Fréttablaðið - 04.05.2009, Page 13

Fréttablaðið - 04.05.2009, Page 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 LITIR í málningardósum eru ekki alltaf eins á litaspjöldum og á vegg. Því ættu þeir sem huga að því að mála að fá pruf- ur. Þannig er hægt að máta nokkra liti á þá veggi sem á að fríska upp á. „Segja má að hjónarúmið sé fyrsta mublan á heimilinu,“ segir Eygló þegar hún er beðin að lýsa uppá- haldshlut. „Dýnuna keypti maður- inn minn þegar hann var að flytja heim frá Bandaríkjunum. Það var ekki mikið annað sem hann kom með, fyrir utan tölvuna. En hann lagði á sig að bera saman gæði dýna í nokkrum búðum og var ægilega ánægður að koma með þessa heim til að leggja í búið sem við vorum þá að stofna. Enn erum við sannfærð um að dýnan sé ein af bestu fjárfestingum sem við höfum lagt í.“ Eygló segist þó alltaf hafa dreymt um rómantískt rúm með hvítri grind og hafa leitað að henni árangurslaust, meðal annars á húsagnasíðum á netinu. Allt í einu gerðist undrið. „Við bjuggum í Kópavoginum um tíma en prófuðum að flytja til Vestmannaeyja og leigðum þar íbúð með innbúi til að byrja með. Svo ákváðum við að setjast þar að, keyptum hús og náðum í búslóðina í bílskúrinn okkar í Kópavogi sem einn nágranni hafði keypt. Hann var með opið inn í sinn bílskúr við hliðina akkúrat þegar við vorum að tæma okkar gamla. Sé ég þá ekki, á bak við fullt af dóti hjá honum, þessa fínu rúmgafla sem dóttir hans var hætt að nota. Flutninga- bíllinn var alveg að fara úr hlað- inu en ég gat haldið honum þar til búið var að ná sambandi við dótt- urina. Hún seldi okkur grindina á mjög sanngjörnu verði og ég er alsæl með rúmið. Svo af því ég er hrifin af hinum bandaríska sveita- rómantíkurstíl ætlaði ég alltaf að fá mér bútasaumsteppi og var mjög hamingjusöm þegar ég fann eitt ódýrt í Rúmfatalagernum.“ gun@frettabladid.is Leitaði gafla á netinu en fann þá í skúr nágranna Rúmið hennar Eyglóar Harðardóttur alþingismanns á sína sögu enda er það í hvað mestu eftirlæti af innanstokksmunum heimilisins. Þó sefur hún sjaldan í því eftir að hún komst á þing. Eygló Harðardóttir með dæturnar Snæfríði Unni og Hrafnhildi Ósk Sigurðardætur. MYND/ÚR EINKASAFNI s g Mjódd UPPLÝSINGAR O Næsta námskeið hefst 8. maí n.k. Síðustu dagarnir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.