Fréttablaðið - 28.04.2009, Side 4
4 28. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNMÁL Allt að 25 prósent kjósenda einstakra fram-
boða strikuðu yfir nöfn frambjóðenda á atkvæðaseðl-
um í Reykjavíkurkjördæmi suður í kosningunum á
laugardag.
Hlutfall útstrikana var svipað hjá Sjálfstæðis-
flokknum og VG en lægra hjá Samfylkingunni þar
sem um 2.000 útstrikanir voru. Í dag kemur í ljós
hvort útstrikanirnar hafi áhrif á röðun frambjóð-
enda á listum.
Í Reykjavík norður beittu um fjórtán prósent kjós-
enda útstrikunum. Flestir strikuðu yfir frambjóðend-
ur á lista Samfylkingarinnar en einnig hjá Sjálfstæð-
isflokknum og Borgarahreyfingunni. Svo til engar
útstrikanir voru á lista framsóknarmanna.
Á hádegi í dag liggur fyrir hvort útstrikanirnar
hafi áhrif á röð frambjóðenda.
Í dag kemur líka í ljós hvort útstrikanir hafi áhrif í
Norðausturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi en þegar
er ljóst að engar breytingar verða í Norðvesturkjör-
dæmi og að Árni Johnsen færist niður um sæti á lista
Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. - kóþ
List án landamæra
Dásamlega Kaupmannahöfn
í Norræna húsinu í kvöld kl. 19.30
Kynnið ykkur dagskrána á listanlandamaera.blog.is
Frítt er á
alla viðburði
hátíðarinnar
og eru allir
velkomnir
Samsýning í Ráðhúsinu
Tvívídd í þrívídd
Dásamlega Kaupmannahöfn
Árshátíð kvikmyndagerðarmanna,
sem sagt var frá í blaðinu á laugardag,
var ekki haldin af Félagi kvikmynda-
gerðarmanna heldur af hópi sem
kallar sig Kvikmyndagerðarmenn.
Þá misritaðist nafn Jósa við eina af
myndunum. Beðist er velvirðingar á
þessu.
LEIÐRÉTTING
STJÓRNMÁL Arnbjörg Sveins-
dóttir, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, náði ekki endurkjöri í
kosningunum
á laugardag.
Hún hefur setið
á þingi síðan
1995.
Arnbjörg
telur ófarir
Sjálfstæðis-
flokksins
meðal annars
stafa af stuttri
kosningabar-
áttu. „Hún var mjög sérstök.
Okkur var haldið mjög lengi á
þinginu að verja stjórnarskrána
þótt ljóst væri að þar fengist ekki
niðurstaða.“ Hún á þó von á því
að flokkurinn verði fljótur að
sækja í sig veðrið aftur.
Arnbjörg veit ekki hvað tekur
við hjá sér, nú taki við atvinnuleit
en hún útilokar ekki að bjóða sig
fram aftur síðar. „Slík ákvörð-
un ræðst af því hvort maður fái
til þess hvatningu og einhverjir
treysta manni í það. Ég skoða það
mál þegar þar að kemur.“ - bs
Arnbjörg Sveinsdóttir:
Útilokar ekki
framboð síðar
ARNBJÖRG
SVEINSDÓTTIR
DÝRALÍF Tvíhöfða lamb fæddist
á Kópareykjum í Reykholtsdal
um kosningahelgina. Frá þessu
segir á vef Skessuhorns.
Jón Eyjólfsson, bóndi á Kópa-
reykjum, segir í viðtali við
Skessuhorn að ein ærin hafi
borið einu lambi, og afturlapp-
irnar hafi sem betur fer komið á
undan. Lambið hafi verið lifandi
þegar hann náði því en drepist
fljótlega eftir það.
Fyrir rúmum mánuði fæddist
annað tvíhöfða lamb á Suður-
landi. Það lifði í um það bil hálf-
an sólarhring.
- kg
Sauðburður í Reykholtsdal:
Tvíhöfða lamb
kom í heiminn
TVÍHÖFÐI Lambið fæddist lifandi en
drapst skömmu síðar. MYND/SKESSUHORN
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
22°
13°
12°
22°
17°
11°
13°
11°
19°
19°
22°
14°
30°
29°
20°
13°
18°
19°
7
8
7
5
5
10 12
12 16
13
6
8
Á MORGUN
10-15 m/s suðvestan til an-
nars 5-10 m/s
FIMMTUDAGUR
3-8 m/s
8
7
4
5
8
3
7
6
3
3
15
6
13
13
10
6 8
12
88
ENN AÐ HLÝNA
Það má búast við
rigningarveðri í allan
dag á vesturhelmingi
landsins en síðan
styttir að miklu leyti
upp í nótt. Hitinn í
dag verður á bilinu
5-10 stig en á morgun
er horfur á að enn
muni hlýna. Þá eru
horfur á tveggja stafa
hitatölum um mest
allt land og allt að 16
til 17 stiga hita þar
sem hlýjast verður, á
norðanverðu landinu.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
STJÓRNMÁL Ákveðið var að skipa
tvo starfshópa um sértæk málefni
á fyrsta formlega stjórnarmyndun-
arfundi forystumanna Samfylking-
arinnar og VG í gær. Fundinn sátu
formenn og varaformenn flokk-
anna, auk aðstoðarmanna.
Varaformennirnir Dagur B.
Eggertsson og Katrín Jakobsdóttir
leiða viðræðuhóp um Evrópumálin
og eiga ráðherrarnir Össur Skarp-
héðinsson og Ögmundur Jónasson
einnig sæti í hópnum.
