Morgunblaðið - 05.07.2008, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 35
MESSUR Á MORGUN
því heldur málunum reddað! Leik-
verkið Ferðir Guðríðar var feiknayf-
irgripsmikið og flókið með aldamóta-
árið í brennideplinum. Sýningin fór
víða og spannaði mörg ár. Margs er
að minnast frá þessum tíma, m.a. ná-
ins samstarfs leikstjóra og leikara.
Brynja var greind kona, vel lesin og
hafði víða komið. Mér er fersk í minni
frumsýning okkar í Þórshöfn. Það
var gott að vera hjá frændum okkar
Færeyingum og tóku þeir sýningunni
fjarska vel. Einnig stendur upp úr
kvöldverður hjá herra Ólafi Ragnari
Grímssyni forseta þegar Thor
Heyerdahl var heiðursgestur á
Bessastöðum. Margir fræðimenn
sem á einn eða annan hátt tengdust
fyrirhuguðu aldamótarafmæli voru
þar gestir.
Eitt er mér þó sérstaklega minn-
isstætt frá þessum tíma. Móðir mín,
Anna Sæbjörnsdóttir, greindist með
krabbamein í byrjun æfingatímabils-
ins. Vegna þessa varð að vonum mik-
ið rask á æfingarferlinu. Brynja
sýndi ástandinu sérstaklega mikinn
skilning og reyndist mér alveg sér-
lega vel, bæði í gegnum veikindin og
svo sex mánuðum síðar þegar móðir
mín lést. Hinn sterki karakter
Brynju og hennar mannlega hlið
komu þar svo sannarlega í ljós. Þótt
sambandið hafi rofnað hin síðari ár,
eftir að við fjölskyldan fluttum vestur
til Bandaríkjanna, hugsaði ég ævin-
lega hlýtt til Brynju Ben.
Guð blessi ævinlega minningu
hennar.
Ég votta Erlingi, Benedikt, Char-
lotte, Önnu Róshildi, Ingunni, Jó-
hönnu og öðrum aðstandendum mína
dýpstu samúð.
Ragnhildur Rúriksdóttir.
Við fráfall Brynju Benediktsdóttur
minnist ég samvinnu okkar við und-
irbúning esperanto-sýningar Inúk–
hópsins á 62. heimsþingi Alþjóðlega
esperanto-sambandsins í Reykjavík
1977. Þá voru þrjú ár liðin frá frum-
sýningu leikritsins Inúk í Þjóðleik-
húsinu sem var hópverkefni unnið
undir stjórn Brynju Benediktsdóttur
sem einnig samdi textann ásamt Har-
aldi Ólafssyni mannfræðingi. Leik-
sýningin varpaði sterku ljósi á hlut-
skipti og örlög Grænlendinga og
jafnframt annarra frumbyggja sem
lenda undir holskeflu framandi
menningar. Verkið hentaði vel til
sýningar á alþjóðavísu og urðu sýn-
ingar erlendis næstu árin yfir eitt
hundrað í yfir tuttugu löndum. Hefur
engin íslensk leiksýning gert jafnvíð-
reist. Jafnan var sýnt á íslensku. Þeg-
ar 62. heimsþing Alþjóðlega esper-
anto-sambandsins var í undirbúningi
í Reykjavík 1977 kom fram sú hug-
mynd að Inúk yrði leiksýning þings-
ins. Leikstjóranum, Brynju Bene-
diktsdóttur, leist strax vel á þá
hugmynd og var ákveðið í samráði við
leikhópinn að sýningin færi fram á
esperanto þar sem aðstæður væru
sérstakar, fjöldi gesta frá mörgum
þjóðum þar sem allir töluðu alþjóða-
málið. Áhugi Brynju á því að svo
skyldi vera er mér einkar minnis-
stæður. Textinn var því þýddur á það
mál og æfður með hópnum. Enginn
leikaranna hafði lært esperanto og
enginn tími gafst til eiginlegrar
kennslu í málinu og urðu leikararnir
því að læra textann utan að og gekk
það fljótt og vel. Nauðsynlegt var að
hafa tvær sýningar vegna fjölda þing-
gesta sem voru á annað þúsund frá
um fjörutíu þjóðum. Viðtökur voru
frábærar og sýningarinnar getið afar
lofsamlega í esperanto-blöðum víða
um heim. Íslenskir esperantistar
minnast Brynju Benediktsdóttur
með þakklæti fyrir mikilvægt fram-
lag hennar og Inúk-leikhópsins til al-
þjóðlegrar menningar með því að
sýna hið merka leikrit á hinu hlut-
lausa alþjóðamáli esperanto.
