Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.05.2009, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 04.05.2009, Qupperneq 26
 4. MAÍ 2009 MÁNUDAGUR Eigendur ferðavagna eiga tíðum erindi á Strandgötu 75 í Hafnar- firði í fyrirtækið Bílaraf sem selur útileguvarning, meðal ann- ars öfluga hitara. Kristinn Þór Jóhannesson er innkaupa- og markaðsstjóri. „Við erum hér með alhliða þjónustu fyrir allar tegundir hjólhýsa, tjaldvagna, fellihýsa og húsbíla,“ lýsir Kristinn Þór. Kveðst þó ekki selja vagnana sjálfa heldur gashitakerfi fyrir þá og sjá um ísetningu á þeim. „Flestir ferðavagnar og húsbílar eru hitaðir með gasmiðstöðvum og algengasta merkið er Truma frá Þýskalandi. Við flytjum þær inn og einnig aðrar sænskættað- ar sem heita Alde,“ segir hann. „Báðar gerðirnar geta enst í tugi ára með eðlilegu viðhaldi.“ Kristinn segir vinsælt að koma með vagna í allsherjar yfirferð til Bílarafs áður en haldið er í útileg- urnar á vorin. „Við bjóðum upp á gaslekaprófun og þrýstiprófun og förum yfir bremsur. Gerum sem sagt allt klárt fyrir sumarið.“ Bílaraf er 45 ára gamalt fyrir- tæki. Það skipti um eigendur fyrir hálfu öðru ári er það sameinaðist Gasþjónustunni og flutti af Auð- brekku í Kópavogi á Strandgöt- una í Hafnarfirði. Þar er versl- un og verkstæði með gott aðgengi því planið er stórt. Í versluninni eru kælibox og ísskápar í vagn- ana, borð og stólar. „Við erum hér með alls konar vörur tengdar úti- legumenningu, bæði fyrir fólk og vagna,“ áréttar Kristinn. Gasþjónusta er stór liður í starfsemi Bílarafs, en einnig gasvélaviðgerðir og lagnir. „Svo erum við líka með gasskynjara,“ segir Kristinn. „Það er vissara fyrir fólk að hafa þá.“ - gun KYNNING Nú fara tvíhjóla fararskjótar að sjást í auknum mæli með hækkandi sól og blómum í haga. Hjá Hjólaspretti er hægt að láta fara yfir og lagfæra hjól innan sólarhrings. Samkvæmt dagatalinu er sumar- ið í garð gengið á Íslandi þó svo að veðurfarið fylgi ekki endi- lega dagsetningum. Hins vegar er ekki ráð nema í tíma sé tekið og því full ástæða til að gera hjól- in klár fyrir betri færð og aukna notkun, þótt vissulega noti sumir þau allan ársins hring. „Í fyrra var mikið um hjólavið- gerðir en hjólasala hefur verið töluverð í allan vetur og viðgerð- irnar hafa fylgt með eins og í fyrra. Þær hafa jafnvel aukist, ef eitthvað er,“ segir Rúnar Ólafur Emilsson hjá Hjólaspretti í Hafn- arfirði og bætir við: „Nú leggjum við hins vegar mikla áherslu á að klára viðgerðir og höfum verið að keppast við að klára þær innan sólarhrings. Þá er hægt að koma með hjólið og fá það strax daginn eftir fyrir klukkan sex. Því hefur verið töluverður handagangur í öskjunni upp á síðkastið,“ segir Rúnar og brosir í kampinn. „Allan síðasta vetur og núna hef ég orðið var við að fólk nýtir sér í auknum mæli hjólreiðar sem fararmáta og hreyfingu. Fólk er til dæmis að græja sig upp til þess að hjóla í vinnuna,“ bætir hann við. Hjá Hjólaspretti er auk við- gerðarþjónustu boðið upp á úrval reiðhjóla og aukahluta sem þeim fylgja. Þar má finna góðan hjól- reiðafatnað. „Þetta er