Fréttablaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 28. apríl 2009 19
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 28. apríl 2009
➜ Kvikmyndir
20.00 Kvikmynd um karlakórinn Don
Kósakka og stjórnanda hans Serge
Jaroff verður sýnd í MÍR-salnum við
Hverfisgötu 105. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
➜ Tónleikar
12.15 Á hádegistónleikum Hafnarfjarð-
arkirkju við Strandgötu, mun Haukur
Guðlaugsson leika á hið nýja orgel
kirkjunnar. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
20.00 Sönghópurinn Útmannasveitin
flytur blandaða söngdagskrá á Sumar-
málakvöldvöku í Egilsstaðakirkju. Á efn-
isskránni eru verk eftir Sigfús Einarsson,
Sigvalda Kaldalóns og
Pál Ísólfsson.
20.00 Kvennakór
Hafnarfjarðar heldur
vortónleika í Hásölum
(safnarheimili Hafnar-
fjarðarkirkju) við
Strandgötu. Á efnisskránni verða m.a.
íslenskar og erlendar vorvísur, madrigali,
kirkjuleg verk og söngleikjalög.
21.00 Hljómsveitin Slow Train sem
leikur einungis tónlist eftir Bob Dylan,
verður á Rósenberg við Klapparstíg í
kvöld.
➜ Síðustu forvöð
Sýningu Helgu Sigríðar Valdemarsdóttur
„Fagurfræðilegt dundur“ á Café Karólínu
við Kaupvangsstræti á Akureyri, lýkur á
föstudaginn. Opið mán.-fim. kl 11.30-01,
fös. kl. 11.30-03.
Guðrúnar Einarsdóttur er myndlistar-
maður aprílmánaðar hjá SÍM, kynn-
ingarmiðstöð íslenskrar myndlistar við
Hafnarstræti 16. Sýning hennar er opin
virka daga frá kl. 9-17.
➜ Leiklist
19.30 Karavana-hópurinn frá Árós-
um í Danmörku, sýnir verkið
„Dásamlega Kaupmannahöfn“
í Norræna húsinu við Sturlu-
götu. Einnig mun Sólheima-
kórinn flytja nokkur lög.
Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
➜ Fyrirlestrar
12.05 Anna Agnarsdóttir flytur erind-
ið: „Stjórnarbylting á Íslandi 1809:
Stóð Íslendingum á sama?“ í fyrirlestra-
sal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
➜ Ljósmyndasýningar
17.00 Sigurður Gunnarsson ljósmynd-
ari opnar sýningu sína „Bus Stop“
í Borgarbókasafni Reykjavíkur við
Tryggvagötu 15.
➜ Myndlist
Sýning átján myndlistarmanna á
Garðatorgi í Garðbæ, hefur verið
framlengd til 3. maí. Opið mán.-fös. kl.
12-18 og lau.-sun. kl. 10-18.
Tvívídd í þrívídd, sýning nemenda
starfsbrauta Fjölbrautaskólans í Garða-
bæ í Gallerí Tukt er opin alla virka
daga kl. 9-18. Aðgangur er ókeypis.
Gallery Tukt, Hinu húsinu við Pósthúss-
træti 3-5.
Spennumyndin Obsessed með
söngkonunni Beyonce Knowles
hlaut mestu aðsóknina vestanhafs
um síðustu helgi. Í henni leika
þau Knowles og Idris Elba hjón
sem lenda í miklum vandræðum
þegar geðsjúk kona ofsækir eigin-
manninn. Söguþræðinum svipar
nokkuð til Fatal Attraction frá
níunda áratugnum þegar Glenn
Close ofsótti Michael Douglas á
eftirminnilegan hátt.
Í öðru sæti yfir aðsóknarmestu
myndirnar var 17 Again með Zac
Efron og Fighting lenti skammt
undan í því þriðja. Í fjórða sætinu
var The Soloist með Jamie Foxx í
aðalhlutverki og heimildarmynd-
in Earth náði fimmta sæti.
Beyonce í
efsta sætinu
OBSESSED Beyonce Knowles og Idris
Elba leika aðalhlutverkin í Obsessed.
„Þetta gekk alveg ljómandi vel og
var bara býsna ánægjulegt,“ segir
fréttahaukurinn Kristinn Hrafns-
son. Hann var japanska ríkissjón-
varpinu innan handar á nýliðinni
kosninganótt en fjöldi erlendra
blaða- og fréttamanna voru staddir
hér á landi til að fylgjast með þess-
um sögulegu kosningum. Kristinn
taldi að rúmlega tíu Íslendingar
hefðu verið í svipuðu hlutverki og
hann: að aðstoða erlenda blaða-
menn og tökulið.
Japanar hafa verið gríðarlega
áhugasamir um íslensku efna-
hagskreppuna og fylgst grannt
með gangi mála. Japanarnir voru
á Grand hóteli og sáu sigurræðu
Jóhönnu Sigurðardóttur og sendu
meðal annars út beint snemma á
sunnudagsmorgninum. „Þetta var í
kringum fimmtán mínútna innslag
og var sýnt í einum vinsælasta sjón-
varpsþættinum,“ útskýrir Kristinn
en sökum tímamismunar var um að
ræða kvöldþátt í Japan.
Japanska tökuliðið var búið að
fylgjast með aðdraganda kosning-
anna í viku en hélt sig mest megnis
við höfuðborgarsvæðið. Kristinn
segir að samstarfið hafi gengið
stóráfallalaust, þrátt fyrir gjör-
ólíka menningarheima og siði. „Þeir
þurftu að læra töluvert af íslenskri
útsjónarsemi,“ útskýrir Kristinn
og þvertekur fyrir að íslenska leið-
in sé slæm, en bætir því við að það
hafi komið Japönum dálítið spánskt
fyrir sjónir að fá ekki heildarkjör-
sókn á kosninganótt. „Já, þetta fór
dálítið fyrir brjóstið á þeim.“
- fgg
Kristinn með japanska ríkissjónvarpinu
TÍU Í VINNU HJÁ ERLENDUM FRÉTTASTÖÐVUM Kristinn Hrafnsson var einn af íslensku
blaðamönnunum sem aðstoðuðu erlend tökulið og blaðamenn á kosninganótt.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM