Fréttablaðið - 12.05.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 12.05.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI ÞRIÐJUDAGUR 12. maí 2009 — 112. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG 34% 74% Fr ét ta bl að ið M or gu nb la ði ð Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Fréttablaðið er með 117% meiri lestur en Morgunblaðið Allt sem þú þarft... VALBORG GUÐJÓNSDÓTTIR Með svarta beltið eins og eiginmaðurinn og synirnir • heilsa Í MIÐJU BLAÐSINS Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 HJÁLPARVAKT TANNLÆKNA mælist vel fyrir hjá barnafjölskyldum landsins. Síðasta laugardag fengu yfir 60 börn ókeypis tannlæknaþjónustu. Þjónustan verður næst í boði laugardaginn 23. maí. Lokað verður yfir sumarið. Í Grafarvoginum býr einhver hættulegasta fjölskylda landsins en á heimilinu eru fjórir af fimm fjölskyldumeðlimum með svarta beltið í karate. Þetta eru þau Val-borg Guðjónsdóttir, Willem Ver-heul, Snæbjörn og Magnús Valur. Þótt ótrúlegt megi virðast þá eru ekki nema sex ár síðan fjölskyldan byrjaði að æfa.„Synir okkar tveir, sem í dag eru tólf og fimmtán ára, byrjuðu að æfa með Fjölni og fylgdumst við for-eldrarnir með. Þeir fóru svo fljót-lega að vinna til verðlauna og smit-uðu okkur hjónin sem byrjuðumskömmu síða Wi innt eftir því hvernig það kom til að fjölskyldan fór að æfa. „Líf okkar tók þarna óvænta stefnu og hefði ég frekar átt von á því að verða send út í geim með geimskutlu en að taka svarta beltið í karate,“ bætir hún við og hlær.Hún segir marga öfunda fjöl-skylduna af því að eiga þetta sam-eiginlega áhugamál. „Þetta er líka svakalega góð íþrótt sem reynir á allan líkamann. Í kata, sem er ímyndaður bardagi, þarf að spenna alla vöðva á tiltekinn hátt ásamt þvíað beita réttri öndui eru tærnar, galli og belti sem skipt-ir litum eftir því hvernig gengur.“Þótt allir fjölskyldumeðlimirnir, fyrir utan frumburðinn sem hefur lagt stund á ballett, státi af svarta beltinu þá stafar lítil ógn af þeim dags daglega enda mikil áhersla lögð á að þeir sem æfi karate noti aldrei kunnáttuna nema undir við-urkenndum kringumstæðum. „Það er alltaf leiðinlegt fyrir karate-deildirnar að heyra af því að fólk noti karatespörk niðri í ber þu á Svarta beltið á línunaFyrir sex árum byrjaði fjölskylda ein í Grafarvogi að æfa karate og nú eru fjórir af fimm fjölskyldumeð- limum með svarta beltið. Hér áður fyrr þótti húsmóðurinni það afar fjarstæðukennd hugmynd. Fjölskyldan æfir oft í viku og hafa drengirnir sópað til sín verðlaunum í gegnum árin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI telpurS onuK r Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732jsb@jsb is • E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Markviss uppbygging og styrking fyrir líkamann. Sérstök áhersla lögð á miðjuna – kvið og bak. Hentar öllum aldurshópum og líkamsgerðum. Þú finnur strax árangur eftir fyrstu æfinguna án þess að reyna of mikið á þig. Lokuð 4 vikna námskeið. Kennt er 3x í viku 60 mínútur í senn.Í boði eru morgun-, hádegis- og síðdegisnámskeið.l Frjáls aðgangur að tímum í opna kerfinu og tækjasaltil 21. ágúst. Verð kr. 10.900. Barnagæsla - Leikland JSB Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi RopeYoga Staðurinn - Ræktin ÖLLUM NÁMSKEIÐUM FYLGIR OPIÐ KORT Í STÖÐINNI TIL 21. ÁGÚST Velkomin í okkar hóp! Innritun hafin á síðustu námskeiðfyrir sumarfrí! Sími 581 3730 Fundur í Leynilundi Útvarpsþátturinn Leynifélagið á Rás 1 hlýtur viðurkenn- ingu fyrir framlag til barnamenn- ingar á Íslandi. TÍMAMÓT 14 HARA-SYSTUR Hættar í Elektru Ætla að róa á önnur mið. FÓLK 26 Raunveruleika- stjörnur skilja Glysfyrirsætan Jordan og Peter Andre fara hvort í sína áttina. FÓLK 20 STEFÁN EIRÍKSSON Mikill aðdáandi Eurovision Minni áhugi á undanförnum árum. FÓLK 26 EUROVISION Samtök sem kalla sig OGAE og í eru allir Euro vision- aðdáendaklúbbar og þeir blaða- menn sem eru í Moskvu til að fylgjast með Eurovision-keppn- inni eru bjartsýnir á góðan árangur íslenska lagsins í und- anriðlinum. Þeir greiða atkvæði eftir hverja æfingu og sem stend- ur er lagið Is it True? í öðru sæti. Jóhanna Guðrún stígur á stóra sviðið í Moskvu í kvöld, tólfta í röð keppenda. - fgg/sjá síðu 26 Jóhanna Guðrún: Spáð öðru sæti SJÁVARÚTVEGSMÁL Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna skoðar skattlagningu á útflutn- ing á óunnum fiski. Markmiðið er að knýja á um frekari fullvinnslu hérlendis og skapa ný störf. Sjáv- arútvegsráðherra segir að eftir sé að útfæra hugmyndina. Hags- munaaðilar í sjávarútvegi vara við leiðinni. Í samstarfsyfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar segir um fiskveið- ar undir fyrirsögninni Brýnar aðgerðir: „Knýja á um frekari fullvinnslu afla hérlendis með því meðal annars að skoða hóf- legt útflutningsálag á fisk og/eða að óunninn afli verði settur á inn- lendan markað.