Fréttablaðið - 12.05.2009, Side 2
2 12. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
DÓMSMÁL Héraðsdómur hefur
sýknað íslenska ríkið af kröfu
Friðriks Más Jónssonar flugum-
ferðarstjóra. Hann vildi að við-
urkennd yrði bótaábyrgð ríkisins
vegna árásar sem Friðrik og fleiri
urðu fyrir í Kabúl í Afganistan í
október árið 2004.
Friðrik slasaðist lítillega í
árásinni í Kjúklingastræti, sem
grandaði þremur; árásarmannin-
um, ellefu ára afganskri stúlku og
bandarískri konu. Friðrik hefur
hins vegar þjáðst af áfallastreitu-
röskun síðan og verið óvinnufær.
Friðrik var staddur í Kjúklinga-
stræti daginn örlagaríka ásamt
yfirmanni sínum og sex starfs-
mönnum friðargæslunnar og flug-
vallarins. Ferðin var farin að und-
irlagi yfirmannsins, Hallgríms
Sigurðssonar, sem vildi kaupa sér
handunnið afganskt teppi til minn-
ingar um dvölina.
Friðrik byggði stefnu sína á
því að hvorki hann né samstarfs-
menn hans hafi fengið þjálfun eða
fræðslu um hermennsku eða við-
brögð við hættuástandi. Hann hafi
farið í ferðina yfirmanni sínum til
fulltingis og því verið við skyldu-
störf. Yfirmaðurinn hafi enn frem-
ur vanmetið aðstæður.
Dómurinn kemst að þeirri nið-
urstöðu að árásin hafi verið alls
ófyrirséð og megi ekki rekja til
vanmats á aðstæðum. Enn fremur
hafi Friðrik farið í ferðina á eigin
forsendum og ábyrgð. Dómnum
verður líklega áfrýjað. - sh
María Björk, brá þér ekki
gasalega?
„Nei, ég svaf nú bara í gegnum
þetta.“
María Björk Sverrisdóttir, umboðsmaður
Eurovision-hetjunnar Jóhönnu Guðrúnar,
svaf á sínu græna eyra þegar gasleiðsla
sprakk í nágrenni við Eurovision-svæðið
í Moskvu aðfaranótt laugardags. Enginn
slasaðist í sprengingunni.
Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is
-5kr.
við fyrstu no
tkun
TB
W
A
\R
EY
K
JA
VÍ
K
\
SÍ
A
og síðan alltaf 2 kr. ásamt
Vildarpunktum með ÓB-lyklinum
VINNUMARKAÐUR „Við erum sjö sem
búum hérna í bátnum. Við höfum
enga peninga fengið í fimm vikur,
og ekki fengið hlut greiddan frá jan-
úar og fram í apríl,“ segir Jan Hurko
sjómaður. Þeir hafi til dæmis ekkert
fengið í mars, þegar báturinn hafi
landað 186 tonnum í Sandgerði.
Jan býr í bátnum Óskar RE-157,
sem liggur við bryggju í Keflavík-
urhöfn. Hann segir hóp sjö Pólverja
hafa starfað þar meira og minna
í eitt og hálft ár, og þar áður í eitt
og hálft ár til viðbótar á öðru skipi
sama útgerðarmanns.
Nú sé ekki siglt og mennirnir
því peningalausir strandaglópar.
Þeir hafi fengið
matarmiða hjá
félagsmálayfir-
völdum í Reykja-
nesbæ, en nú sé
drykkjarvatn í
bátnum uppurið.
Sæmund-
ur Árelíusson
útgerðarmaður
segist einung-
is skulda mönn-
unum laun fyrir hálfan mánuð.
Hann afhenti blaðamanni ljósrit af
útprenti úr heimabanka. Þau gefa til
kynna að hann hafi millifært laun
inn á reikninga mannanna, í mars og
8. og 30. apríl. „Millifærslan hefur
verið framkvæmd“ stendur á einu
ljósritinu, um staka greiðslu upp á
35.000 krónur.
„Það getur vel verið að mánuður-
inn [mars] hafi verið 186 tonn. Það
er þannig að menn fá 35.000 krón-
ur á viku og svo mánuðinn á undan
uppgerðan 15. næsta mánaðar, hafi
fiskurinn verið meiri en tryggingin,“
segir Sæmundur. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Fiskistofu voru það 196
tonn. Mennirnir hafa ekki fengið
hlut greiddan af því.
Mennirnir segja útgerðarmanninn
hafa hótað að henda þeim úr bátn-
um, en þeir eigi hvorki fyrir hús-
næði né farmiða heim. Sæmundur
sjálfur segist hafa boðist til að borga
mönnunum það sem hann skuldar
þeim fram í apríl, gegn því að þeir
sigldu áfram fyrir hann. „Og þeir
vildu það ekki, og ég sagði þeim að
þetta væri ekki hótel. [...] Þeir telja
það hlunnindi að hafa frítt húsnæði,
þegar aðrir þurfa að borga. Það er
allt þarna um borð,“ segir Sæmund-
ur. Hann ætli ekki að henda þeim út,
og viti ekki til þess að vatn skorti um
borð. Hann muni þá bjarga því.
