Fréttablaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 8
8 28. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Hebron-Vinnufatnaður
Smiðjuvegi 1, Grá gata
www.hebron.is
s. 567-6000
20%
kynningAr
afsláttur
til 8. maí
V INNUFATNAÐUR
FÆST NÚ Í HEBRON
Einsöngur: Þóra Einarsdóttir sópran
Hjálmur Gunnarsson bassi
Þorsteinn Guðnason tenór
Píanó: Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Stjórnandi: Árni Harðarson
Karlakórinn Fóstbræður
Fjölbreytt og spennandi efnisskrá.
Miðasala við innganginn.
í Langholtskirkju 28., 29. og 30. apríl kl. 20
og 2. maí kl. 16
SKOÐANAKÖNNUN Framsóknarflokk-
ur og Frjálslyndir náðu nánast
hámarksfylgi sem þeim gafst kostur
á, ef úrslit kosninga eru miðuð við
greiningu Capacent Gallup á við-
horfi kjósenda til stjórnmálaflokk-
anna. Flokkarnir fengu skýrslu með
slíkri greiningu fyrir kosningar, en
hún er dagsett 19. mars.
Samvæmt greiningunni var 97,6
prósent kjósenda talið „ósnertan-
legt“ fyrir Frjálslynda flokkinn,
það er, nánast ómögulegt að flokk-
urinn myndi ná til þess hluta kjós-
enda. Frjáslyndir náðu því til allra
nema 0,2 prósentustiga af þeim sem
gátu hugsað sér að kjósa flokkinn í
mars.
84,9 prósent kjósenda voru ósnert-
anleg fyrir Framsóknarflokkinn og
var hann því 0,3 prósentustigum
frá því að ná hámarksfylgi. Sam-
fylking var 2,5 prósentustigum frá
hámarksfylgi, en flestir töldu mögu-
leika á því að kjósa Samfylkinguna
og 67,7 prósent kjósenda voru talin
ósnertanleg fyrir Samfylkingu. Þá
var Sjálfstæðisflokkur 3,5 prósentu-
stigum frá mögulegu hámarksfylgi
sínu, en ómögulegt var talið að Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi ná til 71,8
prósent kjósenda. Vinstri græn voru
lengst frá því að hámarka mögulegt
fylgi sitt, 7,6 prósentustigum. 70,7
prósent kjósenda voru talin ósækj-
anleg fyrir Vinstri græna. - ss
Greining Capacent Gallup á viðhorfi kjósenda til stjórnmálaflokkanna sem gefin var út í mars:
Framsókn og frjálslyndir náðu hámarks fylgi
Fast fylgi
Laust fylgi
Opnir
Ósnertanlegir
Úrslit kosninga
14,6%
21,7%
2,2%
23,7%
29,8%
Mögulegt fylgi flokkanna
Sögðust kjósa flokkinn Sögðust ekki kjósa flokkinn
Auglýsingasími
– Mest lesið
UTANRÍKISMÁL Íslendingar komu
Norðmönnum á óvart með því að
vera ekki tilbúnir til að afgreiða
þjónustutilskipun Evrópusam-
bandsins á fundi EES-nefndar-
innar á föstudaginn. Málið átti
að taka fyrir á ríkisstjórnarfundi
í síðustu viku en mörg mál lágu
fyrir og náðist ekki að afgreiða
þetta mál. Ákvörðuninni var því
frestað til næsta fundar EES-
nefndarinnar í maí.
Dagbladet í Noregi greindi frá
því nýlega að íslenska ríkisstjórn-
in hefði komið stjórnvöldum í Nor-
egi og Liechtenstein á óvart með
því að stöðva loka-afgreiðslu þjón-
ustutilskipunarinnar, slíkt hafi
aldrei gerst áður. Slík afgreiðsla
sé aðeins formsatriði. Einn af
stjórnarflokkunum á Íslandi hafi
stöðvað málið meðan kosning-
ar færu fram. Þar sem þjóðirn-
ar verði að samþykkja tilskip-
unina samtímis bíði afgreiðslan
næsta fundar. „Íslendingarnir
voru ekki tilbúnir nú en það þýðir
ekkert sérstakt. Tilskipunin á að
taka gildi í lok 2009. Vinnan við
það gengur vel,“ hefur Dagbladet
eftir Oda H. Sletnes, sendiherra
Noregs.
