Fréttablaðið - 04.05.2009, Side 28

Fréttablaðið - 04.05.2009, Side 28
 4. MAÍ 2009 MÁNUDAGUR12 ● fréttablaðið ● bylgjublaðið Í Ellingsen er ríkulegt úrval af veiði-, ferða- og úti- vistarvörum. Í ferðatækjadeildinni má finna Fleet- wood og A-liner fellihýsi, Hymer og Adria hjólhýsi, Montana tjaldvagna og ýmsa aukahluti. Í veiðideildinni eru stangveiðivörur frá Loop og Abu Garcia og í skotveiðina má finna vörur eins og Browning Remington, Tikka, Sako, Sauer og Winchester. Þá er mikið úrval af útivistarfatnaði frá Columbia, Devold og Didriksson sem eru allt leiðandi vörumerki á sínu sviði. Ferða- og gasvörur skipa einnig stóran sess í versluninni og hefur Ellingsen um árabil verið um- svifamesti einstaki söluaðili á gasgrillum á Íslandi, en þar fást meðal annars hentug ferðagrill. Í tilefni sumarkomunnar má einnig geta þess að Ellingsen hefur í mörg ár verið leiðandi söluaðili á fánastöng- um sem eru innfluttar frá Formenta í Svíþjóð. Með hjálp heimasíðunnar www.husaskipti.is er ódýrara að ferðast innanlands. „Markmiðið er að fólk geti farið í sumarfrí án þess að greiða mikið meira en þegar það er heima hjá sér,“ segir Martin Lund Olesen forritari um vefsíðuna www.husa- skipti.is sem hann forritaði. Hug- myndina eiga Steinn Kári Steins- son og kærasta hans, Bára Odds- dóttir, en Martin, sem er Dani, segist strax hafa fallið fyrir inn- taki heimasíðunnar. „Hugmyndin byggist á þeirri trú að þrátt fyrir kreppu hætti fólk ekki að gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldu sinni í sumarleyf- inu. Með milligöngu síðunnar geta fjölskyldur fundið aðrar fjölskyld- ur og skipst á húsum innanlands,“ segir hann. Spurður hvort hann telji að hug- myndin eigi eftir að ganga vel í Ís- lendinga segist hann vona að svo verði. „Svona þjónusta er til um allan heim en ég veit ekki til þess að þetta hafi verið til hér fyrr en núna. Þetta gengur alls stað- ar annars staðar svo ég trúi því að þetta gangi hér líka. Á Íslandi þekkja líka allir alla, það er oft- ast hægt að finna einhvern í gegn- um aðra og fyrst fólk getur treyst hvert öðru í útlöndum hlýtur það að vera hægt hér líka. Sjálfur myndi ég frekar leyfa ókunnugri fjölskyldu að búa í mínu húsi en að láta það standa tómt í kannski þrjár vikur.“ Hann bætir því við að þessi þjónusta sé ókeypis, þannig komist fjölskyldur í sam- band hver við aðra en sjái sjálf- ar um lyklaskipti og þess háttar. „Við hjálpum bara fólki að komast í samband við hvert annað en eftir það taka fjölskyldurnar við.“ Sjálfur hefur Martin ferðast mikið um Ísland og hefur meðal annars keyrt hringinn þrisvar sinnum. Hann segir margt fal- legt að skoða og hvetur Íslend- inga til að horfa sér nær þegar kemur að ferðalögum. „Hing- að til hefur hugsunin um frí ein- ungis snúist um útlönd í margra hugum en vegna kreppunnar mun það líklega breytast og það væri skemmtilegt ef útlendingi tækist að fá ykkur til að ferðast meira um landið ykkar.“ - iáh Skipst á húsum í fríinu Húsaskipti gætu hentað þeim sem vilja hafa það náðugt í fríinu. NORDICPHOTOS/GETTY Martin segir þjónustuna nýjung hér- lendis. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Nú er hægt að skiptast á sumarbústöðum og húsum í sumar fyrir tilstuðlan heimasíðunnar www.husaskipti.is. Myndin tengist greininni ekki en hún sýnir sumarhús frá Trésmiðju Heimis ehf. MYND/TRÉSMIÐJA HEIMIS EHF. Ellingsen rekur tvær verslanir. Önnur er að Fiskislóð 1 í Reykjavík en hin að Tryggvabraut 1-3 á Akureyri. Ferðavörur og grill í úrvali KYNNING „Landsmenn eru ákveðnir í að ferðast innanlands í sumar,“ segir Kristín Anný Jónsdóttir, sölustjóri hjá Víkurverki í Kópa- vogi, sem selur hjólhýsi, fellihýsi, fylgihluti og fleira. Mikið hefur verið að gera hjá fyrirtækinu upp á síðastkastið enda margir farnir að gera vagnana sína klára fyrir sumarið. „Hér seljum við hjólhýsi og húsbíla frá umboðum eins og LMC, Hobby, Fendt, Buerstner, Knaus og Rimor. Og ánægjulegt er að segja frá því að við bjóð- um upp á alveg nýja tegund af fellihýsum frá Coachman,“ segir Kristín Anný og bætir við að fyrirtækið sé einnig með not- aða ferðavagna sem seljist vel. „Í ríkjandi árferði hefur reynd- ar verið lítið um innflutning á nýjum ferðavögnum.“ Hún segir því tilvalið að kíkja á vagna fyrir sumarið, þar sem margar tegund- ir séu þegar uppseldar. Kristín Anný bendir jafn- framt á að svo megi alltaf breyta og bæta ferðavagnana, til dæmis með því að kaupa í þá smáhluti eins og skyggni og fortjald og aðra fylgihluti, sem fáist í góðu úrvali hjá fyrirtækinu. „Við leggjum mikið upp úr því að eiga aukahluti á reiðum höndum og rekum því öflugt verkstæði sem getur séð um allt almennt viðhald á ferðavögnum.“ Loks beinir hún þeim tilmæl- um til eigenda ferðavagna af ár- gerðinni 2005 eða eldri að nú þurfi þeir að láta skoða þá hjá Frumherja rétt eins og alla aðra bíla. - vg Fylgihlutir í ferðavagna „Sala á útleigukortum gefur góða vísbendingu um að sumarið 2009 verði mikið ferðasumar hjá eigendum ferðavagna,“ segir Kristín Anný. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KYNNING • Rafhlaðan endist í allt að 15 tíma. Hentar vel í útileguna, sumarbústaðinn og í ferðalagið. Þú stingur símanum eða iPod í samband við Power2Charge og hleður af rafhlöðunni • 6 millistykki fyrir t.d. síma, iPod, myndavélar og önnur 5V tæki • Snúran er í litlu handhægu kefli • Millistykki geymd í gúmmíbandi • Ferðapoki Hleðslutæki með innbyggðri rafhlöðu Hleður síma, iPod og myndavélar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.