Baldur Ragnarsson.
Brynja Benediktsdóttir leikkona
er dáin. Ég minnist hennar fyrst frá
því hún og maðurinn hennar voru að
æfa sjónvarpsauglýsingu í árdaga
Sjónvarpsins, kringum 1968, til að
auglýsa tímaritið Sextíu og fimm
gráður; en það var menningartímarit
á ensku sem móðir mín, Amalía Lín-
dal stóð fyrir. Er mér enn í unglings-
minni er þetta glæsilega par athafn-
aði síg þá í hjónarúmi við lestur fyrir
svefninn, frammi fyrir upptökuljós-
unum í borðstofunni okkar heima í
Kópavogi.
Seinna áttu mér eftir að verða
minnisstæðar leiksýningar sem þau
hjónin tengdust; sem og er hún hvatti
mig lögeggjan til að mæta á leiksýn-
ingu sína um Guðríði Þorbjarnardótt-
ur, landnámskonu í Kanada; enda var
ég þá orðinn formaður Vináttufélags
Íslands og Kanada.
Ég votta eftirlifandi eiginmanni
hennar innilega samúð mína; en leiðir
okkar hafa legið eftirminnilega sam-
an í kaffihúsalífi borgarinnar. Ég læt
fylgja hér eftir ljóð úr elleftu ljóðabók
minni, Söguljóðum og sögum (2008):
Braga sem í brunni djúpum
brástjörnur af himinhjúpum.
Berjast hjörtu bakvið grindur
rifjabúrs sem ástir bindur.
Nú er timinn til að elskast
tæpur því við munum eldast,
gæfuleysið við mér gín,
heilsumissis gröf mun þín.
Munum við þó mjög sem fyrrum
mega vefjast höndum kyrrum.
Slítum því ei sambands flæði
meðan uppi stöndum bæði.
Tryggvi V. Líndal.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Svavar A. Jónsson,
stúlknakórinn Graduale Nobili syngur, fé-
lagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, organ-
isti Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigrún Óskarsdóttir predikar og þjónar
fyrir altari, organisti Krisztina Kalló Szklen-
ár, félagar úr kórnum leiða söng. Kaffisopi
á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Lautarguðsþjónusta
kl. 11 við leikskólann Holtakot. Sr. Hans
Guðberg Alfreðsson predikar og leiðir
stundina, Bjartur Logi Guðnason organisti
mætir með gítarinn og Álftaneskórinn leið-
ir sönginn. Farið í leiki að lokinni guðs-
þjónustu og boðið upp á kaffi og kleinur.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Vegna sumarleyfa
er ekki messað á sunnudögum í júlí. Bent
er á messur í nágrannakirkjum. Nánar á
www.breidholtskirkja.is.
BRÆÐRATUNGUKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Egill Hallgrímsson, organisti Vil-
mundur Jónsson.
BÚSTAÐAKIRKJA | Morgunmessa kl. 11.
Kór Bústaðakirkju syngur, organisti og kór-
stjóri er Renata Ivan. Eftir messu er kaffi í
safnaðarheimilinu. Prestur sr. Pálmi Matt-
híasson. Guðspjallið fjallar um frásöguna
þegar Jesús mettar 4000 manns.
DIGRANESKIRKJA | Hjallakirkja/Digra-
neskirkja/Kópavogskirkja/Lindakirkja
hafa sameiginlegt helgihald í sumar í
söfnuðum Kópavogs. Messa kl. 11 í
Hjallakirkju, prestur sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson. Helgistund kl. 14 í Kópa-
vogskirkju, prestur sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson. Nánar á www.digranes-
kirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Anna
Sigríður Pálsdóttir predikar, Dómkórinn
syngur, organisti er Marteinn Friðriksson.
Fermd verður Edda Sigrún Fransdóttir
Goulay, Ljósvallagötu 20, Reykjavík. Einn-
ig verður barn borið til skírnar.
FRÍKIRKJAN Keafas | Almenn samkoma
kl. 20. Gestur og ræðumaður er Mario
Greenwood. Lofgjörð og fyrirbænir. Kaffi
og samvera á eftir og verslun kirkjunnar er
opin.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 20. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir
altari ásamt Nönnu Guðrúnu Zoëga
djákna. Félagar úr kór Vídalínskirkju
syngja undir stjórn Jóhanns Baldvins-
sonar organista. Boðið upp á akstur frá
Vídalínskirkju kl. 19.30, frá Jónshúsi kl.
