Fréttablaðið - 12.05.2009, Síða 14

Fréttablaðið - 12.05.2009, Síða 14
 12. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR KATHERINE HEPBURN (1907- 2003) FÆDDIST ÞENNAN DAG „Ef þú vilt fórna aðdáun margra manna fyrir gagn- rýni eins manns, gerðu svo vel, giftu þig.“ Leikkonan Katherine Hepburn var tólf sinnum tilnefnd til Óskarsverðlauna og hlaut þau í fjögur skipti. Á þessum degi árið 1937 voru Georg VI. og eiginkona hans Elísa- bet krýnd konungur og drottning Bretlands. Krýningarathöfnin fór fram í Westminister Abbey í Lund- únum. Georg var næstelsti sonur Georgs V. konungs en eldri bróðir hans, Játvarður VIII., afsalaði sér konung- stigninni 11. desember árið 1936. Það gerði hann vegna mikillar gagnrýni á samband hans við hina fráskildu bandarísku konu, Wall- is Warfield Simpson, en Játvarður hugðist giftast henni. Georg VI. veiktist árið 1949. Þrátt fyrir veikindi sín hélt hann áfram að sinna skyldum sínum til dauðadags árið 1952. Dóttir hans, Elísa- bet, var krýnd drottning í júní árið 1953. ÞETTA GERÐIST 12. MAÍ 1937 Georg VI. krýndur GEORG VI timamot@frettabladid.is Ástkær eiginkona mín,móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Þorbirna Jakobsdóttir Gránufélagsgötu 22, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar laugardaginn 2. maí, útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Marteinn Tryggvi Sigurólason Siguróli R. Marteinsson Sigfríð Friðbergsdóttir Marteinn Tryggvi Sigurólason Björgvin Þór Sigurólason Anna Kristín Sigursteinsdóttir Eyþór Árni Sigurólason Alda Ósk Hauksdóttir og barnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kári Þórir Kárason múrarameistari, Presthúsum, Vestmannaeyjum, síðast til heimilis í Hlíðarhúsum 1-3, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni sunnudagsins 10. maí. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 15. maí kl. 15.00. Anna J. Eiríksdóttir Þórunn Káradóttir Hvasshovd Stein Hvasshovd Aðalsteinn F. Kárason Bergþór N. Kárason Guðríður Jónsdóttir Berglind A. Káradóttir Sigurður H. Árnason Ragnheiður S. Káradóttir Pálmi Þ. Ívarsson barnabörn og barnabarnabörn. Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eig- inmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Halldórs S. Rafnar fyrrv. borgarfógeta og formanns Blindrafélagsins. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Eirar fyrir að annast hann af alúð og hlýju síðustu æviárin. Þorbjörg J. Rafnar Ásthildur S. Rafnar Þorsteinn Ólafsson Jónína Þ. Rafnar Guðmundur Þorgrímsson Andrea Þ. Rafnar Einar Þór Þórhallsson afabörn og langafabörn. Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Helgi H. Árnason verkfræðingur, Laugarásvegi 63, lést fimmtudaginn 7. maí. Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 18. maí kl. 15.00. Bryndís Þorsteinsdóttir Dagný Helgadóttir Gunnar H. Egilsson Árni Helgason Rósa G. Jónsdóttir Guðrún Helgadóttir Atli Rúnar Halldórsson Þorsteinn Helgason Jónína Á. Steingrímsdóttir afa- og langafabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Hallgrímur H. Einarsson Barðavogi 7, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 10. maí 2009. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristbjörg Vilhjálmsdóttir Vilhjálmur Hallgrímsson Inga Kolbrún Hjartardóttir Sigríður Rut Hallgrímsdóttir Páll Arnórsson Anna Sigurlín Hallgrímsdóttir afabörn og langafabarn. Maðurinn minn, faðir, fósturfaðir, tengda- faðir og afi, Níels Þórarinsson Klettahrauni 6, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi Hafnarfirði, hinn 6. maí 2009. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 14. maí 2009 kl. 15.00. Anna Erlendsdóttir Steina B. Níelsdóttir Gunnar Níelsson Hafdís Erla Gunnarsdóttir Anna Lilja Dögg Gunnarsdóttir Víglundur Þorsteinsson Svava Theodórsdóttir Lovísa María. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafað- ir, afi og langafi, Jónas Finnbogason frá Harðbak, andaðist á Sjúkrahúsinu á Húsavík hinn 9. maí. Jarðarförin fer fram frá Raufarhafnarkirkju, laugardag- inn 16. maí nk. kl. 14.00. Hólmfríður Friðgeirsdóttir Vilmundur Þór Jónasson Valgeir Jónasson Kristín Böðvarsdóttir Gunnar Finnbogi Jónasson Þórhildur Þorgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Það marrar í gólfi, ískrar í hjörum og lag Bleika pardussins hljómar í bakgrunni. „Hvert er leyniorðið?