Fréttablaðið - 04.05.2009, Blaðsíða 18
4. MAÍ 2009 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● bylgjublaðið
Með húsið í eftirdragi
Fátt er betra en að grilla úti í náttúrunni og skríða síðan inn í notalegt hús á hjólum. NORDICPHOTOS/GETTY
Fellihýsi verða von bráðar
algeng sjón á vegum landsins
enda ætla margir að ferðast
innanlands í sumar.
Að ýmsu er að hyggja við val og
viðhald á fellihýsum eins og blaða-
maður komst að þegar hann innti
Gunnar Jónsson hjá Seglagerðinni
Ægi eftir því hvað þyrfti helst að
hafa í huga.
„Fyrst og fremst er mikilvægt
að fólk geri sér grein fyrir því
hvers konar fellihýsi henti þörf-
um þess, en það getur verið mjög
mismunandi. Sumir ætla með felli-
hýsin um erfiða vegi og þá henta
minni hús, en aðrir eru með fjöl-
skyldur og hafa fyrst og fremst í
hyggju að gista á tjaldstæðum. Það
fólk velur yfirleitt stærri hús. Þá
er hægt að velja um ýmiss konar
fyrirkomulag inni í fellihýsun-
um og er mjög einstaklings-
bundið hvað hverjum hent-
ar.“
Fellihýsin eru seld
tilbúin til notkunar en
margir bæta aukabún-
aði við. „Algengast er
að fólk taki fortjöld og
sólarrafhlöður til að
hlaða rafgeyminn í hús-
inu. Síðan eru grjótgrind-
ur mjög vinsælar. Þær eru
festar á fellihýsið til að
koma í veg fyrir grjótkast á
milli bíls og vagns.“
Gunnar segir eingöngu
kraftmeiri fólksbíla og fjórhjóla-
drifna bíla geta dregið fellihýs-
in og mælir ekki með því að fólk
reyni að draga þau á bílum sem
ekki hafa burði til. Þá þarf bíllinn
að vera búinn tengikúlu og tilskild-
um rafmagnsbúnaði. „Undanfarið
höfum við svo verið að minna fólk
á að nú er komin skoðunarskylda á
öll fellihýsi og því þarf fólk sem á
eldri hús að fara með þau til skoð-
unar. Þetta fer eftir árgerðinni
og getur fólk fengið frekari upp-
lýsingar hjá Umferðarstofu. Hjá
okkur er svo boðið upp á viðhald
á öllu sem húsunum viðkemur og
mælum við með því að fólk líti við
og láti líta á hemlunar-, hjóla- og
rafmagnsbúnað áður en það leggur
í hann, enda mikilvægt að örygg-
ið sé í lagi fyrir ökumenn, farþega
og aðra í umferðinni.“
Þá mælir Gunnar með því að
fólk sem kaupir notuð fellihýsi
eða flytur þau inn sjálft gangi úr
skugga um að þau séu með lög-
legum gas- og rafmagnsbúnaði.
„Fellihýsin koma frá Ameríku
en þurfa að vera með Evr-
ópumerktan gas-
og rafmagns-
búnað.“ - ve
Fellihýsin eru mismunandi að stærð
og gerð og er hægt að laga að ólíkum
þörfum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Seglagerðin selur Pal-
omino-fellihýsi og eru
þau frá níu og upp í
fjórtán fet. MYND/SEGLA-
GERÐIN ÆGIR
„Grindavík er eitt öflugasta bæj-
arfélag landsins og með tilkomu
nýja tjaldsvæðisins sem opnað
verður í maílok erum við líka að
koma okkur á kortið sem öflugur
ferðamannabær en hér er margt
að sjá. Segja má að bæjarhátíð-
in Sjóarinn síkáti marki upphaf
á skemmtilegu sumri hér suður
með sjó,“ segir Þórarinn Sig-
valdason, framkvæmdastjóri Sjó-
arans síkáta sem haldin verður
að venju um sjómannadagshelg-
ina, að þessu sinni 5. til 7. júní.
Mikið verður lagt í hátíðina í
ár og enn meira gert til að gera
hana að fjölskylduskemmtun.
„Sjóarinn síkáti er ein öflugasta
bæjarhátíð landsins og má segja
að við séum fyrst á dagskrá í
sumarskemmtunum. Upphitun
hefst á fimmtudagskvöld og svo
verður fjör á föstudagskvöld með
tónleikum og skemmtunum. Á
laugardag er bærinn undirlagð-
ur af fjölskylduuppákomum. Má
þar nefna ratleik, leiktæki fyrir
börn, Skoppa og Skrítla skemmta,
smíðaverkstæði, töfrakarl og
Brúðubíllinn mæta og boðið upp
á andlitsmálun fyrir krakkana
Um kvöldið verður diskótek fyrir
unga fólkið og böll á skemmti-
stöðum bæjarins. Á sunnudag
verða hátíðarhöld á vegum sjó-
mannadagsráðs í Grindavík en
um helgina verður einnig sund-
mót, fótboltamót, fótboltaþrautir,
körfuboltamót og fleira. Endan-
leg dagskrá verður birt um miðj-
an maí á www.grindavik.is. -hs
Sjóarinn síkáti fer á kreik
Þórarinn kynnir hátíðina fyrir 6. bekk-
ingum í Grunnskóla Grindavíkur.
KYNNING
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Skíðabox
Pacific 600190 x 63 x 39 cm340 L54.900.-
TREX - HÓPFERÐAMIÐSTÖÐIN, HESTHÁLSI 10, 110 REYKJAVÍK,
SÍMI: 587 6000 WWW.TREX.IS INFO@TREX.IS
Hópferðabílar fyrir alls konar hópa!
SUMARSÓLSTÖÐUFERÐ 17. - 21. JÚNÍ: STRANDIR - DJÚP
5 daga rútu- og skoðunarferð með leiðsögn um heillandi vestfi rska
náttúru og söguslóðir í samvinnu við Ferðafélag Íslands. M.a. farið
um Snæfjallaströnd, Æðey, Kaldalón og Strandir. Útsýnissigling í
Reykjarfjörð og undir Hornbjarg. Einstök ferð.
VERÐ. 70.000 KR OG MIKIÐ INNIFALIÐ. PANTIÐ STRAX.
Bylgjan stendur nú fyrir þema-
viku sem tileinkuð er ferðalög-
um innanlands. Dagskrárgerðar-
fólk Bylgjunnar mun á hverjum
degi flytja hlustendum fræðandi,
upplýsandi og skemmtilegt efni og
ferðalög um Ísland verða skoðuð
frá öllum mögulegum hliðum. Til
að gera þemavikunni enn hærra
undir höfði hefur Bylgjan ráðist
í útgáfu á blaði þessu, sem inni-
heldur greinar, viðtöl og kynning-
ar á útivist og ferðalögum innan-
lands, þar sem reynt er höfða til
sem flestra.
Spennandi sumar fram undan
Ferðalög innanlands eru til umfjöllunar í sérstakri þemaviku Bylgjunnar.
Útgefandi: Bylgjan
Heimilisfang: Skaftahlíð 24 , 105 Reykjavík
Vefsíða: www.bylgjan.is
Ritstjóri: Roald Viðar Eyvindsson
Ábyrgðarmaður: Kristján Þórir Hauksson
Auglýsingar: Auglýsingadeild 365.