19.35 og Hleinum kl. 19.40. Sjá www
gardasokn.is
GLERÁRKIRKJA | Kvöldmessa á Ráðhús-
torginu kl. 20.30. Sr. Arnaldur Bárðarson
þjónar, kór Glerárkirkju syngur undir stjórn
Hjartar Steinbergssonar organista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Útimessa og grill
að Nónholti kl. 11, í skógarreit rétt neðan
við Sjúkrahúsið Vog, hægt er að aka að
staðnum. Prestar sr. Vigfús Þór Árnason
og sr. Guðrún Karlsdóttir. Björn Erlingsson
hafeðlisfræðingur og safnaðarfulltrúi flyt-
ur hugvekju. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Tónlist er í umsjá Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur, Sighvatur Jónasson leikur á harm-
ónikku. Boðið verður upp á grillaðar pylsur
og gos. Börnin eru boðin velkomin.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10,
bænastund 10.15. Messa kl. 11. Altaris-
ganga og samskot til ABC-barnahjálpar.
Messuhópur þjónar, kirkjukór Grensás-
kirkju leiðir söng, organisti Árni Arinbjarn-
arson. Prestur sr. Petrína Mjöll Jóhannes-
dóttir. Molasopi eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarh. | Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Hreinn S. Hákonar-
son, organisti Kjartan Ólafsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Morgunsöng-
ur kl. 10.30. Prestur sr. Kjartan Jónsson
héraðsprestur.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Birgir Ásgeirsson predikar og þjónar fyrir
altari ásamt messuþjónum. Hópur úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngur, organisti
Arngerður M. Árnadóttir. Alþjóðlegt orgels-
umar: Tónleikar kl. 20, Bine Katrine Bryn-
dorf, organisti frá Danmörku leikur m.a.
verk eftir Bach o.fl.
HJALLAKIRKJA | Sameiginlegt helgihald í
sumar í söfnuðum Kópavogs. Guðsþjón-
usta kl. 11 í Hjallakirkju og kl. 14 í Kópa-
vogskirkju. Sr. Guðmundur Karl Brynjars-
son þjónar, organisti Jón Ólafur Sigurðs-
son. Nánar á heimasíðum kirknanna.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma í dag kl. 20. Umsjón Björn Tómas
Kjaran. Ath. engin samkoma fimmtudag.
Fatabúðin í Garðastræti 6 og nytjamark-
aður á Eyjarslóð 7 eru opin alla virka daga
kl. 13-18.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Ás | Guðsþjónusta
kl. 15. Prestur sr. Baldur Kristjánsson.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknar-
prestur á Ólafsfirði, organisti Jón Bjarna-
son. Tónleikar kl. 14. Laufey Sigurðar-
dóttir og Páll Eyjólfsson leika saman á
fiðlu og gítar verk eftir N. Paganini, F. Tár-
rega, A. Piazzolla, P. Houghton o.fl. Ókeyp-
is aðgangur.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa | Guðsþjón-
usta kl. 13.30. Ingimar Pálsson organisti
leiðir almennan safnaðarsöng, Kristinn
Ágúst Friðfinnsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Vörð-
ur Leví Traustason. Biblestudy in the cafe-
teria in english at 12.30 pm. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaður Vörður Leví
Traustason, Gospelkór Fíladelfíu leiðir lof-
gjörð.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
20 með lofgjörð og fyrirbænum. Guð-
mundur Karl Þorleifsson og Sigurlaug
Björnsdóttir tala.
KAÞÓLSKA kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru Reyðarf. |
Messa kl. 11.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30.
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30
og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl.
18. Mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga er messa á latínu kl. 8.10. Laug-
ardaga er barnamessa kl. 14 að trú-
fræðslu lokinni.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í mán-
uði kl. 16.
Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í
mánuði kl. 16.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa
kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laug-
ardaga er messa á
ensku kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðviku-
daga kl. 20.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Eiríksreið: Hjólað
verður á milli kirkna á utanverðum Suður-
nesjum til minningar um sr. Eirík Brynjólfs-
son. Sr. Eiríkur var mikill hjólagarpur og
hjólaði reglulega um Reykjanesskagann,
sóknarbörnum sínum til stuðnings og
þjónustu. Lagt verður af stað kl. 10 frá
Keflavíkurkirkju. Þaðan er haldið í Út-
skála, Hvalsnes og Kirkjuvogskirkju í
Höfnum. Uppl. á www.keflavikurkirkja.is
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 14. Prestur er Baldur Kristjánsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund kl. 14.
Prestur séra Guðmundur Karl Brynjars-
son, organisti Lenka Mátéová.
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta í Fossvogi
kl. 10.30 á stigapalli á 4. hæð. Sr. Vigfús
Bjarni Albertsson og Helgi Bragason
organisti.
LANGHOLTSKIRKJA | Vegna sumarleyfa
sóknarprests og starfsfólks er Langholts-
kirkja lokuð í júlímánuði. Sr. Pálmi Matt-
híasson, sóknarprestur Bústaðakirkju,
þjónar Langholtsprestakalli á meðan.
Bent er á messur í Bústaðakirkju kl. 11 á
sunnudögum í júlí. Messað verður á ný í
Langholtskirkju 3. ágúst kl. 11. Nánar á
www.langholtskirkja.is.
LAUGARNESKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20.
Sr. Bjarni Karlsson predikar og þjónar
ásamt Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálp-
ara. Organisti er Guðmundur E. Erlends-
son, almennur safnaðarsöngur verður við
messuna en forsöngvari er Jóhannes Ari
Jónsson. Fulltrúar lesarahóps flytja texta.
Messukaffi. Helgihald alla sunnudaga
fram til hausts er kl. 20, ýmist í umsjá
leikmanna eða presta.
LÁGAFELLSKIRKJA | Göngumessa kl. 11.
Byrjað með stuttri helgistund og að henni
lokinni er lagt af stað í létta gönguferð.
Gengið á milli Úlfarsfells og Lágafells.
Ritningatextar lesnir á völdum stöðum og
sögumaður segir frá. Endað í kirkjunni
með bæn og blessun. Kaffiveitingar í
skrúðhúsinu. Prestur sr. Ragnheiður Jóns-
dóttir, sögumaður Sigurður Hreiðar, org-
anisti Jónas Þórir.
LINDASÓKN í Kópavogi | Sameiginleg
messa Þjóðkirkjusafnaðanna í Kópavogi
kl. 11 í Hjallakirkju. Organisti Keith Reed,
prestur Guðmundur Karl Brynjarsson.
Helgistund kl. 14 í Kópavogskirkju. Organ-
isti Jón Ólafur Sigurðsson, prestur Guð-
mundur Karl Brynjarsson.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr Kór
Neskirkju leiða safnaðarsöng, organisti
Steingrímur Þórhallsson, sr. Örn Bárður
Jónsson predikar og þjónar fyrir altari.
Kaffi og spjall á Torginu eftir messu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17.
,,Að elska Guð“. Keith Reed fjallar um efn-
ið í tali og tónum. Lofgjörð.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Léttar
veitingar eftir messu. Morgunsöngur
þiðjud.-föstud. kl. 10. Kristinn Ágúst Frið-
finnsson.
SELJAKIRKJA | Goslokamessa Eyja-
manna kl. 20 í samstarfi við Átthagafélag
Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu
(ÁtVR). Sr. Kristján Björnsson, sr. Ólafur
Jóhann Borgþórsson og sr. Þorvaldur Víð-
isson þjóna. Þorvaldur Halldórsson ásamt
félögum úr sönghóp ÁtVR og kór Selja-
kirkju leiða sönginn.
SELTJARNARNESKIRKJA | Kyrrðarstund
kl. 11 í umsjón sr. Sigurðar Grétars Helga-
sonar. Ritningarlestrar, bæn og altaris-
ganga.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 17.
Prestur sr. Egill Hallgrímsson, organisti
Glúmur Gylfason. Flutt verður tónlist frá
sumartónleikum helgarinnar.
SÓLHEIMAKIRKJA | Á kirkjudegi Sól-
heimakirkju verður messa kl. 14. Sr. Eirík-
ur Jóhannsson prófastur Árnesprófasts-
dæmis þjónar fyrir altari. Ræðumaður er
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri
Morgunblaðsins, Garðar Cortes syngur
einsöng, organisti er Ester Ólafsdóttir.
Kirkjukaffi á Grænu könnunni eftir athöfn-
ina.
VALÞJÓFSSTAÐARKIRKJA | Hátíðar-
messa kl. 14. Vígslubiskup Hólastiftis, hr.
Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vísiterar
söfnuðinn og predikar. Sóknarpresturinn,
sr. Lára G. Oddsdóttir, þjónar fyrir altari
ásamt sr. Jóhönnu I. Sigmarsdóttur, pró-
fasti Múlaprófastsdæmis.
Gerð verður grein fyrir endurbótum á kirkj-
unni með bæn og þakkargjörð. Kaffi í Vé-
garði eftir messu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Helgi-
stund kl. 20. Einsöngur Sigríður Thorla-
cius, organisti Arngerður María Árnadóttir.
ÞINGEYRAKIRKJA Húnavatnsprófasts-
dæmi | Messa kl. 14. Sr. Sigurður Grétar
Sigurðsson predikar og þjónar fyrir altari.
Kirkjan er opin alla daga milli kl. 10 og 17
til 31. ágúst.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Bene-
dikt Kristjánsson syngur einsöng, Kristján
Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir
altari, organisti Guðmundur Vilhjálmsson.
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonHofsóskirkja.
Orð dagsins:
Jesús mettar
4 þúsundir manna.
(Mark. 8.)
Laugu oft hvað mér þykir vænt um
ykkur og vildi óska þess að ég hefði
búið ykkur nær, komið oftar í seinni
tíð til ykkar og hugsað um ykkur.
Elsku Alli minn, ég vil þakka þér
fyrir allt og allan þinn vinskap og
væntumþykju. Við munum einhvern
tímann taka einn ólsen, ef ekki tvo.
Ég trúi á það að svona góðir vinir eins
og við eigi eftir að hittast aftur í næsta
lífi.
Hvíl í friði besti vinur minn.
Elsku Lauga, Björk mín og Steini,
Kristinn, Elvar og fjölskyldur.
Guð veri með ykkur öllum á þess-
um erfiðu tímamótum.
Ragna Rós, Elín Aðalsteina
og Bjarki Þórður.
Aðalsteinn Jónsson – þar var ein-
stakur maður á ferð. Húmorinn ávallt
á oddinum og hann laus við alla til-
gerð.
Ég var lánsöm að fá að kynnast
honum í eina tíð, fyrir mér voru það
forréttindi. Þrátt fyrir breitt kyn-
slóðabil varð okkur virkilega vel til
vina. Viska hans og hlýja snertu mig
djúpt. Það var ávallt blíða á Eskifirði,
hvernig sem viðraði – það fullvissaði
Alli mig alltaf um þegar ég hringdi
austur.
Ég gleymi því ekki þegar hann
rúntaði um fjörðinn sinn ber að ofan
eins og ungu strákarnir – því hitinn
var svo mikill. Við tókum ófáa rúnt-
ana saman – Alli keyrði. Honum lá
aldrei á og gaf sér góðan tíma í að
segja mér sögur frá því að hann var
polli og hvernig hann þurfti að hafa
fyrir lífinu. Ég naut þess að hlusta.
Dugnaðurinn, krafturinn, þrautseigj-
an og útsjónarsemin skein í gegnum
allar sögurnar. Hann gerði heiðarlega
tilraun til að kenna mér brids og
skammaði mig þegar ég lét vitlaust
spil út en svo hlógum við bara að öllu
saman. Hann var klókur spilamaður.
Sú stund þegar við vorum ein á
Bakkastíg og þurftum að elda ofan í
okkur og Elfu heitna er ógleymanleg.
Það verður seint sagt að við höfum
verið sterk á svelli eldamennskunnar.
Allt gekk þetta nú samt. Saltkjötið,
kartöflunar og grænmetið, allt í sama
pottinn. Dúknum lyft upp til helminga
– ekki tekinn af og brotinn saman eins
og Lauga gerði – lagt á borð og kræs-
ingarnar borðaðar með bestu lyst og
útvarpsfréttir í botni að vanda. Við
áttum líka skemmtilegar stundir þeg-
ar Alli nennti að gera sér ferð til höf-
uðborgarinnar. Þá bauð hann alltaf út
að borða og sagði áhugaverðar sögur
af sér í Reykjavík þegar hann var upp
á sitt besta.
Ég heimsótti þau Laugu á Bakk-
astíg fyrir sex árum, þá sá ég hann
síðast. Það var alltaf jafn gott að koma
til þeirra sómahjóna og vil ég þakka
þeim kærleikann og góðar stundir.
Ég sendi Laugu og allri fjölskyld-
unni mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Margrét Stefánsdóttir.