Morgunblaðið - 05.07.2008, Page 40
Hann sagði ekki neitt.
Það var eiginlega eins
og það væri ekki neitt bak
við augun. … 44
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
ÞÓ KREPPAN sverfi að þurfa unn-
endur tölvuleikja ekki að örvænta.
Gamestöðin er ný verslun sem kaupir
gömlu leikina og selur jafnt nýja sem
notaða leiki á hagstæðu verði.
Guðjón Elmar Guðjónsson er
framkvæmdastjóri hinnar nýju versl-
unar: „Þetta viðskiptamódel er vel
þekkt bæði í Evrópu og Bandaríkj-
unum,“ segir Guðjón en Gamestöðin
tekur við notuðum tölvuleikjum í
skiptum fyrir inneignarnótu eða
greiðslu í beinhörðum peningum.
„Verðið á leikjunum fer eftir ákveð-
inni formúlu og ræðst kaupverðið af
því hversu mikil eftirspurn er eftir
leiknum og hversu
mörg eintök við
eigum fyrir,“ segir
Guðjón. Tveir við-
skiptavinir geta
því fengið mis-
jafnt skiptiverð
fyrir sama leikinn.
„Í raun gildir að
sá sem kemur
fyrst, hann fær
mest,“ útskýrir
Guðjón.
Algengt verð fyrir nýlega notaða
leiki, t.d. fyrir PS3-vélina, er í kring-
um 1.500 kr. „Inneignarnóta er gefin
út á staðnum, en ef fólk vill fá greitt
reiðufé fyrir leikina leggjum við inn
hjá þeim eftir 3-5 daga og er þá upp-
hæðin helmingi lægri en ef um inn-
eignarnótu væri að ræða.“
Öll flóran af leikjatölvum
Verslunin selur leiki og tekur við
öllum leikjum fyrir PlayStation 2 og
3, PSP, Nintendo Wii og DS, og Xbox
360. Einnig er hægt að koma not-
uðum leikjatölvum í verð ef þær
standast skoðun en Guðjón segir
verslunina ekki taka við PC-leikjum,
m.a. af tæknilegum ástæðum er
varða afritunarlæsingu og fjölspil-
unarkóðun. Þó má finna ágætis úrval
af nýjum PC-leikjum í búðinni.
Gagn af gömlu leikjunum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Úrval Guðjón Elmar áætlar að um 10.000 leikir séu til hjá Gamestöðinni.
Gamestöðin kaupir notaða leiki og selur nýja á fínu verði
Guðjón Elmar
Guðjónsson
Gamestöðin er til húsa í Skeifunni
17 og er opin frá 12 til 22 alla daga.
Óperupopp-
arinn Garðar
Thór Cortes tek-
ur þátt í einni
stærstu klassísku
tónlistarhátíð
austurstrand-
arinnar í lok mánaðarins. The New-
port Music Festival kallast hátíðin
og af heimasíðu hennar að dæma er
manni líkast til ekki hleypt inn á
stuttbuxum og hlýra. Í grein vef-
miðils The Providence Journal seg-
ir að framkvæmdastjóri hátíð-
arinnar Mark Malkovich hafi verið í
kvöldverðarboði hjá Íslendingnum
Kaju Zaklynski þegar hann heyrði
fyrst í Garðari Thór og honum hafi
samstundis verið ljóst að Garðar
yrði að syngja á hátíðinni í ár. Í
greininni er Garðar sagður svar Ís-
lands við Andrea Bocelli,hinum
ítalska stórsöngvara, og haft er eft-
ir Malkovich að Garðar eigi eftir að
njóta gríðarlegra vinsælda í fram-
tíðinni. „Og þá getum við sagt: Ég
sá hann syngja í Newport!“
Malkovich trúir á
Garðar Thór Cortes
Útnefning Bjarkar og Sigur
Rósar sem vina Sameinuðu þjóð-
anna hefur orðið tilefni til vanga-
veltna. Í fyrsta lagi spyrja menn
sig hvað nafnbótin feli í sér; orða-
lagið á heimasíðu samtakanna er í
óræðari kantinum eins og oft á við
um texta stofnunarinnar og í öðru
lagi velta menn því fyrir sér hvort
með útnefningu Bjarkar sé Kína,
sem situr í öryggisráði SÞ, að
rétta út sáttarhönd til Bjarkar. Yf-
irvöld þar í landi reiddust enda
mjög yfir gegndarlausu málfrelsi
Bjarkar á tónleikum hennar í
Sjanghæ í mars. Eða er sá mögu-
leiki fyrir hendi að yfirvöld þar í
landi viti kannski ekki af þessum
nýjasta vini SÞ?
