Fréttablaðið - 28.04.2009, Side 10
10 28. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNMÁL Frjálslyndi flokkurinn
var stofnaður seint í nóvember 1998
og bauð fram í fyrsta sinn í kosn-
ingunum 1999. Sverrir Hermanns-
son, fyrrverandi þingmaður og ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins, stofnaði
flokkinn ásamt fylgismönnum en
Davíð Oddsson hafði fáum mánuð-
um áður gert Sverri að láta af starfi
bankastjóra í Landsbankanum.
Kvótakerfið var sérstakt eitur í
beinum Sverris sem beindi flokkn-
um jöfnum höndum gegn því og
Sjálfstæðisflokknum.
Í aðdraganda flokksstofnunar leit
út fyrir að samtök sem vildu breyt-
ingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu
myndu koma að stofnun flokksins.
Upphófst mikil valdabarátta bak
við tjöldin sem lyktaði með því að
samtökin hrökkluðust frá borði.
Voru það fyrstu illdeilurnar í
tengslum við Frjálslynda flokkinn
en ekki þær síðustu.
Miklar vendingar urðu árið 2006
þegar Nýtt afl, undir forystu Jóns
Magnússonar, var lagt inn í Frjáls-
lynda flokkinn. Nýtt afl bauð fram
í kosningunum 2003 og hlaut eins
prósents fylgi.
Jón komst til talsverðra áhrifa
innan flokksins og lét til sín taka.
Umdeild varð blaðagrein hans
undir yfirskriftinni Ísland fyrir
Íslendinga? en í kjölfarið tóku
frjálslyndir að daðra við það sem í
daglegu tali nefnist rasismi. Mörg-
um flokksmönnum ofbauð slíkur
málflutningur.
Deiluefnin í Frjálslynda flokkn-
um hafa verið af margvíslegum
toga en oftar en ekki hafa þau frem-
ur virst á persónulegum nótum en
faglegum.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir hefur Guðjóni A. Kristjánssyni
formanni hvað eftir annað mistek-
ist að lægja öldurnar innan flokks-
ins. Kennir hann nú illdeilum, auk
annars, um ófarirnar í kosningun-
um.
Óvíst er hver afdrif Frjálslynda
flokksins verða en eins og sakir
standa skartar flokkurinn þrem-
ur kjörnum fulltrúum; í sveitar-
stjórnum Ísafjarðar, Grindavíkur
og Reykjavíkur. bjorn@frettabladid.is
EINBEITING Kínverska listdansskauta-
parið Dan Zhang og Hao Zhang tekur
á öllu sínu í keppni í Goyang í Suður-
Kóreu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MENNTUN Reykjavíkurborg ætlar að skera niður
framlög til tónlistarskóla í Reykjavík, aftur í tím-
ann, um tólf prósent. Þetta kom fram á fundi Sigurð-
ar Sævarssonar, formanns Samtaka tónlistarskóla í
Reykjavík, með formanni menntaráðs á föstudag.
Sigurður hafði áður lýst þeirri von sinni að um
misskilning væri að ræða af hálfu borgarinnar.
Slíkur niðurskurður gæti enda þýtt hrun í tónlistar-
kennslu, og ekki væri hægt að bregðast við honum
öðruvísi en með því að senda börnin heim.
„Við ítrekuðum alvarleika málsins og ræddum
þetta fram og til baka,“ segir hann. Engin niðurstaða
hafi þó fengist.
Samtökin segjast hafa skilið áformin, þegar þau
voru kynnt í janúar, þannig að skorið yrði niður
framlag til tónlistarskólanna frá og með næsta
skólaári. Það hefst í september. Borgin ætli hins
vegar að skera niður framlög allt aftur til janúar-
mánaðar. Sigurður segist nú bíða fundarboðs frá
borginni, ræða eigi málin betur um mánaðamót.
Ekki náðist í Kjartan Magnússon, formann mennta-
ráðs. - kóþ
Fundur Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík með formanni menntaráðs:
Borgin sker niður afturvirkt
KÓPAVOGUR Starfsmenn Kópavogs-
bæjar verða á ferðinni frá 27. apríl
til og með 8. maí við að hreinsa
garðaúrgang sem eigendur lóða og
landssvæða setja utan við lóðar-
mörk sín. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá Kópavogsbæ.
Í tilkynningunni segir að árviss
viðburður í bæjarlífinu sé að
bæjarbúar taki höndum saman við
að hreinsa og fegra bæinn að lokn-
um vetri.
Lóðahafar þurfa sjálfir að fjar-
lægja lausan jarðveg og rusl af
byggingarlóðum, eins og timbur
og málma. Hið sama á við um
spillingarefni sem skila á til
endurvinnslustöðva. - kg
Garðaúrgangur utan lóða:
Vorhreinsun í
Kópavoginum
Opið virka daga kl. 8:00 til 17:00
www.velaland.is
VESTURLANDSVEGUR
VAGNHÖFÐI
VÉLALAND
HÚSGAGNA-
HÖLLIN
TANGARHÖFÐI
BÍlDSHÖFÐI
H
Ö
FÐ
A
B
A
K
K
I
REYKJAVÍK
Vélaland - VAGNHÖFÐA 21
Sími 577-4500
Vélaland sérhæfir sig í tímareimum.
Komdu í Vélaland og fáðu ráðgjöf um skiptingu
á tímareim. Vélaland skiptir fljótt og vel um
tímareimina fyrir þig, á föstu verði.
