Fréttablaðið - 28.04.2009, Page 26
22 28. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR STJÖRNUNNI 11. SÆTINU Í ÍSLENSKU ÚRVALSDEILDINNI SUMARIÐ 2009
GENGI Á VORMÓTUNUM
Sigrar Jafntefl i
1
4
Töp
GENGI SÍÐUSTU ÁRA 2008 2. sæti í B-deild 2007 9. sæti í B-deild 2006 5. sæti í B-deild 2005 2. sæti í C-deild 2004 10. sæti í B-deild 2003 4. sæti í B-deild
STEINÞÓR FREYR
ÞORSTEINSSON
HALLDÓR ORRI
BJÖRNSSON
DANÍEL
LAXDAL
AÐRIR
LYKILMENN
> LYKILMAÐURINN
Bjarni Þórður Halldórsson kom
frá Fylki til Stjörnunnar fyrir síðasta
tímabil eftir að hafa verið í láni hjá
Víkingi sumarið 2007. Hann þótti meðal
efnilegustu markvarða landsins en
meiðsli gerðu það að verkum að
hann átti erfitt uppdráttar síðustu
ár sín í Árbænum. Það mun
mikið mæða á honum í marki
Stjörnunnar í sumar og ljóst að
hann mun gegna lykilhlutverki í
liðinu í sumar og baráttu þess fyrir að
halda sæti sínu í efstu deild.
> X-FAKTORINN
Gervigrasið gæti skipt sköpum
fyrir Stjörnumenn en þeir spila alla
sína heimaleiki á slíku yfirborði. Það
gæti talið þeim til tekna þar sem þeir
eru óneitanlega vanari því að spila
á gervigrasi en þau lið sem koma í
heimsókn í Garðabæinn.
1
Stjarnan leikur nú í efstu deild karla í fyrsta
sinn eftir átta ára fjarveru. Síðast var liðið í
hóp bestu liða landsins árið 2000. Síðan þá
hefur vitanlega mikið breyst en liðið féll til að
mynda í C-deild árið 2004.
Mikið uppbyggingarstarf hefur átt sér stað
í Garðabænum undanfarin ár og til marks
um það er að liðið er nánast óbreytt frá
síðasta tímabili. Kári Ársælsson var í láni frá
Breiðabliki en er farinn aftur í Kópavoginn og
Zoran Stojanovic hefur siglt á önnur mið. En í
staðinn fengu Stjörnumenn Steinþór Frey Þor-
steinsson frá Breiðabliki sem skoraði sjö mörk
í sex leikjum fyrir Stjörnuna í Lengjubikarnum.
Bjarni Jóhannsson tók við liðinu fyrir síðasta
tímabil og kom því liðinu upp í fyrstu tilraun.
„Við erum ekki á kreppufylleríi og erum að
langstærstum hluta með sama lið og fór upp
í fyrra. Við förum inn í mótið fullir sjálfstrausts
og teljum okkur búna undir átökin,“ sagði
Bjarni.
„Við höfum tamið okkur ákveðinn leikstíl
og komum til með að spila samkvæmt 4-3-3
leikkerfinu í sumar með nokkuð djarfa sókn-
arbakverði. Það er alveg ljóst að við ætlum
ekki að leggjast í skotgrafir í sumar. Við erum
með tiltölulega hraða leikmenn og ætlum
að reyna að nýta þann hraða eins vel og
mögulegt er.“
Bjarni segir sína menn fara algerlega
óhrædda inn í sumarið. „Við ætlum ein-
faldlega að kýla á þetta og fara í sumarið af
fullum krafti. Við munum reyna að komast
eins langt og við mögulega getum og það
verður svo bara að koma í ljós hversu langt
við förum á því.“
Ætlum í sumarið af fullum krafti
N1-deild karla
Haukar - Valur 29-24
Mörk Hauka (skot): Andri Stefan 8 (12),
Sigurbergur Sveinsson 8/3 (15/4), Kári Kristján
Kristjánsson 5 (5), Gunnar Berg Viktorsson 3 (4),
Freyr Brynjarsson 2 (8), Stefán Rafn Sigurmanns-
son 1 (2), Einar Örn Jónsson 1 (2), Elías Már
Halldórsson 1 (3), Arnar Jón Agnarsson (1).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 16 (40/5,
40%), Gísli Guðmundsson 2/1 (2/1, 100%).
Hraðaupphlaup: 8 (Kári Kristján 3, Freyr 2, Andri
1, Elías Már 1, Stefán Rafn 1).
Fiskuð víti: 4 (Kári Kristján 2, Freyr 1, Gunnar 1).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Vals (skot): Arnór Þór Gunnarsson 8/5
(12/6), Ingvar Ákason 5 (8), Hjalti Þór Pálmason
4 (7), Hjalti Gylfason 2 (4), Heimir Örn Árnason
2 (5), Elvar Friðriksson 2 (5), Orri Freyr Gíslason 1
(1), Davíð Ólafsson (2), Sigurður Eggertsson (5).
