Fréttablaðið - 04.05.2009, Síða 42
18 4. maí 2009 MÁNUDAGUR
> LYKILMAÐURINN
Auðun Helgason var besti
leikmaður Íslandsmótsins að mati
blaðamanna Fréttablaðsins og stjórnaði
bestu vörn deildarinnar með glæsibrag.
Mikilvægi Auðuns fyrir Framliðið
verður ekki minna í sumar þar
sem hann hefur missti sína
hægri hönd, Reyni Leósson, í Val.
Auðun fær væntanlega ungan og
fljótan varnarmann sér við hlið í
sumar og leiðtogahlutverk hans
hjá Framliðinu hefur aldrei verið
stærra en einmitt í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR FRAM 6. SÆTINU Í PEPSI-DEILDINNI SUMARIÐ 2009
GENGI SÍÐUSTU ÁRA 2008 3. sæti í A-deild 2007 7. sæti í A-deild 2006 1. sæti í B-deild 2005 9. sæti í A-deild 2004 8. sæti í A-deild 2003 7. sæti í A-deild
AÐRIR
LYKILMENN SAMUEL TILLEN
HJÁLMAR ÞÓR-
ARINSSON
HANNES ÞÓR
HALLDÓRSSON
GENGI Á VORMÓTUNUM
Sigrar Jafntefl i Töp
4
4
> X-FAKTORINN
Þorvaldur Örlygsson náði
frábærum árangri á sínu fyrsta ári
með Framliðið en liðið náði þá sínum
besta árangri í sautján ár. Nú reynir á
hvort Þorvaldi takist að halda Fram-
liðinu í hópi efstu liða.
2
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ er nýr framhaldsskóli sem hefur starfsemi haustið 2009
og starfar eftir nýjum lögum um framhaldsskóla. Skólinn kennir sig við auðlindir og umhverfi
í víðum skilningi og verða þær áherslur samfléttaðar við skólastarfið.
Boðið er upp á metnaðarfullt nám á fimm námsbrautum:
• Almenn námsbraut
• Íþrótta- og lýðheilsubraut
• Listabraut
• Félags- og hugvísindabraut
• Náttúruvísindabraut
Áhersla verður lögð á árangursríka kennsluhætti og sveigjanlega stundatöflu auk öflugrar
uppbyggingar á félagslífi nemenda, þar sem fyrstu nemendur móta hefðirnar.
Innritun fyrir haustönn 2009
Innritun fyrir haustönn 2009 fer fram dagana
15. maí – 11. júní 2009.
Á haustönn 2009 verða nemendur einungis
innritaðir á fyrsta ár.
Nánari upplýsingar á vef skólans: www.fmos.is
eða í síma 864 9729
Nýr framhaldsskóli
í hjarta Mosfellsbæjar
Opinn kynningarfundur
Opinn kynningarfundur verður haldinn um skólann í Listasal Mosfellsbæjar
í Kjarna, Þverholti 2 Mosfellsbæ, þriðjudaginn 5. maí kl. 20:00.
Allir sem hafa áhuga á að kynna sér nýjan framhaldsskóla Mosfellinga
eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum.
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
4
5
4
.0
0
3
Lið Fram kom mörgum á óvart með því að ná
3. sæti á sínu fyrsta ári undir stjórn Þorvaldar
Örlygssonar. Liðið komst í Evrópukeppni og að
þessu sinni er meiri pressa á liðinu en í fyrra að
vera meðal efstu liða.
„Markmiðin eru ekkert ólík því sem þau hafa
verið önnur sumur. Það er að mæta til leiks,
reyna að byrja vel, koma sér inn í mótið og
vona að gengið verði gott,” segir Þorvaldur
Örlygsson, þjálfari Fram. Liðið er búið að
missa tvo lykilmenn. „Reynir Leósson og Paul
McShane hafa báðir farið í burtu. Þeir áttu
báðir mjög gott tímabil með liðinu í fyrra eins
og allt liðið í heild. Þeir hjálpuðu okkur og við
hjálpuðum þeim og nú er bara spurning hvort
aðrir taki við,“ segir Þorvaldur. „Liðið spilaði vel í
fyrra og þá sérstaklega í seinni umferðinni. Það
var engin ein ástæða fyrir því heldur voru menn
bara duglegir. Það vilja allir vera í toppbaráttu
og enginn vill vera í fallbaráttu en það er voða-
lega erfitt að sjá hvernig þetta verður fyrr en
það er komið að leikdegi. Það eru nokkur lið,
og kannski við þar á meðal, sem geta blandað
sér í baráttuna á hvorum endanum sem er ef
hlutirnir ganga ekki upp,“ segir Þorvaldur.
„Við verðum með unga og spræka stráka og
maður veit aldrei hvernig þeir bregðast við
þegar á móti blæs ef svo ber undir. Maður
vonar það besta og reynir að njóta þess að fá
að taka þátt í mótinu,“ segir Þorvaldur, sem
segist vera í svipaðri stöðu og á sama tíma fyrir
ári. „Við komum blint inn í mótið í fyrra og ég
held að það sé eins núna. Þetta verður þá þeim
mun skemmtilegra og erfiðara verkefni,“ segir
Þorvaldur.
Skemmtilegt og erfitt verkefni
Enska úrvalsdeildin í fótb.
CHELSEA - FULHAM 3-1
1-0 Nicolas Anelka (0.), 1-1 Erik Nevland (3.), 2-1
Florent Malouda (9.), 3-1 Didier Drogba (52.).
WIGAN ATHLETIC - BOLTON 0-0
MIDDLESBROUGH-MAN.UNITED 0-2
0-1 Ryan Giggs (24.), 0-2 Park Ji-Sung (50.).
MANCHESTER CITY - BLACKBURN 3-1
1-0 Felipe Caicedo (26.), 2-0 Robinho (33.), 3-0
Elano (46.), 3-1 Keith Andrews (65.).
PORTSMOUTH-ARSENAL 0-3
0-1 Nicklas Bendtner (12.), 0-2 Nicklas Bendtner
(40.), 0-3 Carlos Vela (55.).
STOKE CITY - WEST HAM UNITED 0-1
0-1 Diego Trista¡n (32.).
TOTTENHAM - WEST BROMWICH 1-0
1-0 Jermaine Jenas (42.)
LIVERPOOL - NEWCASTLE 3-0
1-0 Yossi Benayoun (21.), 2-0 Dirk Kuyt (27.), 3-0
Lucas (87.)
SUNDERLAND-EVERTON 0-2
0-1 Steven Pienaar (47.), 0-2 Marouane Fellaini
(70.)
HANDBOLTI Haukar eru einum
sigri frá því að vinna Íslands-
meistaratitilinn annað árið í röð
eftir öruggan 28-25 sigur á Val í
þriðja leik liðanna á Ásvöllum á
laugardaginn. „Þeir áttu fá svör
við þessari framliggjandi vörn
hjá okkur,“ sagði Aron Kristjáns-
son, þjálfari Hauka.
Birkir Ívar Guðmundsson varði
mjög vel í marki Hauka og þeir
Kári Kristjánsson (7 mörk) og
Elías Már Halldórsson (6 mörk)
voru atkvæðamestir í sókninni.
Elvar Friðriksson (6 mörk) og
Ingvar Árnason (8 mörk) voru í
sérflokki hjá Val.
Haukar geta tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn í Vodafone-höll-
inni á þriðjudagskvöldið. - óój
Lokaúrslit N1 deildar karla í handbolta um helgina:
Haukar komnir í 2-1
FÓTBOLTI Þór/KA vann
Lengjubikar kvenna eftir
3-2 sigur á Stjörnunni í
úrslitaleik á laugardag-
inn og Valur tryggði sér
sigur í Meistarakeppni
kvenna eftir 2-1 sigur á
KR í gær.
Rakel Hönnudótt-
ir tryggði Þór/KA sinn
fyrsta stóra titil með
sigurmarki í uppbót-
artíma eftir að Mateja
Zver hafði jafnaði leik-
inn tvívegis fyrir Þór.
Björk Gunnarsdóttir
og Inga Birna Frið-
rjónsdóttir komu
Stjörnunni tvívegis
yfir.
Guðný Petrína
Þórðardóttir tryggði
Val 2-1 sigur á KR á
89. mínútu í úrslita-
leik Meistarakeppni
kvenna í gær. Rut
Bjarnadóttir kom KR
yfir en Katrín Jóns-
dóttir jafnaði leikinn.
- óój
Tveir úrslitaleikir í kvennafótboltanum um helgina:
Fyrsti titill Þór/KA
RAKEL HÖNNUDÓTTIR Fyrir-
liði Þór/KA með sigurlaun-
in í Lengjubikarnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
FÓTBOLTI Manchester United er
áfram með þriggja stiga forskot
á toppi ensku úrvalsdeildarinnar
eftir 2-0 sigur á Middlesbrough á
útivelli á laugardaginn. Liver-
pool vann öruggan 3-0 sigur
á Newcastle í gær og fylg-
ir United sem skugginn en
ensku meistararnir í Unit-
ed eiga áfram leik inni á
þá.
„Þetta hefði getað
verið stærri sigur en við
erum enn með í barátt-
unni. Við verðum bara að
halda áfram að vinna okkar
leiki og sjá síðan til hvernig
Manchester-menn ráða við
pressuna,“ sagði Rafel Ben-
itez, stjóri Liverpool eftir 3-
0 sigur á Newcastle. Yossi
Benayoun og Dirk Kuyt
skoruðu í fyrri hálfleik og
Lucas Leiva innsiglaði sig-
urinn í lokin.
Newcastle hefur enn
ekki unnið undir stjórn
Alan Shearer og hann þurfti
að horfa upp á Joey Bart-
on fá enn á ný rautt spjald
fyrir hrottatæklingu.
„Örlög okkar ráðast ekki í
þessum leik heldur í næstu
tveimur heimaleikjum og sá næsti
er á móti Middlesbrough,“ sagði
Shearer.
Ryan Giggs kom Manchest-
er United yfir með
flottu marki á móti
Middlesbrough og
létti pressunni af
liðinu. „Hvað er
hægt að segja um
þennan mann. Hann
er frábær og þetta mark
hans tryggði okkur sigur-
inn,“ sagði Alex Fergu-
son, stjóri Manchester
United. Þetta var góð vika
hjá Giggs sem var valinn
leikmaður ársins, lék sinn
800. leik og skoraði síðan
mikilvægt mark.
Arsenal og Chelsea
unnu bæði góða sigra á
laugardaginn, Arsenal
vann 3-0 sigur á Ports-
mouth þar sem Arsene
Wenger leyfði sér að
hvíla átta byrjunarliðs-
menn og Chelsea vann
3-1 sigur á Fulham þar
sem Guus Hiddink gagn-
rýndi sína menn og sagði
að þeir kæmust ekki upp
með sama einbeitingar-
leysi á móti Barcelona í
Meistaradeildinni í vik-
unni. ooj@frettabladid.is
Ekkert breyttist
Öll toppliðin unnu sína leiki í ensku úrvalsdeildinni
um helgina og United færðist skrefi nær titlinum.
GÓÐ VIKA Ryan Giggs hjá
Manchester United. NORDICPHOTOS/
GETTY