Morgunblaðið - 05.07.2008, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 47
Stækkanleg borð,
fáanleg í þremur stærðum:
160x100(248)
Verð: 128.000,-
200x110(288)
Verð: 139.000,-
140x140(230)
Verð: 146.000,-
Paris leðurstóll
Bakhæð: 106cm
Fáanlegur í svörtu, hvítu og brúnu leðri
Verð áður: 17.500,-
-20%
Verð nú: 14.000,-
Vegghengdur skenkur
Eik-hvítt háglans
Fáanlegur í þremur stærðum:
120cmX40cmXH: 60cm
Verð: 76.000,-
180cmX40cmXH: 60cm
Verð: 98.000,-
240cmX40cmXH: 60cm
Verð: 128.000,-
Sófaborð m/skúffu
Einnig fáanlegt m/sandblásnu gleri
Stærð: 130cmX70cm
Einnig fáanlegt í stærð: 90cmX90cm
m/sandblásnu gleri
Verð: 58.000,-
NÝ SENDING AF STÆKKANLEGUM EIKARBORÐUM
Stækkanlegt borð
Stærð: 160X100X(248)
Verð: 89.000,-
VIP leðurstóll
Bakhæð: 102cm
Fáanlegur í svörtu, hvítu og brúnu leðri
Verð áður: 15.800,-
-20%
Verð nú: 12.640,-
MIKIÐ ÚRVAL AF STÓRUM OG MJÚKUM SÓFUM
Fatcat tungsófi
Stærð: 320X165
Fáanlegur í nokkrum litum
Færanleg tunga
Romeo leðursófasett 3+1+1
Verð: 295.000,-
Einnig fáanlegur í tungusófa eða 4 sæta sofa
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - Bæjarlind 12 - S: 544 4420 - www.egodekor.is
Borðstofuskenkur
Stærð: 180cmX45cmXH: 125cm
Verð: 118.000,-
Verð áður: 187.000,-
-15%
Verð nú:158.950,-
OF gott?
Dæmi 1 (úr „Nema hvað“): „Gaur-
inn sem segir ekki bæ heldur bless, /
hann Sesz, ávallt hress eins og fress,
/ nema nema hvað, byrjar á S og
endar á A, / nú þú kannt það, manst
það, hverjum er það að þakka, / „Ha
ha ha ha, ha ha ha“ þú veist það það,
eins og bla bla bla, / já sko, sko sko,
fer svo svo, ekki reyna að heilaþvo
þvo, / með innihaldslausu kjaftæði,
hugsunin helgar meðalið, / ef ég
skapa það, verður það ávallt til,
sannaðu til, / ég hugsa upphátt, aldr-
ei smátt, rappa aldrei lágt, / því fátt
kemur mér ekki við, / þegar ég stíg á
sviðið, þá er það málið, / Sesar A
keppist ekki við að vera „rapsu-
perstar,“ / opna sýn eins og Ali ba-
baba, þú vissir það það, / nema hvað,
hva’ hva’ hva’.“
Dæmi 2 (úr „Efnisleg gæði“): „Ég
var að heyra frétt af systur minni og
hún er fangi, / neydd til að hlýða
skipunum frá sjónvörpum, / sem ein-
hvern veginn láta alltaf allt snúast
um, / að allir vilji eiga það nýjasta og
flottasta, / og afurð endalausra aug-
lýsinga er að spottast að, / þeim sem
álíta ekki allt sé falt, / skiptir engu
hvað það kostar, bara það sé „svalt,“
/ kaupi mér rándýran jakka en er
samt alltaf kalt, / hvað er að gerast? /
Þegar óbeinar skipanir um kaup og
sölu berast, / inn á heimilið í gegnum
sjónvarpið, hvað er að gerast?“
Ef það sem er „of gott“ er komið
svo rækilega í hring að það er orðið
annað hvort „innihaldslaust kjaft-
æði“ eða banalt langt upp fyrir hroll-
mark, og flutt án nokkurra blæ-
brigða, þá kýs undirritaður heldur
„ekki nógu gott.“ Hér nægir ein
stjarna fyrir nokkur flott „bít“ sem
geta til allrar hamingju beint athygl-
inni frá textunum, og önnur til við-
bótar fyrir ágætar gestainnkomur
hjá útlendingunum (ég skil ekki
textana, en flutningurinn er oftast
kraftmikill), Blazroca (rýr en orðin
leika í trantinum á honum) og Dóra
DNA (skemmtileg frásögn og inn-
rím og stuðlun á hærra plani).
Morgunblaðið/Þorkell
Sesar A Ekki nógu góður.
Of gott?
TÓNLIST
Geisladiskur
Sesar A – Of gott bbnnn
Atli Bollason
og stunda enga líkamsrækt. Ben Affleck,
besti vinur Damon, skemmtir sér vel yfir út-
litsbreytingu vinar síns og segir hann nú
þurfa tvö sæti í flugvél í stað eins áður.
BANDARÍSKI leikarinn Matt Damon er
hræddur um að glata titlinum „kynþokka-
fyllsti karlmaður heims“, sem bandaríska
tímaritið People veitti honum í fyrra. Damon
hefur bætt á sig einum 15 kílóum og það ekki
í formi vöðva.
Ástæðan fyrir þessu hamsleysi leikarans er
kvikmyndin The Informant sem Steven Sod-
erbergh leikstýrir. Í henni leikur Damon að-
alhlutverkið, stjórnanda í lyfjafyrirtæki sem
kemur upp um verðsamráð fyrirtækisins og
annarra í lyfja- og fæðubótarefnaframleiðslu.
Damon segir hlutverkið ekki hafa krafist
þess að hann væri feitur heldur „búttaður.“
Damon segir vel hafa gengið að fita sig
með því að borða skyndibitafæði, drekka bjór
Búttaður
Damon óttast
titilsmissi
Feitur? Matt Damon, hægra megin, sést hér á
spjalli við starfsbróður sinn, Mark Wahlberg.
KVIKMYNDAFYRIRTÆKIÐ Warner Bros.
segir ekkert til í sögusögnum þess efnis að
gera eigi kvikmynd upp úr gamanþáttunum
Friends, eða Vinum. Þetta var tilkynnt í gær
eftir að fréttir þess efnis að slík kvikmynd
vær í bígerð höfðu breiðst eins og eldur í sinu
um netið, meira að segja um það að hefja ætti
tökur innan eins og hálfs árs.
Sexmenningarnir sem slógu í gegn í
Friends, þau Jennifer Aniston, Courtney Cox
Arquette, Lisa Kudrow, David Schwimmer,
Matthew Perry og Matt LeBlanc, sögðu skilið
við vinina fyrir fjórum árum.
Fjölmiðlafulltrúi Cox Arquette sagði í sam-
tali við fréttavef BBC að hann vissi ekkert af
áætlunum um Friends-kvikmynd og tals-
maður Perry segir sögusagnirnar aðeins
gróusögur.
Það þykir engu að síður deginum ljósara
að slík kvikmynd myndi afla framleiðanda
eða framleiðendum hennar gríðarlegra
tekna. Seinasti þátturinn í Friends-þáttaröð-
inni dró 52,5 milljónir manna að sjónvarps-
skjánum í Bandaríkjunum og 8,6 milljónir í
Bretlandi. Önnur vinsæl þáttaröð, Sex and
the City eða Beðmál í borginni, varð á end-
anum að kvikmynd og sú hefur notið afar
góðrar aðsóknar í bandarískum kvikmynda-
húsum og víðar. Vina-kvikmynd myndi lík-
lega njóta mun betri aðsóknar.
Vinir verða ekki
kvikmyndaðir
Föst í kassanum Bíóleikarinn Brad Pitt í
heimsókn hjá sjónvarpsstjörnunum.