Fréttablaðið - 21.04.2009, Síða 48

Fréttablaðið - 21.04.2009, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Í dag er þriðjudagurinn 21. apríl, 111. dagur ársins. 5.34 13.26 21.20 5.10 13.11 21.14 Orðið æla er óaðlaðandi. Það er hins vegar þeim heillandi eiginleika gætt að það er hægt að setja nánast hvaða samhljóða sem er á undan því og þá öðlast það nýja merkingu, samanber orðin bæla, dæla, gæla, fæla, næla, sæla og svo framvegis. Fá orð í íslensku státa af þessu. Stjórnmálaflokkar eru að þessu leyti eins og æla. Tökum bók- stafinn X og bætum öðrum bókstaf fyrir aftan hann, D, V, S eða F, og flokkurinn breytir um merkingu, að minnsta kosti út á við en hvílir þó alltaf á sama grunni – flokka- kerfinu, eða ælunni, ef svo má að orði komast. MARGT í hinni pólitísku atburða- rás á Íslandi undanfarin misseri minnir á eiginleika orðsins æla. Fyrir nokkrum árum skrifaði ungur heimspekingur tímarits- grein sem bar yfirskriftina „Allt sama tóbakið?“ Þar rýndi hann í stefnuskrár stjórnmálaflokkanna og reyndi að greina hvað skildi þá raunverulega að. Niðurstaða hans var á þá leið að tiltölulega fátt greindi íslenska stjórnmálaflokka hvorn frá öðrum, að minnsta kosti ef marka mætti stefnuskrár þeirra, sem væru meira eða minna sama moðsuðan. GREININ vakti nokkur viðbrögð á sínum tíma. Gáfaður vinur minn minnti mig svo á að það varð til- efni lítils málþings sem efnt var til á litlu kaffihúsi í tilefni grein- arinnar. Þar tóku nokkrir stjórn- málamenn til máls og sögðu þetta vera ofureinföldun hjá heimspek- ingnum; það væri vissulega mikill munur á flokkunum, stefnuskrárn- ar væru í raun hátíðarplögg sem ekki mætti taka of bókstaflega. Stjórnmálamennirnir aðhylltust sem sagt ekki bókstafstrú heldur listabókstafstrú. Seinna lagði ungi heimspekingurinn sitt af mörkum til að sanna ágæti kenningar sinna, gekk til liðs við flokk og því næst annan og vann fyrir þá báða af sannfæringu. Sjálfsagt gæti hann svo prófað þann þriðja ef hann bara vildi. Þetta tel ég honum ekki til vansa heldur aðeins dæmi um það hve auðvelt það ætti að vera að komast að samkomulagi við sjálf- an sig og aðra í jafn agnarlitlu samfélagi og Íslandi. Í um 300 þús- und manna samfélagi sem þegar á ógrynni af heitu vatni, gjöful fiskimið og velmenntaða íbúa hlýt- ur að vera hægt að finna farsæla og sameiginlega lausn. Jafnvel án þess að tveimur álverksmiðjum sé bætt við þær sem fyrir eru. Verk- smiðjuhugmyndirnar þykja mér reyndar stalínísk forræðishyggja og í raun — algjör þvæla. Æla

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.