Fáðu ráðgjöf um tímareimaskipti
Er tímareimin komin á tíma?
Fast verð hjá Vélalandi
Skoðaðu fast verð hjá Vélalandi. Hringdu
núna í síma 577-4500 og pantaðu tíma.
Verðdæmi um tímareimaskipti:
Nissan Patrol 2,8 dísil Árgerð 1992-2000
Heildarverð, varahlutur og vinna: 49.088 kr.
Toyota Land Cruiser 90 3,0TD Árgerð 1997-2002
Heildarverð, varahlutur og vinna: 36.925 kr.
Toyota Corolla 1,6 bensín Árgerð 1997-2001
Heildarverð, varahlutur og vinna: 35.987 kr.
VW Golf 1,6AEE bensín Árgerð 1997-2006
Heildarverð, varahlutur og vinna: 46.774 kr.
Ford Focus 1,6 bensín Árgerð 1998-2005
Heildarverð, varahlutur og vinna: 38.948 kr.
Sjáðu hvar við erum. Hringdu núna í síma
577-4500 og pantaðu tíma.
Nánari upplýsingar : sími 525 4444 endurmenntun.is
LEIÐSÖGUNÁM Á HÁSKÓLASTIGI
Framúrskarandi kennarar
Hægt að stunda í staðnámi og fjarnámi
Lotubundin kennsla – hentar með vinnu
Veitir inngöngu í fagdeild Félags leiðsögumanna
Umsóknarfrestur til 11. maí
Mikið úrval af krókum
handklæðaslám
og fl .
Opið 13-18
Saga Frjálslyndra er
saga deilna og átaka
Tíu ára þingsögu Frjálslynda flokksins er lokið. Í flokknum, sem var stofnaður
vegna ósættis og óánægju, logaði allt í illdeilum frá fyrsta degi og þar til yfir lauk.
FYRSTA LANDSÞINGIÐ Sverrir Hermannsson, stofnandi Frjálslynda flokksins, var
kjörinn formaður á landsþinginu 1999. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fjárhagsstaða Frjálslynda flokksins er slæm og
þarf flokkurinn að semja við lánardrottna um
greiðslufrest á skuldum.
Flokkurinn náði ekki því 2,5 prósenta marki í
kosningunum á laugardag sem tryggir framboð-
um ríkisframlög. Magnús Reynir Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, telur að
þar með hafi flokkurinn orðið af 12-14 milljóna
króna árlegum ríkisframlögum út kjörtímabilið.
„Þetta var tvöfalt áfall,“ segir Magnús Reynir
og vísar til þess að annars vegar hafi Guðjón A.
Kristjánsson formaður fallið út af þingi og hins
vegar hafi 2,5 prósenta markið ekki náðst.
Hann vill ekki láta uppi hve mikið flokkurinn skuldar;
stofnanir flokksins eigi eftir að fara yfir málið. Skuldirnar
séu þó ekki stórvægilegar og fyrst og fremst
vegna kostnaðar sem féll til í kosningabarátt-
unni. „Við fórum gætilega og eyddum ekki
meiru en við töldum brýna nauðsyn á.“ Ljóst
sé þó að ekki sé hægt að greiða skuldirnar að
sinni, um þær verði að semja. Magnús kveðst
bjartsýnn á að þeir sem eigi peninga inni hjá
flokknum sýni stöðunni skilning og reyni að
koma til móts hann.
Spurður hvort mögulegt sé að Frjálslyndi
flokkurinn fari í gjaldþrot segist Magnús ekki
telja líkur á því.
Guðjón A. Kristjánsson lánaði Frjálslynda flokknum
fjórar milljónir fyrir nokkrum árum. Magnús Reynir segir
að gert hafi verið upp við hann að fullu. - bþs
Frjálslyndi flokkurinn náði ekki 2,5 prósenta fylgi og fær því ekki ríkisframlög:
Getur ekki greitt skuldirnar að sinni
MAGNÚS REYNIR
GUÐMUNDSSON
2005 Gunnar Örlygsson segir
sig úr flokknum.
2006 Margrét Sverrisdóttir
rekin úr starfi fram-
kvæmdastjóra.
2007 Margrét segir sig úr
flokknum.
2007 Sveinn Aðalsteinsson
miðstjórnarmaður segir
sig úr flokknum.
2008 Karen Jónsdóttir,
bæjarfulltrúi á Akranesi,
segir sig úr flokknum.
2009 Kristinn H. Gunnarsson
segir sig úr flokknum.
2009 Jón Magnússon segir sig
úr flokknum.
2009 Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir, nýkjörinn vara-
formaður, segir sig úr
flokknum.
NOKKRIR ÞÆTTIR
ÁTAKASÖGUNNAR
FRJÁLSLYNDIR Á ÞINGI
Fylgið frá 1999 - 2009
1999 4,2% 2 þingmenn
Sverrir Hermannson og Guðjón A. Kristjánsson.
2003 7,4% 4 þingmenn
Guðjón A. Kristjánsson, Sigurjón Þórðarson,
Gunnar Örlygsson og Magnús Þór Hafsteinsson.
2007 7,3% 4 þingmenn
Guðjón A. Kristjánsson, Kristinn H. Gunnarsson,
Grétar Mar Jónsson og Jón Magnússon
2009 2,2% 0 þingmenn
TÓNLISTARNEMAR Formaður samtaka tónlistarskóla segir
málið alvarlegt. Myndin er úr safni.