Morgunblaðið - 05.07.2008, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 41
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Montreal
11. eða 25. júlí
frá kr. 17.000
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal
11. og 25. júlí í viku. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í
þessari stórkostlega spennandi borg sem er önnur stærsta borg
Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og
iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært
að skoða sig um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar
byggingar, skemmtigarðar, spennandi söfn, endalaust úrval
verslana og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu
tækifærið og smelltu þér til Montreal og njóttu þess besta sem
þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Mjög takmarkað framboð flugsæta og gistingar í boði á þessu
verði.
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum, sértilboð 11. og 25. júlí.
Verð kr. 39.990
flug og gisting í viku
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára á Hotel Les Suites Labelle
*** með morgunverði í viku, sértilboð 11.
og 25. júlí.
Örfá sæti í boði!
Verð kr. 17.000 aðra leið
Verð kr. 24.990báðar leiðir
www.listvinafelag.is
Alþjóðlegt orgelsumar
í Hallgrímskirkju
5. júlí kl. 12:00
Bine Katrine Bryndorf
6. júlí kl. 20:00
Bine Katrine Bryndorf leikur verk
eftir J.S.Bach, Messiaen og Carl Nielsen
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Lau 23/8 kl. 15:00
Lau 23/8 kl. 20:00
Sun 24/8 kl. 16:00
Fös 29/8 kl. 20:00
Lau 30/8 kl. 15:00
Lau 30/8 kl. 20:00
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið)
Fös 11/7 kl. 20:00
Lau 12/7 kl. 20:00
Sun 13/7 kl. 16:00
Fim 17/7 kl. 20:00
Fös 18/7 kl. 20:00
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Act alone á Ísafirði (Hamrar/Edinborgarhúsið)
Lau 5/7 kl. 13:00 Sun 6/7 kl. 14:00
Gísli Súrsson (Haukadalur Dýrafirði/ferðasýning)
Mið 9/7 kl. 16:00 U Fös 25/7 kl. 14:00 Lau 26/7 kl. 20:00 U
Pétur & Einar (EinarshúsBolungarvík)
Lau 5/7 kl. 17:00
Fim 10/7 kl. 20:00
Fim 17/7 kl. 20:00
Fim 24/7 kl. 20:00
Fim 31/7 kl. 20:00
Í gegnum árin hefur hljómsveitin
Hraun sýnt það og sannað að gott
stuð og frábær spilamennska fylgir
henni hvarvetna. Metnaður sveit-
arinnar blasir ekki beint við og birt-
ist ekki í fullyrðingum og draumum
um frægð og frama eða í að upphefja
eigið ágæti
heldur í alúð og
umhyggju fyrir
tónlistinni sem
sveitin hefur
valið til flutn-
ings og því að
taka hlutunum
með ró. Hægt komast sumir en kom-
ast þó og það á svo sannarlega við
Hraun sem lullar áfram, breytir
landslaginu og safnar svo fallegum
mosa og verður órjúfanlegur þáttur
tilverunnar.
Það er eitthvað við Hraun sem
gerir sveitina afar alþýðlega en um
leið krúttlega gamaldags. Liðsmenn
Hrauns leitast ekki eftir því að vera
„hipp og kúl“ en kjósa þess í stað að
gera það sem þeim finnst skemmti-
legt og frumlegt. Það sem annars
einkennir Silent Treatment er frá-
bær spilamennska Hrauns, virkilega
góður söngur Svavars Knúts, líf-
legar raddanir ásamt fínum lögum í
bland við betri. Já, fín lög og önnur
betri, þar liggur hundurinn grafinn
því mér finnst stemningin og flutn-
ingur Hrauns meira töfrandi en lög-
in sjálf í flestum tilfellum – en eitt
ber þó að taka fram að lagasmíð-
arnar eru yfir meðallagi þó svo að
þær nái ekki að heilla mig jafnmikið
og öruggur flutningur Hrauns. Þjóð-
lagarokk að hætti enskra sveita á
borð við Jethro Tull og Fairport
Convention ásamt þunglyndum ný-
bylgjudrunga er sá stíll sem Hraun
bræðir saman við góða texta sem
eru ýmist sungnir á íslensku eða
ensku. Ástin, Bakkus, von og von-
leysi ásamt hæfilegri bjartsýni er sá
sannleikur sem sveitin leyfir hlust-
endum að njóta óspart. Það skal öll-
um vera ljóst að markmiðið er að
gleðja og lyfta fólki upp þó að óend-
urgoldin ást sé líklega til umfjöll-
unar. Þau lög sem mér finnst bera af
eru þau sem flokkast undir það að
vera hress og jafnvel villt því þar
nær Hraun að sýna allar sínar bestu
hliðar. Þetta á sérstaklega við
„Happy Song“ sem sækir nett áhrif
til Jethro Tull og Þursaflokksins,
drykkjuslagarann „So let Us Drink“
og að lokum „Thunderball“, sem er
með trylltari lögum plötunnar og
minnir mig á ekki ómerkari hljóm-
sveitir en Red Hot Chili Peppers og
graðhestarokkarana í System of a
Down – virkilega magnað lag þar
sem sveitin fer hamförum undir lok-
in.