“ Jón Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra segir það gefa auga leið að skapa þurfi fleiri störf og leita til þess allra leiða. Útfærsla hug- myndarinnar sé hins vegar eftir og ekki verið rætt hversu hár skatturinn gæti orðið. Jón vill ekki meina að boð eða bönn felist í hugmyndinni, og málið sé aðeins til skoðunar. „Þetta er stefnuyfir- lýsing en ekki ákvörðun,“ segir Jón. Sævar Gunnarsson, formað- ur Sjómannasambandsins, segir dæmið einfalt. Sambandið legg- ist alfarið gegn stýringu af þessu tagi. „Að sjálfsögðu á að hámarka þau verðmæti sem menn hafa á milli handanna hverju sinni.“ Sævar minnir á að takmarkanir á sölu afla á erlendan markað þýði aðeins eitt fyrir fjölda sjómanna: Launaskerðingu, og hana mikla hjá þeim útgerðum sem gera út á útflutning í gámum. Fyrri ríkisstjórn sömu flokka setti fram aðgerðaáætlun um atvinnusköpun í byrjun mars. Reiknaðist mönnum til að um 300 ársverk hið minnsta gætu skapast í landvinnslu ef fjórðungur þeirra 60 þúsund tonna af fiski sem flutt- ur er út óunninn á erlendan mark- að árlega, væri unninn innan- lands. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, efast um að skatturinn komist á. Hann minn- ir á að ferskfiskmarkaðir Íslend- inga í Evrópu séu verðmætir og byggðir upp á löngum tíma. „Þessir markaðir hafa reynst okkur vel og sérstaklega þegar að okkur kreppir.“ Friðrik segist vantrúaður á að ríkisstjórn þar sem Samfylkingin á hlut að máli setji á útflutningsálag á fisk, þar sem það brjóti gegn EES-samn- ingnum. - shá Sjómenn borga fyrir ný störf Ferskfiskmarkaðir gætu tapast ef hömlur verða settar á útflutning, að sögn útgerðarmanna. Sjómenn víða um land horfast í augu við mikla launalækkun verði boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar að veruleika. SÓL NORÐAUSTAN TIL Í dag verða SA 10-18 m/s á vestur- helmingi landsins, annars hægari. Léttskýjað norðaustan og austan til í dag annars skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 10-18 stig. VEÐUR 4 10 15 16 12 13 18 Hljóður hugur „Hann talaði blaðlaust og varð allt í einu magnað en kyrrlátt máttarvald“, segir Jónína Michels- dóttir. UMRÆÐA 12 NOREGUR Þrír létust í skotárás á Neseyju, rétt utan við Osló í Nor- egi, í gær. Talið er að karlmað- ur á sjötugsaldri hafi skotið tvær konur sem hann átti í nánu sam- bandi við og svipt sig svo lífi, að sögn norska ríkisútvarpsins, NRK. Þremenningarnir bjuggu allir á Neseyju. Konurnar tvær fundust látnar utandyra en maðurinn innandyra í bátshúsi. Lögreglan hefur ekki viljað gefa nánari upplýsingar um atvikið. - ghs Morð í Noregi: Þrír létust í skotárás SKOKKAÐ Á LAUFÁSVEGINUM Vaskur hópur skokkara lét rigningu og smá rok engin áhrif hafa á sig þótt vísast hafi hlaupararnir óskað eftir ögn betra veðri. Í dag munu þeir allavega vera lausir við rigninguna en enn er gert ráð fyrir töluverðum vindi. Það mun þó lægja á miðvikudaginn og þá verður hitinn kominn í tveggja stafa tölu um mest allt land. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNMÁL Fyrsti ríkisstjórnarfundur nýrrar stjórn- ar verður haldinn í bæjarstjórnarsalnum í Ráðhús- inu á Akureyri í dag. Ríkisstjórnarfundur hefur ekki áður verið haldinn utan höfuðborgarinnar eða Þingvalla, eftir því sem næst verður komist. Samkvæmt tilmælum frá almannavarnarráði skulu helst ekki fleiri en fjórir ráðherrar ferðast í sömu flugvél og því verða ráðherrarnir ferjaðir til og frá Akureyri í alls sex ferðum. Þeir munu þó allir ferðast með áætlunarflugi. Nokkrir fóru í gær- kvöldi og aðrir fara með tveimur vélum í dag. Auk ráðherranna verður ritari ríkisstjórnarinnar með í för. Þótt ríkisstjórnarfundir séu ekki daglegt brauð á Akureyri mun lögreglan ekki grípa til sérstakra ráðstafana vegna fundarins, að sögn Daníels Guð- jónssonar yfirlögregluþjóns. Fundurinn hefst á hádegi og munu forsvarsmenn stjórnarinnar svara spurningum blaðamanna síðar um daginn. - sh Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar verður haldinn á Akureyri í dag: Ráðherrar norður í þremur ferðum Unnu aftur meistarana Keflvíkingar unnu FH í gær og byrja sumarið alveg eins og í fyrra. ÍÞRÓTTIR 22

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.