fatnað- ur sem andar vel, flækist ekki í hjólinu og hentar almennt vel til hjólreiða. Fólk spáir orðið meira í hentugan klæðnað fyrir hjól- reiðar svo hjólið nýtist sem best,“ segir Ólafur. En hvað þarf helst að laga? „Helstu viðgerðirnar eru á vírum og börkum sem þarf að laga eða skipta út. Þetta stirðnar upp yfir veturinn ef hjólin eru úti. Síðan eru það gírar, slöngur, dekk og hnakkar sem þarf oft að dytta að. En ef skipta þarf um mikið af aukahlutum þá borgar það sig oft ekki, sér í lagi ef hjólið er orðið gamalt,“ útskýrir Rúnar og nefn- ir að við fyrstu sýn sé metið hvort það svari kostnaði að gera við hjólin. Hjólasprettur hét áður Hjá Ása og er orðið um átján ára gamalt fyrirtæki. „Sá sem var með þetta áður hafði verið í hjólabransanum í áratugi en við höfum verið með Hjólasprett í tæp tvö ár,“ segir Rúnar og bætir við að þar sé allt til alls þegar kemur að hjólreiðum. „Við erum með fjölbreytt úrval hjóla, bæði bæjarhjól og keppn- ishjól. Millidýru hjólin hafa verið vinsæl og er fólk oft að kaupa þau til að hjóla í vinnuna.“ Rúnar lumar vissulega á góðum ráðum þegar kemur að umhirðu reiðhjóla. „Gott er að halda hjól- inu hreinu og bóna það reglu- lega. Þannig er hægt að hrinda frá drullu og fara vel með stell- ið. Síðan eru til ýmsar vörur er tengjast viðhaldi og má þar nefna smurningu á keðju og síl- ikon á dempara. Mikilvægt er að geyma hjólið inni en þau fara illa á að standa mikið úti. Þá safnast raki í barkana, vírar standa fastir og þá hætta gírar að virka og allt stífnar upp. Þannig má líka koma í veg fyrir ryð í stelli. Ef hjólið hefur staðið óhreyft í einhvern tíma er líka gott að láta yfirfara það til að koma í veg fyrir vand- ræði og jafnvel slys,“ segir hann ákveðinn en meðalviðgerð kostar ekki mikið. - hs Tekin í gegn fyrir sumarið Rúnar Ólafur hjá Hjólaspretti býður upp á að lagfæra hjól innan sólarhrings. Hann hefur orðið var við að fólk nýti sér hjól í aukn- um mæli sem fararskjóta. FRÉTTABLAÐIÐ/HREFNA Gunnlaugur Ingibergsson og Kristinn Þór Jóhannesson í Bílarafi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Vörur fyrir fólk og vagnaStilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Ferðabox Pacific 100139 x 90 x 39 cm370 L43.900.- Sjáðu hvað Reykjavík er skemmtileg Af toppi Hallgríms- kirkjuturns sérðu að borgin býður ýmsa þjónustu og margt að skoða og upplifa eins og til dæmis að taka strætó í Laugardalinn, rölta um Grasagarðinn, kíkja í Húsdýragarðinn eða í fjörið í Fjölskyldugarðinum; nema þú viljir skoða í búðarglugga og versla á Laugaveginum eða fara í Kolaportið og í leiðinni koma við á listasafni eða fara á Þjóðminjasafnið eða skreppa í sund og láta líða úr þér í heitum potti eða gufu og fá nudd og dekur áður en þú ferð út að borða á flottan stað eða Bæjarins bestu og skoðar síðan mannlífið og alla möguleikana sem þú hefur á að skemmta þér í höfuðborg Íslands. Allt að gerast í borginni. ÍS LE N S K A SI A .I S H B S 46 06 6 04 /0 9 Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Hjólafestingar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.