Öðrum hópi verður falið að fjalla
um breytingar á stjórnkerfinu en
hann hefur ekki verið skipaður. Þá
er í bígerð að koma á fót starfshóp-
um um efnahags- og ríkisfjármál
annars vegar og atvinnumál hins
vegar.
Lausn á ólíkum sjónarmiðum
flokkanna í Evrópumálunum er
lykilmál stjórnarmyndunarvið-
ræðnanna. Finnist hún ekki eru
hverfandi líkur á að af samstarfi
flokkanna verði.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagðist í gærkvöldi bjart-
sýn á að lausn finnist á Evrópu-
ágreiningnum og kvaðst bjartsýnni
eftir fundinn með VG í Norræna
húsinu en fyrir.
„Eitt af mikilvægustu verkefnun-
um framundan er að ná þjóðarsátt
um efnahagslegan og félagslegan
stöðugleika fyrir heimili og fyrir-
tæki og um aðgerðir gegn atvinnu-
leysi, segir Jóhanna og vísar til
aðila vinnumarkaðarins og sveitar-
félaga.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, lítur á það sem sögu-
lega skyldu að koma stjórninni
á fót. „Það er eindreginn vilji og
gagnkvæmur í báðum flokkum til
að láta þetta sögulega tækifæri til
að mynda fyrstu hreinu velferðar-
stjórnina okkur ekki úr greipum
ganga,“ segir hann. Þingflokkar
stjórnarflokkanna lögðu blessun
sína yfir viðræðurnar á fundum í
gær og veittu formönnum sínum
umboð til að leiða þær til lykta. Á
fundi VG fór fram opinská umræða
um Evrópumálin og komu fram
mjög skiptar skoðanir; allt frá því
að sækja aldrei um aðild yfir í að
sækja strax um aðild. Þær tvær
leiðir voru þó slegnar út af borð-
inu.
Báðir flokkarnir hafa á stefnu-
skrá sinni að innkalla aflaheim-
ildir. Því er líklegt að róttækar
breytingar verði á kvótakerfinu.
Steingrímur segir að yfir það mál
verði sest eins og önnur. Jóhanna
tekur undir það. „Við erum örugg-
lega að horfa til þess að þessi rík-
isstjórn mun skoða breytingar á
sjávarútvegsstefnunni og reyna að
ná sátt um leiðir í þeim efnum.“
kolbeinn@frettabladid.is
Viðræðuhópar um
ESB og stjórnsýslu
Formlegar stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingarinnar og VG hófust í gær.
Varaformenn flokkanna fara fyrir viðræðuhópi um Evrópumál. Önnur stór mál
verða einnig rædd í sérstökum hópum. Bjartsýni ríkir í herbúðum flokkanna.
Endalegar upplýsingar um útstrikanir liggja fyrir í fjórum kjördæmum í dag:
Fjórðungur beitti útstrikunum
KOSNINGAR Fjöldi kjósenda
nýtti sér réttinn til að strika út
frambjóðendur .
SAMNINGAVIÐRÆÐUR Glatt var á hjalla á fundinum. Dagur B. Eggertsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Hrannar B. Arnarsson frá
Samfylkingunni hittu þar Katrínu Jakobsdóttur, Steingrím J. Sigfússon og Huginn Frey Þorsteinsson frá VG. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ATVINNULÍF Einkaleyfastofa hefur
gefið út bækling til aðstoðar þeim
sem hyggja á stofnun fyrirtækja.
Bæklinginn, sem ber heitið Auð-
kenni fyrirtækja, hagnýtar leið-
beiningar um skráningar, má
nálgast á heimasíðu stofunnar.
Í bæklingnum er að finna upp-
lýsingar um hvar helstu skrán-
ingaraðila og er ætlunin að hvetja
fólk til að undirbúa stofnun fyrir-
tækja með réttum hættum. Slíkur
bæklingur hefur ekki verið gefinn
út á íslensku áður. Alþjóðlegur
dagur hugverkaréttar er á sunnu-
daginn, en hann er haldinn hátíð-
legur árlega um allan heim. - kóp
Verndun hugverkaréttar:
Leiðbeiningar
um nýsköpun
GENGIÐ 27.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
210,2144
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,96 130,58
189,55 190,47
170,78 171,74
19,495 19,609
19,495 19,609
15,9 15,994
1,3456 1,3534
193,95 195,11
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
JEMEN, AP Liðsmenn strandgæsl-
unnar í Jemen réðust á sunnudag
til atlögu gegn hópi sjóræningja
frá Sómalíu, sem höfðu rænt olíu-
skipinu Qana. Strandgæslan hafði
betur og er þetta í fyrsta sinn
sem Jemenum tekst að ná skipi úr
höndum sjóræningja.
Ræningjarnir náðu skipinu á
sitt vald fyrr á sunnudeginum.
Ellefu ræningjar voru um borð
þegar strandgæslan lét til skarar
skríða. Sjóræningjar frá Sómalíu
hafa rænt meira en hundrað skip-
um undanfarið ár. Flestum skip-
unum hefur verið rænt á Aden-
flóa, sem liggur á milli Sómalíu og
Jemens. - gb
Sjóræningjar yfirbugaðir:
Strandgæslan
kom til bjargar
81 þúsund laxar sluppu
Um 81 þúsund eldislaxar, um 637
grömm að þyngd að meðaltali hver,
hafa sloppið úr eldisstöðinni Nova
Sea í Rana í Noregi. Þetta uppgötvað-
ist í síðustu viku. Slysið er litið mjög
alvarlegum augum og er unnið að því
að endurheimta fiskinn. Aðeins einn
hafði þó náðst í gær.
NOREGUR