Þegar á heildina er litið er auðvelt
að gleyma stund og stað þegar hlust-
að er á Hraun, sveitin er bara það
góð og skemmtileg. Það sem mér
finnst hins vegar vanta á Silent
Treatment eru fleiri afgerandi tón-
smíðar – það sem boðið er upp á er
gott en mætti vera aðeins betra og
feitara því að umgjörðin er svo sann-
arlega til staðar.
Heitt
Hraun
TÓNLIST
Geisladiskur
Hraun – Silent Treatment bbbmn
Jóhann Ágúst Jóhannsson
WILL SMITH er konungur sum-
armyndanna, árið í ár lítur ekki út
fyrir að heyra til undantekninga.
Hancock er óneitanlega vitlaus og
bagalega brokkgeng en sem auð-
gleymd augnabliks sumarafþreying
sleppa áhorfendur skaðlaust frá
henni. Vitaskuld vona aðdáendur
Smiths að ótvíræðir hæfileikar hans
fái að blómstra í bitastæðu hlutverki
en það gerist greinilega ekki í sumar.
Hancock er skopmynd um tilvist-
arkreppu ofurhetjanna sem tröllríða
bíóunum árið út og inn. Hancock
(Smith) er mislukkuð útgáfa af
Kóngulóar-, Leðurblöku- og X-
mönnum hasarblaðanna og -mynd-
anna en hann á bágt og er í upphafi
myndarinnar í strætinu í Los Angel-
es. Við komum að honum hálf-
dauðum í rennusteininum en eftir
vænan afréttara er hann tekinn til
við að lúskra á illþýði borgarinnar.
Það er þarft verk en hetjustörfin
hafa slæmar aukaverkanir því Han-
cock er orðinn geðillur og stórkarla-
legur, hann lætur sér ekki nægja að
stilla til friðar heldur skemmir og
fordjarfar allt í kringum sig og liggur
undir ámælum fjölmiðla og borg-
arbúa.
Það getur ekki endað á annan veg
hjá Hancock en öðrum slags-
málahundum og eyðilegging-
arormum, hann er settur inn. En þá
kemur auglýsingamaðurinn Ray
(Bateman) til sögunnar og vill bæta
ímynd hans. Enn frekar kona hans
Mary (Theron) sem lúrir á yfirnátt-
úrlegum hæfileikum.
Myndin fer vel af stað, það er
sprengikraftur í brellunum og
ímyndin af ofurhetjunni skemmti-
lega skrumskæld í draslaralegu
rónaútliti Hancocks. Síðan hallar
leiðin niður á við, Hancock rakar sig,
bætir ráð sitt og upp úr hléi er ósköp
lítið að gerast áhugavert.
Það er ekki heil brú í handritinu,
hinn aðþrengdi Hancock og stallkona
hans, Mary, eru óljósar og illa út-
skýrðar persónur jafnvel af ofur-
hetjum að vera. Í samanburði við
framangreinda kollega sína eru þau
þokukenndir umrenningar, sendi-
boðar almættisins hingað komnir til
að sussa á mannkynið en flest hefur
farið úrskeiðis. Bakgrunnurinn er
kauðskur og tilvist þeirra bragðlítill
bixímatur gamalla ásta og borg-
arhryðjuverka.
Hafið ekki of miklar væntingar, þá
má hafa stundargaman af Hancock
og Smith er furðu brattur í ankanna-
legu hlutverkinu. Sá sem stelur
myndinni er þó enginn annar en
Bateman, hann tekur hlutverk sitt
skemmtilega alvarlega og heldur
andlitinu á hverju sem gengur. Ther-
on er fín leikkona en er fyrirmunað
að gera eitthvað fyrir hana Mary.
Sem fyrr segir eru brellurnar magn-
aðar og útlitið óaðfinnanlegt en sama
verður ekki sagt um innihaldið, sem
fjarar að lokum út í tómið.
Er þetta fugl? Er þetta flugvél?
Nei, þetta er fyllibytta
Hancock Hafið ekki of miklar væntingar, þá má hafa stundargaman að Hancock. Smith er furðu brattur í ankanna-
legu hlutverkinu en myndin fjarar þó út undir lokin og það er ekki heil brú í handritinu.
KVIKMYND
Háskólabíó, Sambíóin,
Smárabíó, Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Peter Berg . Aðalleikarar: Will
Smith, Charlize Theron, Jason Bateman.
95 mín. Bandaríkin 2008.
Hancock
bbbnn
Sæbjörn Valdimarsson