Jónas Þór Jónasson, lögmaður
skipverjanna, segir einnig að átt hafi
að henda þeim úr bátnum. Þeir þurfi
að leita til Ábyrgðasjóðs launa, því
útgerðin sé á leið í þrot. Þá fái þeir
ekki laun fyrr en síðar á árinu. Þang-
að til séu þeir peninga- og vandalaus-
ir á landinu. „Og mig grunar að hann
hafi ekki borgað þeim rétt fiskverð,“
segir Jónas.
Skipstjóri mannanna, Sævar
Ólafsson, segist hættur á bátnum
„vegna vanefnda útgerðarmanns“.
Pólsku skipverjana segir hann vera
„fínustu menn“, þótt rétt sé, sem
Sæmundur segir, að þeir hafi eitt
sinn fengið sér of mikið neðan í því
til að sigla.
Á bátnum hafi verið stöðugar deil-
ur út af peningum „og ég fékk ekk-
ert heldur í restina“, segir Sævar.
klemens@frettabladid.is
Sjómenn vilja laun
og drykkjarvatn
Sæmundur Árelíusson útgerðarmaður á í deilu við sjö sjómenn og skipstjóra
þeirra og skuldar þeim laun. Sjómennirnir segjast lifa á matarmiðum frá félags-
málayfirvöldum. Sæmundur sagður hafa ætlað að henda mönnunum út.
JAN HURKO
ÁHÖFNIN Á ÓSKARI RE-157 Segjast vera strandaglópar í Keflavík og ekki fá laun sín
greidd. MYND/VÍKURFRÉTTIR
VIÐSKIPTI „Það er alltaf vandamál
hvað telst eitt mál og hvað tvö,“
segir Ólaf-
ur Þór Hauks-
son, sérstak-
ur saksóknari,
um bankahrun-
ið. Hann segir
hvert mál geta
kvíslast í fleiri
mál og þurfi
að skoða hvert
um sig gaum-
gæfilega. Því sé
erfitt að henda
reiður á eiginlegum fjölda mála
sem séu til rannsóknar frá Fjár-
málaeftirlitinu.
FME hefur sent sérstöku emb-
ætti saksóknara tíu mál til rann-
sóknar. Þau fjalla um allt frá
gruni um innherjasvik, markaðs-
misnotkun, ranga skýrslugjöf til
FME og ábendingar um meinta
slæma viðskiptahætti. Fimm mál
til viðbótar eru á lokastigi hjá
FME og er gert ráð fyrir að þeim
verði vísað til embættis sérstaks
saksóknara á næstu vikum. - jab
Saksóknari skoðar tíu mál:
FME sendir
fimm fljótlega
ÓLAFUR ÞÓR
HAUKSSON
DÓMSMÁL Héraðsdómur hefur
framlengt gæsluvarðhald yfir
þremur mönnum sem handteknir
voru á Austfjörðum 19. apríl grun-
aðir um að hafa reynt að smygla
til landsins yfir 100 kílóum af
fíkniefnum í skútu.
Tveir mannanna, Jónas Árni
Lúðvíksson og Pétur Kúld Péturs-
son, voru úrskurðaðir í varðhald
til 2. júní, en Halldór Hlíðar Berg-
mundsson til 29. maí.
Þrír menn, Rúnar Þór Róberts-
son, Árni Hrafn Ásbjörnsson og
Hollendingur á fimmtugsaldri
voru handteknir á skútunni á
flótta út úr landhelginni. Varðhald
yfir þeim rennur út á morgun. - sh
Stærsta smyglmál sögunnar:
Skútusmyglarar
áfram í haldi
Friðrik Már Jónsson fór á eigin ábyrgð í örlagaríkan teppaleiðangur í Kabúl:
Ríkið sýknað í Kjúklingastrætismáli
REYKJANESBÆR Fólk safnaðist saman á gistiheimil-
inu Fit í Reykjanesbæ í gærmorgun til að mótmæla
því að stjórnvöld bregðist ekki við hungurverkfalli
Alsírmannsins Mansri Hichem og skeytingarleysi
stjórnvalda þegar mannréttindi og velferð flótta-
manna eru annars vegar.
