Fréttablaðið - 12.05.2009, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 12.05.2009, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 12. maí 2009 19 Sviðslistamaðurinn Kristj- án Ingimarsson er kominn aftur heim til Íslands með eina af sínum óborganlegu leiksýningum og verður með nokkrar sýningar á um klukkustundarlöngu verki í vikunni. Fyrsta sýning á Skepnunni eða Creature verður á fimmtudags- kvöld. það er Neander-leikhúsið í Kaupmannahöfn sem sýnir verk- ið hér í boði Þjóðleikhússins. Í til- kynningu frá leikhúsinu er Skepnan sögð „kolklikkaður og bráðfynd- inn leikhúskonsert“ um sköpunar- þörf manneskjunnar og þörf henn- ar fyrir að setja sjálfa sig á svið. Þetta er án efa persónulegasta sýn- ing Kristjáns til þessa, þar sem hann kannar ýmis landamæri með aðferðum spunans og kemur okkur stöðugt á óvart. Bygging sýningar- innar vísar til þess hvernig hljómd- iskur eða tónleikar eru byggðir upp, þar sem hvert lag getur stað- ið sjálfstætt, en þegar lögin eru öll komin saman mynda þau eina heild. Creature samanstendur þannig af sjö „líkamlegum söngvum“, ófyrir- sjáanlegri og áhrifamikilli blöndu af teknó- og óperutónlist, blikk- ljósum og „áhorfendabrettastökk- um“! Kristján stendur á sviðinu ásamt listamanninum Svend E. Kristensen en þeir íklæðast bún- ingum eftir tískuhönnuðinn Önju Vang Kragh, en þeir eru stór part- ur af upplifuninni. Gestaleikurinn CREATURE var frumfluttur í Husets Teater í Kaup- mannahöfn. Kristján Ingimarsson er íslenskum leikhúsgestum að góðu kunnur en hér á landi hefur hann flutt nokkur verka sinna og tekið þátt í íslenskum uppákom- um. Það eru áhorfendurnir einn- ig en þeir eru eindregið hvattir til þess að taka með sér myndavélar á sýninguna, smella af og skrá- setja þannig sýninguna með sínum hætti. pbb@frettabladid.is SKEPNAN SKRÍÐUR Á SVIÐ Nokkuð er liðið frá fyrstu hrinu vorsýninga dansskólanna þar sem ungir dansarar reyna að leysa þá þraut sómasamlega að skila árangri vetrarins í öguðum dansi á örfáum mínútum frammi fyrir áhorfendum. Núna eru fram undan tvær nemendasýningar: Klassíski listdansskólinn heldur útskriftar- sýningu í Borgarleikhúsinu þriðju- daginn 12. maí kl. 20. Skólinn hefur verið starfræktur í fimmtán ár en útskrifar nú fyrsta nemendahóp sinn af framhalds- braut. Tvær framhaldsbrautir eru við skólann, klassísk listdansbraut og nútíma listdansbraut. Boðið verður upp á klassísk verk, neo-klassísk og nútímadans- verk. Nemendur sýna dansverk samin í samvinnu við danshöfund, endursköpun þekktra dansverka, dansverk samin af nemendunum sjálfum, vídeóverk, ljósmyndainn- setningu og rannsóknarkynningu. Miðasala er í Borgarleikhúsinu. Á fimmtudag verður svo frum- sýning á lokaverkefni fyrstu nem- enda Listaháskólans sem útskrif- ast með sveinsprófið - BA - en þau eru fimm. Það er samið sérstak- lega fyrir hópinn og verður frum- sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsi. Verk- ið semur Tony Vezich og kallar hann verkið Deadhead´s Lament. - pbb Dansaranna dáð eftir nám LISTDANS Nemendur í Klassíska list- dansskólanum. MYND KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN Mallorca 62% 40% Fréttablaðið stendur upp úr Allt sem þú þarft... ... 44% 73% 12–80 ára 34% 74% 18–49 ára Lestur á höfuðborgarsvæðinu Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup ótvírætt sýnir. Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum góða árangri og bendum auglýsendum á að notfæra sér forskot okkar þegar þeir velja auglýsingamiðil. Meðallestur á tölublað m.v. allt landið, 12–80 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 - apríl 2009. SKEPNAN Óborganleg leiksýning Kristjáns Ingimarssonar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.