Varin skot: Ólafur Gíslason 9 (28/3, 32%), Pálmar
Pétursson 5 (15, 33%).
Hraðaupphlaup: 3 (Heimir Örn 2, Hjalti 1).
Fiskuð víti: 6 (Heimir Örn 2, Hjalti Þór 1, Ingvar
1, Sigurður 1).
Utan vallar: 2 mínútur.
Haukar leiða í einvíginu, 1-0.
Enska úrvalsdeildin
Newcastle - Portsmouth 0-0
Lengjubikar karla
Fylkir - FH 1-2
Breiðablik - HK 2-1
Danska úrvalsdeildin
Midtjylland - SönderjyskE 2-4
Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn með Sönd-
erjyskE
Norska úrvalsdeildin
Bodö/Glimt - Brann 0-2
Ólafur Örn Bjarnason, Kristján Örn Sigurðsson
og Gylfi Einarsson voru allir í byrjunarliði Brann
en Ármann Smári Björnsson kom inn á sem
varamaður.
ÚRSLIT
HANDBOLTI Haukar eru komnir
með 1-0 forystu gegn Val í úrslit-
um úrslitakeppni N1-deildar karla
í handbolta. Haukar unnu í gær
sanngjarnan og sannfærandi sigur
á Val á heimavelli, 29-24, eftir mik-
inn baráttuleik þar sem mönnum
var oft heitt í hamsi.
Valsmenn byrjuðu mun betur í
leiknum og náðu fljótlega tveggja
marka forystu. Sú forysta hefði
getað orðið mun stærri en gest-
irnir fóru illa með mörg góð færi
og fljótlega vöknuðu heimamenn
til lífsins.
Birkir Ívar Guðmundsson,
markvörður Hauka, varði ekki
eitt einasta skot fyrstu átján mín-
útur leiksins en eftir að varnar-
leikur Hauka fór loksins að ganga
upp fylgdi allt annað í kjölfarið –
markvarsla, hraðaupphlaupsmörk
og forystan.
Haukar létu aldrei aftur af for-
ystunni en um miðbik síðari hálf-
leiksins fékk Einar Örn Jónsson
að líta rauða spjaldið fyrir að fara
með hönd í andlit Sigurðar Egg-
ertssonar. En sóknarleikur Vals
gekk afar illa og leikmenn liðsins
köstuðu boltanum ítrekað frá sér
– meira að segja í hraðaupphlaupi
þar sem þeir voru þrír gegn einum
varnarmanni Hauka.
Birkir Ívar átti mjög góðan leik
en varamarkvörðurinn Gísli Guð-
mundsson átti afar sterka inn-
komu undir lok leiksins. Arnór
Þór Gunnarsson hafði ekki stigið
feilspor á vítalínunni og því var
brugðið á það ráð að láta Gísla í
markið þegar Valsmenn fengu sitt
fimmta vítakast í leiknum.
Það herbragð tókst. Gísli varði,
Arnór náði svo frákastinu en aftur
varði Gísli úr dauðafæri. Hefði
Arnór skorað hefði munurinn verið
tvö mörk og tæpar fjórar mínútur
eftir. En eftir þetta gengu Haukar
endanlega frá leiknum og skor-
uðu þrjú af síðustu fjórum mörk-
unum.
„Þetta var fáránlegur leikur,“
sagði Valsarinn Heimir Örn Árna-
son. „Ég á ekki til orð yfir þessu.
Við gerðum örugglega fimmtán
tæknifeila og köstuðum boltanum
allt of oft frá okkur. Þetta var bara
einbeitingarleysi.“
Hann vonast þó til að sínir menn
standist álagið á heimavelli og geti
svo sótt sigur á Ásvelli. „Ef ekki
þá eigum við ekki skilið að vinna
titilinn. Við þurfum bara að taka
til í hausnum eins og alltaf á úti-
velli.“
Aron Kristjánsson var líflegur
á hliðarlínunni í leiknum og lét oft
heyra í sér. Hann sagði þó dóm-
gæslu leiksins þegar á heildina er
litið góða.
„Ég er gríðarlega ánægður með
sigurinn. Þetta var hörkuleikur
– mikil barátta og læti. Það var
þó svekkjandi að missa Einar í
rautt,“ sagði Aron og sagði það
mjög líklegt að hann færi í eins
leiks bann.
„En ég er sáttur við mína stráka.
Eftir fyrsta korterið komumst við
í gang í vörninni og Birkir Ívar
fór að verja. Mér fannst við mjög
beittir og mikil orka í liðinu.“
eirikur@frettabladid.is
Enn lifir útivallargrýla Valsmanna
Haukar unnu fimm marka sigur á Val, 29-24, í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta.
Valsmenn voru þá fyrst og fremst sjálfum sér verstir og fóru illa með fjölmörg góð tækifæri í leiknum.
FREYR Í GEGN Haukamaðurinn og fyrrum Valsarinn Freyr Brynjarsson er hér sloppinn í gegnum vörn Vals. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN