Fréttablaðið - 04.05.2009, Blaðsíða 4
4 4. maí 2009 MÁNUDAGUR
ÍTALÍA, AP Veronica Lario, önnur
eiginkona ítalska forsætisráðherr-
ans Silvio Berlusconi, hefur sótt um
skilnað frá eiginmanni sínum eftir
nítján ára hjónaband. Lario staðfesti
þetta í ítölskum fjölmiðlum í gær, í
kjölfar þess að dagblöðin La Stampa
og La Repubblica greindu frá því að
hún hefði ráðið sér lögmann til að
hefja lögformlegt skilnaðarferli.
„Ég neyddist til að grípa til þessa
bragðs,“ hefur La Stampa eftir
henni. Sem ástæðu vísar hún til
ítrekaðra tilrauna eiginmannsins
til að stíga í vænginn við sér yngra
kvenfólk.
Berlusconi sendi frá sér einnar
línu yfirlýsingu vegna málsins, svo-
hljóðandi: „Þetta er einkamál sem
tekur mig sárt, en tilheyrir einka-
sviðinu og ég tel ónauðsynlegt að
ræða um opinberlega.“
Fréttin af ákvörðun Lario um
að sækja um skilnað kemur viku
eftir að hún tjáði opinberlega reiði
sína yfir því að stjórnmálaflokkur
Berlusconis væri að raða sýningar-
stúlkum úr sjónvarpi og smástirn-
um á framboðslista flokksins fyrir
kosningar til Evrópuþingsins, sem
fram fara í júní. „Þessi hroki og
blygðunarleysi valdsins er móðg-
un við trúverðugleika allra kvenna,
skaðar kvenfólk almennt og sérstak-
lega þær konur sem hafa alltaf bar-
ist fyrir því að verja réttindi sín,“
sagði Lario.
Hún skammaðist líka yfir því
að eiginmaðurinn skyldi, að sögn,
hafa mætt í afmælisveislu átján ára
stúlku í Napolí á dögunum.
Áður en þau Berlusconi urðu
hjón var Veronica Lario leikkona.
Þau kynntust árið 1980 og giftust
tíu árum síðar. Þau eiga þrjú börn
sem eru nú öll í kringum tvítugt.
Berlusconi á auk þess tvö eldri börn
af fyrra hjónabandi.
Sögur um vandkvæði í hjónaband-
inu hafa verið á kreiki um allnokkra
hríð. Þau búa ekki lengur saman, og
reiðilestur Lario í síðustu viku var
ekki fyrsta tilvikið þar sem hún
kvartaði opinberlega yfir sögusögn-
um af kvennafari eiginmannsins.
Fyrir tveimur árum fékk Lario
opinbera afsökunarbeiðni frá
Berlusconi eftir að hún skrifaði La
Repubblica - sem er vinstrisinnað
blað og hefur lengi haft horn í síðu
Berlusconis - opið bréf, þar sem hún
kvartaði yfir ummælum sem eigin-
maður hennar hafði látið falla um
sjónvarpskonuna Mariu Carfagna.
„Ef ég væri ekki giftur myndi ég
giftast þér samstundis!“ er Berlus-
coni sagður hafa sagt við hana á
sínum tíma. Carfagna er núna ráð-
herra jafnréttismála í ríkisstjórn
Berlusconis. audunn@frettabladid.is
Forsætisráðherrahjón
Ítalíu í skilnaðarstríð
Eiginkona ítalska forsætisráðherrans Silvio Berlusconi hefur sótt um skilnað.
Það sem fyllti mælinn í hennar huga var meint áform flokks hans um að stilla
upp á framboðslista til Evrópuþingsins ungum fegurðardísum úr sjónvarpinu.
DREGST AÐ DÍSUM Silvio Berlusconi lætur vel að jafnréttisráðherranum og fyrrver-
andi fegurðardrottningunni Mariu Carfagna á flokksfundi í lok mars sl. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Enginn þeirra fjögurra
sem kepptu um að taka við for-
stjórastólnum af Warren Buffett,
forstjóra fjárfestingarfélagsins
Berkshire Hat-
haway, náði
prófinu.
Þetta kom
fram á laugar-
dag á árs-
fundi félags-
ins í heimaborg
Buffetts,
Omaha í
Nebraska-ríki
í Bandaríkjun-
um. Gestir bjuggust við að heyra
um útnefningu eftirmanns Buff-
etts. Af því varð ekki, að sögn
Bloomberg-fréttaveitunnar.
Þrír fjárfestanna eru stjórn-
endur hjá Berkshire Hathaway en
einn starfar ekki hjá því.
Stjórnendurnir áttu að skila
betri ávöxtun af eignasafni sínu
en bandaríska S&P 500-hluta-
bréfavísitalan í fyrra. Hún féll
um 38 prósent í fyrra og var
ávöxtun þeirra verri en það. - jab
WARREN BUFFETT
Enginn stóðst próf Buffetts:
Eftirmaður
ekki valinn í ár
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
23°
13°
16°
15°
13°
14°
15°
15°
16°
12°
22°
16°
15°
32°
16°
14°
21°
15°
Á MORGUN
3-8 m/s
3
MIÐVIKUDAGUR
5-10 m/s
4
8
8
6
9
8
8
6
6
6
4
6
3
3
6
6
13
8
8
2 4
6
88
2 4
6
8
6
5
HÆGT KÓLNANDI
NORÐANLANDS
Eftir daginn í dag
verða ríkjandi hjá
okkur norðlægir
loftstraumar og
því kólnar hægt og
bítandi nyrðra. Ég á
þó ekki von á frosti,
nema þá til landsins
að næturlagi. Í norð-
anáttinni má búast
við úrkomu nyrðra,
ekki mikilli þó, en
hún kann að verða
slyddukennd vestan
til á Norðurlandi og á
Vestfjörðum.
3
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
VIÐSKIPTI Tryggingasjóður banda-
rískra innistæðueigenda, FDIC,
tók yfir þrjá banka í síðustu viku.
Það sem af er ári hafa 32 bankar
orðið gjaldþrota þar.
Einn bankanna, Silverton
Bank, var í eigu sparisjóða á suð-
austurströnd Bandaríkjanna og
sá um greiðslumiðlun til 1.400
smábanka. Stærstur hluti af útlá-
nasafninu var til byggingaverk-
taka. Þegar fasteignaverð tók
að falla setti það óyfirstíganlegt
skarð í afkomu hans.
Gjaldþrot Silverton Bank er
það fimmta umsvifamesta vestan
hafs, sé horft til stærðar efna-
hagsreiknings bankans. - jab
Þrír bankar á hliðina:
Fimmti stærsti
bankinn í þrot
SJÁVARÚTVEGUR Þorskafli íslenskra
skipa var orðinn 113.205 tonn frá
byrjun fiskveiðiársins til 29. apríl
síðastliðins sem er 72,5 prósent
af leyfilegu aflamarki yfirstand-
andi fiskveiðiárs. Þetta er nokkuð
minna nýtingarhlutfall sé miðað
við sama tíma í fyrra þegar búið
var að veiða 75,6 prósent.
Ef borið er saman sama tímabil
á liðnum fiskveiðárum þá er hlut-
fallið nú nokkuð áþekkt því sem
verið hefur. Hæst var hlutfallið á
fiskveiðiárinu 2003/04 90,2 pró-
sent en lægst var það fiskveiði-
árið 1994/95 þegar það var aðeins
57,6 prósent. - shá
Veiði áþekk og fyrri ár:
Mjög gengur á
þorskkvótann
ATVINNUMÁL Fyrirtækið Mentor
ehf. hlaut „Vaxtarsprotann 2009“
sem er viðurkenning fyrir öfluga
uppbyggingu sprotafyrirtækis.
Þetta er annað árið í röð sem
fyrirtækið vex hraðast íslenskra
sprotafyrirtækja.
Mentor jók veltu sína milli
áranna 2007 og 2008 um næstum
160 prósent. Fyrirtækin Naust
Marine, Gogogic og Saga Medica
fengu einnig viðurkenningu fyrir
góðan vöxt á síðasta ári.
Það var Össur Skarphéðins-
son iðnaðarráðherra sem veitti
Vilborgu Einarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra og stofnanda
Mentor, viðurkenninguna. - shá
Vaxtarsprotinn 2009:
Mentor óx
hraðast í fyrra
SJÁVARÚT VEGUR Á s mu ndu r
Jóhannsson, sjómaður frá Sand-
gerði sem lögreglan hafði afskipti
af í fyrra þar sem hann stund-
aði veiðar kvótalaus, hefur sent
umboðsmanni Alþingis bréf þar
sem hann kvartar undan meðferð
málsins.
Hann var yfirheyrður 11. ágúst
í fyrra og játaði þá brot sitt en
síðan þá hefur ekkert gerst og er
bátur hans enn innsiglaður. „Þeir
vilja ekki kæra mig því þeir vita
að þá fer málið til mannréttinda-
dómstóls,“ segir hann. „Ég hef
sent lögreglunni í Keflavík bréf
tvívegis þar sem ég segi hana
vera handlangara stjórnmála-
manna. Þeir eru það, því einhver
er að banna þeim að hreyfa við
málinu svo ríkið komist ekki í
klandur.“
Mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna úrskurðaði á síðasta ári
að íslenska ríkinu bæri að breyta
fiskveiðistjórnunarkerfi sínu og
greiða tveimur sjómönnum bætur
sem handteknir höfðu verið fyrir
að veiða kvótalausir en síðan kært
þá málsmeðferð. Í ljósi þess hélt
Ásmundur til veiða, kvótalaus á
bát sínum frá Sandgerði. „Ég vil
að þeir taki innsiglið af svo ég
komist á sjó,“ segir hann og bætir
við að hann setji það ekki fyrir
sig að enginn sé kvótinn. - jse
Kvótalausi sjómaðurinn segir lögregluna ekki þora að hreyfa við máli sínu:
Vill innsiglið af bátnum
ÁSMUNDUR Í BÁTNUM SEM NÚ ER INN-
SIGLAÐUR Kvótalausi sjómaðurinn, eins
og Ásmundur er stundum nefndur, vill
fá innsiglið af bátnum svo hann komist
aftur á sjó ... kvótalaus.
LÖGREGLUMÁL Nokkrar skemmd-
ir urðu á leikskóla við Teigasel
á Akranesi á laugardagskvöld.
Fjórtán ára drengur hafði verið
að leika sér að því að kveikja
í púðurkerlingum með friðar-
kertum, en gleymdi einu kertinu
undir vegg leikskólans með þeim
afleiðingum að það kviknaði í
klæðningu.
Móðir drengsins játaði verkn-
aðinn fyrir hans hönd í gær. Allt
tiltækt slökkvilið var kallað að
leikskólanum til slökkvistarfs.
Í tilkynningu frá Akranesbæ
segir að anddyri leikskólans sé
býsna illa farið og að byrjað verði
að endurnýja það í dag. - sh
Eldsvoði á Akranesi:
Drengur kveikti
óvart í leikskóla
Vilja Japsý á Seyðisfirði
Um helmingur fullorðinna íbúa Seyð-
isfjarðar hafa sett nafn sitt á lista yfir
þá sem hvetja til þess að útlendinga-
stofnun veiti Japsý Jacob dvalarleyfi
hér. Japsý kom hingað til lands fyrir
tveimur árum og hefur getið sér gott
orð sem nuddari í bænum.
SEYÐISFJÖRÐUR
GENGIÐ 30.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,6007
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,95 127,55
188,33 189,25
168,92 169,86
22,676 22,808
19,321 19,435
15,769 15,861
1,2929 1,3005
190,21 191,35
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
SIGIN
GRÁSLEPPA
GRÁSLEPPAN KEMUR KL 13:00
NÝR RAUÐMAGI