Ögmundur Jónasson heilbrigðis-
ráðherra segir að málið sé viða-
mikið og þarfnist rækilegrar
skoðunar. „Þetta er misskilning-
ur hjá sendiherranum. Ísland
er enn fullvalda ríki sem tekur
eigin ákvarðanir á eigin forsend-
um. Við munum ekki komast að
niðurstöðu samkvæmt forskrift
frá Noregi eða öðrum. En Norð-
menn geta andað rólega. Við vilj-
um gefa okkur tíma til að skoða
þetta nánar.“
Eiríkur Bergmann Einars-
son, forstöðumaður Evrópuset-
urs Háskólans á Bifröst, segir
að Íslendingar hafi ekki þá stöðu
að geta breytt neinu í þjónustu-
tilskipuninni. Þeir hafi lýst yfir
að þeir ætli að samþykkja hana
og því sé bara formsatriðið eftir.
Stundum sé sagt að löndin hafi
neitunarvald en því hafi aldrei
verið beitt.
„Hér er um pólitískar vöðva-
hnyklingar að ræða sem hafa
engan annan tilgang,“ segir
hann. „Augljóst er að VG tókst að
stoppa þetta. Utanríkisráðherra
hefur áður lýst yfir að það sé
stefna stjórnvalda að leiða þessa
tilskipun í lög. Það ber því vott
um taugaveiklun í samstarfinu að
sendiherra Íslands hafi stöðvað
staðfestingu á tilskipun tíu mín-
útum fyrir kosningar. Á þessum
tíma hefur VG eflaust talið sig
hafa sterkari stöðu að kosningum
loknum og geta haft eitthvað um
þetta að segja en núna á maður
von á að þetta verði staðfest.“
ghs@frettabladid.is
Kom á óvart
að Íslending-
ar frestuðu
Íslendingar vildu ekki ganga frá þjónustutilskipun
ESB daginn fyrir kosningar. „Pólitískar vöðva-
hnyklingar“ að mati forstöðumanns Evrópuseturs.
„Norðmenn geta andað rólega,“ segir ráðherra.
LOKAAFGREIÐSLAN FRESTAST Íslenska ríkisstjórnin náði ekki að taka fyrir umdeilda
þjónustutilskipun ESB á ríkisstjórnarfundi fyrir kosningar. Þetta kom stjórnvöldum í
Noregi og Liechtenstein á óvart en þau höfðu staðið í þeirri trú að lokaafgreiðslan
færi fram á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar fyrir helgi. Í staðinn verður tilskip-
unin sennilega tekin fyrir í maí.
STJÓRNMÁL „Þessi niðurstaða er
mikil vonbrigði,“ segir Sigurður
Kári Kristjánsson, sem er fall-
inn af þingi. Þar hefur hann átt
sæti síðan 2003 og skipaði nú 3.
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi norður.
Sigurður Kári segir tap Sjálf-
stæðisflokksins fyrst og fremst
helgast af efnahagshruninu.
„Sjálfstæðisflokknum einum var
kennt um það. Við fengum ekki
að njóta þess góða sem gert var í
okkar stjórnartíð. Styrkjamálin
voru okkur líka mjög óþægileg.“
Ekki er ljóst hvað tekur nú við
hjá Sigurði Kára. „Það kom bara
í ljós í gærmorgun [sunnudags-
morgun] að ég næði ekki endur-
kjöri. Hvað ég tek mér fyrir
hendur kemur í ljós með tíð og
tíma. Ég held þó að ég muni verða
þátttakandi í stjórnmálum alla
ævi. Ég er ekki af baki dottinn.“
- bs
Sigurður Kári Kristjánsson:
Ekki hættur í
stjórnmálum
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvað fékk Borgarahreyfingin
marga menn kjörna í ný-
afstöðnum kosningum?
2. Hvernig fór leikur kvenna-
landsliðsins í fótbolta gegn
Hollendingum?
3. Hver er sóttvarnalæknir?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26