Bestu vinir SÞ
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
INNIPÚKINN er góður kost-
ur á krepputímum enda kosta
aðgangur að báðum tónleika-
dögum ekki nema 3.900 kr. í
forsölu. „Það er líka alltaf
hlýtt á innipúkanum, þú getur
farið heim til þín að sofa og
verið í fallegum fötum en ekki
kraftgalla,“ bætir Diljá
Ámundadóttir við, en hún er
einn skipuleggjenda Innipúk-
ans: verslunarmannahelg-
arhátíðar þeirra sem tíma ekki, nenna ekki eða
geta ekki farið út á land til að fagna frídegi
verslunarmanna.
Miðbæjarrottu-stemning á NASA
Miðasala hefst á þriðjudag, 8. júlí, á Midi.is en
hátíðin fer fram á skemmtistaðnum Nasa að
þessu sinni. Að vanda skartar Innipúkinn ein-
valaliði íslenskra tónlsitarmanna. „Ég býst við
að Geir Ólafs muni stela senunni á sinn einstaka
hátt,“ segir Diljá og kímir. „FM Belfast kemur
líka öllum í gott stuð, sama hvað. Megas spilar
fyrir okkur og eins Benni Hemm Hemm með
glæsilega hljómsveit á bak við sig,“ bætir hún við
og eru þá margir listamenn enn ótaldir.
„Allt eru þetta hljómsveitir sem eru að gera
mjög góða hluti og hafa alla burði til að búa til
glæsilega innihátíð. Úrvalið passar við þessa
bylgjulengd í tónlistinni: þetta er grasrótin sem
kenna má við 101. Að vanda kappkostum við að
skapa huggulega stemmningu.“
Gott partí sem þörf er fyrir
Innipúkinn er nú haldinn í 6. sinn og segir
Diljá vinsældir hátíðarinnar fara vaxandi ár frá
ári. „Það var algjörlega þörf fyrir þessa hátíð –
að hafa einhvern viðburð fyrir þá sem kjósa að
vera í borginni. Við ætlum að gera gott partí.“
Eins og flestir þekkja var það tónlistarspekúl-
antinn með peningavitið, Dr. Gunni, sem var for-
sprakki þess hóps sem skipulagði fyrsta Innipúk-
ann árið 2002. Þá var hátíðin haldin í Iðnó og
aðeins eitt kvöld. Hátíðin stækkaði svo og spann-
aði í fyrsta skipti tvo daga árið 2005.
Dagskráin hefst að þessu sinni kl. 19 bæði
kvöldin og er aldurstakmark 20 ár.
Það viðrar alltaf vel inni
Forsala miða á Innipúkann hefst á þriðjudag Áhugaverð tónlistarblanda
Diljá
Ámundadóttir
Ampop Innipúkinn hefur á undanförnum árum flakkað um helstu tónleikastaði miðborgarinnar. Í ár
fer hátíðin fram á NASA líkt og hún gerði í hittifyrra, þegar Ampop tróð upp við mikla gleði.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Benni Hemm Hemm
Boys in a Band
Dísa
Dr. Spock
FM Belfast
Geir Ólafsson
Grjóthrun
í Holshreppi
Hjaltalín
Hjálmar
Megas og
Senuþjófarnir
Morðingjarnir
Múgsefjun
Soundspell
Þessir hafa stað-
fest komu sína:
Geir Ólafs Krúner Íslands verður á svæðinu.