Fréttablaðið - 12.05.2009, Side 16
12. maí 2009 ÞRIÐJUDAG-
UR
2
Heilsumeistaraskólinn er frekar nýr
af nálinni á Íslandi. „Upphaflega
var skólinn stofnaður fyrir tveim-
ur árum í samstarfi við bandaríska
skólann School of Natural Med-
icine en gekk í vetur í endurnýj-
un lífdaga,“ segir Lilja Oddsdóttir,
lithimnufræðingur og skólastjóri
Heilsumeistaraskólans. „Við vorum
með mikla samninga í erlendri mynt
sem kollsteyptu okkur og upp úr
því stofnuðum við íslenskan skóla
þannig að Heilsumeistaraskólinn
er nú nánast alveg nýr þó svo meg-
inramminn og innihald námsins sé
sambærilegt.“
Námið byggist á náttúrulækning-
um á þremur meginsviðum. „Þau
eru augnfræði þar sem kennd er
lithimnugreining, hvítugreining
og persónuleikalithimnugrein-
ing. Síðan eru alþýðugrasalækn-
ingar og loks alþýðunáttúrulækn-
ingar,“ útskýrir Lilja. „Augun eru
eins og kort líkt og fóturinn og
tengjast öllum líkamanum. Í lit-
himnunni er allur líkaminn kort-
lagður en þessi fræði eru að hluta
til ævagömul frá Kína en voru end-
urvakin á átjándu öld af læknum
sem hófu að kortleggja augu sjúk-
linga sinna. Hvítan sýnir hvað er að
gerast í núinu á meðan lithimnan
sýnir meira hvernig fólk er að upp-
lagi. Augnfræðin er aðalgreining-
arleið okkar og fara allir nemend-
ur í gegnum djúpt prógramm með
sjálfa sig,“ segir Lilja áhugasöm
en hún útskrifaðist árið 2000 sem
lithimnufræðingur en fyrir þrem-
ur árum bætti hún við sig hvítu-
greiningu. „Í raun er ótrúlegt hvað
er hægt að sjá en við vinnum ekki
eins og læknar út frá sjúkdómum.
Við vinnum meira með manneskj-
una sem heild og skoðum hvað er
á bak við sjúkdóma. Grunnurinn í
náttúrulækningum er að finna jafn-
vægið því veikindi eru í raun ójafn-
vægi á einhverju sviði. Augnfræðin
eru stór partur af því og við erum
með mjög góða og viðurkennda
kennara sem hafa stundað rann-
sóknir erlendis.“
Mikið er af verkefnum og kennt
er að meðaltali fjóra daga annan
hvern mánuð. „Hægt er að stunda
námið með vinnu og því lýkur með
heilsumeistaradiplóma, Natur-
opat Diploma, sem er viðurkennt
á alþjóðavísu,“ segir Lilja en bætir
við að námið sé þó nýtt af nálinni á
Íslandi og muni eflaust styrkjast í
tímans rás. Hægt er að nálgast frek-
ari upplýsingar á vefsíðunni heilsu-
meistaraskolinn.com en kynning
verður á náminu 28. maí næstkom-
andi í World Class í Laugum klukk-
an 16. hrefna@frettabladid.is
Nýr Heilsumeistaraskóli
Heilsumeistaraskólinn var upphaflega stofnaður fyrir tveimur árum en hefur nú gengið í endurnýjun
lífdaga. Lilja Oddsdóttir skólastjóri segir námið byggjast á náttúrulækningum á þremur sviðum.
Lilja Oddsdóttir, skólastjóri Heilsumeistaraskólans, verður með kynningu á námi
skólans 28. maí næstkomandi í World Class í Laugum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SÁRAMIÐSTÖÐ hefur verið opnuð á Landspítala Fossvogi. Miðstöðin er
ætluð til greiningar og ráðgjafar við meðferð langvinnra sára. Þekkingu á sár-
græðslu hefur fleygt fram á síðustu árum. Markviss sárameðferð sem byggist
á réttri greiningu flýtir bata, dregur úr kostnaði og getur aukið lífsgæði fólks.
Dr. Natasha Campbell skrifaði bókina “Meltingarvegurinn
og geðheilsan” eftir að hafa náð undraverðum árangri
með breyttu mataræði og notkun bætiefna fyrir son
hennar sem var greindur með alvarlega einhverfu. Reynsla
hennar hefur sýnt að mataræði er mjög mikilvægur
þáttur í að hjálpa börnum og fullorðnum með andlega
kvilla og hefur hún unnið mikið frumkvöðlastarf varðandi
notkun póbíótískra bætiefna við meðferð á andlegum
vandamálum. Fyrirlesturinn er almennur og ætti að
gagnast öllum sem áhuga hafa á að borða sér til bata.
Dr. Natasha Campbell-McBride
heldur 2 fyrirlestra í Bíósalnum
á Hótel Loftleiðum, þriðjudaginn
19. maí kl. 18.00 og kl. 20.00.
Aðgangseyrir kr.1000,- Skráning á netfanginu:
johannamjöll@simnet.is. Fyrirlesturinn fer fram á ensku
Dr. Campbell-McBride er læknismenntuð með
sérmenntun í næringarfræði og taugasjúkdómafræði
og sérhæfð í næringarfræði fyrir fullorðna með
meltingar- og ónæmissjúkdóma.
Næstu fyrirlestrar og námskeið
12. maí Góð heilsa er auðveldari en þú heldur
Matti Ósvald heilsufræðingur
19. maí Læsi á eigin líðan
Bjargey Aðalsteinsdóttir íþróttafræðingur
23. maí Hláturjóga með jákvæðu styrkjandi
ívafi
Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari
26. maí Erum við andleg og líkamleg eiturefna-
úrgangs-ruslaskrímsli?
Edda Björgvins leikkona
www.madurlifandi.is
Staðurinn - Ræktin
telpurS onuK r
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732
jsb@jsb.is • www.jsb.is
Ekkert lát hefur verið á aðsókn í TT aðhaldsnámskeiðin
og er okkur því ánægja að bjóða þessa tíma sem henta sérlega vel heimavinnandi mæðrum.
TT tímar sem eru í boði til 21. ágúst:
6:15 – mán, mið, fös
10:15 – mán, mið, fös - Barnapössun
12:05 – mán, mið, fös - Barnapössun
16:40 – mán, mið, fim - Barnapössun
17:40 – mán, mið, fim - Barnapössun
Lokuð 5 vikna námskeið 3x í viku. Verð kr. 19.900.
Velkomin í okkar hóp!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
Innritun hafin á síðustu
TT námskeiðin
fyrir sumarfrí! Sími 581 3730
ÖLLUM
NÁMSKEIÐUM
FYLGIR OPIÐ KORT
Í STÖÐINNI TIL
21. ÁGÚST
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...