Fréttablaðið - 28.04.2009, Side 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
Í dag er þriðjudagurinn 28. apríl,
118. dagur ársins.
5.10 13.25 21.42
4.44 13.10 21.39
með ánægju*Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Um er að ræða
valdar dagsetningar og takmarkað sætaframboð.
Í dag frá kl. 12.00 til miðnættis býður Iceland Express
5.000 flugsæti, verð frá aðeins 8.692 kr., aðra leið
með sköttum og öðrum greiðslum!
Bókunartímabil: Í dag frá kl. 12.00 á hádegi til miðnættis í kvöld
Ferðatímabil: 1.–31. maí 2009
Áfangastaðir: London/Gatwick, Kaupmannahöfn, Berlín og Varsjá
Ekki missa af þessu einstaka tilboði, þú bókar á www.icelandexpress.is
Skráðu þig í netklúbbinn okkar, þannig færðu spennandi nettilboð,
þér að kostnaðarlausu.
flugsæti!
5.000
Aðeins í
12 klst.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Opið 07 til 01
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
BAKÞANKAR
Júlíu Margrétar
Alexandersdóttur
Við getum hlegið að mæðgunum Janet og Jane Cunliffe en móð-
irin, Jane, hefur varið meira en
tveimur milljónum í lýtaaðgerðir til
að líkja sem mest eftir æskuútliti
dóttur sinnar. Ýkjusögur, sönn sem
þessi er, gegna þó oft því hlutverki
að varpa ljósi á döpur örlög okkar
eigin tilveru.
DÓTTIR mín þráir það heitast að
horfa á Americas next top Model.
Ég hef reynt að leiða hana á aðrar
brautir, þótt ég skilji vel þenn-
an áhuga. Á hennar aldri var fátt
áhugaverðara en fegurðardrottn-
ingar og stelpurnar sem fengu hlut-
verk í kókosbolluauglýsingum og ég
kann ákveðið tímabil í sögu ford-
keppna utanbókar. Maður trúði því
heitt og innilega að það væri aðeins
einn toppur á hamingjunni: Að vera
fyrirsæta og svo eitt ljósmyndara-
námskeið í endann á farsælum ferli.
Það var prinsessusagan.
EN það var þá. Í dag er ég þrítug.
Maður hefur þroskast sitt hvað og
veit að vilji maður þoka jafnréttis-
baráttunni eitthvað áleiðis er ekk-
ert sérstaklega gjöfult að einblína
á útlit kvenna. Hvað þá að gera ekk-
ert til að beina sjónum ungra ómót-
aðra stelpna á aðra hluti en hver er
sætust. Það er ekki endalaust hægt
að kvarta yfir slakri jafnréttisbar-
áttu og gera svo ekkert sjálfur til að
sporna við útlitsdýrkun.
OG þá er ég komin að því hvern-
ig sagan um mæðgurnar bresku
er þegar allt kemur til alls aðeins
skrumskæling á okkar eigin veru-
leika. Það er fljótgert að athuga
þetta nánar. Farið til dæmis bara
inn á fésbók og sjáið hversu marg-
ar kunningjakonur ykkar góla um
alla veggi: „Hæ sæta, hvað segirðu
sæta!“ Hvað er þetta eiginlega.
Ekki eru karlmenn mærandi hver
annan fyrir að vera sætir um alla
veggi. Við erum komnar yfir þrí-
tugt en erum enn skrifandi við ein-
hver myndaalbúm hvað þessi og hin
sé „sæt“ og tökum andköf yfir feg-
urð hver annarrar.
ÞAÐ hefur nefnilega ekkert svo
svakalega mikið breyst frá því að
ég var unglingur. Enn er hópur
kvenna sem finnst fátt eftirsóknar-
verðara en að leika í jógúrtauglýs-
ingum og ein vinkona mín, sem
heldur hefur fitnað síðustu árin,
segir mér að eftir að hún varð held-
ur gildari sækist vinkonur ekki jafn
mikið eftir því að fá hana með sér á
Kaffibarinn. Þær vilja vera í grönn-
um félagsskap. Fullorðnar konur í
barbíleik þar sem keppni stendur
yfir um hver leikur í flestum aug-
lýsingum eða hefur módelast sem
mest er veruleikinn. Og alls ekkert
ólíkt Hollywoodýkjusagnatilverunni
í grunninn.
Ertu kannski
módel?