Morgunblaðið - 05.07.2008, Page 38

Morgunblaðið - 05.07.2008, Page 38
38 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er laugardagur 5. júlí, 187. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í sam- anburði við þá dýrð, sem oss mun op- inberast. (Rm. 8, 18.) Víkverji fór í golf á dögunum áKorpúlfsstaðavelli en langt er síðan Víkverji lamdi kúluna á þeim ágæta velli. Reyndar fannst Vík- verja að „Korpan“ væri lúin og þreytt. Ytri aðstæðum um að kenna? Þurrkur og mikil umferð. Það er ef- laust erfitt verkefni að halda golf- völlum GR í hæsta gæðaflokki. Slík er aðsóknin. x x x Golfsiðir eru misjafnir hjá kylf-ingum. Sumir telja að vellirnir séu þeirra einkavellir og eru því ekk- ert að flýta leik þrátt fyrir að aðrir séu að bíða. Aðrir kylfingar telja að þeir geti skotið sér á milli ráshópa þegar þeim hentar. Það gerðist í síð- ustu heimsókn Víkverja á „Korp- unni“. Víkverji er rólyndismaður en það þykknaði upp og fór að helli- rigna eftir því sem reiðin varð meiri vegna óboðnu gestanna sem töldu sig „eiga völlinn“. Gestirnir fundu greinilga fyrir „pressunni“ og yf- irgáfu svæðið eftir skamma stund. Frábær innkoma. x x x Margir kylfingar verða ávallt aðeiga nýjustu græjurnar og á „Korpunni“ sá Víkverji nokkra kylf- inga munda fjarlægðarsjónauka sem eru til þess ætlaðir að gefa upp ná- kvæma fjarlægð frá boltanum og að holu. Slík tækni nýtist best þeim sem vita upp á hár hve langt þeir slá í 99% tilvika. x x x Víkverja fannst skondið að sjákylfing sem reif upp sjónauk- ann í 200 metra fjarlægð frá holu. Fjarlægðin var mæld nákvæmlega. Næsta högg rúllaði hinsvegar aðeins 20 metra. Aftur var sjónaukinn not- aður. Sama ferli og höggið fór 5 metra til hægri og svona gekk þetta áfram. Og þegar að flötinni var kom- ið var græjan enn á lofti þrátt fyrir að boltinn væri aðeins í 15 metra fjarlægð eða svo frá flöt. Að mati Víkverja flýta svona græjur ekki leik nema hjá þeim allra bestu. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Reykjavík Katrín Steina fæddist 16. febrúar kl. 13.23. Hún vó 3.475 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Olga Steingrímsdóttir og Friðgeir Sveinsson. Reykjavík Guðlaug Helga fæddist 30. apríl kl. 22.52. Hún vó 3.095 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Björn Gunnlaugsson og Rósa Ásgeirsdóttir. Nýirborgarar Krossgáta Lárétt | 1 lygar, 4 ánægð, 7 auðugur, 8 Æs- ir, 9 nytjaland, 11 húsa- garður, 13 drepa,14 út- rýmdi, 15 verkfæri, 17 glaða, 20 liðamót, 22 kryddtegund, 23 ófúst, 24 reiður, 25 rugla. Lóðrétt | 1 uppgerð- arveiki, 2 þýtur, 3 landa- bréf, 4 aldinn, 5 mæta, 6 starfsvilji,10 rotin, 12 held, 13 tjara, 15 teygði úr, 16 krók, 18 rétt- arrannsókn á vettvangi, 19 koma í veg fyrir, 20 heitur, 21 borðar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kindarleg, 8 æddum, 9 fáséð, 10 als, 11 tólin, 13 Agnar, 15 safns,18 eðlan, 21 tel, 22 glíma, 23 dætur, 24 skapnaður. Lóðrétt: 2 indæl, 3 daman, 4 refsa, 5 eisan, 6 hætt, 7 ið- ur, 12 inn, 14 góð,15 segl, 16 frísk, 17 staup, 18 eldra, 19 líttu, 20 næra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Bc4 c5 8. Re2 Rc6 9. Be3 O–O 10. O–O Bd7 11. Hb1 Dc7 12. Bf4 e5 13. Bg3 Had8 14. Bd5 Kh8 15. dxe5 Bxe5 Staðan kom upp á argentíska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Mendoza. Stórmeistarinn Fernando Peralta (2546) hafði hvítt gegn al- þjóðlega meistaranum Lucas Liasco- vich (2419). 16. Hxb7! Dxb7 17. Bxe5+ f6 18. Bd6 Hfe8 19. Bxc5 hvítur hefur nú fengið tvö peð upp í skiptamuninn ásamt því að hafa biskupaparið. Fram- haldið varð: 19…Db5 20. Be3 Bg4 21. c4 Hxd5? 22. exd5 Dxc4 23. dxc6 Dxe2 24. Dd4 He5 25. h3 Be6 26. Bf4 Hf5 27. Dd8+ Kg7 28. De7+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Ólánið var hans eina lán. Norður ♠K ♥G987 ♦ÁKDG5 ♣Á107 Vestur Austur ♠G10762 ♠Á98543 ♥-- ♥D653 ♦87632 ♦10 ♣632 ♣54 Suður ♠D ♥ÁK1042 ♦94 ♣KDG98 Suður spilar 6♣. „If it wereńt the bad luck, I wouldńt have no luck at all,“ söng Rjómarokk- arinn Jack Bruce á sínum tíma og und- ir þann söng tók Paul Hackett, for- sprakki enska liðsins á EM, þegar hann gekk út úr spilasalnum með tap- aða slemmu á bakinu. Af tæknilegri snilld náðu þeir félagar, Hackett og Waterlow, að melda 6♣ frekar en 6♥. Laufslemman er glæsileg, því það má henda þremur hjörtum niður í tígul og þá er skiptir ♥D engu máli. Hjarta- slemman er 55% og Hackett reiknaðist svo til að 6♣ væru um það bil 85%. En það er tölfræðilegt langtímaverkefni að ná fram réttlæti við spilaborðið. Vestur kom út með ♠G og eftir athygl- isverðan fyrsta slag, skipti austur yfir í hjarta og vestur trompaði! Einn niður, en mótherjar Hacketts unnu 6♥ létti- lega á hinu borðinu. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Hvað sem þú ert að reyna að fram- kvæma skiptir samkvæmnin mestu máli. Framfarirnar og snilldarhugmyndirnar koma þegar þú vinnur stöðugt í málinu. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú hittir fólk sem virðist hugsa á sömu nótum og þú. Ekki rasa um ráð fram og álykta neitt. Líklegra er að gild- ismat ykkar og forgangsröðun séu ólík. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ólíkt flestu í lífinu á ekki að hafa þarfir annarra í huga þegar kemur að tómstundum. Þá eiga hlutirnir bara að snúast um þig. Láttu allt eftir þér. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú þarfnast tíma og rúms bara fyrir sjálfan þig. Því er betra ef þú getur haft hemil á stefnumótunum. Gefðu sjálf- um þér tíma til að láta hugann reika. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Hugsanir hafa áhrif á allt í lífi okkar. Reyndu að hafa þær sem allra jákvæð- astar. Þær geta fært birtu inn í atburði sem þú ert leiður yfir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ráðstafanir sem þú gerir til að bæta öryggi þitt í framtíðinni láta þér líða vel. Þú færð hjálp við verkið frá ein- staklingi sem er ekki sama um þig. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú ert klár, sterkur og með hlutina á hreinu. Það er því ekkert sem segir að þú getir ekki lagað það sem þarfnast við- gerðar. Þú vilt heldur ekki vera upp á aðra kominn. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert í keppnisskapi og leik- urinn sem er í gangi núna snýst um hver geti verið tillitsamastur, örlátastur og samúðarfyllstur. Þú verður konungur kærleikans. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það sem vaggar hefur misst jafnvægið og það á jafnt við um þig og heimilistæki. Til að halda jafnvæginu skaltu virða slökunartímann þinn. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert kraftmikill og kemst yfir allar hindranir sem á vegi þínum verða. Lagfæringarnar sem þú gerir bera hæfi- leikum þínum gott vitni. Það er gott að muna hvar þeir liggja. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þig langar ekki að stjórna nein- um en hefur þörf fyrir að gera nokkrar breytingar. Í stað þess að reyna að breyta maka þínum skaltu byrja á sjálfum þér. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú færð eitthvað út úr því að hjálpa þeim sem oft hjálpa þér og færð það margfalt borgað til baka – og á stundinni! Stjörnuspá Holiday Mathis 5. júlí 1851 Þjóðfundurinn var settur í Lærða skólanum í Reykjavík til að ræða frumvarp dönsku stjórnarinnar um réttarstöðu Íslands. Fundurinn stóð í rúm- an mánuð. 5. júlí 1930 Sólheimar í Grímsnesi, fyrsta heimili hér á landi fyrir þroskahefta, tók til starfa. Sesselja H. Sigmundsdóttir, 28 ára, stofnsetti heimilið ásamt Þjóðkirkjunni og var for- stöðumaður þess til æviloka, 1974. 5. júlí 1933 Hópflug Ítala. Sveit 24 flug- véla hafði viðdvöl í Reykjavík á leið frá Róm til Chicago. Balbo flugmálaráðherra var foringi sveitarinnar. Í rit- stjórnargrein Morgunblaðsins var sagt að Íslendingar væru „sjónarvottar að hinum ítalska stórhug, djörfung og frama“. Nákvæmlega hálfri öld síðar kom ítölsk flugsveit til að minnast hópflugsins. 5. júlí 1983 George Bush, þáverandi vara- forseti Bandaríkjanna, kom í opinbera heimsókn til Íslands. Hann var forseti frá 1989 til 1993. 5. júlí 1987 Bjarni Arason, 15 ára kjöt- afgreiðslumaður, sigraði í Látúnsbarkakeppni Stuð- manna sem haldin var í Tív- olíinu í Hveragerði. Und- ankeppnir höfðu verið á átta stöðum á landinu. 5. júlí 1998 Minnisvarði um bræðurna Brynjólf Pétursson Fjöln- ismann, Jón Pétursson háyfir- dómara og Pétur Pétursson biskup var afhjúpaður á Víði- völlum í Skagafirði þar sem þeir ólust upp. Heimild: Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist þá… „Það er auðvitað enginn heima fyrstu helgina í júlí frekar en fyrri daginn,“ segir Júlía Jörg- ensen sem er þrítug í dag og ekki með áform um stórveislu. „Deginum verður eytt heima með fjölskyldunni og ég fæ mér franska súkku- laðitertu í tilefni dagsins.“ Júlía, sem er kennari í Myllubakkaskóla í Keflavík, segir innanlandsferðalög ekki á dag- skránni á næstunni því erfingi sé væntanlegur mjög bráðlega. „Ég bíð eftir fæðingu annars barnsins míns, hún á að bresta á núna á næstu dögum og það er fátt annað sem kemst að. Ég geri því ósköp lítið þessa dagana annað en að liggja með tærnar upp í loft eða í sundlauginni í sólbaði,“ segir Júlía og hlær. „Ég ætla að láta sumarfríið bíða þar til í desember en þá fer ég í jóla- ferð til útlanda með stórfjölskyldunni.“ Það er ótrúlega skemmtileg tilviljun að veðurspáin fyrir afmæl- isdaginn er mjög góð. „Það er spáð rosalega góðu veðri á afmæl- isdaginn [í dag] og ég fæddist einmitt á hitabylgjudegi í Lúx- emborg fyrir 30 árum. Það var heitasti dagur sumarsins 1978 og því kannski vel við hæfi að það sé almennilegt veður á þessum degi á þrítugsafmælinu.“ Þess er að sjálfsögðu óskandi að veðurspáin rætist og Júlía fái að njóta dagsins í blíðunni. liljath@mbl.is Júlía Jörgensen er þrítug í dag Fæddist á hitabylgjudegi ;)Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.