“ er hvíslað dularfullri röddu. Þannig hefst barnaþátturinn Leynifélagið á Rás 1 sem er á dagskrá alla virka daga nema fimmtudaga klukkan 20. Í Leynifélaginu ráða ríkjum þær Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir og hafa þær stýrt fundum í félaginu í tæp tvö ár við góðan orðstír. Félagið Börn og bækur - Íslandsdeild IBBY hefur enda ákveð- ið að veita þeim viðurkenninguna Vor- vinda 2009 fyrir framlag þeirra til barnamenningar á Íslandi. Þau verð- laun hafa verið veitt árlega frá árinu 1987. „Hugmyndin að Leynifélaginu vaknaði með mér þegar ég fór á sýn- ingu á leikritinu Abbababb en þar gengur allt út á leynifélög,“ útskýrir Brynhildur. Markhópur þáttarins eru börn á aldrinum sex til tíu ára. „Við vitum þó um krakka frá fjögurra ára til hundrað ára sem hlusta á okkur,“ bætir hún við hlæjandi. Kristín Eva útskýrir hvað gerist í Leynifélaginu: „Við höldum fundi í Leynilundi, félagsheimili Leyni- félagsins, fjórum sinnum í viku og segjum frá ýmsu sem krökkum þykir áhugavert. Við fléttum þarna hefð- bundið þáttaform útvarpsins saman við ímyndaðan heim.“ Þess má geta að allir sem hlusta á Leynifélagið eru sjálfkrafa meðlimir. „En við mælum með að fullorðnir hlusti í fylgd með börnum,“ segir Brynhildur glettin. Í Leynifélaginu reyna þær Bryn- hildur og Kristín Eva að fjalla um sitt lítið af hverju því sem krakk- ar aðhafast, auk þess sem þær hafa nokkra unga fréttaritara á sínum snærum sem taka fyrir þær viðtöl. Þær telja enda mikilvægt að radd- ir barna heyrist í útvarpi. Um tvisv- ar í viku eru þær svo með fróðleiks- þætti um allt milli himins og jarðar enda viðurkenna þær að hafa sjálfar verið hálfgerðir nördar á yngri árum. „Við vitum til þess að þessir þættir hafa verið notaðir í kennslu,“ upplýs- ir Brynhildur. En hlusta börn á útvarp í dag? „Já, við viljum meina það, enda hafa börn alltaf haft gaman af því að hlusta á sögur,“ segir Kristín Eva og telur að það höfði allt öðruvísi til ímyndunar- aflsins að hlusta en að horfa á sjón- varp eða tölvuleiki. „Þegar fólk hlust- ar býr það sjálft til sínar eigin mynd- ir í huganum,“ segir Kristín Eva en Leynifélagið fær fjölda bréfa og sögur frá ánægðum börnum alls staðar að af landinu. „Áskorunin er auðvitað að fá krakka að útvarpinu,“ segir Brynhildur. Hluti af því er einnig að höfða til foreldr- anna enda eru það yfirleitt þeir sem kveikja á útvarpinu fyrir börnin. Leynifélagið er á dagskrá á svipuð- um tíma og mörg börn eru að tygja sig í háttinn. Þær Brynhildur og Krist- ín Eva hafa það í huga. „Við reynum að vera skemmtilegar og fræðandi en gera það á rólegan og vandaðan hátt. Auðvitað erum við stundum með fíflalæti en við reynum að gæta jafn- vægis enda liggja mörg barnanna og hlusta áður en þau fara að sofa,“ segir Kristín Eva og minnir á að hægt sé að hlaða þáttunum niður á www.ruv.is til að hlusta síðar eða hlaða þeim inn á iPod fyrir börnin til að hlusta á, til dæmis í löngum bílferðum. Þær eru inntar eftir því hvaða þýð- ingu viðurkenningin Vorvindar hafi fyrir þær. „Þetta er staðfesting á því að við séum á réttri leið,“ segir Krist- ín Eva og Brynhildur bætir við: „Það veitir okkur einnig heilmikið aðhald að vita að fólk sem hefur áhuga á barna- menningu hlustar á okkur og þá leyf- um við okkur ekki að slaka á og slá af kröfunum.“ Þær stöllur eru sérlega áhugasamar um starf sitt og leggja mikinn metnað í að vanda til verka enda hafa þær fyrsta flokks hlustendur að eigin mati. „Þetta er alveg hrikalega skemmtilega vinna,“ segir Kristín Eva. „Já, skemmtilegasta vinna sem við höfum verið í,“ bætir Brynhildur við. Og með þeim orðum eru þær roknar í Leynilund að halda næsta fund. solveig@frettabladid.is ÚTVARPSÞÁTTURINN LEYNIFÉLAGIÐ: HLÝTUR VORVINDA Velkomin á fund í Leynilundi Í LEYNILUNDI Þær Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir stjórna þættinum Leyni- félaginu á Rás 1 og hafa hlotið viðurkenninguna Vorvinda fyrir framlag til barnamenningar. Aðrir vinningshafar eru Jónína Leósdóttir og Halldór Á. Elvarsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.