsa til hennar. Valla var ávallt óaðfinnan- lega klædd og ég man hvað mér fannst hún alltaf fín og vel greidd. Eftir heimsóknir hennar notaði ég óspart orðið „gasalega“, en það orð notaði Valla mikið. Ég reyndi því að líkjast henni og notaði það þegar ég mögulega gat komið því við. Þegar ég var lítil stelpa fékk ég að fara vestur í heimsókn, en þau hjónin voru búsett á Patreksfirði. Ég gisti hjá Gróu og Svenna, syni Völlu og Rögnvaldar og þótti mikið til þess- ara heimsókna koma. Góðar minn- ingar á ég frá þessum tíma og þakka ég vel fyrir þær. Valgerður lifði bæði eiginmann sinn sem og einkason sinn, Svenna. Í veikindum Völlu annaðist Inga um Völlu og ber að þakka henni fyrir það. Nú hefur Valla mín fengið hvíld- ina og trúi ég því að liðnir ættingjar, sumar og sól taki á móti henni. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég til Sigþrúðar, Gróu, vina og ætt- ingja. Sigríður Pétursdóttir. Á bjartasta tíma ársins, þegar Patreksfjörður og Barðaströndin skarta sínu fegursta, kvaddi Val- gerður föðursystir okkar þennan heim. Valla frænka og pabbi voru af- skaplega náin systkin alla tíð og þar af leiðandi var hún dugleg að kíkja í molakaffi. Þegar hún leit inn var spjallað um líðandi stund og gamla tíð enda þótti Völlu jafnvænt um sveitina sína Barðaströndina eins og pabba okkar. Þegar við sem ungling- ar byrjuðum að vinna í frystihúsinu var það oftar en ekki Valla sem kenndi okkur réttu handbrögðin, en hún var sérlega vandvirk og sam- viskusöm. Í tvo áratugi bjuggu þau Valla og Rögnvaldur í næsta húsi við okkur á Brunnunum. Þau voru ávallt sam- rýmd hjón. Þau ferðuðust víða bæði innanlands og erlendis. Þeim fannst mjög gaman að spila og á jólum skemmtu þau sér við spilamennsku ásamt foreldrum okkar. Á haustin var ekki slegið slöku við, þá var farið til berja og tínd krækiber og aðalblá- ber. Fáir þekktu berjalöndin á sunnaverðum Vestfjörðum eins vel og þau, í minningunni komu þau allt- af heim með öll ílát full og jafnvel meira til og berin ótrúlega væn. Missir Völlu var mikill þegar Rögn- valdur varð bráðkvaddur á jólanótt 1993. Eftir það seldi Valla húsið á Brunnunum og flutti í Sigtúnið þar sem hún bjó til æviloka. Síðustu ár bauð hún okkur alltaf í kaffi og heimabakað meðlæti þegar við syst- urnar vitjuðum okkar heimaslóða. Í apríl á síðasta ári knúði dauðinn aftur dyra þegar Sveinn einkasonur hennar lést. Eftir það var eins og all- ur lífsvilji væri henni horfinn, þegar hún svo greindist með krabbamein í vetur var baráttuþrekið lítið. Valla frænka var glaðvær manneskja, heimsókna hennar og hláturs verður sárt saknað. Missir Klöru systur hennar er mikill, hún ein er eftir af systkinahópnum frá Gerði. Klöru og Sigþrúði vottum við okkar dýpstu samúð.Við viljum kveðja Völlu föð- ursystur okkar með fyrstu tveimur erindunum úr Vökudraumi Jenna Jóns. Ljúft er að láta sig dreyma liðna sælutíð, sólríku sveitina kæru, svipmikla birkihlíð, fjarlægu fjöllin bláu, frjósama blómskreytta grund, baðandi í geislagliti glaðværa morgunstund. (Jenni Jóns.) Ellen og Birna Ólafsdætur. Valgerður Sveinsdóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR JÓN HELGASON, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík föstudaginn 27. júní, verður jarðsunginn frá Grindarvíkurkirkju í dag, laugardaginn 5. júlí kl. 14.00. Þorgerður Guðný Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og stjúpfaðir, HILMAR JÓHANNESSON rafeindavirkjameistari, Brekkugötu 19, Ólafsfirði, sem lést þriðjudaginn 24. júní á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri, verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju þriðjudaginn 8. júlí kl. 14.00. Hrafnhildur Grímsdóttir, Jóhann G. Hilmarsson, Anne Irmeli Turunen, Haukur Hilmarsson og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN ÁRMANN JAKOBSSON PÉTURSSON tæknifræðingur, Kringlunni 17, lést á gjörgæsludeild Landspítala fimmtudaginn 26. júní. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 7. júlí kl. 15.00. Hafdís Einarsdóttir, Pétur H. Jónsson, Oddný Þ. Óladóttir, Margrét Jónsdóttir, Arnór H. Arnórsson, Einar Þór Jónsson, Gina Jónsson og barnabörn. ✝ Elsku hjartans mamma okkar, tengdamamma, systir og amma, JÓNÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Rjúpufelli 7, Reykjavík, lést á heimili sínu að morgni fimmtudagsins 3. júlí. Guðmundur Þór Sigurgeirsson, Sigríður Margrét Sigurgeirsdóttir, Jón Arason, Katrín Jóna Sigurgeirsdóttir, Guðbergur Sigurpálsson, Hólmfríður Jóna Kramer, Ray Kramer, Páll Helgason, Silla Runólfsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, LILJA GUÐLAUGSDÓTTIR, Víðilundi 24, Akureyri, áður í Hafnarstræti 33, lést miðvikudaginn 2. júlí á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Margrét Þórhallsdóttir, Karl Eiríksson, Þórhalla Þórhallsdóttir, Hjörtur Hjartarson, Valdimar Þórhallsson, Inga Hjálmarsdóttir, Gylfi Þórhallsson, Eyþór Þórhallsson, Margrét Sigurðardóttir, ömmubörn og langömmubörn. Elsku Hanna frænka, það sem fyrst kemur upp í huga mér þegar ég hugsa um þig eru minn- ingar frá því er ég var barn. Þú og Maggi voru stór partur af daglegu lífi okkar fjölskyldu. Þið mamma voru ekki bara systur heldur miklar vinkonur. Það voru ófáir dagarnir sem við skruppum niður í Geitland til þín eða að þú komst í Kópavog- inn. Stundum fengum við systkinin að horfa á Kanasjónvarpið í Geit- landinu og oftar en ekki var lítil kók í gleri og prins póló fylgifiskur þessara dásemda stunda. Það var alltaf notalegt að koma til þín og Magga, hvort sem það var í Geit- landið eða á Tunguheiðina. Það voru heldur ekki fá ferðalögin sem við fórum saman í, við fjölskyldan og vinahópur mömmu og pabba. Oftast var farið í tjaldútilegur og þá reynt að vera við veiðivatn eða farið í sumarbústað í Munaðarnesi. Þetta var hápunktur lífsins að fara í þess- ar útilegur og ekki spillti það fyrir Hanna Ólöf Guðmundsdóttir ✝ Hanna ÓlöfGuðmundsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 12. apríl 1923. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 12. júní síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fríkirkj- unni í Reykjavík 23. júní. gleðinni að fá að vera farþegi í „Randaflug- unni“ hjá þér og Magga. „Randaflug- an“ var í mínum huga sérlega glæsilegur skutbíll, svartur og gulröndóttur, amer- ískur dreki með krómstuðurum. Þegar þú komst akandi á „Randaflugunni“ varð virðuleiki þinn enn meiri í mínum huga. Þannig varst þú Hanna mín. Þú hélst reisn þinni alla tíð þó svo að heilsu- leysi hafi hrjáð þig síðustu árin. En ekki var það að sjá á heimili þínu í Gullsmára í Kópavogi, að snyrti- mennskan hefði dalað þó svo að heilsan væri farin að bila. Síðustu mánuði lífs þíns bjóstu hjá henni mömmu minni. Ég veit að sá tími var ykkur samrýmdu systrum afar dýrmætur. Hanna, ég þakka þér allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Elsku mamma, þinn missir er mikill og megi Guð vera með þér í sorg þinni. Þín frænka, Margrét Sigurðardóttir. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Margrét Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.