Morgunblaðið - 05.07.2008, Síða 44

Morgunblaðið - 05.07.2008, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson hsb@mbl.is „ÉG væri löngu hættur í þessu nema af því ég hef bullandi áhuga á tónlist. Allri tónlist. Bara alveg frá því ég man eftir. Það er áhug- inn sem drífur mann áfram,“ svar- ar Haukur Tryggvason, vert á Græna hattinum, því hver er drif- krafturinn á bak við þennan helsta tónleikastað Akureyrar. Haukur rak áður skemmtistaðinn Við Poll- inn í nokkur ár, þar sem hann var aðallega í „ballstandi“ eins og hann orðar það. „Sá markaður er eins og hann er, þannig að maður vildi breyta áherslunum.“ Kippur í kjölfar Þursanna Haukur hefur rekið staðinn í 5 ár, þar af eingöngu sem tónleika- stað í þrjú ár. Það tók sinn tíma að festa sig í sessi: „Fyrstu tvö árin voru mjög erfið,“ segir Haukur. „Ég var að fara að gefast upp á rekstrinum, þar sem þetta er frek- ar erfiður bransi. En vendipunkt- urinn var þegar Lisa Ekdahl bók- aði sig hér. Frá því hún kom hér í hús snerist þetta við. Aðsóknin fór að aukast og ég sá fram á mögu- leika að halda áfram.“ Síðan þá hafa verið margar stór- ar stundir á Græna hattinum. Fyrsta eftirminnilega uppákoman var þegar Hljómar komu aftur; „Þá var staðurinn gjörsamlega troðinn.“ Einnig hafa Mugison, Mezzoforte, Hvanndalsbræður, Stórsveit Sam- úels J. Samúelssonar, Jagúar og Þursaflokkurinn haldið þar stóra tónleika. Þursarnir héldu tónleika á Græna hattinum um páskana og í kjölfarið hefur komið stór tónleika- kippur: Hjálmar, Dúndurfréttir, Múgsefjun og Retro Stefson og Nýdönsk er væntanleg í haust. „Það er alltaf eitthvað um að vera hverja einustu helgi,“ segir Haukur. „En það er erfitt að hafa svo þétta dagskrá. Þess vegna hef- ur maður boðið upp á alla tónlist- arflóruna. Það sem hjálpar líka er að það er ekki opið hér að öðru leyti. Fólk er ekki að koma í nein- um öðrum tilgangi en til að mæta á tónleika. Það hefur samt kostað mikla þolinmæði.“ Græni hatturinn heldur sínu striki um helgina og í kvöld kl. 22 fara þar fram ólympíuleikar trúba- dora og í kjölfarið heldur hljóm- sveitin Hraun þar „tónleikapartí- ball“ kl. 00.30 fram á nótt. Lisa Ekdahl var vendipunkturinn Græni hatturinn er helsta tónleikavígi Norðurlands Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Vertinn Haukur Tryggvason hefur rekið Græna hattinn í fimm ár. myspace.com/graenihattur  Græni hatturinn heitir eftir barnabók. Kaffihúsið fyrir ofan Græna hattinn gerir það líka, og ber nafnið Bláa kannan. Hvorug bókanna voru samt í uppáhaldi hjá Hauki þegar hann var lítill, því hann tók við staðnum eftir að hann hafði fengið nafn. Sjálfur hélt Haukur upp á bókina um Stubb.  Staðurinn var einn fyrsti pöbb- inn á landinu sem var reyklaus, fyrir utan eitt lítið skot þar sem reykingamenn komu saman.  Uppáhaldstónlistarmaður Hauks er Brian Wilson. Hann hefur farið á tónleika með Wilson nokkr- um sinnum: „Ég hef líka hitt hann. Tekið í höndina á honum. Það var vægast sagt mjög sérstakt. Hann sagði ekki neitt. Það var eiginlega eins og það væri ekki neitt á bak- við augun.“  Haukur er fljótur að svara því til hvað er leiðinlegast við starfið: „sándtékkin.“ Fernt sem þú verður að vita um Hauk og Græna hattinn / ÁLFABAKKA WANTED kl. 5:30 - 8 - 10:20 - 10:40 B.i. 16 ára THE CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 2 - 5 - 8 B.i.12 ára INDIANA JONES 4 kl. 2 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára / KRINGLUNNI HEITASTA BÍÓMYNDIN Í SUMAR ER KOMIN! SVALASTA BÍÓMYND SÍÐAN THE MATRIX FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA. SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, SELFOSSI OG KEFLAVÍK SÝND Í KRINGLUNNI eeeee K.H. - DV STELPURNAR ERU MÆTTAR Á HVÍTA T eeee 24 stundir eee H.J. - MBL VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA AKUREYRI OG SELFOSSI VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG POWERSÝNINGKL. 10:50 Í KRINGLUNNI Í SAL 1 SÝND Í KRINGLUNNI, ÁLFABAKKA, ,,Mörg hasaratriðin eru afar vel útfærð og leynast inn á milli góð gamanatriði...” - V.J.V., topp5.is/Fréttablaðið eee ,,Brjálaður hasar, brútal ofbeldi, skemmtilegir leikarar og góður húmor. Þarf meira?” - Tommi, kvikmyndir.is eee KUNG FU PANDA m/íslensku tali kl. 2D - 4D - 6D LEYFÐ DIGITAL KUNG FU PANDA m/íslensku tali kl. 2 - 4 - 6 LÚXUS VIP KUNG FU PANDA m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ HANCOCK kl. 2 - 4 - 6 - 8D - 10:10D B.i. 12 ára DIGITAL HANCOCK kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára LÚXUS VIP SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI JACK BLACK SANNAR AF HVERJU HANN ERTALINN EINN AF FYNDNUSTU GRÍNLEIKURUNUM Í HEIMINUM Í DAG. WANTED kl. 8:30D - 10:50POWERDIGITAL B.i. 16 ára DIGITAL KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 2:30D - 4:30D - 6:30D LEYFÐ DIGITAL CHRONICLES OF NARNIA kl. 3D - 6D B.i. 7 ára DIGITAL SEX AND THE CITY kl. 6 - 9 B.i. 14 ára THE BANK JOB kl. 9 - 11:10 B.i. 16 ára SPEED RACER kl. 3 LEYFÐ SPARBÍÓ 550kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB SÝND Í ÁLFABAKKA ,,Ljúfir endurfundir” - Þ.Þ., DV

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.