Mansri Hichem hefur beðið í tvö ár eftir svari við
umsókn sinni um hæli hér á landi og hefur nú verið í
hungurverkfalli í 21 sólarhring. Ástand hans er lífs-
hættulegt, innri líffæri farin að skemmast og verkir
í hjarta og nýrum. Mansri er hættur að geta stað-
ið uppréttur. Linda Magnúsdóttir sjúkraliði segir
að vakað sé yfir Mansri en félagar hans hafi mikl-
ar áhyggjur af honum. Þeir eigi mjög erfitt með að
horfa upp á það hvað honum líður illa. Mansri hafi
hrakað meira og hraðar en búist hefði mátt við.
„Hann getur bara hvíslað og dettur út þegar
maður talar við hann. Hann er með fullri meðvitund
en honum hrakar hratt. Strákarnir á gistiheimilinu
eru að missa vonina um að það verði eitthvað gert
svo að nú ætla þeir að fara í hungurverkfall, líklega
fyrir framan alþingishúsið, ef ekki berst svar frá
stjórnvöldum,“ segir Linda. Jórunn Edda Helga-
dóttir, ein af talsmönnum mótmælenda, telur að
mannréttindi, ákvæði alþjóðasamninga og landslög
séu brotin á Mansri og félögum hans og spyr hvort
það sé það sem búast megi við af ríkisstjórn sem
kenni sig við mannúð og mannréttindi.
Rauði krossinn og félagsmálayfirvöld í Reykja-
nesbæ fylgjast með hungurverkfallinu. - ghs
MÓTMÆLA Fólk safnaðist saman á gistiheimilinu Fit í Reykja-
nesbæ til að mótmæla því að stjórnvöld bregðist ekki við
hungurverkfalli Mansri Hichem. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
Mótmæli voru í gistiheimilinu Fit í Reykjanesbæ í gærmorgun:
Ástandið orðið lífshættulegt
ÁRÁSIN Í KABÚL
Ferðin í Kjúklingastræti var farin
til þess að flugvallarstjórinn gæti
keypt sér teppi. Farin var skoðunar-
ferð í götuna til að meta aðstæður
og tryggt að teppin yrðu reiðubúin
til skoðunar þegar hópurinn kæmi
á staðinn. Stoppið varð þó lengra
en við var búist. Klukkustund eftir
komuna voru þrjár handsprengjur
sprengdar. Þrír létust og nokkrir
særðust.
JERÚSALEM, AP Benedikt XVI. páfi
lét það verða sitt fyrsta verk við
komuna til Jerúsalem í gær að
lýsa yfir stuðningi sínum við
stofnun sjálfstæðs ríkis Palest-
ínumanna.
Nýja ríkisstjórnin í Ísrael, sem
Benjamin Netanjahu veitir for-
stöðu, er á öndverðum meiði og
segist engan áhuga hafa á stofn-
un Palestínuríkis. Páfinn hefur
verið á ferð um Mið-Austurlönd.
Næstu fjóra dagana ætlar hann
að ferðast um Ísrael og herteknu
svæðin. Tilgangur ferðarinnar er
að bæta samskiptin við bæði mús-
lima og gyðinga. - gb
Páfinn í Jerúsalem:
Lýsir stuðningi
við Palestínu
BENEDIKT PÁFI Vindurinn greip í taum-
ana og feykti páfahempunni yfir höfuð
honum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Decode, móðurfé-
lag Íslenskrar erfðagreiningar,
tapaði tæplega 1,6 milljörðum
króna, eða um 12,6 milljónum
Bandaríkjadala, á fyrsta fjórð-
ungi þessa árs. Félagið tapaði
26,7 milljónum dollara á fyrsta
ársfjórðungi í fyrra. Það er jafn-
virði um 3,4 milljarða króna.
Tekjur Decode námu 8,9 millj-
ónum Bandaríkjadala á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs og er það
rúmlega fimm milljónum dollara
minna en á fyrsta ársfjórðungi í
fyrra. Handbært fé Decode var
12,7 milljónir dala. - ghs
Dregur úr tapi Decode:
Félagið tapaði
1,6 milljörðum
VIÐSKIPTI Skilanefnd Landsbank-
ans segir að 2,6 prósenta hlutur
í Byr sparisjóði hafi ekki verið
seldur einkahlutafélagi rétt fyrir
aðalfund líkt og fullyrt var í frétt-
um Stöðvar 2 í gær. Lárus Finn-
bogason, formaður skilanefndar-
innar, er endurskoðandi félagsins.
Enn fremur sagði að stofnfjár-
eigendur teldu margt benda til
þess að salan hafi verið fram-
kvæmd til að Landsbankinn gæti
fullnýtt atkvæðisrétt sinn á aðal-
fundinum – en engum er heimilt
að fara með meira en fimm pró-
sent atkvæða. Skilanefndin segist
aldrei hafa samþykkt kaupin og
þau því aldrei gengið í gegn. - sh
Skilanefnd sendir yfirlýsingu:
Segjast ekki
hafa selt í Byr
SPURNING DAGSINS